Morgunblaðið - 31.10.2002, Page 2
!"
#$
%
&
'
(
)
*
+
,
-
%.
/
0
STJÓRN Kers hf. hefur borist bréf
Hesteyrar ehf. þar sem óskað er eftir
að boðað verði til hluthafafundar í
Keri hf. þar sem á dagskrá verði
stjórnarkjör í félaginu.
Þórólfur Gíslason stjórnarmaður í
Hesteyri og Keri segir að óskin um
hluthafafund komi til vegna kaupa
Hesteyrar á tæplega fjórðungshlut í
Keri í sumar og ekkert annað en það
liggi á bakvið. „Hesteyri ehf. vill fá
sinn fulltrúa inn í stjórn Kers í fram-
haldi af þessu. Þannig að hugmyndir
um annað eru bara misskilningur.“
Ólafur Ólafsson forstjóri Sam-
skipa og stjórnarmaður í Keri vildi
ekkert láta hafa eftir sér um málið.
Engin upplausn í S-hópnum
Þórólfur neitar því að upplausn sé
komin í S-hópinn svokallaða. „Það er
ekki mín meining,“ sagði Þórólfur.
Hann segir að ekkert annað liggi að
baki óskinni um hluthafafundinn en
sú krafa að fá mann í stjórn Kers.
Þórólfur er sjálfur stjórnarmaður
í Keri en kom þar ekki inn á sínum
tíma sem fulltrúi Hesteyrar heldur
sem varamaður Þórðar Más Jóhann-
essonar framkvæmdastjóra Fjár-
festingarfélagsins Straums.
Aðspurður hvort hann teldi að
Hesteyri gæti náð þeim 50% at-
kvæða sem þyrfti á hluthafafundi til
að ógilda umboð núverandi stjórnar
svo fram geti farið nýtt stjórnarkjör,
segir Þórólfur að það hafi ekkert ver-
ið rætt í stjórn Hesteyrar. „Þetta er
beiðni Hesteyrar um að fá hluthafa-
fund til að fá fulltrúa inn í stjórnina
og ekkert annað liggur til grundvall-
ar og við förum að þeim leikreglum
sem gilda í þeim efnum og vonum að
það verði enginn ágreiningur um
það. Þetta er bara einföld beiðni sem
aðrir hluthafar munu taka afstöðu
til. Við vitum ekkert hvernig þeir eru
stemmdir í því máli,“ sagði Þórólfur í
samtali við Morgunblaðið.
Morgunblaðið hafði samband við
Ólaf Ólafsson forstjóra Samskipa og
stjórnarmann í Keri vegna málsins
og innti hann eftir því hvort ósk
Hesteyrar um hluthafafund benti til
þess að óeining væri komin upp inn-
an S-hópsins. Ólafur vildi ekkert láta
hafa eftir sér um málið.
Samþykkja ekki dagskrá
Kristján Loftsson, stjórnarfor-
maður Kers hf., sagði í samtali við
Morgunblaðið að ekki sé hægt að
óska eftir hluthafafundi um stjórn-
arkjör þar sem stjórn sé nú þegar
hjá félaginu. Fyrst verði núverandi
stjórn að víkja. Hesteyri verði þann-
ig að breyta ósk sinni um hluthafa-
fund á þá leið að á dagskrá hans verði
að óskað verði eftir að núverandi
stjórn verði svipt umboði sínu. „Ef
þeir vilja að það fari fram stjórnar-
kjör þá verða þeir að óska eftir því í
sama bréfinu að stjórnin sem nú sit-
ur verði svipt umboði sínu og ef það
verði samþykkt þá fari fram stjórn-
arkjör,“ sagði Kristján.
Hann sagðist reikna með að Hest-
eyri sendi Keri nú annað bréf og óski
eftir því að núverandi stjórn verði
svipt umboði. Hann sagði að þá yrði
boðað til hluthafafundar innan fjög-
urra vikna eins og lög gera ráð fyrir.
Eignarhaldsfélagið Hesteyri ehf.
er í eigu Fiskiðjunnar Skagfirðings
hf. og Skinneyrar-Þinganess hf. Fé-
lagið keypti 22,53% hlut í Keri hf. í
ágúst síðastliðnum af Íslandsbanka.
Bankinn hafði áður keypt 21,46%
hlut í Keri af Fjárfestingarfélaginu
Straumi hf. en auk þess seldi Ís-
landsbanki Hesteyri þá 1,07% hlut
bankans í Keri.
Hesteyri vill fá
mann í stjórn Kers
FRÉTTIR
2 FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Ísland tapaði gegn Þjóðverjum
í Svíþjóð / B3
George Burley tekur við
liði Stoke / B1
4 SÍÐUR12 SÍÐUR
Sérblöð í dag
VIÐSKIPTABLAÐ MORGUNBLAÐSINS
S É R B L A Ð Á F I M M T U D Ö G U M U M V I Ð S K I P T I , S J Á V A R Ú T V E G & A T H A F N A L Í
Söluhæsti ársfjórðungur Össurar frá upphafi / C1
Horft á viðskiptin úr flugstjórnarklefanum / C4
Fjárfestingar lífeyrissjóða erlendis / C6
Ástand innfjarðarækju er ennþá slæmt / C9
Erfitt ástand í rækjuiðnaðinum / C12
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is
MAÐURINN, sem lést af slys-
förum í Borgarnesi á þriðjudag,
hét Jón Eyjólfur Einarsson, 76
ára, til heimilis að Berugötu 18,
Borgarnesi.
Jón Eyjólfur var fæddur 9.
febrúar 1926. Hann lætur eftir
sig eiginkonu og fjóra upp-
komna syni.
Lést af
slysförum í
Borgarnesi
ÞAÐ tekur hvorki meira né minna
en fjóra daga að klæða Kringluna í
jólabúninginn. Starfsmenn eru nú í
óða önn að hengja upp jólaskraut á
göngunum og einnig utandyra, en á
morgun verður kveikt á herlegheit-
unum, sem í eru milljón perur.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Kringlan í
jólabúning
LÖGÐ hefur verið fram kæra
vegna heimasíðu á netinu, þar sem
finna mátti leiðbeiningar um
hvernig brjótast mætti inn í vef-
umsjónarkerfi fyrirtækja. Gyða
Guðjónsdóttir, framleiðslu- og
gæðastjóri Ráðgjafar- og hugbún-
aðarhússins Innn, sem framleiðir
hugbúnaðinn LiSA, segir að um sé
að ræða rógsherferð á hendur fyr-
irtækinu, hjá tölvuþrjótum sem
hafi verið að reyna að brjótast inn í
kerfið. „Við teljum okkur vita hver
standi bak við þetta og þetta mál
er í meðferð hjá lögreglunni,“ segir
hún. Eigandi vefsíðunnar fjarlægði
hana í gær.
Fjölmörg íslensk fyrirtæki og
stofnanir nota hugbúnaðinn, þ.á m.
Seðlabanki Íslands, Baugur, Bún-
aðarbankinn, SPRON og Kaup-
þing, svo fáein séu nefnd.
Gyða segir að á sunnudag hafi
fyrirtækinu borist fregnir um
þessa heimasíðu með leiðbeining-
um um það hvernig ætti að brjót-
ast inn í kerfið. „Við brugðumst
fljótt við og innan tveggja klukku-
stunda vorum við búin að fullvissa
okkur um að ekki hefði verið brot-
ist inn á heimasíður viðskiptavina
okkar. Til öryggis höfum við síðan
yfirfarið sérstaklega öll okkar kerfi
til að vera 100% örugg um að engin
hætta sé til staðar,“ segir Gyða.
Innbrotstilraunir
algengar
Gyða segir að það sé daglegt
brauð að tölvuþrjótar reyni að
brjótast inn í hugbúnaðarkerfi fyr-
irtækja. „Þetta gerist alls staðar í
heiminum og við stundum stöðugt
eftirlit. Það er metnaðarmál hjá
tölvuþrjótum að klekkja á fyrir-
tækjum eins og okkur, sem eru
leiðandi á markaðinum. Þeir vilja
þá koma sér á framfæri með röng-
um yfirlýsingum og innistæðulausu
monti. Þarna er um hrein skemmd-
arverk og rógsherferð að ræða,“
segir Gyða.
Leiðbeiningar um
innbrot í tölvu-
kerfi á vefsíðu
Talsmaður Innn kærir til lögreglu og
segir leiðbeiningarnar rangar
ÍSLENSKA karlaliðið sigraði
Egypta með 2,5 vinningum gegn 1,5
og kvennaliðið vann norska liðið með
2,5 vinningi gegn hálfum í fimmtu
umferð Ólympíuskákmótsins í Bled í
Slóveníu í gær. Þetta er stærsti sigur
kvennaliðsins til þessa.
Í dag teflir karlaliðið gegn
Indónesíu og stúlkurnar gegn
Bangladesh.
Sigrar á
Ólympíumóti
Hannes/45
Ker hf. jók hlut sinn úr 2,37% í 2,81% þann þann 5.september sl.
Átök innan
S-hópsins
♦ ♦ ♦
FRAMSÓKNARMENN í Reykja-
vík samþykktu uppstillingu í báðum
kjördæmum Reykjavíkur á kjör-
dæmisþingi framsóknarmanna í
Reykjavíkurkjördæmi suður og
norður í gærkvöldi.
Báðir fundirnir hófust á sama
tíma, en voru mislangir. Fundurinn í
suðurkjördæminu stóð í tæplega
fjóra tíma, en í atkvæðagreiðslu
greiddu 58 með uppstillingu og 38
með prófkjöri.
Fundurinn í Reykjavíkurkjör-
dæmi norður tók mun skemmri tíma
og þar voru niðurstöður atkvæða-
greiðslunnar afgerandi. 74 voru sam-
þykkir uppstillingu, 19 vildu próf-
kjör og einn seðill var auður.
Uppstilling
samþykkt
Framsóknarmenn/11