Morgunblaðið - 03.11.2002, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 03.11.2002, Blaðsíða 26
26 SUNNUDAGUR 3. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ DONALD Davidson, pró-fessor í Berkeley íKaliforníu, er einnáhrifamesti heimspek-ingur sem nú er uppi. Hann kom til Íslands nú um helgina og kennir stúdentum í málstofu í Há- skóla Íslands fjórum sinnum í vik- unni, og útlistar þar nýjar hugmynd- ir sínar sem hann hefur ekki birt enn. Hann heldur opinberan fyrir- lestur í Hátíðarsal Háskólans sunnu- daginn 10. nóvember kl. 16. Þar fjallar hann um samband máls og hugsunar, og spyr hvernig hugsun velti á máli og hvers vegna. Lest- urinn heitir „What is Special about Language and Language-Related Thought?“ Donald Davidson fæddist 6. marz 1917 í Springfield sem er gamall iðn- aðarbær í Massachusetts á Nýja- Englandi. Hann sótti menntun sína í Harvardháskóla og lauk meistara- prófi 1941. Af kennurum hans á Har- vard hafði brezki heimspekingurinn og stærðfræðingurinn Alfred North Whitehead dýpst áhrif á hann. Whitehead er frægastur fyrir að hafa í félagi við Bertrand Russell samið ritið Principia mathematica (Lögmál stærðfræðinnar) í þremur stórum bindum. Það er höfuðrit nú- tímarökfræði. Davidson kynntist líka með tímanum mun yngri kenn- ara en Whitehead í heimspekideild- inni á Harvard, Willard Van Orman Quine. Rökfræði og merkingarfræði Quines urðu síðar grunnurinn sem heimspeki Davidsons er reist á þótt hún víki frá kenningum Quines að mörgu leyti. Á árunum fyrir síðari heimsstyrj- öldina stóð Quine fyrir því að sumir af róttækustu heimspekingum Evr- ópu, sem voru á flótta undan naz- istum, heimsóttu Harvard á meðan þeir leituðu fyrir sér, með aðstoð Quines, um störf vestan hafs. Dav- idson þóttu heimsóknirnar miklar veizlur. Meðal þessara flóttamanna voru Rudolf Carnap frá Prag, sem hafnaði í Chicago, og Alfred Tarski frá Varsjá sem hafnaði í Berkeley. Rökfræði Tarskis, og þá einkum kenning hans um sannleikshugtakið í rökfræði og stærðfræði, átti eftir að skipta sköpum fyrir Davidson. Davidson gegndi herþjónustu í bandaríska flotanum á Miðjarðar- hafi 1942–1945. Eftir styrjöldina hvarf hann að doktorsnámi á Har- vard, og eftir að hann lauk því með ritgerð um samræðuna Fílebos eftir Platón sneri hann sér að háskóla- kennslu sem hann hefur sinnt síðan, og sinnir enn þótt hann sé áttatíu og fimm ára. Hann hefur kennt lengri eða skemmri tíma í mörgum helztu háskólum Bandaríkjanna: Stanford (1951–1967), Princeton (1967–1970), Rockefeller (1970–1976), Chicago (1976–1981) og síðan 1981 í Kaliforn- íuháskóla í Berkeley. Rökgreiningarheimspeki Drjúgur hluti af heimspeki tutt- ugustu aldar er kenndur við rök- greiningu (logical analysis). Rök- greiningarheimspekingar (analytic philosophers) fást við fjölbreytilegar en yfirleitt stranglega afmarkaðar gátur. Til dæmis geta þeir spurt, ef þeir hafa áhuga á sambandi sálar og líkama, hvort tölvur hugsi. Þá þurfa þeir einhverja lágmarksgreinargerð fyrir hugsun, það er að segja grein- ingu á hugtakinu hugsun. Eða tökum dæmi af dansi býflugnanna sem Karl von Frisch gerir grein fyrir í riti sínu Bera bý (Lærdómsrit frá 1972). Bý- flugurnar vísa með dönsum sínum á staði þar sem hunang er að fá. Nú má spyrja, eins og spurt er hvort tölvur hugsi, hvort býflugna- dansinn sé mál. Er til dæmis hugsun í honum? Við höfum greinargerð von Frisch fyrir dansinum. En til að svara spurningunni þurfum við líka einhverja lágmarksgreinargerð fyrir máli. Hér geta málvísindi komið til hjálpar um suma hluti, til dæmis um ýmis reglukerfi sem mál hlíta. En um aðra hluti, eins og samband máls og hugsunar, hafa þau lítið að segja. Þá getum við reynt að grípa til rök- greiningar. Rökgreiningar eru ekki nema lág- marksgreinargerðir fyrir til að mynda máli eða hugsun. Frekari greinargerðir verðum við að sækja í lífeðlisfræði, málfræði og sálarfræði svo langt sem þær ná. Þá geta orðið fyrir okkur heimspekilegar gátur um þessi vísindi. Eru þau til dæmis algild eða einhvern veginn afstæð? Gátur um hugsun í tölvu, mál hjá býflugum og afstæði í vísindum virð- ast við fyrstu sýn vera alveg sjálf- stæðar gátur eins og sálarfræði, mál- vísindi og líffræði eru sjálfstæðar fræðigreinar. Það virðist fljótt á litið engin heildarlausn geta verið til á slíkum gátum, heldur aðeins afmark- aðar lausnir á hverri fyrir sig þegar bezt lætur. Ludwig Wittgenstein, höfundur Bláu bókarinnar (Lær- dómsrit frá 1998) og frægastur allra rökgreiningarheimspekinga, þver- neitaði því að kostur væri á kerfis- bundnum lausnum eða allsherjar- kenningum í heimspeki. Aðrir frægir heimspekingar á tuttugustu öld hafa verið sama sinnis, til að mynda Þjóð- verjinn Martin Heidegger á efri ár- um sínum. Stök skrif um stök efni Donald Davidson hefur aldrei skrifað heila samfellda bók um hug- myndir sínar og kenningar. Hann hefur samið ritgerðir, ætlaðar öðrum heimspekingum, og birt þær í fræði- legum tímaritum eða gjörðabókum málþinga. Sumar ritgerðanna urðu víðfrægar um leið og þær birtust fyrst. Ein af þeim er „Athafnir, ástæður og orsakir“ („Actions, Reas- ons, and Causes“) sem fjallar um eðli skýringa á athöfnum fólks, eins og bara þeirrar að maður hafi drukkið vatn til þess að svala þorsta sínum. Það er freistandi að líta á þessa skýr- ingu á drykkju sem tilgangsskýr- ingu. En Davidson hélt því fram, með mörgum rökum, að skýringar eins og „til þess að svala þorsta“ séu á endanum orsakaskýringar, og að því leyti sambærilegar við hvaða náttúrlegar skýringar sem vera skal. Önnur ritgerð sem varð snemma fræg heitir „Hvernig er hægt að vera breyskur?“ („How is Weakness of the Will Possible?“). Hún fjallar um breytni fólks gegn betri vitund í ljósi ákvörðunarfræði. Ég hef reynt að gera nokkra grein fyrir henni í þriðja kafla bókar minnar Tilraun um heiminn (1992). Enn ein er „Sannleikur og merk- ing“ („Truth and Meaning“) sem fjallar um mál og merkingu. Þar er meginhugmyndin sú að gera beri grein fyrir skilningi okkar á tungu- máli út frá hugmyndinni um sann- leiksgildi setninga á málinu frekar en hugmyndinni um merkingu orða. Þessu fylgir að sannleikskenning í anda þeirrar sem Tarski setti saman um rökfræði og stærðfræði eigi að vera uppistaðan í allri merkingar- fræði hvers konar mála. En þetta voru ekki nema stakar ritgerðir um stök efni, og meira að segja efni sem virðast alveg ótengd við fyrstu sýn. Hvað kemur breysk- leiki sannleika og merkingu við? Eða sannleikur og merking orsakaskýr- ingum á athöfnum? Það var ekki fyrr en Davidson safnaði helztu ritgerðum sínum sam- an í tvö ritgerðasöfn um og eftir 1980, þá kominn á sjötugsaldur, að heimspekingum varð fyllilega ljóst að ritgerðir hans mynduðu tilkomu- mikið heildarkerfi þar sem eitt teng- ist mörgu öðru á ýmsa vegu. Í fyrra kom þriðja ritgerðasafnið út og efldi enn heildarmyndina, og tvö til við- bótar eru væntanleg innan skamms frá Oxford University Press. Heildarmynd Heimspeki Davidsons snýst á end- anum um eitt efni öðrum fremur. Þetta efni er skilningur. Ritgerðir hans eru viðamesta og snjallasta at- laga okkar tíma við það hvað skiln- ingur sé. Hann ræðst einkum fram á tvennum vettvangi. Annars vegar vill hann vita hvað það sé að skilja mál: sitt eigið móðurmál ekki síður en framandi mál. Hins vegar vill hann vita hvað það er að skilja fólk, til dæmis athafnir þess í ljósi ástæðna sem það hefur til þeirra eða viðhorf þess (skoðanir og tilfinning- ar) í ljósi ástæðna eða raka sem það hefur fyrir þeim. Davidson byrjar atlögu sína við skilning á því að hyggja að því sem hann kallar skilning frá rótum eða túlkun frá rótum (radical interpret- ation). Grunnhugmyndina að þessari aðför að vandanum sækir hann til Quines. Hún er sú að til að átta okk- ur á skilningi yfirleitt verðum við að hyggja að því sem ætla má að gerist ef eitthvert okkar lenti eitt og óstutt meðal framandi þjóðar án þess að kunna minnstu skil á máli hennar. Við þessar aðstæður yrðum við að reyna að skilja þessa þjóð frá rótum, og þá bæði setningar sem sagðar eru og fólkið sem segir þær. Þessi tvenns konar skilningur – á setningum ann- ars vegar og fólki hins vegar – reyn- ist vera margvíslega samofinn. Það er engin leið að skilja setningarnar án þess að skilja fólkið, né fólkið án þess að skilja setningarnar. Þegar Davidson hefur gert lág- marksgrein fyrir þessum tvíþætta skilningi getur hann á grundvelli þeirrar greinargerðar gefið nýstár- leg svör við sumum stærstu spurn- ingum heimspekinnar á nýöld. Til dæmis ber hann fram frumlega kenningu um samband sálar og lík- ama. Sú er hvorki tvíhyggja né efn- ishyggja. Hann kallar hana löglausa einhyggju. Hún er einhyggja vegna þess að samkvæmt henni er sálin eða hugurinn ekki sjálfstæður veruleiki. En hún er ekki efnishyggja vegna þess að samkvæmt henni gilda engin lögmál um sambönd hlutlægra fyr- irbæra, eins og sólskinsins fyrir utan gluggann minn, við huglæg fyrir- bæri eins og þá skoðun mína að sólin skíni, þó svo að sólskinið sé orsök skoðunarinnar. Hún er löglaus ein- hyggja. Hann ber líka fram í nafni heild- armyndar sinnar frumlegar lausnir á gátunum um afstæði og algildi í vís- indum, og á ýmsum öðrum vettvangi líka ef út í það er farið. Um þau efni hef ég fjallað, í anda Davidsons, í rit- gerðinni „Sannleikur“ sem er loka- kaflinn í safnriti Andra Steinþórs Björnssonar, Vigfúsar Eiríkssonar og Torfa Sigurðssonar Er vit í vís- indum? Þorpsskýrari Ljósmyndin sem hér birtist af Davidson var tekin af Steve Pyke. Pyke er kunnur brezkur ljósmyndari sem tók upp á því fyrir rúmum ára- tug að taka myndir af frægum heim- spekingum. Hann sýndi myndirnar í listhúsi í London, og gaf þær út í bók. Þá fékk hann hverja fyrisætu sína til að lýsa sjálfri sér eða hugðarefnum sínum í örstuttu máli. Við skulum enda á lýsingu Dav- idson á sjálfum sér í bók Pykes. Þess má geta að Gertrude Stein var fræg amerísk skáldkona sem bjó í París og kemur víða við sögu bókmennta og lista á fyrri hluta tuttugustu ald- ar. Hitt má kannski nefna líka að maðurinn sem Stein kallaði „þorps- skýrara“ („village explainer“) var skáldið Ezra Pound. Gertrude Stein sagði um mann: „Hann er þorpsskýrari. Sem er í lagi ef þú ert þorp. Ef ekki, ekki.“ Mig hefur alltaf langað til að vera þorps- skýrari, en ég er hræddur um að mér hafi aldrei tekizt það. Skrif mín þykja samþjöppuð og erfið aflestrar. Það er óheillamerki að fólk getur ekki gert upp við sig hvernig það á að flokka mig. Ég hef verið kallaður hluthyggjumaður og hughyggju- maður, afstæðissinni og algildissinni, efnishyggjumaður, einhyggjumaður og aukagetusinni. Kenning mín um athafnir hefur verið kölluð orsaka- kenning, og ég hef verið sakaður um að neita því að sálarlífsfyrirbæri geti verið orsakir að einu né neinu. Ég kannast við að hafa sjálfur kallað skoðun mína á sannleikanum bæði samsvörunarkenningu og sam- kvæmniskenningu. Hún er hvorugt. Og Richard Rorty kallar mig pragm- atista. En það er ekki öll von úti. Ef þú ert þorp, held ég áfram að reyna að skýra skoðanir mínar fyrir þér. Mig hefur alltaf langað til að vera þorpsskýrari Heimspekingurinn Donald Davidson er með áhrifa- mestu núlifandi heimspek- ingum. Davidson hefur velt upp spurningum á borð við hvað breyskleiki komi sannleika og merkingu við. Eða sannleikur og merking orsakaskýringum á athöfn- um. En heimspeki hans snýst um skilning öðrum efnum fremur. Þorsteinn Gylfason reifar hér hug- myndir Davidsons sem kennir íslenskum stúd- entum í vikunni. „Ef þú ert þorp, held ég áfram að reyna að skýra skoðanir mínar fyrir þér,“ segir Donald Davidson. Höfundur er prófessor.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.