Morgunblaðið - 31.10.2002, Page 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 2002 11
Vandaðir
leðurskór
í stærðum 20-26
Ítölsk barnafataverslun
Laugavegi 53, s. 552 3737
Mikið úrval
af ullarpeysum
fyrir krakka frá 0-12 ára
Jólafötin
streyma inn
STYRKTAR- og sjúkrasjóður versl-
unarmanna í Reykjavík gaf Reykja-
lundi í gær hjartagæslutæki með
skjá og hjartalínuritssenditæki, sem
nýtist hjarta- og lungnasjúklingum.
Verðmæti búnaðarins er um 5,5
milljónir króna.
Björn Ástmundsson, forstjóri
Reykjalundar, segir að svona tæki
hafi bráðvantað og það sé þegar
komið í fulla notkun, en átta sjúk-
lingar geti verið tengdir því í einu.
Um 230 til 250 hjartasjúklingar og
um 180 til 200 lungnasjúklingar
njóta endurhæfingar á Reykjalundi
á ári. Björn segir að tækið gjör-
breyti möguleikum endurhæfing-
arinnar. Í eldri tækjabúnaðihafi
sjúklingarnir verið tengdir við tölv-
una og því hafi einungis verið hægt
að nota þrekhjól, en nú næðu sendar
tækisins sambandi við móðurstöð frá
stærstum hluta þjálfunarhússins.
Því væri hægt að vera undir eftirliti
í hjólasal, leikfimissal eða tækjasal.
Tækið er mjög næmt og greinir
óreglu og aðrar breytingar í línuriti.
Hægt er að vista og prenta hjarta-
línurit úr þjálfunartíma og lesa þau
afturvirkt. Einnig er mögulegt að
senda línurit til greiningar sem
PDF-skjal til viðkomandi hjarta-
læknis.
Björn segir að Reykjalundur sem
einkastofnun sé ekki með tækja-
framlag frá ríkinu og fái því ekki
ákveðna fjárhæð á ári til tækja-
kaupa eins og önnur sjúkrahús. Því
þurfi að treysta á gjafir og tilfellið sé
að megnið af tækjabúnaði þjálf-
unardeilda séu svona gjafir, en þær
haldi starfseminni á floti og valdi því
að afköstin hafi aukist jafnt og þétt.
Landsambönd hjartasjúklinga hafi
t.d. nýlega gefið Reykjalundi tæki
upp á um 2,5 milljónir króna og sam-
tök eins og Lionshreyfingin hafi ver-
ið hjálpleg en þetta sé ein verðmæt-
asta tækjabúnaðargjöf sem einstök
félagasamtök hafi gefið stofnuninni.
Styrktar- og sjúkrasjóður versl-
unarmanna í Reykjavík er elsti
starfandi félagsskapur kaupsýslu-
og verslunarmanna á Íslandi, stofn-
aður 24. nóvember 1867. Auk þess
fjármagns, sem sjóðurinn sjálfur
lagði af mörkum, söfnuðu nokkrir
félagar sjóðsins, svonefnd Akademía
2002, fjármagni sem upp á vantaði
til kaupanna á þessu 8 rása hjarta-
gæslutæki. Akademíuna skipa Árni
Þ. Árnason, Birgir Rafn Jónsson,
Bjarni Ingvar Árnason, formaður,
Bjarni Finnsson, Björgólfur Guð-
mundsson, Einar Sæmundsson,
Haukur Hjaltason, Jóhannes Jóns-
son og Sigfús Sigurhjartarson, en
formaður sjóðsins, Ólafur Jensson,
hefur verið þeim til halds og trausts.
Gjöfin er gefin í tilefni 135 ára af-
mælis sjóðsins og er um leið þakk-
lætisvottur fyrir hið mikla og fórn-
fúsa starf sem fram fer á Reykja-
lundi, en Einar Sæmundsson afhenti
Birni Ástmundssyni gjafabréfið.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Einar Sæmundsson afhendir Birni Ástmundssyni gjöfina, en Ólafur Jensson, formaður sjóðsins, er á milli þeirra.
Reykjalundi fært
hjartagæslutæki að gjöf
Styrktar- og sjúkrasjóður verslunarmanna í Reykjavík 135 ára
Jakob Frímann Magnússon hefur
ákveðið að gefa kost á sér í flokksvali
Samfylkingarinnar í Reykjavík 9.
nóvember nk. Jakob Frímann gefur
kost á sér í 2.–3. sæti listans.
Jakob Frímann
leggur áherslu á
nýjar leiðir við
öflun verðmæta
fyrir þjóðarbúið,
frjálsræði í við-
skiptum, um-
hverfisvernd,
opna lýðræðislega
umræðu og síðast
en ekki síst jöfnun
lífskjara, að því er segir í frétta-
tilkynningu. Hann er frjálslyndur
jafnaðarmaður, hefur starfað með
hreyfingu jafnaðarmanna í Alþýðu-
flokknum frá árinu 1983 og verið
varaþingmaður Samfylkingarinnar í
Reykjavík síðan 1999.
Jakob Frímann hefur starfað að
framgangi íslensks listafólks innan
lands og utan og gegndi m.a. starfi
menningarfulltrúa Íslands í London
um nokkurra ára skeið. Hann hefur
framleitt kvikmyndir og sjónvarps-
þætti, auk þess sem hann hefur látið
til sín taka í umhverfismálum, m.a.
sem framkvæmdastjóri Græna hers-
ins og Umhverfisvina. Jakob Frí-
mann hefur um árabil staðið í fram-
varðarsveit íslensks tónlistarlífs.
Hann er framkvæmdastjóri Stuð-
manna en auk þess á hann og rekur
auglýsingastofuna Bankastræti, seg-
ir í fréttatilkynningu.
Helstu stefnumál, greinar og aðrar
upplýsingar er að finna á heimasíðu
Jakobs. Slóðin er www.jakob-
frimann.is. Kosningaskrifstofa Jak-
obs Frímanns er að Laugavegi 26, 3.
hæð, gengið inn Grettisgötumegin.
Guðmundur Hallvarðsson alþing-
ismaður gefur kost á sér í prófkjöri
Sjálfstæð-
isflokksins í
Reykjavík sem
fram fer dagana
22. og 23. nóv-
ember nk. Hann
sækist eftir
fimmta sætinu í
prófkjörinu.
Guðmundur er
fæddur í Reykjavík 1942. Hann lauk
farmannaprófi frá Stýrimannaskól-
anum í Reykjavík 1966 og starfaði
sem stýrimaður á vitaskipinu Ár-
vakri 1965-1970. Hann var í stjórn
Sjómannafélags Reykjavíkur
1972-1991, þar af formaður félagsins
1978-1994. Hann hefur gegnt ýmsum
trúnaðarstörfum fyrir Sjálfstæð-
isflokkinn og samtök sjómanna, var
m.a. varaformaður Sjómanna-
sambandsins og í miðstjórn ASÍ. Þá
hefur hann verið formaður Full-
trúaráðs sjómannadagsins í Reykja-
vík og Hafnarfirði frá 1984 og for-
maður samtakanna frá 1993,
jafnframt stjórnarformaður Hrafn-
istuheimilanna.
Guðmundur hefur setið á Alþingi frá
1991 og setið í sjávarútvegsnefnd,
heilbrigðis- og trygginganefnd, í sér-
nefnd um stjórnarskrármál og er nú
formaður samgöngunefndar.
Stuðningsmenn Guðmundar hafa
opnað skrifstofu að Ármúla 7. Þá
hefur Guðmundur opnað heimasíðu á
Netinu á slóðinni www.ghallvards.is.
Í DAG STJÓRNMÁL
FRAMSÓKNARMENN í Reykja-
vík samþykktu uppstillingu í báðum
kjördæmum Reykjavíkur á kjör-
dæmisþingum framsóknarmanna í
Reykjavíkurkjördæmi suður og
norður í gærkvöldi.
Í suðurkjördæminu stóð fundur-
inn í tæplega fjóra tíma og í at-
kvæðagreiðslu greiddu 58 með upp-
stillingu og 38 með prófkjöri.
Fundurinn í norðurkjördæminu tók
mun skemmri tíma, en þar voru 74
samþykkir uppstillingu, 19 vildu
prófkjör og einn seðill var auður.
Samkomulag náðist á fundi stjórn-
ar Kjördæmissambands framsókn-
armanna í Reykjavíkurkjördæmi
suður í gærmorgun um að þing fram-
sóknarmanna yrði haldið í gærkvöldi
eins og boðað hafði verið.
Laganefnd Framsóknarflokksins
kvað upp þann úrskurð í fyrrakvöld
að aðalfundur Félags ungra fram-
sóknarmanna í kjördæminu hafi ver-
ið ólögmætur. Sættir náðust svo í
gærmorgun á milli fylkinga og kem-
ur fram í sameiginlegri yfirlýsingu
Guðjóns Ólafs Jónssonar, formanns
kjördæmissambands framsóknar-
manna í Reykjavíkurkjördæmi suð-
ur, og Hauks Loga Karlssonar, for-
manns Félags ungra framsóknar-
manna, að þeir hafi orðið ásáttir um
að setja niður deilur sínar í fjölmiðl-
um og vinna saman af heilum hug að
góðum árangri Framsóknarflokks-
ins í næstu kosningum.
Samkomulag náðist um að fulltrú-
ar Félags ungra framsóknarmanna í
Reykjavíkurkjördæmi suður sem
valdir voru til setu á kjördæmisþing
árið 2001 yrðu boðaðir sérstaklega
til þingsins í gærkvöldi.
Stjórn FUF í Reykjavíkurkjör-
dæmi suður lýsti því yfir í gær að
með úrskurði laganefndar Fram-
sóknarflokksins hafi fengist niður-
staða sem stjórnin geti að fullu sætt
sig við og muni í framhaldi þar af
boða til nýs aðalfundar.
Að sögn Guðjóns Ólafs er næsta
skref að skipa uppstillinganefnd í
hvoru kjördæmi og á það að gerast
fyrir 15 nóvember nk. Fyrir 10. des-
ember á hvor nefnd að gefa öllum
flokksmönnum í viðkomandi kjör-
dæmi kost á að tilnefna einn eða
fleiri einstaklinga, sem viðkomandi
vill sjá í framboði fyrir Framsókn-
arflokkinn í kjördæminu. Síðan á
hvor nefnd að leggja tillögur sínar til
afgreiðslu fyrir kjördæmisþing, sem
halda skal eigi síðar en 25. janúar á
næsta ári.
Framsóknarmenn
völdu uppstillingu
FÉLAG Vinstri hreyfingarinn-
ar – græns framboðs í Reykja-
vík ákvað á félagsfundi í fyrra-
dag að stilla upp á framboðs-
lista í báðum Reykjavíkurkjör-
dæmunum.
Steingrímur Ólafsson, for-
maður félagsins, sagði ákvörð-
unina einróma, en sjö manna
uppstillingarnefnd var kosin á
fundinum. Á hún að skila nið-
urstöðu fyrir 10. janúar nk., en
hennar er þó að vænta fyrr, að
sögn Steingríms.
VG stillir upp
í Reykjavík