Morgunblaðið - 01.11.2002, Side 25

Morgunblaðið - 01.11.2002, Side 25
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2002 25 NORMAN Coleman, sem etur kappi við Walter Mon- dale um öldungardeildarþingsæti Minnesota, heldur í hönd föður síns, Norm eldri, á leiðinni til St. Paul á miðvikudaginn eftir kosningaferðalag. Á bak við þá er Steve Moore, sem er vinur fjölskyldunnar. Coleman er 53 ára og var borgarstjóri í St. Paul, höfuðborg Minnesota, í tvö kjörtímabil, og bauð sig fram gegn Jesse Ventura í ríkisstjórakosningum, en laut í lægra haldi. George W. Bush Bandaríkjaforseti valdi hann til framboðsins til öldungadeildarinnar nú. Coleman fæddist í New York og var leiðtogi rót- tækra háskólastúdenta og demókrati á yngri árum. Síðar snerist honum hugur og hann gekk til liðs við repúblíkana. Hann hefur verið gagnrýndur fyrir tækifærismennsku, og Ventura lýsti honum sem „bremsulausum stjórnmálamanni sem er tilbúinn til að gera hvað sem er til að krækja í atkvæði“. AP „Í fylgd með fullorðnum“ WALTER Mondale, fyrrverandi varaforseti Bandaríkjanna, hefur ákveðið að bjóða sig fram í kosn- ingum til öld- ungadeildar þingsins fyrir hönd demókrata í Minnesotaríki, og hóf í gær ein- hverja óvenju- legustu – og stystu – kosn- ingabaráttu sem háð hefur verið í Bandaríkjunum. Kemur Mondale í stað öldunga- deildarþingmannsins Pauls Wellstones, sem lést í flugslysi á föstudaginn, og etur kappi við Norman Coleman, frambjóðanda repúblíkana, er bauð sig fram á móti Wellstone. Coleman er fyrr- verandi borgarstjóri í St. Paul. Mondale, sem er 74 ára, var öld- ungadeildarþingmaður í 12 ár áður en hann varð varaforseti Jimmys Carters 1976. Samkvæmt skoðana- könnunum eru horfur á að hann hafi betur í kapphlaupinu við Cole- man. Demókratar gagnrýndir Demókratar voru gagnrýndir harðlega á miðvikudaginn af Jesse Ventura, ríkisstjóra í Minneapolis, og repúblíkönum, sem sögðu demó- krata hafa breytt minningarsam- komu um Wellstone í kosninga- fund. Fjölmiðlar í Minnesota tóku í sama streng. Ventura, sem er hvorki í Demó- krataflokknum né Repúblíkana- flokknum, hótaði að tilnefna óháð- an stjórnmálamann, en ekki demókrata, til að taka sæti Wellstones uns úrslit kosninganna liggja fyrir. Þær fara fram á þriðjudaginn. Walter Mondale í framboð til öldungadeildar Bandaríkjaþings Fimm daga kosningabarátta Minneapolis. The Washington Post. Walter Mondale TÉTSENSKU skæruliðarnir sem héldu 800 leikhúsgestum í gíslingu í Moskvu í liðinni viku höfðu í fórum sínum nægt sprengiefni til að sprengja alla bygginguna í loft upp og draga alla sem í henni voru með sér í dauðann, eftir því sem tals- maður rússnesku leyniþjónustunnar FSB greindi frá í gær. Sögðu aðrir talsmenn rússneskra stjórnvalda þetta sýna og sanna að rétt hefði verið af sérsveitum hersins að dæla svæfingagasi inn í leikhússalinn í því skyni að yfirbuga gíslatökumennina og frelsa gíslana. Yfirvöld hafa sætt gagnrýni þar sem 119 gíslanna létu lífið, flestir úr gaseitrun. Á fjölmennum blaðamannafundi í Moskvu í gær sagði Vladimír Yerj- omín, næstæðsti yfirmaður afbrota- fræðistofnunar FSB, að gíslatöku- mennirnir fimmtíu hefðu verið með í fórum sínum á bilinu 110 til 120 kíló af sprengiefni sem þeir hefðu komið fyrir víðs vegar um leikhúsbygg- inguna. „Jafnvel þótt einvörðungu öflug- asta sprengjan hefði verið sprengd, sem að sprengikrafti svaraði til 20 kg af TNT, hefðu sprengjubrot dreifzt af þvílíkum krafti um allan leikhússalinn að enginn sem í hon- um var hefði komizt lífs af,“ sagði Yerjomín. „Sprengikraftur þessara sprengna hefði leitt til þess að sval- irnar í salnum hefðu hrunið og svo gott sem öll byggingin hefði algjör- lega eyðilagzt,“ bætti hann við. Tvær stórar og fjöldi minni sprengna Yerjomín sýndi viðstöddum á blaðamannafundinum hvernig gísla- tökumennirnir hefðu komið tveimur stórum málmhólkslaga sprengjum fyrir bæði í miðjum áhorfendasaln- um niðri og uppi á stærstu áhorf- endasvölunum. Þær hefðu verið tengdar með rafmagnsvírum og báð- ar verið hlekkir í keðju sprengna sem hægt hefði verið að sprengja allar í einu. Í hvorri stóru sprengn- anna hefði verið 152 mm fallbyssu- sprengikúla, sem dreifir málmflísum um allt er hún springur. Að sögn Yerjomín höfðu hryðjuverkamenn- irnir einnig 25 minni sprengjur, flestar bundnar um mittið, en í hverri þeirra hefðu verið tvö kíló af sprengiefni og eitt kíló af málmflís- um. Ennfremur hefðu í fórum hinna föllnu gíslatökumanna fundizt 16 „venjulegar“ handsprengjur og 85 heimasmíðaðar. Þrátt fyrir hið mikla mannfall sem orðið hefði í hópi gíslanna sýna skoðanakannanir að yfirgnæfandi meirihluti rússnesks almennings styður það hvernig yfirvöld tóku á málinu. Rússar réttlæta beitingu gass við lausn gíslatökunnar Tétsenarnir gátu sprengt leik- húsið í loft upp Moskvu. AFP. DÝRAVINIR í Bandaríkjunum eru æfareiðir út af hundi, það er að segja Stökkvaranum Brútusi, en hann á að leika listir sínar á flugvélasýningu á Vandenberg- herflugvellinum í Kaliforníu. Hon- um verður með öðrum orðum kastað út úr flugvél og látinn svífa til jarðar í fallhlíf. „Þetta er ekkert annað en grimmd gagnvart dýrum. Það er verið að misnota hundinn eða dettur nokkrum í hug, að hann hafi gaman af því að vera kastað út úr flugvél í mikilli hæð?“ sagði Shirley Cram, talsmaður einna dýraverndarsamtakanna, en fé- lagi Brútusar í stökkinu, Ron Sirull, er á öðru máli: „Hann verður strax mjög spenntur þegar hann sér útbún- aðinn og augljóslega til í slaginn.“ Sirull á 1.000 stökk að baki en Brútus 100. Deilt um Stökkv- arann Brútus Vandenberg. AP.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.