Morgunblaðið - 31.10.2002, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 31.10.2002, Qupperneq 6
FRÉTTIR 6 FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ GUNNAR Jónasson, fyrrverandi eigandi og forstjóri Stálhús- gagna, lést að kvöldi þriðjudagsins 29. október síðastliðinn, rúmlega 95 ára að aldri. Hann féll og lærbrotnaði síðastlið- inn laugardag og lést af afleiðingum meiðsl- anna. Gunnar Jónasson fæddist á Eyrarbakka 13. september árið 1907. Foreldrar hans voru Jónas Einarsson, sjómaður í Garðhúsum, og Guðleif Gunnarsdóttir, eiginkona hans. Gunnar lauk mótoristaprófi á Eyr- arbakka 1922 og lagði síðan stund á nám í járnsmíði hjá Þorsteini Jóns- syni í Reykjavík. Sumarið 1928, þá með sveinspróf í járnsmíði, réðst hann til Flugfélags Íslands. Síðar sama ár fór hann í flugvirkjanám hjá Lufthansa í Berlín, útskrifaðist þaðan sem fyrsti íslenski flugvirkinn 1929 og hóf þá aftur störf hjá Flug- félagi Íslands. Hann var með flug- virkjaskírteini númer eitt. Í árslok 1931 hófu Gunnar og Björn Olsen, starfsfélagi hans hjá Flugfélaginu og skólabróðir í Berlín, að smíða flugvél og fullsmíðuð en hreyfillaus var Ögnin, eins og hún var nefnd, sýnd í KR-húsinu 12. júní 1932. Flugvélinni var fyrst reynslu- flogið 23. nóvember 1940 en vegna hernáms Breta var þeim skipað að taka vélina í sundur og setja í geymslu. Ögnin var gerð upp ára- tugum síðar af Gunnari ásamt fé- lögum í Flugsögu- félagi Íslands og hangir hún nú í lofti Leifsstöðvar. Árið 1933 stofnuðu Gunnar og Björn fyr- irtækið Stálhúsgögn sem enn er í fullum rekstri og verður 70 ára á næsta ári, en fyrstu ár fyrirtækisins einkenndust af mikl- um verkefnum fyrir flugfélögin. Eftir and- lát Björns vann Gunn- ar Jónasson, þá for- stjóri og eigandi Stálhúsgagna, áfram að fjölda sér- hæfðra verkefna á sviði flugmála, en fyrirtækið smíðaði m.a. stóla í þrjá Katalínuflugbáta, sem Flugfélag Ís- lands keypti 1944 og Gunnar aðstoð- aði Loftleiðamenn við val á fyrsta flugbáti félagsins. Stálhúsgögn var í marga áratugi brautryðjandi á sínu sviði. Gunnar starfaði við fyrirtæki sitt þar til hann nálgaðist nírætt. Hann hann- aði framleiðsluvörurnar og smíðaði verkfæri og heilu vélasamstæðurnar sem til þurfti við framleiðsluna, en hann vann alltaf á „gólfinu“ og stjórnaði fyrirtækinu þaðan. Gunnar Jónasson hafði framtíð- arsýn fyrir hönd íslensks iðnaðar. Hann sat í stjórn Félags íslenskra iðnrekenda í mörg ár og einnig í stjórn Stangaveiðifélags Reykjavík- ur (SVFR). Eiginkona Gunnars í rúm 70 ár var Anna Sigríður Jóns- dóttir, fædd 25. febrúar 1910, en hún lést 19. febrúar sl. Gunnar og Anna eignuðust fjögur börn. Andlát GUNNAR JÓNASSON REGLULEG laun á almennum vinnumarkaði hækkuðu að meðal- tali um 5,6% frá öðrum ársfjórð- ungi í fyrra til annars ársfjórðungs í ár. Launavísitalan hækkaði á sama tíma um 5,5% og samkvæmt því jókst kaupmáttur launa að með- altali um 0,1%. Þetta kemur fram í nýjum niðurstöðum launakönnunar kjararannsóknarnefndar. Laun kvenna hækkuðu hlutfallslega meira en karla Laun utan höfuðborgarsvæðis- ins hækkuðu heldur meira en laun á höfuðborgarsvæðinu eða um 6,2% samanborið við 5,4% með- alhækkun launa á höfuðborgar- svæðinu og laun kvenna hækkuðu meira en karla á tímabilinu eða um 6,1% samanborið við 5,2% með- altalshækkun á launum karla. Regluleg laun, þ.e. grunnlaun, miðað við 100% starfshlutfall að viðbættum aukagreiðslum, s.s. vakta-, álags- og kostnaðar- greiðslum, hækkuðu hlutfallslega mest meðal sérfræðinga eða um 7,2% á milli ársfjórðunga skv. samanburði kjararannsóknar- nefndar á launahækkun starfs- stétta. Laun stjórnenda hækkuðu hlut- fallslega minnst eða um 3,9%. Heildarlaun voru að meðaltali 234 þús. kr. á mánuði Laun verkafólks hækkuðu að meðaltali um 6,5% og laun skrif- stofufólks hækkuðu um 4,4%. Í launakönnuninni voru launa- breytingar mældar hjá rúmlega sjö þúsund einstaklingum sem voru í úrtaki nefndarinnar bæði á 2. ársfjórðungi 2001 og 2. ársfjórð- ungi 2002. Launakönnun kjararannsóknar- nefndar leiðir einnig í ljós að launamenn á almennum vinnu- markaði fengu að meðaltali greiddar 179.000 kr. á mánuði í regluleg laun á öðrum ársfjórð- ungi yfirstandandi árs og heild- arlaun, þ.e. öll laun fullvinnandi einstaklings að meðtalinni yfir- vinnu, námu að meðaltali 234.000 kr. Meðalvinnutími fólks á almenn- um vinnumarkaði var 45,1 stund á viku. Verkafólk með lengstan meðalvinnutíma Sé litið á skiptingu meðallauna eftir starfsstéttum kemur í ljós að regluleg laun verkafólks voru að meðaltali 132.300 kr. og heildar- laun þess 197.400 kr. á öðrum árs- fjórðungi (sjá meðfylgjandi töflu). Verkafólk var jafnframt sú starfsstétt sem var með lengstan meðalvinnutíma eða 49,7 stundir. Stjórnendur höfðu hæst meðal- laun meðal starfsstéttanna skv. könnuninni eða 374.400 kr. reglu- leg laun og 402.800 kr. heildarlaun á mánuði að meðaltali. Meðal- vinnutími stjórnenda var 40,6 stundir á viku að meðaltali. Þjónustu-, sölu- og afgreiðslu- fólk var með lægstu heildarlaunin þegar litið er á meðallaun ein- stakra starfsstétta eða 193.400 kr. á mánuði skv. könnuninni og með- alvinnutími þessarar starfsstéttar var 43,9 stundir á viku. Launakönnun kjararannsóknarnefndar á 2. ársfjórðungi 2001 og 2002 Laun hækkuðu að meðaltali um 5,6%                              !!     "    "# $% ! &$ '!#   %   (% %  "  '   )   '    *%  +  #              HÓPUR gráhegra sást við Rauða- vatn í síðustu viku. Samkvæmt upplýsingum Jóhanns Óla Hilm- arssonar fuglaáhugamanns er gráhegri veturgestur hér á landi og aðallega eru það ungfuglar frá Noregi sem sjást hér. Hann segir hegra halda sig helst í fjörum, við íslausa læki, ár, tjarn- ir og vötn, þar sem þeir lifa á fiski. Jóhann segir að í síðustu viku hafi tveir fálkar sést ráðast á gráhegra við Húsavík, en slíkt er afar óvenjulegt, því hegrinn er mun stærri. Fremur mikið hefur borið á hegrum hér á landi í haust og hafa 2–3 fuglar sést á Elliða- vatnssvæðinu undanfarna daga, að sögn Jóhanns. Gráhegrinn er stór, hálslangur og háfættur, með breiða vængi, sem minna á arnarvængi. Hann gerir sér hreiður í trjám og er út- breiddur um alla Evrópu og Asíu. Morgunblaðið/Árni Sæberg Fálkar réðust að gráhegra ÚRSKURÐUR samgönguráðu- neytisins var að mati umboðs- manns Alþingis ekki í samræmi við lög þegar það fyrir tveimur ár- um staðfesti synjun sýslumannsins í Keflavík á veitingaleyfi til skemmtistaðar í Reykjanesbæ sem vildi bjóða upp á nektarsýningar. Því er beint til ráðuneytisins að taka mál skemmtistaðarins fyrir að nýju, óski eigandinn þess. Meginástæða þess að úrskurð- urinn var ekki í samræmi við lög er að mati umboðsmanns sú að sýslumaðurinn hafi verið vanhæfur til að fjalla um málið þar sem hann hafi nokkru áður ritað nafn sitt á undirskriftalista þar sem mótmælt var starfsemi nektardansstaða í bæjarfélaginu. Var listinn afhentur á skrifstofu bæjarstjóra Reykja- nesbæjar í september árið 1999. Eftir að hafa verið synjað um veitingaleyfi leitaði lögmaður skemmtistaðarins til dómsmála- ráðuneytisins í júní árið 2000 og kvartaði yfir málsmeðferð sýslu- mannsins. Gerð var sú krafa að hann viki sæti vegna vanhæfis. Dómsmálaráðuneytið framsendi erindið til samgönguráðuneytisins þar sem hið síðarnefnda fer með málefni veitinga- og skemmtistaða. Með úrskurði í júlí sama ár stað- festi ráðuneytið synjun sýslu- manns. Í áliti sínu telur umboðsmaður Alþingis að með því að hafa ritað nafn sitt á undirskriftalistann hafi sýslumaðurinn lýst með „nokkuð eindregnum hætti“ yfir afstöðu sinni til málefnisins. Leggur um- boðsmaður á það heildsætt mat af atvikum málsins að eigandi skemmtistaðarins hafi með réttu mátt draga óhlutdrægni sýslu- mannsins í efa, samkvæmt ákvæð- um stjórnsýslulaga. Beiðni nektardans- staðar í Keflavík um veitingaleyfi Sýslu- maðurinn vanhæfur VELFERÐARMÁLIN, sýn verka- lýðshreyfingarinnar á velferðarkerfi framtíðarinnar og Evrópumál verða megin viðfangsefni þingfulltrúa á ársfundi Alþýðusambands Íslands sem hefst í dag á Hótel Loftleiðum. Fundurinn stendur í tvo daga og skv. upplýsingum ASÍ hefur viða- mikil undirbúningsvinna farið fram á undanförnum mánuðum um vel- ferðarmálin og Evrópumálin og fjallað verður um afrakstur þeirrar vinnu á ársfundinum. Ársfundir ASÍ hafa æðsta vald í málefnum sambandsins en þeir komu í stað ASÍ-þinga með breyt- ingum á lögum og skipulagi ASÍ sem gerðar voru árið 2000. Er árs- fundurinn annar í röðinni Hefst hann kl. 10 en meðal mála á dagskrá fundarins í dag er skýrsla forseta ASÍ og fyrri um- ræða um velferðarkerfi framtíðar- innar. Einnig verður umræða um Evrópusamvinnuna og hagsmuni launafólks á dagskrá fundarins í dag. Á föstudag hefjast fundahöld kl. 9 og fer þá fram önnur umræða um velferðarmál og Evrópumálin. Einnig verður m.a. fjallað um laga- breytingar á síðari fundardegi auk þess sem kosningar fara fram undir lok fundarins en gert er ráð fyrir að honum ljúki kl. 16. Annar ársfundur ASÍ Evrópu- og velferðarmál helstu við- fangsefni ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.