Morgunblaðið - 31.10.2002, Page 37
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 2002 37
✝ Karl HafsteinnPétursson var
fæddur 21. mars
1931 í Búðardal á
Skarðsströnd í Dala-
sýslu. Hann lést á
Landspítalanum við
Hringbraut 22. októ-
ber síðastliðinn. For-
eldrar Karls voru
Pétur Guðfinnsson
bifreiðarstjóri, f. 13.
febrúar 1899, d. 10.
mars 1985, og Sig-
ríður Dóróthea
Karlsdóttir prjóna-
kona, f. 14. janúar
1908, d. 28. desember 1986. Systk-
ini Karls samfeðra eru Guðfinnur
Hólm vélstjóri, f. 16. apríl 1929,
Pétur Hafsteinn bifreiðastjóri, f.
24. september 1932, d. 23. desem-
ber 2001, og Una Hrafnhildur
sölumaður, f. 1. apríl 1947.
Karl kvæntist 10. nóvember
gift Unnsteini Borgari Eggerts-
syni, þau eiga fimm börn, Eddu,
Ebbu, Benjamín Jochum, Dóró-
theu Sigríði og Kristjönu Önnu. 4)
Sverrir, verkamaður í Reykja-
nesbæ, f. 10. maí 1965, kvæntur
Guðlaugu Vestmann, þau eiga
þrjú börn, Gunnar Hafstein, Haf-
dísi Mjöll og Róbert Leó. 5) Viðar,
rekstrarfræðingur í Reykjavík, f.
24. október 1968, kvæntur Höllu
Valgerði Haraldsdóttur, þau eiga
tvö börn, Hlyn Karl og Hörpu
Hrafnborgu. Viðar á einnig dótt-
urina Svanhvíti Lilju.
Karl sinnti ýmsum störfum og
var m.a. lengi bifreiðastjóri eða
þar til hann hóf búskap á Klifmýri
á Skarðsströnd í Dalasýslu árið
1967. Eftir að hann fluttist til
Reykjavíkur árið 1987 rak hann
m.a. matvöruverslun og var hús-
vörður í Hátúni 12 þar sem hann
bjó síðustu æviárin. Karl starfaði
að sveitarstjórnarmálum í Skarðs-
hreppi, m.a. sem oddviti og var
virkur í ýmiss konar félagsstarf-
semi, s.s. Breiðfirðingafélaginu.
Útför Karls verður gerð frá
Grafarvogskirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 13.30.
1957 Eddu Her-
mannsdóttur, f. 11.
nóvember 1939, dótt-
ur Hermanns Karls
Guðmundssonar og
Bryndísar Björnsdótt-
ur. Karl og Edda
skildu árið 1986. Börn
Karls og Eddu eru: 1)
Hermann, bóndi á
Klifmýri í Dalabyggð,
f. 23. maí 1957,
kvæntur Guðrúnu El-
ísabetu Jóhannsdótt-
ur og eiga þau fjóra
syni, Jóhann,
Tryggva, Rúnar og
Ragnar. Úr fyrri sambúð á Her-
mann Eddu Lóu og Kristján Grím.
2) Sigríður Bryndís, bóndi á Geir-
mundarstöðum í Dalabyggð, f. 21.
september 1958, gift Þórði Bald-
urssyni, þau eiga tvö börn, Birnu
og Baldur. 3) Dagný, húsmóðir í
Mosfellsbæ, f. 25. febrúar 1962
Karl og Edda bjuggu á Klifmýri
á Skarðsströnd við innanverðan
Breiðafjörð. Þau bjuggu þar mynd-
arbúi ásamt börnum sínum. Kalli
var oddviti sveitarinnar og fjöl-
skyldan var fyrirferðarmikil en
stóð saman í blíðu og stríðu við
rekstur búsins. Ég kunni vel við
kraft og dugnað þeirra og síðar
tengdist ég þessari fjölskyldu með
því að verða tengdasonur Kalla.
Síðan hefur verið gott samband
milli okkar þrátt fyrir að við litum
flest í lífinu hvor frá sínum sjón-
arhólnum. Það var sama hvort það
var pólitík eða hversdagslegt álit
til rekstrarforms eða til annarra
athafna manna. Skoðanir okkar
fóru sjaldan saman en kom aldrei
að sök í okkar samskiptum. Kalli
hafði þann eiginleika sem margur
mátti öfunda hann af. Hann kunni
að virða skoðanir annarra og var
alltaf tilbúinn í rökræður. Því varð
það með tímanum að við urðum
nánari og á ég margar góðar minn-
ingar um fundi okkar.
Það eru að verða 23 ár síðan ég
fluttist á Skarðsströndina. Eftir
tengsl við fjölskylduna bjó ég í ná-
grenni við Kalla á Klifmýri. Þar
hafði hann byggt upp nýbýli og þar
rak fjöskyldan saman stórbú af
samheldni og myndarskap. Kalli,
höfuð fjölskyldunnar, kom þannig
fyrir að hann talaði ekki af sér í
margmenni. Þau orð sem frá hon-
um fóru voru stundum ekki mörg
en þau voru ætíð vel ígrunduð og
eftirtektarverð. Þó stundum liti út
fyrir að Kalli væri fár og þungur
þá voru mannfagnaðir og skemmt-
anir honum mikils virði. Sjaldan
var hann ánægðari ásýndar en á
þeim stundum þegar aðrir
skemmtu sér vel. Hann vildi að all-
ir í kringum hann væru glaðir og
kátir. Dansmaður var hann mikill
og notaði hvert tækifæri sem gafst
til þess að bjóða dömu upp í dans
auk þess að taka í spil hvenær sem
færi gafst.
Eftir að Kalli flutti suður fór
hann að reka verslun. Það var starf
sem hann hafði gaman af. Gaman
var að koma í búðina til hans, hann
ljómaði þá oft af gleði. Því miður
hafði hann ekki heilsu eða aðra
getu til þess að standa í þeim
rekstri lengi. Fljótlega eftir að
hann hætti þeim rekstri fluttist
hann í Hátún 12 og bjó þar til síð-
asta dags. Þegar ég var líka kom-
inn hingað á mölina átti ég það til
þegar annir dagsins voru yfirþyrm-
andi að hringja í Kalla og spyrja
hvort hann væri heima. Ef svo var
þá var slökkt á símanum og farið í
kaffi til Kalla. Það gat verið mikil
slökun í því að spjalla við hann í
einn til tvo tíma. Rætt var um allt
milli himins og jarðar, rökrætt og
þráttað, en alltaf í mestu vinsemd.
Fyrir tilviljun fór ég í eina slíka
heimsókn til Kalla fáum dögum áð-
ur en hann dó. Hann var hinn kát-
asti og sátum við og spjölluðum
saman í um tvo tíma. Ekki óraði
mig fyrir því að það væri í síðasta
sinn sem við töluðumst við. En eft-
ir á að hyggja finnst mér eins og
að hann hafi rennt í grun að svo
væri. Hjá mér situr eftir minningin
um góðan vin og tengdaföður sem
saknað er. Hann var maður sem
oft reyndist mér og mínum vel alla
tíð. Það er gott að eiga minningu
um slíkan mann.
Megi hann ganga á guðs vegum.
Unnsteinn B. Eggertsson.
Elsku afi.
Það er skrítið að hugsa til þess
að þú sért farinn frá okkur. Þetta
gerðist svo fljótt að ég náði ekki að
átta mig á brottför þinni fyrr en
seinna. En það er gott að hugsa
um þig á góðum stað þar sem þú
þarft ekki að þjást eða berjast við
veikindin.
Allar minningarnar sem ég á um
þig eru góðar. Þú varst mjög góður
dansari og mér eru nokkur dans-
atvik minnisstæðust. Þ.á m. í brúð-
kaupinu þeirra mömmu og pabba.
Þú dansaðir við mömmu og það
kom þessi rosalega danssveifla og
sveiflaðist pilsið á brúðarkjólnum
um allt og endaði á kertunum sem
stóðu á brúðhjónaborðinu.
Og ekki alls fyrir löngu vorum
við fyrir vestan í réttunum og um
kvöldið var slegið upp veislu á
Geirmundarstöðum. Þar dansaðir
þú við dætur þínar tvær auk ann-
arra kvenna. Á þeirri stundu hefði
mér aldrei dottið í hug að ég myndi
missa þig svona fljótt. En maður
getur víst ekki spáð fyrir öllu.
Án þín verða réttirnar ekki eins
og þær eiga að vera.
Mér verður hugsað til þín á
hverjum degi og ég vildi að ég
hefði getað kvatt þig í síðasta sinn.
En ég sendi þér nú mína síðustu
kveðju til þín og minni sjálfa mig á
að við munum hittast síðar á góð-
um stað.
Ó hvar? Er glatað ei glatað?
Gildir ei einu um hið liðna, hvort grófu
það ár eða eilífð?
Unn þú mér heldur um stund, að megi
ég muna,
minning, hrópandi rödd,
ó dvel!
(Jóhann Jónsson.)
Elsku afi, ég mun aldrei gleyma
þér.
Edda Unnsteinsdóttir.
KARL HAFSTEINN
PÉTURSSON
Fleiri minningargreinar um Karl
Hafstein Pétursson bíða birtingar
og munu birtast í blaðinu næstu
daga.
✝ Sigurlaug Jóns-dóttir fæddist í
Reykjavík 2. septem-
ber 1954. Hún lést á
heimili sínu í Kefla-
vík 21. október síð-
astliðinn. Foreldrar
hennar voru Sigríður
Jóhannesdóttir og
Gústav Jensson.
Eldri bróðir Sigur-
laugar er Grétar
Gústavsson. Sigur-
laug var ættleidd af
hjónunum Ingu Sig-
urjónsdóttur, f. 17.8.
1915, d. 11.10. 2001,
og Jóni B. Kristbjörnssyni, húsa-
smíðameistara, f. 16.7. 1914, d.
2.12. 2001. Systkini Sigurlaugar
eru Kristbjörn, kvæntur Lisu
Becker, og Valgerður, gift Guðna
Hannessyni.
Sigurlaug giftist 2. september
1972 Jóni Atla Ját-
varðssyni, búfræð-
ingi frá Miðjanesi í
Reykhólasveit, f.
26.1. 1949. Börn
þeirra eru: 1) Drífa
Björk, f. 17.9. 1973,
gift Kára Vali Sig-
urðssyni, synir
þeirra eru Styrmir
Ingi, f. 1.10. 1998, og
Ýmir Atli, f. 15.11.
2000. 2) Sindri
Freyr, f. 29.6. 1976.
Þau skildu. Sigur-
laug var síðar í sam-
búð með Gunnari Jó-
hannessyni. Þau slitu samvistum.
Þau eiga dótturina Elen Eik, f.
12.10. 1981, sambýlismaður henn-
ar er Kristján Davíðsson.
Útför Sigurlaugar verður gerð
frá Fossvogskirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 10.30.
Sigurlaug stóra systir mín er dá-
in. Það er svo erfitt að sætta sig við
það þegar ástvinir eru kallaðir svo
skyndilega frá okkur, en Sigurlaug
varð bráðkvödd aðeins 48 ára að
aldri. Ég hélt við ættum eftir að
fylgjast að í mörg ár enn. Maður
sér hvað það er mikilvægt fyrir
mann að nota tímann vel með ást-
vinum á meðan maður hefur þá ná-
lægt sér.
Sigurlaug var svo kát að eðlisfari,
hláturinn smitandi, en þó vildi hún
mikið vera ein. Ég á svo mikið af
minningum þar sem við veltumst
um af hlátri, fyrst og fremst af því
hún sá svo margt broslegt við hlut-
ina. Það er gott að hafa góðu minn-
ingarnar að ylja sér við, bæði frá
æsku okkar og eins áttum við mikið
af góðum stundum þegar við vorum
með krakkana okkar litla. Við vor-
um alltaf í sambandi og nú síðustu
árin þegar hún bjó í Keflavík
hringdum við mikið á milli.
Sigurlaug var fædd með lista-
mannshæfileika, teiknaði frábær-
lega og var músíkölsk. Því miður
hætti hún námi í myndlistarskóla
og nýtti sér ekki hæfileikana sem
skyldi, hún var alltaf óframfærin.
Hún hafði svo marga góða hæfileika
og var einstaklega bókhneigð. Ég
man varla eftir systur minni öðru
vísi en að lesa, teikna eða skrifa.
Hún sökkti sér niður í bækur og var
svo fróð um marga hluti. Ég á eftir
að sakna hennar mikið.
Ég bið góðan guð að styrkja
börnin hennar og fjölskyldu þeirra í
þessari miklu sorg.
Valgerður Jónsdóttir.
SIGURLAUG
JÓNSDÓTTIR
www.solsteinar.is sími 564 4566
Legsteinar
í Lundi
við Nýbýlaveg, Kópavogi
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma,
ARNBJÖRG ARADÓTTIR
frá Grýtubakka,
Þingvallastræti 16,
Akureyri,
verður jarðsungin frá Grenivíkurkirkju föstudag-
inn 1. nóvember kl. 14.00.
Aðalbjörg Baldursdóttir,
Sigríður Baldursdóttir, Páll Kjartansson,
Sigrún Baldursdóttir,
Margrét Baldursdóttir, Ólafur Einarsson,
Jónas Baldursson, Guðrún Eyvindsdóttir,
Bryndís Baldursdóttir, Jón E. Berg,
Ari Baldursson, Kolbrún Reynisdóttir,
Guðmundur Baldursson, Elisabeth Kvelland,
barnabörn og barnabarnabörn.
Móðurbróðir okkar,
TRYGGVI SAMÚELSSON
járnsmiður,
Hátúni 10,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu
föstudaginn 1. nóvember kl. 10.30.
Kristín Emilía Daníelsdóttir,
Elsa Olsen.
Okkar ástkæra
KOLBRÚN ÓSK ÓLAFSDÓTTIR,
Leirutanga 35B,
til heimilis á deild 20,
Landspítalanum Kópavogi,
verður jarðsungin frá Fíladelfíukirkjunni, Hátúni
2, föstudaginn 1. nóvember kl. 15.00.
Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir,
en þeim, sem vilja minnast Kolbrúnar, er bent
á minningarkort Foreldra- og vinafélags Kópavogshælis sem fást hjá
Styrktarfélagi vangefinna, sími 551 5941 og hjá Landspítalanum í Kópa-
vogi, sími 543 9200.
Ólafur Kristinsson, Regína Heincke,
Vilhjálmur Magnússon, Ólöf Björnsdóttir,
Guðni Rúnar,
Hanna Ruth,
Guðrún Hafliðadóttir.
Hjartkær föðursystir mín,
GUÐFINNA GÍSLADÓTTIR,
Ölduslóð 36,
Hafnarfirði,
andaðist á hjúkrunarheimilinu Sólvangi þriðju-
daginn 29. október.
Jarðarförin auglýst síðar.
Gísli Ingi Sigurgeirsson.
Móðir okkar,
SVAVA BERNHARÐSDÓTTIR,
Hrauntungu 50,
Kópavogi,
lést á Landspítalanum Fossvogi þriðjudaginn
29. október.
Bernharður Guðmundsson,
Margrét Guðmundsdóttir,
Kristján Guðmundsson
Þórhallur Guðmundsson.