Morgunblaðið - 01.11.2002, Side 16
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
16 FÖSTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
UMHVERFISVÆNT hverfi er nú í
bígerð í Hafnarfirði á svokölluðum A-
reit annars áfanga Valla, en þar verða
markmið Staðardagskrár 21 og sjálf-
bær þróun höfð að leiðarljósi í skipu-
lagsvinnunni. Á B-reit sama svæðis
verða hefðbundnari sjónarmið látin
ráða ferðinni og verður hönnunar-
vinnan boðin út í lokuðu útboði. Gert
er ráð fyrir að lóðir á þeim hluta komi
til úthlutunar næsta vor.
Vellir eru sunnan við Reykjanes-
braut og vestan við Ástjörn og Grísa-
nes á svæðinu upp af Haukahúsinu.
Framkvæmdir eru þegar hafnar við
fyrsta áfanga hverfisins, en um er að
ræða framtíðar íbúðasvæði Hafnfirð-
inga. Að sögn Gunnars Svavarssonar,
formanns Skipulags- og bygginga-
ráðs Hafnarfjarðar, hefur vinnu við
þessi svæði verið hrundið af stað.
„Annars vegar er um að ræða deili-
skipulagsverkefni sem byggist á meg-
inmarkmiðum og gildum sjálfbærrar
þróunar og við munum reyna að láta
það endurspeglast í byggingarefnum,
formi og öllu umhverfi. Það má
kannski kalla þetta grænt hverfi.“
„Allt undir“
Hann segir þetta muni endurspegl-
ast í áherslum á flokkun sorps, end-
urnýtingu og góðri umgengni um
hverfið, svo eitthvað sé nefnt. „Það er
jafnvel verið að tala um að takmarka
bílaumferð á einhvern hátt í hverfinu
þannig að það yrðu jafnvel lengri
gönguleiðir að húsum frá sameigin-
legu bílastæði. Hugsanlega yrði
hverfið byggt upp þannig að það þurfi
að nýta almenningsvagna frekar en
ekki og hjólreiðastígakerfi yrði
kannski betra en annars staðar. Svo
hefur verið bent á möguleikann á að
byggja úr náttúrulegum efnum.
Þannig að það er allt undir í þessu.“
Að sögn Gunnars verður reynt að
komast fljótlega í samband við þá sem
hefðu hugsanlega áhuga á að búa í
slíku hverfi. „Þannig gætu þeir jafn-
vel haft áhrif á skipulagsvinnuna og
tekið þátt í henni á einhvern hátt.“
Hann bendir á að hönnunarvinnan
verði í höndum arkitekta á bæjar-
skipulaginu en rík samvinna verði
höfð við aðra hluta stjórnsýslunnar og
nefnir þar staðardagskrárnefndina
sem dæmi. Þá verði leitast við að hafa
samráð við hagsmunahópa og samtök
sem gætu haft eitthvað til málanna að
leggja í þessu sambandi.
„Þetta er tímafrekt deiliskipulags-
verkefni því það eru gríðarlega marg-
ir sem þurfa að koma að þessu,“ segir
Gunnar aðspurður um hvenær búast
megi við að vinnunni verði lokið. „Við
erum að stefna að því að þessu verði
lokið í enda næsta árs þannig að þetta
gæti orðið 12–18 mánaða ferli.“
Hann segir það munu skýrast á
skipulagstímanum hversu stór byggð
verði þarna. „Síðan stendur maður
frammi fyrir þeirri spurningu hvort
það sé ásókn í að búa á svona svæði.
Þetta er fyrst og fremst tilraun sem
er fullur vilji fyrir að fara fram með.“
Komi með verðtilboð
en ekki tillögur
Undirbúningur er einnig hafinn að
vinnu við deiliskipulag svokallaðs B-
reits, annars áfanga Valla og að sögn
Gunnars verður þar um að ræða
meira hefðbundið skipulag. „Það sem
er kannski fréttnæmt við þetta svæði
er að þar verða lóðir til úthlutunar
næsta vor í Hafnarfirði, bæði fyrir
fyrirtæki og einstaklinga. Hitt er það
að við ætlum að reyna að bjóða út
arkitektavinnuna, hönnunarvinnuna
sjálfa, í lokuðu útboði.“
Hann segir ekki um lokaða sam-
keppni að ræða því ekki sé ætlast til
að arkitektarnir leggi fram tillögur
heldur komi einungis með verðtilboð.
„Menn hafa verið að fá hönnunartil-
boð í gatnagerðarþáttinn og eftirlits-
þáttinn frá verkfræðistofum en við
könnumst ekki við að arkitektastofur
hafi áður verið beðnar um að keppa
sín á milli í lokuðu útboði um verð.“
Þær stofur sem hafa verið valdar
fyrir útboðið eru Gláma Kím, Batt-
eríið, Úti og inni, Arkís og Arkitekta-
stofa Gylfa og félaga. Að sögn Gunn-
ars mun deiliskipulagstillagan byggj-
ast á rammaskipulagi svæðisins sem
var endurnýjað á síðasta ári en gera
megi ráð fyrir að deiliskipulagsvinnan
taki fjóra mánuði.
Hafist handa við deiliskipulagningu annars áfanga Valla sem verður tvískiptur
Grænt hverfi og lóðir komi
til úthlutunar næsta vor
Hafnarfjörður
SAMNINGUR um afnot af landi
austur af Haukshúsum fyrir níu holna
æfingagolfvöll var undirritaður á
Álftanesi á miðvikudag. Það voru
landeigendur Halakots og Svalbarða,
sveitarstjóri og fulltrúar stjórnar
Golfklúbbs Álftaness (GÁ) sem und-
irrituðu samninginn.
Samkvæmt samningnum fær GÁ
landið til afnota til ársloka 2007 en
það er um 5 hektarar að stærð. Ligg-
ur fyrir hugmynd um uppsetningu
níu holu golfvallar til æfinga og
kennslu á vegum GÁ.
Segir í fréttatilkynningu að sveitar-
félagið leggi á það áherslu að iðkend-
ur golfs taki fullt tillit til annarrar
starfsemi á vegum sveitarfélagsins í
Haukshúsum. Meðal annars hefur
húsið verið aðsetur sumarnámskeiða
og kofaborgar barna, sparkvöllur er á
svæðinu og ýmis félagasamtök halda
þar fundi svo eitthvað sé nefnt.
Æfingagolf-
völlur kem-
ur á Álftanes
Bessastaðahreppur
Morgunblaðið/Þorkell
Frá undirritun á miðvikudag.
Standandi frá vinstri: Klemenz
Gunnlaugsson, Þrúður Gunnlaugs-
dóttir, Sveinbjörn Hrafn Svein-
björnsson, Stefán Arinbjarnarson,
Erla Guðjónsdóttir og Tómas Þor-
steinsson. Sitjandi: Jón G. Gunn-
laugsson, Gunnar Valur Gíslason
sveitarstjóri og Doron Eliasen, for-
maður GÁ.
BÆJARSTJÓRN Hafnarfjarðar
hefur samþykkt að Leifur S. Garð-
arsson verði ráðinn skólastjóri Ás-
landsskóla, en fræðslunefnd bæjar-
ins mælti með ráðningu hans.
Við atkvæðagreiðslu í bæjarstjórn
fékk Leifur tíu atkvæði. Einn bæj-
arfulltrúi greiddi Leifi Helgasyni at-
kvæði sitt, en hann var meðal níu
umsækjenda um stöðuna, sem veitist
frá næstkomandi áramótum.
Ráðið í stöðu
skólastjóra
Áslandsskóla
Hafnarfjörður
FORELDRAR barna í 2. bekk
grunnskólanna í Reykjavík hafa
fengið send segulspjöld með áprent-
uðum reglum um útivistartíma
barna. Það er Reykjavíkurborg og
Lögreglustjórinn í Reykjavík sem
standa fyrir sendingunum.
Í fréttatilkynningu frá þessum að-
ilum segir að undanfarin ár hafi for-
eldrum barna í 7. bekk verið send
slík spjöld sem hafi gefið góða raun.
Í haust hafi verið ákveðið að senda
einnig foreldrum barna í 2. bekk
spjöldin og vekja þannig athygli for-
eldra fyrr á þessum reglum.
Segir að samstaða foreldra, borg-
aryfirvalda og lögreglu um að
tryggja að reglum um útivistartíma
sé framfylgt hafi þegar skilað ár-
angri en minna sé um að börn og
unglingar séu á ferli ein og eftirlits-
laus seint á kvöldin.
Foreldrar
minntir á úti-
vistarreglur
Reykjavík
VERKEFNISSTJÓRN Menning-
arnætur hlaut starfsviðurkenningu
Reykjavíkurborgar 2001 en við-
urkenningin var veitt í Höfða í
gær. Þetta er í fyrsta sinn sem við-
urkenningin gengur þvert á borg-
arkerfið en áður hafa fjórar stofn-
anir innan borgarinnar hlotið
hana.
Menningarnótt var fyrst haldin í
Reykjavík árið 1996 í tilefni af 210
ára afmæli borgarinnar 18. ágúst. Í
fréttatilkynningu segir að verk-
efnastjórnin hafi, að uppistöðu til,
verið skipuð sama fólkinu frá upp-
hafi og eigi það stærstan þátt í því
hve vel hefur tekist til og að Menn-
ingarnótt er nú stærsta menning-
arhátíð landsins. „Þau hafi öðlast
gríðarlega reynslu og þekkingu,
náð tengslum við og virkjað lista-
menn, fyrirtæki og stofnanir, ein-
staklinga og félagasamtök, sem
síðan hefur skilað sér inn í allt starf
þessara einstaklinga fyrir Reykja-
víkurborg.“ Segir að dagskrá og
þátttaka í Menningarnótt hafi sí-
fellt orðið umfangsmeiri. Þannig
hafi 20–30 þúsund manns tekið þátt
í hátíðinni árið 1996 og dagskrá
verið á um 80 stöðum í miðborg-
inni. Árið 2001 hafi hins vegar allt
að 100.000 manns tekið þátt og
dagskrá verið á yfir 100 stöðum.
Þá kemur fram að breytinga er
að vænta í skipulagi Menning-
arnætur en á liðnu ári hafi Reykja-
víkurborg lagt drög að nýskipan í
viðburða-, kynningar- og ferða-
málum. Í því felist meðal annars að
umsjón og skipulag sérstakra við-
burða verði á ábyrgð Höfuðborg-
arstofu sem formlega taki til starfa
í endurbættu húsnæði í Geysishúsi
við Aðalstræti í byrjun næsta árs.
Umsjón og skipulag Menning-
arnætur í Reykjavík verði meðal
verkefna stofunnar en forstöðu-
maður Höfuðborgarstofu sé Svan-
hildur Konráðsdóttir.
Menningarnótt hlýtur
starfsviðurkenningu
Reykjavík
Morgunblaðið/Kristinn
Viðurkenningarhafar og borgarstjóri. F.v.: Ómar Einarsson, framkvæmdastjóri ÍTR, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri, Elísabet Þórisdóttir, formaður verkefnisstjórnar og forstöðumaður Gerðubergs, Signý Pálsdóttir,
menningarmálastjóri Reykjavíkur, Kristín Einarsdóttir, framkvæmdastjóri miðborgar, Anna Margrét Guðjóns-
dóttir, menningarfulltrúi hjá Reykjavík, og Ágúst Ágústsson, markaðsstjóri Reykjavíkurhafnar.
♦ ♦ ♦