Morgunblaðið - 31.10.2002, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 31.10.2002, Qupperneq 16
SUÐURNES 16 FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ „ÉG ætla að fara að ráðum bróður míns og byrja á því að hætta, áður en ég fer að hugsa um önnur verk- efni,“ segir Þórir Maronsson sem í dag hættir sem yfirlögregluþjónn í lögreglunni í Keflavík eftir tæplega 37 ára starf sem lögreglumaður. „Það var alger tilviljun,“ segir Þórir þegar hann er spurður um til- drög þess að hann byrjaði í lögregl- unni. Hann vann í véladeild Ís- lenskra aðalverktaka, meðal annars við lagningu Reykjanesbraut- arinnar. Þegar því verki lauk var lítið að gera og starfsmönnum véla- deildarinnar fækkaði. Þórir stóð skyndilega uppi atvinnulaus en var raunar ekki verkefnalaus lengi. „Ég hitti kunningja minn, Tryggva Kristvinsson, á planinu fyrir utan lögreglustöðina á Keflavík- urflugvelli. Hann sagðist vera að hætta í lögreglunni þar og ganga til liðs við lögregluna í Keflavík. Taldi hann að starf sitt væri laust og hvatti mig til að sækja um. Ég fór inn á stöðina, sótti um og fékk starf- ið,“ segir Þórir. Hann byrjaði í lög- reglunni á Keflavíkurflugvelli 1. febrúar 1966 og síðan eru liðin tæp 37 ár. Fékk reynslu á Keflavíkurflugvelli Þórir segir að starfið í flugvall- arlögreglunni hafi verið sérstakt vegna varnarstöðvarinnar og sam- skipta við erlenda starfsmenn henn- ar. En lögreglan á Keflavík- urflugvelli annaðist einnig löggæslu í Njarðvík og þar með eftirlit á dansleikjum í Stapanum. Þá sá hún um löggæslu á Reykjanesbrautinni. Auk þess vann Þórir í aukavinnu við löggæslu á vertíðum og öðrum ann- atímum í Sandgerði og víðar um land. Hann segist því hafa fengið mikla reynslu á þessum árum á Keflavíkurflugvelli. Hann segist hafa séð meiri fram- tíð og fjölbreytni í lögreglunni í Keflavík og flutti sig yfir í hana 1974. Fram til þess tíma hafði hún aðeins starfað í Keflavíkurbæ en um þetta leyti var verið að fela henni löggæslu á öllum Suðurnesjum, ut- an Keflavíkurflugvallar. Áður höfðu lögreglumenn í Sandgerði og Grindavík heyrt undir sýslumanns- embættið í Hafnarfirði. Þegar Þórir flutti sig í Keflavík- urlögregluna var hún með aðsetur í gömlu lögreglustöðinni að Hafn- argötu 17. Þá var mannlíf og at- vinnulíf á Suðurnesjum með öðrum hætti en nú. Nefnir Þórir að fjöldi fólks hafi verið á vertíðum suður með sjó og því hafi fylgt töluvert skemmtanahald. Mikið hafi verið að gera hjá lögreglumönnum og oft hafi fangageymslur verið fullar margar helgar í röð. Þórir varð fljótlega varðstjóri og aðstoðaryfirlögregluþjónn í lög- reglunni í Keflavík. Hann hefur ver- ið yfirlögregluþjónn frá 1985. Þórir segist hafa lagt áherslu á að byggja upp öflugt og gott lögreglulið sem sýni fagleg og vönduð vinnubrögð. Hann segist treysta því til erfiðustu verka. Það sé þó ekki nóg, stjórn- endur þurfi að halda uppi góðum starfsanda og sjá til þess að liðið vinni eins og einn maður. Til þess að það sé unnt þurfi að fylgjast með líð- an hvers einasta starfsmanns og segist Þórir hafa reynt að gera það. „Það gerir starfið sérstakt og erf- itt að öll vinna lögreglumanna snýst um lifandi fólk og oft koma heitar tilfinnar við sögu. En í gegnum starf sitt öðlast lögreglumenn meiri þekkingu á mannlífinu en menn átta sig almennt á,“ segir Þórir. Hann segir að alltaf sé erfitt að fást við afleiðingar alvarlegra slysa, ekki síst á börnum. Það hafi oft reynt mjög á menn. Þá geti einnig verið erfitt að sjá ungt fólk, sem eigi alla möguleika á að spjara sig í líf- inu, fara út af sporinu og út á af- brotabrautina. En það sé jafnframt gleðilegt þegar takist að snúa ung- mennum við á þeirri braut. Honum finnst ánægjulegt að finna þegar fólk kann að meta þjón- ustu lögreglunnar. Það sé oftar en margir haldi. Eins þyki öllum lög- reglumönnum gaman þegar tekst að upplýsa erfið mál. Dagurinn í dag er síðasti vinnu- dagur Þóris í lögreglunni þótt hann sé aðeins 65 ára. Er það vegna nýrra laga sem gera ráð fyrir því að lögreglumenn láti af störfum á þess- um aldri án þess að lífeyrisréttindi þeirra skerðist. Þórir segist ekki kvarta undan því, gott sé að fá end- urnýjun í lögregluna og hann finni sér eitthvað annað til að sýsla við. Þegar hann er spurður hvað taki við vísar Þórir til ráðlegginga bróð- ur síns sem sagði honum að byrja á því að hætta, nógur tími væri til að hugsa um hitt. Þórir segist hafa áhuga á trjárækt og fái útrás fyrir það áhugamál við sumarbústaðinn sem þau hjón eiga í Hvítársíðu í Borgarfirði. Ræktunin sé verkefni sem aldrei ljúki. Þá segir hann að þau hafi gaman af að ferðast, meðal annars um hálendið, og fái nú meiri tíma til þess. En hann segist vera við góða heilsu og ef sér bjóðist hentugt hlutastarf muni hann skoða það. Hann tekur þó fram að hann muni ekki fara í stjórnunarstarf, hann hafi lofað konu sinni og börnum því. Það andlega álag sem fylgi því starfi sem hann hefur sinnt hátt í tvo áratugi sé ákaflega lýjandi. Það létti hins vegar störfin að hafa góða samstarfsmenn í lögreglunni og hjá sýslumannsembættinu og segist Þórir hafa verið ákaflega heppinn með það. Nefnir hann sérstaklega Jón Eysteinsson sýslumann sem hef- ur verið yfirmaður hans nánast frá upphafi starfsferils hans í lögregl- unni í Keflavík. Síðasti vinnudagur Þóris Maronssonar yfirlögregluþjóns Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Þórir Maronsson er að hætta eftir 37 ára starf í lögreglunni. „Byrja á því að hætta“ Keflavík Þórir Maronsson og Karl Hermannsson, sem tekur við yfirlögregluþjóns- stöðunni, við lágmynd af elstu lögreglustöðinni í Keflavík. ENGAN sakaði þegar eldur kom upp í íbúðarhúsi við Suðurgötu í Sandgerði í fyrrinótt. Húsið er tvíbýlishús. Hjón sem búa á efri hæðinni með tvö lítil börn vöknuðu við reykskynjara rétt fyrir klukkan fjögur um nótt- ina. Hringdu þau í slökkvilið og ræstu feðga sem búa í íbúð á neðri hæðinni. Voru þau öll komin út þegar Reynir Sveinsson, slökkvi- liðsstjóri í Sandgerði, og félagar hans komu á staðinn örfáum mín- útum síðar. Reynir segir að eldur hafi verið í sófa á neðri hæðinni. Reykkafarar hafi farið inn í íbúðina, slökkt eld- inn og hent sófanum út. Ekki hafi orðið aðrar skemmdir af völdum eldsins en reykur hafi verið kom- inn út um allt húsið. Lögreglan rannsakar eldsupp- tök en talið er að kviknað hafi í sófanum út frá vindlingi. Vöknuðu við reykskynjara Sandgerði Keflavíkurkirkja efnir til sam- verustundar með foreldrum fermingarbarna í Kirkjulundi kl. 20.30 í kvöld, fimmtudaginn 31. októ- ber. Gylfi Jón Gylfason, sálfræð- ingur, mun fjalla um samskipti við unglinga. „Ýmsir hafa af því áhyggjur að ung- lingamenningin virðist lúta eigin lögmálum burt séð frá því hvað heimili, skóli og kirkja eru að reyna að gera. Við höfum ekki séð fyrir endann á kynlífsbyltingunni sem oft tengist fíkniefnaneyslu og ofbeldi. Það er ástæða til að varpa fram þeirri spurningu hvernig það sam- félag sé sem bíður ferming- arbarnanna á leið þeirra út í lífið,“ segir í fréttatilkynningu frá Kefla- víkurkirkju. Í DAG AKUREYRI HJÖRDÍS Sigursteinsdóttir oddviti Arnarneshrepps sagði að þar á bæ hefðu menn tekið ákvörðun um að mótmæla ekki staðsetningu nýs urð- unarstaðar fyrir sorp, ef unnið yrði að málinu á faglegan hátt. Málið hef- ur þó ekki verið afgreitt í sveitar- stjórn. Tveir staðir þykja koma helst til greina, Bjarnarhóll í Arnarnes- hreppi og Gásir í Hörgárbyggð, en í skýrslu um samburð á þessum tveimur stöðum þykir urðunarstað- ur við Gása vera betri kostur. Hjör- dís sagði að ef annar þessara staða yrði fyrir valinu en að viðkomandi sveitarfélag myndi hafna staðsetn- ingunni, væru menn komnir á byrj- unarreit á ný. Hjördís sagði að í upphafi hefðu verið valdir um 40 staðir í Eyjafirði til skoðunar og að nú væri búið að fækka þeim niður í þessa tvo staði. Eins og fram kom í Morgunblaðinu fyrir helgi, eru skiptar skoðanir um að Gásir verði næsti urðunarstaður fyrir sorp í Eyjafirði, eftir að sorp- urðun verður hætt í Glerárdal ofan Akureyrar á næsta ári. Friðrik Gylfi Traustason bóndi á Gásum sagðist ekki mótfallin því að sorpurðun færi fram þar en nágranni hans Oddur Gunnarsson á Dagverðareyri sagði að það ætti mikið eftir að ganga á áður en sú niðurstaða yrði að veru- leika. Bæði Friðrik Gylfi og Oddur stunda mjólkurframleiðslu á jörðum sínum. Bjarnarhóll er í landi í Syðri- Bakka í Arnarneshreppi en jörðin er í eigu ríkisins. Þar er ekki stundaður búskapur frekar en á Ytri-Bakka, sem er í eigu hreppsins. Þeir aðilar sem Morgunblaðið hefur rætt við, eru sammála um að mjög aðkallandi sé að taka ákvörðun sem fyrst um næsta urðunarstað fyrir svæðið. Skýrslan um samanburð á hugs- anlegum urðunarstöðum var unnin fyrir Sorpeyðingu Eyjafjarðar bs. og er næsta skref að kynna efni hennar fyrir sveitarstjórnum Arn- arneshrepps og Hörgárbyggðar. Oddviti Arnarneshrepps um staðsetningu nýs sorpurðunarstaðar Munum ekki mótmæla stað- setningunni „FJÖLSKYLDAN saman, gaman“ er heiti á heilsuræktarverkefni sem nú stendur yfir á Akureyri. Það hófst um síðustu helgi með dagskrá í Glerárlaug þar sem fólk fékk að kynnast vatnsleikfimi, tækniæfingum í skrið- og bak- sundi og kajakróðri og nýttu áhugasamir sér tækifærið. Þrjá næstu laugardaga verða ýmsar íþróttir kynntar fyrir fjöl- skyldunni, m.a. dans af ýmsum toga, fimleikar, vaxtarrækt, skíða- og skautaíþróttir, tae-kwondo, auk þess einnig nudd, slökun, jóga og sjúkraþjálfun. Dagskránni er ætlað að höfða til barna á skóla- aldri og foreldra þeirra og er áhersla lögð á samveru fjölskyld- unnar og að gefa henni tækifæri til að stunda heilsurækt saman eða á sama tíma. Fimm íþrótta- kennarar, þar af þrír á Akureyri, standa að þessu verkefni. Morgunblaðið/Kristján Ingibjörg Magnúsdóttir sundkennari ræðir við nokkra þátttakendur. Fjölskyldan saman, gaman

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.