Morgunblaðið - 03.11.2002, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 03.11.2002, Blaðsíða 10
10 SUNNUDAGUR 3. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ R AGNA Bjarna- dóttir, amma Hrannar Sveins- dóttur kvik- myndagerðar- manns, passaði hana oft þegar hún var lítil. Amman vann í Austurbæjarbíói og tók stelpuna með sér í vinnuna. Þar sat Hrönn stundum og horfði á bíó klukkan þrjú, fimm, sjö og níu, án þess að skilja tungumálið sem leik- ararnir töluðu eða geta lesið textann. Myndmálið var henni nóg, þótt hún hafi síðar komist að því að söguþráð- ur sumra myndanna var annar en hún hélt í bernsku. „Það skipti engu máli þótt ég skildi myndirnar ekki, ég túlkaði þær bara á minn hátt. Mér leiðist þegar komið er fram við áhorf- endur eins og bjána og allt tuggið of- an í þá,“ segir Hrönn. Hrönn settist niður í viðtal á frum- sýningardegi umdeildasta verks hennar til þessa, heimildarmyndar- innar Í skóm drekans. Myndin, sem Hrönn vann með Árna bróður sínum, fjallar um þátttöku hennar í fegurð- arsamkeppninni Ungfrú Ísland.is, en frumsýningin dróst um nokkra mán- uði þar sem aðstandendur keppninn- ar og aðrir þátttakendur í henni voru ósáttir við gerð hennar og fannst vegið að friðhelgi einkalífsins. Sátt náðist í málinu fyrir mánuði, sem fólst í því að í sumum atriðum mynd- arinnar er fólk gert óþekkjanlegt með því að hár þess og andlit er máð út. Sex klukkustundum fyrir frum- sýninguna er Hrönn taugaspennt, en segist finna til mikils léttis að fá loks að sýna myndina. „Allt þetta um- stang hefur verið auglýsing fyrir myndina, en sú auglýsing hefur svo sannarlega kostað sitt, bæði andlega og fjárhagslega. Stressið var nú búið að vera nóg fyrir. Við vorum með 60 tíma af efni og vinnan við klipp- inguna var ótrúlega mikil. Loks náð- um við að klára myndina, en daginn fyrir frumsýninguna var sett lög- bann á hana. Ég sökkti mér ofan í þessi verkefni, að koma myndinni í sýningarhæft form og fá að sýna hana, en fékk svo mikla bakþanka um hvort ég ætti yfirhöfuð að sýna hana. Hún er mjög persónuleg.“ Hrönn segir að umfjöllunin um myndina hafi oft verið á þeim nótum, að fólk hafi haldið að hún væri vilj- andi að vinna skemmdarverk. „Þetta er persónuleg saga með klassískri uppbyggingu og gefur vonandi inn- sýn inn í fegurðar- og ímyndarbrans- ann. Ég ætlaði mér aldrei að sverta fólk sem ég þekki ekkert, enda geng- ur myndin bara nærri mér, mömmu og öðrum sem standa mér næst.“ Af pólitísku heimili Hrönn er dóttir hjónanna Sigrún- ar Hermannsdóttur og Sveins Aðal- steinssonar. Hún er næstyngst fjög- urra systkina. Elst er Ragna Björg, myndlistarmaður í Bandaríkjunum, þá Árni, kvikmyndagerðarmaður og samstarfsmaður Hrannar við gerð myndarinnar um fegurðarsam- keppnina, og yngst er Marta María, myndlistarnemi í Danmörku. Hrönn játar því að ekkert systkinanna hafi valið sér sértaklega arðbært starf. „Við höfum lengi beðið eftir við- skiptafræðingi eða lögfræðingi. Pabbi er viðskiptafræðingur og lík- lega sá jarðbundnasti af okkur og honum hefði ekki þótt verra ef eitt- hvert okkar hefði farið í praktískt nám og gæti séð um fjármál og skipulagningu fyrir okkur hin. Við verðum líklega að reyna að ná okkur í vænlega maka. Að vísu er systir mín að giftast rithöfundi, svo það stefnir ekkert í að þetta skáni. Kannski barnabörnin bæti úr þessu seinna.“ Heimili Sigrúnar og Sveins hefur alla tíð verið pólitískt, þar vilja menn friðun hálendisins og eru harðir and- stæðingar fiskveiðistjórnunarkerfis- ins. Þau hjón hafa gaman af að segja sögur og Hrönn segir að eftir eina máltíð heima hjá þeim sé hún með 30 nýjar hugmyndir að kvikmynd. „Þau elska bæði að segja frá og velta hlut- um fyrir sér. Mamma lifir fyrir skáldskapinn, en pabbi getur varla horft á mynd eða lesið bók nema hún sé söguleg heimild. Við Árni erum greinilega blanda af báðum, þótt við séum mjög ólík. En einmitt þess vegna bætum við hvort annað upp og erum bestu vinir og samstarfs- menn.“ Mamma hennar, „mikil athafna- kona og gömul rauðsokka“, að sögn dótturinnar, átti á flestu öðru von en að dóttirin tæki þátt í fegurðarsam- keppni, sem að hennar mati er engu betri en nautgripasýning. Pabba hennar fannst hugmyndin fáránleg, því ekki væri hægt að keppa í fegurð, hún væri svo afstæð og fólgin í ýmsu öðru en útlitinu. Þau studdu þó dótt- urina með ráðum og dáð, í þessu sem öðru. Mamma hennar tók til dæmis að sér að fylgja henni eftir um þriggja mánaða skeið, með kvik- myndavélina á öxlinni. „Mér fannst frábær hugmynd að taka þátt í keppninni, en ég gat auð- vitað ekki tekið þátt í eintómu gríni og sett mig á háan hest gagnvart öll- um öðrum. Ég vildi vita út á hvað svona keppni gengi og það kom í ljós að ég féll inn í þá staðla sem settir voru, ég var til dæmis nógu há og nógu grönn. En hvernig gat ég svo keppt að því að vera fallegust? Ég lagði mig hundrað prósent fram í þeirri keppni.“ Kunningjar og ættingjar Hrannar voru margir undrandi á að hún skyldi taka þátt í fegurðarsam- keppni. „Fólk taldi kannski að ég væri í einhverri tilvistarkreppu, klappaði á öxlina á mér og sagði „Gott hjá þér“, eins og ég væri á ein- hverju sjálfsstyrkingarnámskeiði. Ég gat auðvitað ekki sagt við alla að ég væri í raun að rannsaka málið, því enda þótt ég hefði aldrei farið í keppnina til þess eins að fá fegurð mína metna, var ég ekki heldur þarna með hálfum hug. Ég átti hins vegar stundum erfitt með að stilla mig, því ég var stolt af ýmsu sem ég hafði gert á ævinni, en margir sýndu mér og athöfnum mínum fyrst áhuga þegar ég var orðin keppandi í feg- urðarsamkeppni. Sumir óskuðu mér sérstaklega til hamingju með hvað mér gengi vel í lífinu, af því að þeir höfðu séð mynd af mér í Séð og heyrt. Það kom mér á óvart hvað þátttaka í fegurðarsamkeppni er Vertu þú sjálfur, Morgunblaðið/Jim Smart Hrönn Sveinsdóttir: „Ég ætlaði mér aldrei að sverta fólk sem ég þekki ekkert, enda gengur myndin bara nærri mér, mömmu og öðrum sem standa mér næst.“ Sjaldan hefur íslensk heim- ildarmynd vakið jafnmiklar deilur og myndin Í skóm drekans, eftir Hrönn og Árna Sveinsbörn. Ragnhild- ur Sverrisdóttir hitti Hrönn að máli og ræddi við hana um fegurð, stuttmyndir, Kolkrabba og samstarfið við bróðurinn. Og jákvætt fé- lagsstarf ungra kvenna. Hrönn á sér fortíð í fegurðarsamkeppni. Á unglingsárunum var hún kosin ungfú Snæland, í Snælandsskóla í Kópavogi. En unglingurinn gerði uppreisn og rakaði af sér fegurðardrottningarhárið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.