Morgunblaðið - 03.10.2002, Qupperneq 58
DAGBÓK
58 FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Nord-
ic Frost og Ryoei Maru
no. 38 koma í dag. Detti-
foss og Helgafell fara í
dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Vysokovsk kemur í dag.
Selfoss fór í gær frá
Straumsvík.
Mannamót
Aflagrandi 40. Vinnu-
stofa, baðþjónusta og
jóga kl. 9, boccia kl.10,
myndmennt kl. 13.
Kynning eftir hádegi á
morgun, m.a. verður
sýnd beinþéttnimæling,
kaffiveitingar. Bíóferð
að sjá Hafið verður farin
mánud. 7. okt. Rútuferð
kl. 12.45. Skráning í af-
greiðslu s. 562 2571.
Árskógar 4. Kl. 9–12
baðþjónusta og opin
handavinnustofa, kl. 9–
12.30 bókband og öskju-
gerð, kl. 9.45–10 helgi-
stund, kl. 10.15 leikfimi,
kl. 11 boccia, kl. 13–16.30
opin smíða- og handa-
vinnustofa, kl. 10–16
pútt. Sviðaveisla verður
11. okt. Sigvaldi byrjar
að kenna dans 15. okt.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8–
16 hárgreiðsla, kl. 8.30–
14.30 böðun, kl. 9–9.45
leikfimi, kl. 9–12 mynd-
list, kl. 9–16 handavinna,
kl. 9–17 fótaaðgerð, kl.
13 bókband. Haustfagn-
aður verður fimmtud. 17.
okt. Hlaðborð, salurinn
opnaður kl. 16.30. Dag-
skráin hefst með borð-
haldi kl. 17. Strætókór-
inn syngur, Ragnar Leví
og félagar leika fyrir
dansi. Happdrætti.
Skráning á skrifstofu
fyrir kl. 12 miðvikud. 16.
okt.
Eldri borgarar í Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós. Félagsstarfið opið
mánu- og fimmtudaga.
Mánud: Kl. 16 leikfimi.
Fimmtud: kl. 13 tré-
skurður, kl. 14 bókasafn-
ið, kl. 15–16 bókaspjall,
kl. 17–19 æfing kór eldri
borgara í Damos. Laug-
ard: kl. 10–12 bókband,
línudans byrjar 5. okt.
kl. 11. Námskeið í postu-
línsmálun byrjar 18. nóv.
Skráning hjá Svanhildi
s. 586 8014 e.h.
Félagsstarf eldri borg-
ara í Grafarvogi. Púttað
er annan hvern fimmtud.
að Korpúlfsstöðum kl.
10, og annan hvern
fimmtud. er leikin keila í
Keilu í Mjódd. Þriðjud:
kl. 9.45 og föstud: kl. 9.30
vatnsleikfimi í Graf-
arvogslaug. Uppl. í s.
5454 500, Þráinn.
Félagsstarfið Dalbraut
18–20. Kl. 9–14 baðþjón-
usta, kl. 9–16.45 opin
handavinnustofan, kl.
14–15 söngstund, hár-
greiðslustofan opin kl. 9–
16.45 nema mánudaga.
Félag eldri borgara
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Leikfimi í
Bjarkarhúsinu kl. 11.30,
glerskurður kl. 13, opið
hús kl. 14 félagar frá
Gerðubergi koma í heim-
sókn, ýmis skemtiatriði,
kaffiveitingar. Leik-
húsferð í Borgarleik-
húsið laugard. 12. okt. að
sjá Kryddlegin hjörtu,
skráning í Hraunseli s.
555 0142.
Félagsstarfið Dalbraut
27. Kl. 8–16 opin handa-
vinnustofan, kl. 9–12
íkonagerð, kl. 10–13 opin
verslunin, kl. 13–16 spil-
að.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 böðun, kl. 9
fótaaðgerð, kl. 10 hár-
snyrting, kl. 10.30 guðs-
þjónusta sr. Kristín
Pálsdóttir.
Félagsstarf aldraðra
Garðabæ. Bútasaumur
byrjar kl. 13.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Kaffistofan
verður lokuð vegna
breytinga í Glæsibæ
þessa viku. Fimmtud:
brids kl. 13. Námskeið í
framsögn kl. 16.15.
Söngfélag FEB kóræf-
ing kl. 17. Leiðbeinandi
Bjarni Ingvarsson.
Föstud: Félagsvist kl.
13.30. Bridsnámskeið
hefst fimmtud. 10. okt.
kl. 19.30. Leiðbeinandi
Ólafur Lárusson, þátt-
taka tilkynnist skrifstofu
FEB s. 588-2111. Silf-
urlínan er opin á mánu-
og miðvikudögum kl. 10–
12. Skrifstofa félagsins
er flutt að Faxafeni 12 s.
588 2111. Félagsstarfið
er áfram í Ásgarði
Glæsibæ. Upplýsingar á
skrifstofu FEB.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9–12 böð-
un, kl. 9–16.30 gler-
skurður, kl. 10 leikfimi,
kl. 9–16.30 hárgreiðslu-
stofan opin. Samkvæm-
isdansar byrja 10. okt.
Gerðuberg, félagsstarf.
Kl. 10.30 helgistund, frá
hádegi spilasalur og
vinnustofur opnar, kl.
13.30 mæting í ferð til
Hafnarfjarðar. Á morg-
un kl. 13. byrjar bók-
band, dansleikur kl. 20–
23.30 hljómsveit Hjör-
dísar Geirs, allir
velkomnir. Vetrardag-
skráin komin. Allar upp-
lýsingar um starfssem-
ina á staðnum og í síma
575 7720. Veitingar í
Kaffi Bergi.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 9.05 og kl. 9.55 leik-
fimi, handavinnustofan
opin, leiðbeinandi á
staðnum kl. 9.30–15, kl.
9.30 keramik og leir-
mótun, kl. 13 ramma-
vefnaður, gler og postu-
línsmálun, kl. 15 enska,
kl. 17 myndlist, kl. 17.15
kínversk leikfimi.
Hraunbær 105. Kl. 9
handavinna og keramik,
kl. 10 boccia, kl. 11 leik-
fimi, kl. 14 félagsvist.
Föstudaginn 4. október
verður hádegishlaðborð
sem hefst með borðhaldi
kl. 12.30. Gestir frá
Hrafnistu í Hafnarfirði
syngja með okkur, spilað
bingó, allir velkomnir.
Skráning á skrifstofu
eða í s. 587 2888.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9.15 postulíns-
málun, kl. 10 ganga, kl.
13 brids, kl. 13–16
handavinnustofan opin,
leiðbeinandi á staðnum,
gömlu dansarnir byrja
kl. 19 fimmtud. 10. okt.
Hvassaleiti 56–58. Kl. 9
böðun og bútasaumur,
kl. 10 boccia, kl. 13
handavinna, 13.30 fé-
lagsvist. Fótaaðgerð,
hársnyrting.
Norðurbrún 1. Kl. 9–
16.45 opin vinnustofa og
tréskurður, kl. 13–16.45
leir, kl. 10–11 ganga.
Vesturgata 7. Kl. 9–16
fótaaðgerðir, og hár-
greiðsla, kl. 9.15–12 að-
stoð við böðun, kl. 9.15–
15.30 alm. handavinna,
kl. 10–11 boccia, kl. 13–
16 kóræfing og mósaík.
Fimmtud. 3.október er
13 ára afmæli þjónustu
miðstöðvarinnar, í því
tilefni er gestum og vel
unnurum boðið í morg
unkaffi kl. 9–10.15.
Kl.10.30 verður helgi
stund í umsjón séra Jak-
obs Ágústs Hjálm ars-
sonar dóm kirkjuprests.
Kór félagsstarfs aldr
aðra í Reykjavík syngur
undir stjórn Sig urbjarg-
ar Petru Hólm gríms-
dóttur, allir vel komnir Á
morgun föstudag verður
fræðslu og kynning-
arfundur kl.14 um lyf og
inntöka þeirra, bein
þynningu og beinþéttn
imælingu, kaffi og með-
læti, feðginin Ingibjörg
Aldís Ólafs dóttir sópran
og Ólafur B. Ólafsson
harm onikkuleikari
skemmta. Allir velkomn-
ir.
Vitatorg. Kl. 8.45 smíði,
kl. 9 hárgreiðsla, kl. 9.30
glerskurður, körfugerð
og morgunstund, kl. 10
fótaaðgerðir og boccia,
kl. 13 handmennt og spil-
að.
Félag áhugamanna um
íþróttir aldraðra. Leik-
fimi í Bláa salnum kl. 11.
Háteigskirkja eldri
borgarar á morgun
föstudag, bingó kl. 14 í
Setrinu, kaffi á eftir .
Sjálfsbjörg félag fatl-
aðra, Hátúni 12 kl. 19.30
tafl.
Kristniboðsfélag
Kvenna, Háaleitisbraut
58-60. Biblíulestur kl. 17
í umsjá Skúla Svav-
arssonar.
Gullsmárabrids. Eldri
borgarar spila brids að
Gullsmára 13 mánu- og
fimmtudaga. Skráning
kl. 12.45 spil hefst kl. 13.
Stokkseyringafélagið í
Reykjavík. Aðalfund-
urinn verður sunnud. 6.
okt. í Sóltúni 20, Rvk. kl.
15. Venjuleg aðalfund-
arstörf, kaffiveitingar.
Húnvetningafélagið í
Reykjavík, Húnabúð
Skeifunni 11. Sunnudag-
inn 6. okt kl. 13.30.
„Húnaþing-þú hérað
mitt“ fjölbreytt dagskrá
um ævi og störf Ar-
inbjarnar Árnasonar frá
Neðri-Fitjum í Miðfirði.
Kaffiveitingar. Allir vel-
komnir.
Í dag er fimmtudagur 3. október,
276. dagur ársins 2002. Orð dagsins:
Prédika þú orðið, gef þig að því í tíma
og ótíma. Vanda um, ávíta, áminn
með öllu langlyndi og fræðslu.
(2.Tím. 4, 2.)
K r o s s g á t a
LÁRÉTT:
1 skoðunarmun, 8 stúlka,
9 blámaður, 10 niðja, 11
var á floti, 13 aulann, 15
lafa, 18 hey af óræktuðu
landi, 21 dans, 22 doki við
23 látnu, 24 mannkostir.
LÓÐRÉTT:
2 syrgja, 3 rengja, 4 end-
ast til, 5 duga, 6 óhafandi,
7 vangi, 12 ótta, 14 smá-
vegis ýtni, 15 höfuðfat, 16
skíra, 17 eldstæði, 18
morkni, 19 kona, 20 hiti.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 skíra, 4 gómur, 7 æðina, 8 öskur, 9 lem, 11
agns, 13 vinn, 15 völl, 17 tekt, 20 gró, 22 gumar, 23 gol-
an, 24 akrar, 25 tunga.
Lóðrétt: 1 slæða, 2 ísinn, 3 aðal, 4 gröm, 5 múkki, 6 rýr-
an, 10 elgur, 12 sel, 13 vit, 15 vægja, 16 lemur, 18 eklan,
19 tanna, 20 grær, 21 ógát.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Víkverji skrifar...
KVIKMYNDIN Manden udennavn er nú sýnd í Kaupmanna-
höfn við ágætar undirtektir og á Ís-
landi hafa viðtökurnar ekki verið
verri nema síður sé. Myndin hefur
verið rækilega auglýst, hlotið ágæta
dóma og skartar auk þess banda-
rískri stórstjörnu í aðalhlutverki,
hinum gelgjulega Matt Damon.
Myndin sem hér um ræðir er reynd-
ar betur þekkt á Íslandi sem The
Bourne Identity en danskir kvik-
myndahúsaeigendur sýndu þá
smekkvísi að þýða titil myndarinnar,
nokkuð sem íslenskir starfsbræður
þeirra mega gjarna taka sér til fyr-
irmyndar. Víkverja finnst það und-
arleg regla að titlum erlendra bíó-
mynda skuli sjaldnast vera snúið yfir
á íslensku. Slíkt gerist aðeins í und-
antekningartilfellum og þá helst ef
myndirnar eru á annarri tungu en
þeirri ensku. Víkverji sér fá rök fyrir
þessu og finnst sjálfsagt að titlar bíó-
myndanna séu þýddir, rétt eins og
samtöl leikaranna eru textuð. Ætli
aðsókn að The Bourne Identity væri
minni ef hún heiti Maður án nafns
eða Óminni? Það heldur Víkverji
ekki. Það virðist a.m.k. ekki draga úr
aðsókn að leikhúsum þó að heiti leik-
rita séu undantekningarlaust þýdd
yfir á íslensku. Hefðu færri farið að
sjá leikritið Með fulla vasa af grjóti ef
ekki hefði verið skeytt um að þýða
titilinn „Stones in his pockets“ úr
frummálinu? Og væri meiri aðsókn
að leikritinu Með vífið í lúkunum ef
það hefði verið auglýst sem „Run for
your wife“ eins og höfundurinn
nefndi það? Ekki er Víkverji á því.
Hann man þá tíð þegar nöfnum bíó-
mynda var snarað yfir á íslenskuna
og minnist þess ekki að það hafi
dregið úr brennandi bíómyndaáhuga
hans. Stundum tókst reyndar ekkert
sérlega vel til við þýðinguna og Vík-
verji man eftir býsna mörgum bíó-
myndum sem hétu álíka óskáldlegum
nöfnum og „Tveir á toppnum“ eða
„Allt á fullu“. Það hlýtur þó að vera
hægt að gera betur a.m.k. í flestum
tilfellum. Það myndi líka alveg nægja
að hafa íslenska nafnið í sviga fyrir
neðan upprunalega titilinn.
x x x
ÁFRAM um bíó og bíómyndir. Íliðinni viku skellti Víkverji sér á
bíómyndina 24 hour party people
(Endalaus glaumur?) og var býsna
hrifinn. Ekki skemmdi fyrir að
myndin var sýnd í einu af uppáhalds-
bíóum Víkverja - glæsibyggingunni
Háskólabíói. Þegar Víkverji var bú-
inn að kaupa miðann sá hann sér til
ánægju að myndin var sýnd í sal 4 en
hann var alveg viss um að hún væri
fyrir löngu komin í minnsta salinn,
sal 5 í kjallaranum. Ánægjan var þó
skammvinn því Víkverji áttaði sig
fljótlega á því að búið var að breyta
um númer á sölunum. Salur 1 heitir
nú Stóri salurinn og minni salirnir
sem áður báru númer frá 2-5 heita nú
1-4. Salur 5 var því orðinn salur 4 en
var samt ennþá í kjallaranum og al-
veg jafnlítill og fyrr. Víkverji sér ekki
alveg ástæðuna fyrir þessari ný-
breytni. Það vita flestir að í bíóum er
salur 1 stærsti salurinn og eftir því
sem talan hækkar minnka salirnir.
Úr því að salur 1 heitir núna Stóri
salurinn þá hefði væntanlega verið
rökrétt að nefna sal 5 upp á nýtt og
kalla hann Litla salinn. Kannski get-
ur Víkverji bara verið feginn að salur
1 var ekki nefndur upp á engilsax-
nesku og kallaður „The Big Auditor-
ium“.
Þakkir fyrir skilvísi
ÉG vil koma á framfæri
þakklæti mínu til tveggja
kvenna fyrir skilvísi þeirra,
en þær fundu veskið mitt á
bílaplaninu við Smáralind
og komu því á þjónustu-
borð Hagkaupa.
Edda.
Góð heilsugæsla
í stað jarðganga
ÉG vil að þessir 10 millj-
arðar sem áætlað er að
taka af skattgreiðendum og
setja í jarðgöng númer tvö
til Siglufjarðar verði settir í
heilbrigðisþjónustu í þétt-
býlinu. Og að aldrei framar
verði minnst á hallann á
Landspítalanum.
Það er eins og enginn
geri sér grein fyrir hve
óhemju mikla peninga jarð-
göng kosta og við höfum
bara alls ekki ráð á þeim.
Hér í þéttbýlinu búa flest-
allir skattgreiðendur og við
eigum ekki að líða slíkt
bruðl.
Reykvíkingur.
Enn meiri
þakkir
KRISTÍN hafði samband
við Velvakanda og vill hún
taka undir þakkir fyrir
góða þjónustu hjá Trygg-
ingastofnun ríkisins sem
birtust í Velvakanda. Segir
hún starfsfólk sýna við-
skiptavinum frábæra um-
hyggju.
Tapað/fundið
Jólaóróar týndir
GEORG Jensen-jólaóróar,
gullhúðaðir, um 15 talsins,
hurfu nýlega af heimili á
Seltjarnarnesi. Upplýsing-
ar í síma 897 9202. Fund-
arlaunum heitið.
Hlaupahjól í óskilum
HLAUPAHJÓL fannst í
nágrenni Áskirkju um sl.
helgi. Upplýsingar í síma
896 9315.
Svartur frakki og
fjólublá regnkápa
HVAR týndi ég fötunum
mínum? Getur einhver
hjálpað mér að hafa uppi á
svarta frakkanum mínum
sem ég gleymdi einhvers
staðar á síðustu vikum?
Frakkinn er frá merkinu
DAY, trúlega í stærðinni 42
eða „Large“. Hann er
beinn í sniðinu, hálfsíður og
keyptur í versluninni GK-
konur í Kringlunni. Ég
týndi líka regnkápunni
minni fyrir mörgum mán-
uðum og sakna hennar
óskaplega. Hún er fjólublá,
síð og víð frá versluninni
Spaksmannsspjörum. Ef
einhver hefur rekist á fötin
mín á glámbekk vinsam-
lega hafið samband við mig
í síma 898 9830 eða
562 5777.
Ása.
Dýrahald
Simbi er enn týndur
SIMBI er rauður, loðinn
högni, með stór brún augu.
Hann villtist að heiman í
sumar og gæti verið kom-
inn á annað heimili. Ef ein-
hver veit hvar hann er eða
hefur séð hann vinsamleg-
ast hringið í síma 847-6671
eða 565-6519. Ath. 30.000
kr. fundarlaun.
Nebbi er týndur
NEBBI hvarf í Kópavogi
fyrir helgi en þar var hann í
heimsókn og er sárt sakn-
að. Hann er svartur og
hvítur fress og með hvítt
trýni. Hann er merktur í
hægra eyra. Þeir sem
kunna að hafa séð til Nebba
eða vita hvar hann gæti
verið niðurkominn vinsam-
legast hafið samband við
Hörð í síma 822-2093.
Kettlingar og læða
fást gefins
TVEIR mannelskir, kassa-
vanir kettlingar, ásamt 8
mánaða læðu fást gefins á
gott heimili. Upplýsingar í
síma 697-3761 eða 661-8019
eftir kl. 17.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
ÉG er búsettur fyrir
norðan og átti leið suður í
afmæli föður míns,
helgina 21.–22. sept. Þeg-
ar leggja átti af stað heim
aftur kom í ljós að brems-
urnar á bílnum voru bil-
aðar og taldi ég ekki rétt
að leggja af stað norður
með stóra fjölskyldu í
bílnum. Beið ég því til
mánudagsmorguns og
hafði þá samband við Bif-
reiðaverkstæði Graf-
arvogs. Þar tók Guðjón á
móti mér og þeir á verk-
stæðinu tóku bílinn strax
inn og lánuðu mér annan
bíl á meðan til að útrétta
á og var bíllinn minn
tilbúinn eftir 2 klukku-
tíma.
Ég vil koma á framfæri
þakklæti mínu og hrósi
fyrir mjög snyrtilegt og
gott verkstæði og fljóta
og góða þjónustu. Og
heim komst ég á mánu-
deginum þökk sé þeim.
Benedikt.
Fljót og góð þjónusta