Morgunblaðið - 31.10.2002, Page 13
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 2002 13
Úrskurðir óbyggðanefndar um þjóðlendur í Árnessýslu
Fjöldi áfrýjana á leið til
Héraðsdóms Suðurlands
STARFSFÓLK Héraðsdóms Suð-
urlands á Selfossi á von á því að í
næstu viku verði fjöldi mála þing-
festur þar vegna úrskurða
óbyggðanefndar um þjóðlendur í
Árnessýslu frá því í mars síðast-
liðnum. Hinn 26. október sl. rann
út frestur til að áfrýja úrskurðum
nefndarinnar, sem alls voru sjö
talsins, til dómstóla.
Ríkið hefur ákveðið að áfrýja úr-
skurði er tekur til Biskupstungna-
afréttar og Bláskógabyggðar og
þegar hefur verið þingfest eitt mál
hjá héraðsdómi frá Grímsnes- og
Grafningshreppi. Reiknað er með
að flest sveitarfélög í Árnessýslu
höfði mál vegna úrskurðanna eða
tiltekinna hluta þeirra.
Þannig hefur verið samþykkt í
Hrunamannahreppi að skjóta til
dómstóla málskostnaðarúrskurði
óbyggðanefndar og gera kröfu um
að sveitarfélagið beri ekki skaða af
málarekstrinum. Í yfirlýsingu
sveitarstjórnarinnar segir m.a. að
nokkuð hafi vantað upp á að
hreppnum hafi verið dæmdur sá
kostnaður sem hlaust af mála-
rekstri sveitarfélagsins. Svipaða
sögu hafa önnur sveitarfélög haft
að segja varðandi málskostnaðinn
fyrir óbyggðanefnd.
KÁRI Kárason flugstjóri hefur verið
ráðinn flugrekstrarstjóri Flug-
félagsins Atlanta. Hefur Kári þegar
hafið störf hjá
fyrirtækinu.
Kári er þrítug-
ur og hefur starf-
að sem flugstjóri
á Fokker F 50-
flugvélum hjá
Flugfélagi Ís-
lands og flug-
maður á B 757-
þotum Flugleiða. Auk þess gegndi
hann starfi deildarstjóra flugörygg-
ismála í flugdeild Flugleiða. Þá hef-
ur hann jafnframt starfað sem próf-
dómari bóklegra prófa hjá
Flugmálastjórn Íslands og sinnt eft-
irliti með flugskólum. Kári er
kvæntur Ragnhildi Reynisdóttur
ljósmóður og eiga þau þrjú börn.
Flugfélagið Atlanta rekur nú 21
þotu af gerðunum Boeing 747 og 767
og leigir þær til farþega- og frakt-
flugs annarra flugfélaga.
Ráðinn flug-
rekstrarstjóri
Atlanta
Ríki og SÁÁ
gera þjón-
ustusamning
JÓN Kristjánsson, heilbrigðis- og
tryggingamálaráðherra, og forsvars-
menn SÁÁ hafa undirritað þjónustu-
samning sem tekur til starfsemi
sjúkrasviðs SÁÁ og allrar nauðsyn-
legrar stoðþjónustu. Samningurinn
byggist meðal annars á heilbrigð-
isáætlun til ársins 2010 þar sem sett
eru tiltekin markmið varðandi áfeng-
is- og vímuvarnir og á gæðaáætlun
ráðuneytisins.
Ríkissjóður greiðir samtals 423,9
milljónir á ári fyrir þá þjónustu sem
samningurinn kveður á um. Miðað er
við meðalverðlag ársins 2002 sam-
kvæmt forsendum fjárlaga. Þess utan
greiðir ríkissjóður 70 milljónir króna í
stofnkostnað og dreifast greiðslurnar
á 4 ár. Landlæknir og heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytið hafa með
höndum faglegt eftirlit með starfsem-
inni samkvæmt þeim reglum sem
gilda á hverjum tíma.
Ríkisendurskoðun skal gera fjár-
hagsendurskoðun á allri starfseminni
sem samningurinn tekur til og Rík-
isendurskoðun getur sömuleiðis gert
stjórnsýsluendurskoðun hjá verksala
sbr. lög nr. 86/1997 um ríkisendur-
skoðun, segir í frétt frá heilbrigðis- og
tryggingarmálaráðuneytinu.
♦ ♦ ♦
af allri innimálningu frá Jötun.
20-40%afsláttur
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
H
U
S
19
16
9
1
0/
20
02
Málningardagar
Jotaproff 10 ltr
Lita, mála, lakka...
aðeins
4.190 kr.