Morgunblaðið - 01.11.2002, Blaðsíða 60
Hafið
Með Hafinu er komið fram verk sem ber þess
vitni að íslenskt listafólk hafi náð fullkomn-
um tökum á hinu alþjóðlega tungumáli kvik-
myndalistarinnar. (H.J.) Háskólabíó, Sambíóin.
Bourne Identity
Fínasta spennumynd í raunsæjum, ótækni-
væddum stíl. Fersku afturhvarfi til gamalla
og góðra spennumynda. (H.L.) Sambíóin, Háskólabíó.
Fálkar
Í Fálkum er skapaður heillandi sjónrænn
heimur, þar sem persónur berast í átt að for-
lögum sínum. (H.J.) Háskólabíó.
Insomnia
Grípandi frá upphafi til enda og leikhópurinn
unun, með vansvefta Al Pacino í fararbroddi.
(S.V.) ½
Sambíóin Reykjavík og Akureyri,
Háskólabíó.
Porn Star: The Legend of
Ron Jeremy
Vel heppnuð heimildarmynd um klám-
myndaleikarann Ron Jeremy. Áherslan er
fyrst og fremst á Jeremy og sem manneskju.
Rennur vel og tekur heilbrigða afstöðu til við-
fangsefnisins. (H.L.) Sambíóin.
The Road to Perdition
Sláandi glæpasaga frá kreppuárunum, jafn-
framt einstætt augnakonfekt. Óskarsverð-
launatilnefningar á færibandi en útlitið inni-
haldinu ofursterkara. (S.V.) The Red Dragon
Mögnuð, ónotaleg hrollvekja sem minnir
mjög á meistaraverkið Silence of the Lambs.
Of lítið af Lechter. (S.V.) Sambíóin. Háskólabíó, Laugarásbíó, Borg-
arbíó Akureyri.
Smárabíó, Regnboginn, Borgar-
bíó Ak.
Pam & Noi og menn-
irnir þeirra
Forvitnileg og upplýsandi heimild-
armynd um taílenskar stúlkur og
ævintýralegt lífshlaup þeirra af
hrísgrjónaekrunum á hjara verald-
ar þar sem þær finna hamingjuna
við hlið íslenskra karla. Jákvæð og
hreinskilin. (S.V.) Háskólabíó (Film-undur).
The Salton Sea
Metnaðarfullur hefndartryllir sem minnir á
Memento. Vel mönnuð og full ástæða að
fylgjast með leikstjóranum. (S.V.) Sambíóin.
Orange County
Vitræn „unglingamynd“, bráðfyndin og háðsk
með litríkum persónum sem eru túlkaðar af
óaðfinnanlegum leikarahópi með Jack Black
fremstan meðal jafningja. (S.V.) Laugarásbíó.
Stúart litli 2
Mjög vel heppnuð fjölskyldumynd um mús-
ina Stúart, fjölskyldu hans og vini. (H.L.)
Smárabíó, Borgarbíó.
Maður eins og ég
Dálítið glompótt en góð afþreying með fínum
leikhópi. (S.V.) Sambíóin, Háskólabíó.
Bend it Like Beckham
Lítil, sæt mynd um misrétti, kynþáttafor-
dóma o.fl. þessháttar. Ristir grunnt. (S.V.)
Sambíóin.
Pétur og kötturinn
Brandur 2
Skemmtilegar teikningar og skemmtilega af-
slappaðar og heilbrigðar sögur. (H.L.) Laugarásbíó, Smárabíó.
BÍÓIN Í BORGINNI
Sæbjörn Valdimarsson/Hildur Loftsdóttir/Heiða Jóhannsdóttir
Meistaraverk Ómissandi Miðjumoð Tímasóun 0 Botninn
Road To Perdition: „Sláandi glæpasaga frá
kreppuárunum og einstakt augnakonfekt,“
að mati Sæbjörns Valdimarssonar.
!
"# $
"
%
%
# $"
" &
'"
!
" '(
!
)
"" *
+
#
$ % & %
, ! -
$
.
( "
/
" 0" * *
"
" +
# 1"
23423 * %
" '( '(
' (
& %
!
)%
" *
5 "
+
(
!
) ,
* 6 - !
.
6 - !
'0 /
6 -%"
*
7 +8) 2339
:
23423
!
(
/ ; & " <
:
#
, (
" 77 > @6 ' " > /$$" :
" #
$%%$
5
/ 7
<(
+" KVIKMYNDIN Hafið er tilnefnd til
alls 12 Edduverðlauna en verðlaun-
in verða veitt við hátíðlega athöfn
10. nóvember. Er myndin tilnefnd í
öllum flokkum þar sem verðlaun
eru veitt fyrir kvikmyndagerð.
Magnús Magnússon sjónvarps-
maður fær heiðursverðlaun Ís-
lensku kvikmynda- og sjónvarps-
akademíunnar fyrir mikið og
farsælt starf við dagskrárgerð fyrir
sjónvarp í tæp fjörutíu ár.
Aldrei fyrr hefur nokkur ein
kvikmynd verið tilnefnd í eins
mörgum flokkum og Hafið sem
stafar að hluta af því að nú eru veitt
verðlaun í tveimur sérstökum fag-
flokkum fyrir besta hljóð og mynd
og besta útlit, auk þess sem óvenju
margir leikarar úr einni mynd
hljóta tilnefningu. Hafið er tilnefnd
sem besta kvikmyndin, Baltasar
Kormákur sem besti leikstjórinn,
Gunnar Eyjólfsson og Hilmir Snær
Guðnason báðir sem bestu karlleik-
arar í aðalhlutverki og Hilmir Snær
er einnig tilnefndur fyrir myndina
Reykjavík Guesthouse Rent a Bike.
Elva Ósk Óskarsdóttir og Guðrún
S. Gísladóttir eru tilnefndar sem
bestu leikkonurnar í aðalhlutverki
fyrir Hafið, Sigurður Skúlason er
tilnefndur sem besti aukaleikari
bæði fyrir Hafið og Gemsa, Herdís
Þorvaldsdóttir og Kristbjörg Kjeld
eru tilnefndar sem bestu leikkonur
í aukahlutverki. Þá er Valdís Ósk-
arsdóttir tilnefnd til verðlauna fyr-
ir klippingu á Hafinu, Tonie Jan
Zetterström er tilnefnd fyrir leik-
mynd og loks eru Baltasar Kormák-
ur og Ólafur Haukur Símonarson
tilnefndir fyrir handritið að Hafinu.
20/20 hlaut fjórar tilnefningar
Næstflestar tilnefningar hlaut
sjónvarpsmyndin 20/20 eða alls
fjórar tilnefningar. Þátturinn var
tilnefndur í flokknum besta leikna
sjónvarpsefnið. Leikstjóri mynd-
arinnar Óskar Jónasson fékk aðra
tvennra tilnefninga sem besti leik-
stjóri, en hin var fyrir Áramóta-
skaupið 2001, Árni Þórarinsson og
Páll Kristinn Pálsson voru til-
nefndir fyrir besta handritið að 20/
20 og Jón Sigurbjörnsson var til-
nefndur sem besti aukaleikari fyrir
framlag sitt til sama þáttar.
Síðan komu Fálkar og Regína
með þrjár tilnefningar hvor, báðar
tilefndar sem bestu myndirnar.
Keith Carradine var tilnefndur sem
besti leikarinn í Fálkum og Harald
Paalgaard sem besti kvikmynda-
tökumaður fyrir sömu mynd á með-
an Halldóra Geirharðsdóttir var til-
nefnd sem besta leikkonan í
aðalhlutverki og Sólveig Arnars-
dóttir besta leikkonan í auka-
hlutverki, báðar fyrir Regínu.
Nokkra athygli vakti að ekki
nema tvær tilnefningar féllu í skaut
myndarinnar Maður eins og ég, fyr-
ir besta handrit Róberts Douglas og
Árna Ólafs Ásgeirssonar og Þor-
steinn Guðmundsson fyrir besta
karlleik í aukahlutverki. Jafn-
margar tilnefningar fékk fyrsta ís-
lenska tölvuteiknimyndin Litla lirf-
an ljóta og báðar fóru
tilnefningarnar til Gunnars Karls-
sonar sem var tilnefndur fyrir
bestu leikstjórn og besta útlit.
Áramótaskaup
tilnefnt í fyrsta sinn
Og athyglisvert er einnig að Ára-
mótaskaupið 2001 hlaut tvær til-
nefningar, sem besta leikna sjón-
varpsefnið og fyrir bestu leikstjórn
Óskars Jónassonar en þetta er í
fyrsta sinn sem áramótaskaup er
tilnefnt til Eddu-verðlauna.
Nú í fyrsta sinn verða veitt Eddu-
verðlaun fyrir besta tónlistar-
myndbandið og féllu fyrstu tilnefn-
ingarnar í skaut „If“ með Landi og
sonum, „Á nýjum stað“ með Sálinni
hans Jóns míns og „Hvernig sem ég
reyni“ með Stuðmönnum.
Nokkrar valnefndir skipaðar
fagfólki sáu um að velja úr fólk og
verk sem tilnefnt er sem er breyt-
ing frá því sem áður er ein valnefnd
sem sá um að velja þá er tilnefndir
yrðu. Val á sigurvegurum í hverj-
um flokki fer fram með sama sniði
og áður. Meðlimir í Íslensku kvik-
mynda- og sjónvarpsakademíunni
hafa kosningarétt og mun val
þeirra hafa 70% vægi á móti 30%
vægi vals almennings sem fær kost
á að greiða atkvæði í netkosningu á
mbl.is sem hefst á mánudaginn
kemur og lýkur kl. 17 föstudaginn
8. nóvember á sama tíma og með-
limir akademíunnar verða að hafa
skilað inn atkvæðisseðli sínum. Al-
menningur mun þó sem fyrr alfarið
sjá um að velja sjónvarpsmann árs-
ins en á mbl.is verður hægt að velja
úr einum 40 sjónvarpsmönnum sem
til greina koma.
Edduverðlaunin verða sem fyrr
segir afhent sunnudaginn 10. nóv-
ember í Þjóðleikhúsinu. Kynnar
verða Logi Bergmann Eiðsson
fréttamaður og Valgerður Matt-
híasdóttir sjónvarpskona. Tómas
Ingi Olrich menntamálaráðherra
mun veita heiðursverðlaun.
Þess má að lokum geta að laug-
ardaginn 9. nóvember verður hald-
ið sjónþing í Háskólabíói þar sem
sýnt verður úr verkum heið-
ursverðlaunahafans Magnúsar
Magnússonar en hann mun verða
viðstaddur þingið og sitja fyrir
svörum.
Hafið fékk 12
tilnefningar
Tilnefningar til Edduverðlaunanna 2002 voru kunngjörðar í gær
Óskar Jónasson er bæði tilnefndur fyrir Áramóta-
skaupið og 20/20, sjónvarpssakamálaþátt sem gerist í
Kolaportinu á 20 mínútum.
Hilmir Snær Guðnason hlaut tvær tilnefningar, fyrir
hlutverk sín í Hafinu og Reykjavík Guesthouse.
Magnús Magnússon hlýtur heið-
ursverðlaun fyrir framlag sitt til
sjónvarpsþáttagerðar.
Morgunblaðið/Kristinn
Heiðursverðlaunin afhent Magnúsi
Magnússyni sjónvarpsmanni
FÓLK Í FRÉTTUM
60 FÖSTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ