Morgunblaðið - 01.11.2002, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 01.11.2002, Blaðsíða 23
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2002 23 HAGNAÐUR Skeljungs á fyrstu níu mánuðum ársins nam 974 milljónum króna, en á sama tímabili í fyrra var hagnaðurinn 402 milljónir króna og er aukningin því 142%. Aukning hagnaðar fyrir skatta var meiri, eða 195%, og var hagnaður fyrir skatta 1.199 milljónir króna í ár. Í krónum talið er aukningin fyrir skatta 793 milljónir króna og skýrist hún af við- snúningi í fjármagnsliðum. Í fyrra voru hrein fjármagnsgjöld 621 millj- ón króna, en í ár voru hreinar fjár- magnstekjur 546 milljónir króna. Batinn milli ára í fjármagnsliðum er því 1.167 milljónir króna. Rekstrartekjur minnkuðu um tæpa 1,3 milljarða króna og námu 11,6 milljörðum króna í ár. Kostnað- arverð seldra vara lækkaði um rúman einn milljarð króna í 8,7 milljarða króna. Hagnaður fyrir afskriftir minnkaði milli ára um 386 milljónir króna og nam 941 milljón króna á fyrstu níu mánuðum þessa árs. Framlegð félagsins lækkaði úr 10,3% í fyrra í 8,1% í ár. Á þriðja fjórðungi í ár var framlegðin þó hærri en á fyrri hluta ársins, eða 11,0%. Hreinar fjárfestingar fyrir 1,3 milljarða króna Veltufé frá rekstri lækkaði um 3% og var 954 milljónir króna á fyrstu níu mánuðum þessa árs. Eigið fé jókst um tæpan 1,1 millj- arð króna frá áramótum til loka sept- ember í ár og fór í tæpa 5,4 milljarða króna. Eiginfjárhlutfall hækkaði úr 36,1% í 44,2%. Arðsemi eigin fjár var 30,0% á fyrstu níu mánuðum þessa árs, en 14,9% á sama tímabili í fyrra. Heildareignir hækkuðu úr 10,3 milljörðum króna um áramót í 12,1 milljarð króna í lok september. Skuldir jukust um tæpar 700 millj- ónir króna í 6,8 milljarða króna. Hrein fjárfesting Skeljungs í eign- arhlutum í öðrum félögum hefur í ár numið tæpum 1,3 milljörðum króna, meðal annars í Þorbirni Fiskanesi og Flugleiðum. Hagnaður Skeljungs 974 milljónir króna Framlegð lækkar, en arðsemi eigin fjár eykst TILKYNNT var í gær hverjir væru eigendur Ráeyrar ehf., sem keypti 45,9% hlutafjár í Þormóði ramma – Sæbergi hf. fyrir tæpa 3,2 milljarða króna á mánudaginn. Helstu eigendur eru Þormóður rammi – Sæberg hf. sjálfur, Landsbanki Íslands, Ísfélag Vestmannaeyja, Burðar- ás, Sjóvá-Almennar, Skeljungur og Olís. Auk hlutarins í Þormóði ramma keypti Ráeyri 9% hlut í Þorbirni-Fiskanesi fyrir 630 milljónir króna og 6,1% í Scand- sea International AB. Í fréttatilkynningunni segir að hluthafar Ráeyrar ehf. séu allir virkir þátttakendur í ís- lenskum sjávarútvegi. „Tilgang- ur kaupanna er m.a. að styrkja rekstur Þormóðs ramma – Sæ- bergs hf. og stuðla að eðlilegri framþróun í íslenskum sjávarút- vegi. Enginn hluthafa Ráeyrar ehf. á yfir 2% hlut í Þormóði ramma – Sæbergi hf.,“ segir í tilkynningunni. Samkvæmt hlutafélagaskrá eru stjórnarmenn Ráeyrar Ólaf- ur Helgi Marteinsson, fram- kvæmdastjóri Þormóðs ramma – Sæbergs og Gunnlaugur Sæv- ar Gunnlaugsson, stjórnarfor- maður Ísfélags Vestmannaeyja. Ekki náðist í forráðamenn þeirra félaga sem samkvæmt til- kynningunni eiga Ráeyri ehf. eða þeir vildu ekki tjá sig og vís- uðu á Ólaf Helga Marteinsson sem vísaði í fréttatilkynninguna. Burðarás og Landsbank- inn meðal eig- enda Ráeyrar MOODY’S Investor Service hefur hækkað lánshæfiseinkunn Lands- virkjunar í Aaa úr Aa3 á erlendum langtímaskuldum fyrirtækisins. Þetta er hæsta einkunn sem fyrir- tæki geta fengið hjá Moody’s. Þessi hækkun kemur í kjölfarið á sambærilegri breytingu lánshæfis- einkunnar erlendra skulda íslenska ríkisins frá 20. október sl. Að mati Landsvirkjunar eru þetta skýr skilaboð um traustan rekstur og jafnframt viðurkenning á mikil- vægi fyrirtækisins fyrir íslenskt at- vinnulíf. „Þá er ljóst að fyrirtækið getur búist við að fá enn hagstæðari kjör á erlendum lánamörkuðum sem er gott veganesti fyrir væntanlegar virkjanaframkvæmdir,“ samkvæmt upplýsingum frá Landsvirkjun. Moody’s hækkar lánshæfismat Landsvirkjunar Byrjum í dag RAGNAR AÐALSTEINSSON SIGRÍÐUR RUT JÚLÍUSDÓTTIR Lögmenn Ragnar Aðalsteinsson hrl. og Sigríður Rut Júlíusdóttir hdl. opna í dag nýja lögmannsstofu að Klapparstíg 25-27. Ragnar á að baki 40 ára lögmannsferil sem spannar breitt svið, allt frá skaðabótarétti og refsirétti til alþjóðlegra mannréttindalaga og fjarskiptaréttar. Sigríður Rut hefur einnig fengist við mál sem eftir hefur verið tekið og má þar nefna sigur hennar í óvenjulegu barnsfaðernismáli, mál vegna uppkaupa sveitarfélaga á húsum á snjóflóðasvæðum á Vestfjörðum og mál vegna myndarinnar Í skóm drekans. Lögmannsstofan er opin virka daga frá kl. 9.00–17.00. 5 6 8 3 www.lyfja.is 20% kynningarafsláttur af OROBLU sokkum og sokkabuxum. Skrefi framar Sokkar, sokkabuxur, undirföt. oroblu@islensk-erlenda.is Kynnum OROBLU haustvörurnar í Lyfju Garðatorgi í dag, föstudag, kl. 14-18, Lyfju Laugavegi laugardag kl. 13-17. DILBERT mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.