Morgunblaðið - 01.11.2002, Qupperneq 6
FRÉTTIR
6 FÖSTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
EIGANDI fasteignasölunnar Holt,
sem er lögfræðingur og löggiltur fast-
eignasali, gaf sig fram við efnahags-
brotadeild ríkislögreglustjóra á
þriðjudag og skv. gögnum sem hann
lagði fram virðist fjárdrátturinn
nema um 80 milljónum króna. Sama
dag og maðurinn gaf sig fram höfðu
fulltrúar Íbúðalánasjóðs afhent hon-
um athugasemdir sjóðsins varðandi
framsal á 6–8 fasteignaverðbréfum.
Sjóðurinn grunaði hann þó ekki um
lögbrot og því var lögregla ekki látin
vita. Öll viðskipti mannsins við Íbúða-
lánasjóð eru nú til rannsóknar hjá
sjóðnum.
Breytti framsölum á bréfum
Hallur Magnússon, sérfræðingur
hjá Íbúðalánasjóði, sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær að í síðustu viku
hafi fasteignasalinn komið með fast-
eignaverðbréf til sjóðsins sem hefði
ekki fullnægt kröfum. Við nánari at-
hugun hafi komið í ljós að framsöl á
6–8 fasteignaverðbréfum sem hann
fékk greidd hjá sjóðnum, voru ekki í
lagi. Komið hafi í ljós að maðurinn
hafði breytt framsölunum eftir að við-
skiptavinir hans undirrituðu þau,
þannig að greiðslur runnu til hans en
ekki viðskiptavinanna. Hallur sagðist
ekki vera með upplýsingar um hversu
miklar fjárhæðir væri um að ræða.
Spurður um hvort eftirlit Íbúðalána-
sjóðs hefði brugðist segir Hallur:
„Það er ljóst að starfsfólk okkar
fylgdi ekki réttum formsatriðum og
þarna fóru í gegn fasteignaverðbréf
sem hefðu ekki átt að vera afgreidd.“
Innra eftirlitið hefði hins vegar borið
árangur, hvorki lögregla né aðrir
hefðu bent sjóðnum á meint brot
mannsins. Aðspurður hvort Íbúða-
lánasjóður væri hugsanlega bóta-
skyldur gagnvart tjónþolum, segir
Hallur að enn sé of snemmt um það að
segja en bendir fólki á að fá sér lög-
fræðing til að verja hagsmuni sína.
Eins og fyrr segir heimsóttu
fulltrúar Íbúðalánasjóðs fasteignasal-
ann á þriðjudag. Ef til vill hefur þessi
heimsókn orðið til þess að fasteigna-
salinn ákvað að gefa sig fram síðar um
daginn en ljóst má vera að hringurinn
var að þrengjast. Í síðustu viku var
hann boðaður til yfirheyrslu hjá lög-
reglunni í Kópavogi vegna kæru sem
byggingameistari lagði fram gegn
honum 30. janúar sl., níu mánuðum
fyrr. Hann mætti hins vegar aldrei í
yfirheyrsluna heldur sneri sér beint
til efnahagsbrotadeildar ríkislög-
reglustjóra. Jón H. Snorrason, yfir-
maður efnahagsbrotadeildar, sagði í
samtali við Morgunblaðið, að hann
hefði ekki fengið vitneskju um kær-
una til lögreglunnar í Kópavogi fyrr
en í gær.
Margvísleg undanbrögð
Það var Þröstur Valdimarsson,
húsasmíðameistari í Hafnarfirði sem
kærði manninn til lögreglu 30. janúar
sl. en hann seldi íbúð með milligöngu
fasteignasalans fyrir um tveimur ár-
um. Vegna viðskiptanna skrifaði hann
undir fasteignaverðbréf fyrir 4,5
milljónir 10. janúar sl. og framseldi
fasteignaverðbréfið til Íbúðalána-
sjóðs. Fasteignasalinn átti að sjá um
að láta þinglýsa bréfinu og koma því
til sjóðsins sem átti að leggja andvirði
bréfsins inn á biðreikning Þrastar. Að
sögn Þrastar hringdi fasteignasalinn í
hann nokkrum dögum síðar og sagði
að bréfið hefði verið gallað og því
myndi greiðslan tefjast. Um hálfum
mánuði síðar, á föstudegi, hafi hann
hringt aftur og sagt að bréfið væri
komið. „Þegar ég kom á skrifstofuna
síðar um daginn sagði hann mér síðan
að hann hefði sent það í pósti,“ segir
Þröstur. Ekki barst bréfið og á mið-
vikudag fór Þröstur aftur á skrifstof-
una og bað um að fá ljósrit af kvitt-
uninni fyrir bréfinu en kvittunin
fannst hvergi. „Um miðnætti barst
kvittunin loks inn um lúguna hjá mér
en þá var búið að klippa hausinn af
henni þannig að það sást ekki á hvern
bréfið var stílað. Með fylgdu skilaboð
um að bréfið væri komið á Verðbréfa-
stofu, þar sem ég gæti nálgast það en
það reyndist rangt.“ Þröstur hringdi
þá í fasteignasalann sem sagðist vera
á leiðinni til hans með bréfið. Eftir tvo
klukkutíma gafst Þröstur upp á bið-
inni, fór í Íbúðalánasjóð og fékk afrit
af fasteignaverðbréfinu. „Þar sá ég að
hann hafði breytt framsali mínu og
falsað bréfið þannig að það virtist sem
ég hefði framselt bréfið til hans en
ekki Íbúðalánasjóðs,“ segir Þröstur.
Eftir að lögmaður Þrastar hafði sam-
band við fasteignasalann borgaði
hann andvirði bréfins inn á reikning
Þrastar. Þröstur ákvað að kæra
manninn engu að síður enda greini-
lega um lögbrot að ræða og lagði inn
kæru til lögreglunnar í Hafnarfirði.
Vegna ættartengsla fasteignasalans
við lögreglumann hjá embættinu var
á hinn bóginn ákveðið að lögreglan í
Kópavogi myndi rannsaka málið.
Árangurslausar fyrirspurnir
Þetta gerðist 30. janúar sl. Um
þremur mánuðum síðar kannaði
Þröstur málið hjá lögreglunni en var
þá tjáð að kæran hefði aldrei verið
bókuð og sendi hann þá afrit af kær-
unni til lögreglunnar. Eftir nokkrar
árangurslausar fyrirspurnir í viðbót
kvartaði hann yfir aðgerðarleysi lög-
reglunnar til dómsmálaráðuneytisins
og óskaði eftir því að rannsókn máls-
ins yrði færð til annars embættis.
„Mér finnst þessi vinnubrögð fyrir
neðan allar hellur og í raun stórfurðu-
legt að þessi fasteignasali hafi fengið
að starfa í skjóli lögreglunnar,“ segir
Þröstur. Koma hefði mátt í veg fyrir
stjórtjón hefði kæru hans verið sinnt
betur. Sjálfur hefði hann þó engum
peningum tapað, nema því sem fór í
lögfræðikostnað og vinnutap. Auk
þess að kæra manninn til lögreglunn-
ar segist Þröstur hafa greint starfs-
mönnum Íbúðalánasjóðs frá málinu
og auk þess sent kæruna til Félags
fasteignasala.
Ekki forgangsmál hjá
lögreglunni í Kópavogi
Friðrik Björgvinsson, yfirlögreglu-
þjónn í Kópavogi, var spurður að því
hvernig stæði á drætti á rannsókn
málsins en um níu mánuðir liðu frá
kæru og þar til fasteignasalinn var
kallaður til yfirheyrslu. „Staðreyndin
er sú að það berst mikill fjöldi mála til
lögreglunnar og fleiri en svo að við
getum sinnt þeim öllum jafnóðum. Öll
mál eru þó skoðuð strax í upphafi og
vegin og metin og síðan forgangsrað-
að eftir mikilvægi. Við leggjum
áherslu á að hraða málum sem varða
brot gegn lífi og líkama og mál sem
varða börn og ungmenni. Einnig öðr-
um málum þar sem brýnir hagsmunir
eru til staðar. Við fyrstu skoðun á
þessu máli var það ekki metið þannig
að það þyrfti sérstaka flýtimeðferð,
meðal annars vegna þess að fjármun-
ir höfðu skilað sér að fullu til kæranda
og það áður en kæran var lögð fram.
Málinu hefur engu að síður verið
sinnt og gagnaöflun farið fram,“ segir
Friðrik. Spurður um hvort ekki hefði
átt að sinna rannsókninni betur, í ljósi
þeirra brota sem maðurinn hefur ját-
að á sig, bendir Friðrik á að aðeins
hefði borist ein kæra á hendur mann-
inum til lögreglunnar. Ekki hefði leg-
ið fyrir grunur um annað misferli og
þessi eina kæra hefði ekki átt að vekja
grunsemdir um að fleira væri að.
Friðrik segir ekki einsdæmi að rann-
sókn mála taki svo langan tíma. Hann
kannast ekki við að kæra Þrastar
Valdimarssonar hefði týnst hjá emb-
ættinu.
Dómsmálaráðuneytið óskaði eftir
því 16. október að sýslumaðurinn í
Kópavogi gæfi skýringar á drætti á
rannsókn. Sýslumaður átti að svara
28. október en svarið barst ráðuneyt-
inu síðdegis í gær. Þar segir að þar
sem fjármunirnir hefðu skilað sér til
kæranda, málið ekki verið sett í þann
flokk mála sem njóta forgangs. Þar
sem ríkislögreglustjóri ynni nú að
rannsókn málsins hafi kæra Þrastar
verið send þangað.
Ekkert skriflegt erindi hjá
dómsmálaráðuneytinu
Guðrún Árnadóttir, formaður fé-
lags Fasteignasala, segir að félagið
hafi margoft bent dómsmálaráðu-
neytinu á að eftirlit yrði hert með
starfsemi fasteignasala, sérstaklega
með meðferð þeirra á vörslufé. Björn
Friðfinnsson, ráðuneytisstjóri í dóms-
málaráðuneytinu, sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær að engin skrifleg
beiðni um þetta hefði verið lögð fram.
Hugsanlega hefði óskin verið sett
fram munnlega en hann vissi þó ekki
til þess. „Í frumvarpi að núgildandi
lögum, sem unnið var í ráðuneytinu,
var gert ráð fyrir að tryggingar fast-
eignasala tækju jafnt til gáleysis- sem
ásetningsbrota. En því var breytt á
Alþingi eftir umsögn frá Trygginga-
eftirliti og fleirum. Þannig að nú taka
tryggingarnar bara til ásetnings-
brota,“ segir Björn.
Gjaldþrotabeiðni 5. september
Héraðsdómur Reykjaness úr-
skurðaði í gær að bú fasteignasölunn-
ar Holts í Kópavogi skyldi tekið til
gjaldþrotaskipta og maðurinn hefur
einnig farið fram á að verða sjálfur
lýstur gjaldþrota. Í skriflegri yfirlýs-
ingu frá 16. júlí 2002 lýsir fram-
kvæmdastjórinn, sá sem nú hefur ját-
að tugmilljóna fjárdrátt, því yfir að
fyrirtækið væri eignalaust. Hinn 5.
september fór sýslumaðurinn í Kópa-
vogi fram á að fyrirtækið yrði úr-
skurðað gjaldþrota vegna 9,1 milljón-
ar í gjaldfallin opinber gjöld. Ekki
náðist í sýslumanninn í Kópavogi
vegna þessa.
Fasteignasalan Holt á Akureyri vill
taka fram, að hún sé alveg ótengd
samnefndri sölu í Kópavogi.
Fasteignasali sem játaði tugmilljóna fjárdrátt kærður til lögreglunnar í Kópavogi fyrir 9 mánuðum
Íbúðalánasjóður hefði
ekki átt að afgreiða bréfin
Morgunblaðið/Golli
Fasteignasölunni Holti hefur verið lokað, enda fyrirtækið gjaldþrota.
Ekki er ljóst hvaða afleiðingar tugmilljóna
svik fasteignasala í Kópavogi hafa fyrir þá
sem hafa keypt eða selt fasteignir með
milligöngu hans. Sama dag og maðurinn
gaf sig fram við lögregluna höfðu fulltrúar
Íbúðalánasjóðs gert athugasemdir við
framsöl á 6–8 fasteignaverðbréfum sem
hann hafði fengið greidd hjá sjóðnum.
Rúnar Pálmason kynnti sér málið.
runarp@mbl.is
KALDBAKUR hf. og S-hópurinn
svonefndi (þ.e. Eignarhaldsfélagið
Andvaka, Eignarhaldsfélagið Sam-
vinnutryggingar, Fiskiðjan Skagfirð-
ingur hf., Kaupfélag Skagfirðinga
svf., Ker hf., Samskip hf. og Sam-
vinnulífeyrissjóðurinn)
afhentu í gær framkvæmdanefnd
um einkavæðingu svör við þeim
spurningum sem hún hafði beint til
þessara tveggja fjárfestahópa, þ.e.
um fjárhagsstöðu, þekkingu og
reynslu á fjármálamarkaði, eignar-
hlut sem viðkomandi óskar eftir
kaupum á, hugmyndum um stað-
greiðsluverð og áformum varðandi
rekstur Búnaðarbankans.
„Jú, það er rétt, við fengum svör frá
þeim í dag (í gær) en ég tek fram að
það er ekki rétt að kalla þetta tilboð,“
áréttar Skarphéðinn Steinarsson hjá
framkvæmdanefnd um einkavæð-
ingu. „Það stendur ákveðið söluferli
yfir sem gengur út á það að velja
hvorn aðilann verður farið í viðræður
við. Við höfum átt fundi með þeim og
þeir farið á kynningarfundi í Búnað-
arbankanum og við höfum lagt fyrir
þá spurningar sem þeir hafa nú svar-
að. Þær spurningar snúa að mörgum
þáttum og þetta er með líkum hætti
og þegar unnið var að sölu Lands-
bankans.“
Skarphéðinn segir að á næstu dög-
um verði farið yfir svörin frá Kaldbaki
og S-hópnum. „Það er ómögulegt að
segja til um hvenær niðurstaða liggur
fyrir en ég vonast þó til þess að hún
geti legið fyrir nokkuð fljótt.“
Kaldbakur og S-hópur-
inn svöruðu í gær