Morgunblaðið - 31.10.2002, Page 25
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 2002 25
Tónleikaröðin hefur hlotið styrki frá
Norræna menningarsjóðnum og Teater og dans i Norden.
NORRÆNA HÚSIÐ
Töfratónar
Norræn
tónleikaröð fyrir börn
Norræna húsinu laugardaginn 3/11 kl. 14
Hans og Gréta
Tónlistarleikhúsið Undergrunden frá Danmörku
Aðgangseyrir kr. 300.
And Björk, of course Aukasýning
verður í Borgarleikhúsinu kl. 20.
Leikritið er eftir Þorvald Þor-
steinsson. Leikarar
eru Gunnar Hans-
son, Halldór Gylfa-
son, Halldóra Geir-
harðsdóttir, Harpa
Arnardóttir, Marta
Nordal, Sóley Elías-
dóttir og Þór Tul-
inius.
Súfistinn Dagskrá
tileinkuð Arnaldi
Indriðasyni hefst kl. 20 í tilefni af út-
komu bókar hans, Röddin. Þar mun
Kristín Árnadóttir íslenskufræð-
ingur fjalla um verk Arnaldar og
Baltasar Kormákur kvikmyndaleik-
stjóri fjalla um myndsýn sína á Mýr-
ina, skáldsögu Arnaldar, en hann
undirbýr nú kvikmynd eftir sögunni.
Arnaldur mun svo sjálfur lesa úr
nýju bókinni.
Í DAG
Sjá einnig Staður og stund á mbl.is
Þorvaldur
Þorsteinsson
TALSVERT hefur verið fjallað
um íslenska veiðimenn og veiði-
mennsku í misjöfnum sjónvarpsþátt-
um, fræðslu- og heimildarmyndum,
yfirleitt unnum á hefðbundinn hátt.
Skemmst er að minnast þokkalegra
þátta um aflaklær sem minntu meira
á óða fjöldamorðingja en venjulega
veiðimenn, umfjöllunarefnið fékk
mig og væntanlega stóran hluta
þjóðarinnar til að fá ógeð á þeim
mannvargi sem fer um fjöll og firn-
indi, ár og vötn og eirir engu, með
það eitt að markmiði að drepa og aft-
ur drepa. Þeir menn eru vágestir í
náttúrunni eins og minkurinn.
Slík uppfræðsla fær almenning til
að gleyma því að obbi þeirra sem
gaman hafa af að handleika byssur,
stangir og önnur veiðitól er menn
sem bera virðingu fyrir bráðinni og
ofbjóða hvorki umhverfinu né íbúun-
um. Um slíka menn og veiðiskap
fjallar Dúi J. Landmark í Veiðiklóm,
vandvirknislegri og fallegri heimild-
armynd um viðureignir þeirra við
helstu villibráð landsins; rjúpu, gæs,
önd, skarf, svartfugl, lunda og hrein-
dýr.
Hér nálgast kvikmyndagerðar-
maðurinn viðfangsefnið á jákvæðan
hátt; veiðimennirnir vandir að virð-
ingu sinni, umgangast landið með
lotningu og afstaða til veiðanna heil-
brigð og skynsamleg. Dúi vinnur
bæði smekklega og nýstárlega úr
myndefninu og fylgist með veiði-
skapnum frá upphafi til enda. Frá
því að menn undirbúa sig uns bráðin
er tilbúin á postulíninu, framreidd af
bestu sælkerakokkum landsins.
Skemmtileg tilbreyting frá venjunni
og fróðleg.
Rjúpan kemur fyrst við sögu og
fylgst er með Ásgeiri Heiðari, kunnri
aflakló, sem stikar haustfögur heiða-
lönd eystra ásamt Donnu, sínum
ómissandi veiðihundi. Ásgeir ræðir
siðfræði veiðimannsins og kemur
m.a. inn á hina óslökkvandi veiði-
græðgi sem hann eignar fyrst og
fremst lítt reyndum ungmennum.
Óskandi að satt væri. Ásgeir drepur
rjúpuna fallega – á flugi og á snævi
þöktu landi. Dúi ræðir einnig við
fuglafræðing sem upplýsir okkur um
undirstöðuatriði varðandi þennan
fallega fugl – hvers óhamingja er að
vera jafn gómsætur og raunin er. Í
lok kaflans fylgjumst við með Leifi
Kolbeinssyni á La Primavera mat-
reiða krásina á áhugaverðan ítalskan
hátt og bragðlaukarnir taka fjörkipp.
Þannig fylgja Dúi og hans menn
hverjum þjóðkunnum veiðimannin-
um á fætur öðrum í viðureign þeirra
við gæs og önd; fylgjum lundaveiði-
mönnum út í Langey á Breiðafirði;
áhöfn Adda Barðdal í svartfuglsmor
úti á Sundum (dálítið spaugstofulegt
að sjá menn jafn glæsilega vígbúna
frá toppi til táar við jafn tilkomulít-
inn veiðiskap); og Róbert Schmidt
kajaksnillingi að tína niður skarf á
Hrútafirðinum.
Rúsínan í pylsuendanum er Stefán
Geir Stefánsson að leita uppi hrein-
dýrstarf við hæfi. Allt hjálpast að til
að gera lokakaflann sem tignarleg-
astan: Óendanlega fögur heiðalöndin
austan Vatnajökuls, fáguð veiði-
mennska skyttunnar, kímin og glögg
leiðsögn heimamannsins Hákons Að-
alsteinssonar. Ofar öllu glæsileiki
hreindýrahjarðarinnar, sjá hornum
prýtt, limfagurt fljótið renna um
óbyggðirnar. Tign umhverfis og
reistra dýranna rennur saman í
hljómkviðu sem endar með einum
hvelli og hreinninn liggur. Ekkert
ónáttúrulegt við að veiðimanninum
líði eins og fálkanum er hann kemur
að rjúpuhjartanu á augnabliki sann-
leikans. Það tekur snöggt af og í lok-
in er sest að framandi hreindýra-
kjötskrásum á Hótel Héraði þar sem
Þráinn Lárusson matreiðir af slíkum
galdri að áhorfandinn ærist um
stund af matarlöngun.
Dúi ber engu síður fram áhuga-
vert efnið. Hann hefur næmt auga
fyrir fegurð landsins okkar og veiði-
klærnar eru úr þeim hópi sem al-
menningur fylgist með af velþóknun.
Þeir kunna sitt fag og umgangast
bráðina og landið af tilhlýðilegri virð-
ingu. Þáttur sérfræðinganna er
fræðandi og meistarakokkarnir
krydda síðan tilveruna með freist-
andi kræsingum og ljóstra upp
leyndarmálum sínum í einum níu
uppskriftum í myndarlok.
Maður, byssa og bráð
SÖLUMYNDBAND
Veiði, matargerð, náttúra.
Heimildarmynd. Umsjón, hljóð, klipping
og lestur: Dúi J. Landmark. Kvikmynda-
taka: Dúi J. Landmark, Magnús Magn-
ússon, Sveinn M. Sveinsson. Tónlist:
Halldór Bjarnason. 116 mín. Landmark
kvikmyndagerð. Ísland 2002.
VEIÐIKLÆR Úr heimildarmyndinni Veiðiklær.
Sæbjörn Valdimarsson
SÝNGIN Möguleikhússins í
Álandseyjum á leikritinu Völuspá
eftir Þórarin Eldjárn hefur feng-
ið góða dóma. Sýnt var í sænsku-
mælandi skólum í bæjunum
Björneborg, Tammerfors, Kotka,
Lovisa og Esbo og einnig voru
tvær sýningar í Mariehamn á
Álandseyjum, annars vegar opin
sýning í sal bókasafns staðarins
og hins vegar í skóla. Allar fóru
sýningarnar fram á sænsku.
Leikferðin var skipulögð af NIF-
IN, Nordens Institut i Finland.
Leikstjóri sýningarinnar er
Daninn Peter Holst sem rekur
sitt eigið leikhús í Danmörku,
Det lille Turnéteater. Guðni
Franzson stýrði tónlistinni í verkinu og leikmynd og
búninga hannaði Anette Werenskiold frá Noregi. Á
sviðinu eru Pétur Eggerz sem leikur öll hlutverkin í
Völuspá og Stefán Örn Arnarson sellóleikari. Sænsk
þýðing Völuspár er eftir John Swedenmark.
Nokkuð hefur verið fjallað um sýninguna í fjölmiðlum
á Álandseyjum og birtist lofsamleg gagnrýni um hana í
blöðunum. Anita Janitzek fjallar
um hana undir fyrirsögninni
„Skyndikennsla í goðafræði.“
„Pétur Eggerz kemur goðum,
jötnum, mönnum og dýrum til
skila á undraskýran hátt með
framúrskarandi líkamsbeitingu.
Þetta er sýning sem sannarlega á
erindi við ungdóminn, ekki síst
núna þegar Hringadrottinssaga
og Harry Potter eru svo vinsæl.“
Í Nya Åland dagblaðinu 15.
október fjallar Matts Stenlund
um sýninguna undir fyrirsögn-
inni „Þegar listin verður sterk-
ust.“ „Sýningin einkennist af
nánu og kröftugu samspili milli
leikarans og hljóðfæraleikarans.
Sýningin er listaverk þar sem allir þættir hafa jafnt
vægi. Þetta er sýning sem vekur til umhugsunar um leið
og hún veitir frábæra skemmtun.“
Sýningar á Völuspá eru nú orðnar 120 en síðar í vetur
verður Völuspá sýnd í Færeyjum og í vor hefur leikhús-
inu verið boðið að koma með sýninguna á hátíðir í Kan-
ada og Litháen.
Völuspá hlýtur góða dóma á Álandseyjum
Morgunblaðið/Ásdís
Pétur Eggerz og Stefán Örn Arnarson.
Fyrir flottar konur
Bankastræti 11 • sími 551 3930