Morgunblaðið - 12.11.2002, Qupperneq 4
FRÉTTIR
4 ÞRIÐJUDAGUR 12. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
HJÁLMAR Árnason, formaður iðn-
aðarnefndar Alþingis, segir fund
sem nefndin átti í gær með Lands-
virkjun, VSÓ og vísindamönnum
vegna ásakana vísindamannanna um
að misfarið hafi verið með framlag
þeirra til umhverfismats vegna
Norðlingaölduveitu hafa verið gagn-
legan. Hann segir að af honum megi
draga þann lærdóm að skýrar reglur
þurfi að vera fyrir hendi um hvaða
skyldum hver og einn eigi að sinna
þegar ráðist sé í verk af þessu tagi
og hver beri hina endanlegu ábyrgð.
Hann segir að nefndin muni ekki að-
hafast frekar í málinu.
Landsvirkjun hafði óskað eftir því
að fá að koma fyrir nefndina til að
bera af sér sakir nokkurra vísinda-
manna um að það hafi verið misfarið
með framlag þeirra til umhverfis-
matsins.
Iðnaðarnefnd bauð vísindamönn-
um sem nefndir hafa verið í um-
ræðunni að koma á fund nefndarinn-
ar og gera grein fyrir sakargiftum.
Að sögn Hjálmars ræddi nefndin við
Þóru Ellen Þórhallsdóttur prófess-
or, Ragnhildi Sigurðardóttur líf-
fræðing og Gísla Má Gíslason pró-
fessor. Arnþór Garðarsson
prófessor var einnig boðaður á fund-
inn en að sögn Hjálmars gerði hann
nefndinni grein fyrir því í bréfi að
hann gagnrýndi ekki vinnubrögð
Landsvirkjunar í málinu.
Að því búnu mættu fulltrúar
Landsvirkjunar og VSÓ á fund
nefndarinnar.
Hjálmar segir að eftir að hafa
hlýtt á mál allra aðila sé hann þeirr-
ar skoðunar að málið sé í þeim far-
vegi sem lög mæli fyrir um og það sé
ekki í höndum Alþingis.
Hjálmar segir það atriði skipta
miklu máli að Skipulagsstofnun tók
við matsskýrslu sem er verk Lands-
virkjunar og á ábyrgð fyrirtækisins.
„Landsvirkjun fær undirverk-
taka, VSÓ, til að vinna þessa skýrslu
og VSÓ fær síðan undirverktaka til
að safna saman ýmsum vísindagögn-
um frá einum 50 vísindamönnum.“
Hann segir ljóst að misskilningur
virðist hafa orðið varðandi hlutverk
ritnefndar við samantekt á umrædd-
um vísindagögnum. „Þar virðist ein-
hvern veginn hafa orðið sá misskiln-
ingur að þetta væri að öllu leyti
unnið fyrir vísindamennina, en ekki
sem verktaka af hálfu VSÓ,“ sagði
Hjálmar.
Hjálmar segir að það liggi einnig
ljóst fyrir að athugasemdir vísinda-
mannanna voru teknar inn í endan-
lega útgáfu frá VSÓ til Landsvirkj-
unar en ekki þó allar þar sem það
hafi verið mat þeirra að næg rök
væru ekki fyrir hendi.
„Vísindamennirnir sendu síðan at-
hugasemdir til hins óháða aðila, þ.e.
Skipulagsstofnunar, og gátu komið
sínum ábendingum og ýmsum
grunnupplýsingum til Skipulags-
stofnunar þannig að stofnunin hefur
öll gögn í hendi sér.“
Hjálmar segir að nefndin líti al-
varlegum augum þær ásakanir sem
fram hafa komið frá Ragnhildi Sig-
urðardóttur um að ónefndur verk-
fræðingur hafi haft í hótunum við
hana.
„Við vildum fá að vita um hvern
væri að ræða þannig að við gætum
tekið það mál upp sem raunverulegt
dæmi við Landsvirkjun. En við feng-
um ekki þau svör.“
Hjálmar segir það sitt mat að það
að bera fram jafnalvarlega ákæru
kalli á að menn stígi skrefið til fulls
þannig að hægt sé að taka á meint-
um sakargiftum. Sé það ekki gert,
með því að nafngreina sökudólginn,
sé ekki hægt að túlka hana nema
sem dylgjur í versta falli.
Matið unnið með heiðarlegum
hætti og í fullu samræmi við lög
Í tilkynningu frá Landsvirkjun
segir að fulltrúar Landsvirkjunar og
VSÓ ráðgjafar hafi á fundi með iðn-
aðarnefndinni sýnt fram á að matið á
umhverfisáhrifum Norðlingaöldu-
veitu hafi verið unnið með heiðarleg-
um hætti og í fullu samræmi við lög.
Fram kemur að Guðjón Jónsson,
verkefnastjóri hjá VSÓ, hafi lagt
fram gögn sem lýsi nákvæmlega
samskiptum VSÓ við Þóru Ellen
Þórhallsdóttur og Gísla Má Gíslason,
en þau hafa bæði gefið til kynna að
óeðlilega hafi verið farið með nið-
urstöður vísindamannanna í mats-
vinnunni. Þá kemur fram að Guðjón
hafi gert grein fyrir samskiptum
VSÓ við dr. Ragnhildi Sigurðardótt-
ur en það mál sé Landsvirkjun óvið-
komandi og mun VSÓ gera þessar
upplýsingar um viðskiptin við vís-
indamennina opinberar. Landsvirkj-
un lýsir yfir ánægju með að Arnþór
Garðarsson skuli hafa tekið af öll tví-
mæli í opinberri yfirlýsingu um að
hann hafi aldrei haldið því fram að
Landsvirkjun hafi haft áhrif á vís-
indamenn eða niðurstöður þeirra við
matsvinnuna.
Þá segir í tilkynningunni að það að
Ragnhildur Sigurðardóttir vilji ekki
nafngreina neinn verkfræðing
Landsvirkjunar um að hafa beitt
hana óeðlilegum þrýstingi sé ekki
hægt að skilja öðruvísi en að opinber
yfirlýsing hennar sé ómerk orðin.
Formaður iðnaðarnefndar um fund um mat á umhverfisáhrifum Norðlingaölduveitu
Í þeim farvegi sem
lög mæla fyrir um
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra segir kröfur
Evrópusambandsins um framlög EFTA-ríkjanna
Íslands, Noregs og Liechtenstein í þróunarsjóð
fyrir fátækari ríki ESB, í tengslum við viðræður
vegna stækkunar ESB og EES-svæðisins, bæði
ósanngjarnar og óeðlilegar og ekki sé hægt að
finna þeim stað.
Upphaflega áttu þessar greiðslur að standa í
fimm ár, út árið 1998, en eins og fram hefur komið
er gerð krafa um margföld og varanleg framlög
EFTA-ríkjanna í drögum framkvæmdastjórnar
ESB að samningsumboði vegna viðræðnanna
sem standa fyrir dyrum.
„Við vorum með fimm ára greiðslur sem samið
var um. Síðan virti Evrópusambandið ekki þá
samninga, sem voru auðvitað mikil vonbrigði. Við
vorum með vissum hætti þvingaðir til að halda
þessum greiðslum áfram umfram það sem samn-
ingar höfðu staðið til. Það er náttúrlega vont,“
segir forsætisráðherra.
ESB skylt að tryggja að
fríverslunarsamningar héldu
Fram hefur komið að rök ESB fyrir þessum
kröfum eru að með stækkun fái EFTA-ríkin að-
gang að mun stærri markaði og því sé eðlilegt að
þau taki þátt í miklum kostnaði við að byggja
þann markað upp.
„Það var alltaf gert ráð fyrir því að við mynd-
um ganga inn í EES-samning við [þau ríki] sem
gengju inn í Evrópusambandið. Því fylgir enginn
sérstakur kostnaður fyrir okkur. Þau eru að laga
sinn landbúnað og þess háttar, sem við erum ekki
aðilar að, að kerfi Evrópusambandsins með mikl-
um kostnaði, og við eigum ekki að greiða fyrir það
á nokkurn hátt. Við höfum því talið þær kröfur
vera ósanngjarnar og óeðlilegar og ekki hægt að
finna þeim stað,“ segir Davíð.
„Jafnframt höfum við talið að þeim væri skylt
að tryggja að fríverslunarsamningar sem við
kynnum að hafa við ríki í fyrrum Austur-Evrópu
héldu, þrátt fyrir breytingarnar. Það lægi í eðli
EES-samningsins og reyndar í eðli alþjóðlegra
viðskiptareglna og fyrir það ætti ekki að þurfa að
borga,“ segir hann.
Þarf að vera í lagi upp
á framtíðina að gera
Davíð bendir einnig á að ekki sé um mikla
hagsmuni fyrir Ísland að ræða í bili vegna frí-
verslunarsamninga við umrædd ríki. „Allur út-
flutningur samkvæmt þessum samningum er
kannski svona einn gámur á ári. Menn mega því
ekki heldur fara að mikla það fyrir sér en það er
hins vegar rétt og eðlilegt upp á framtíðina að
þetta sé í lagi og við höfum lagt áherslu á þennan
þátt. Ef einhverjar greiðslur ættu yfirleitt að
koma til verður nú að vera alveg ljóst að við séum
ekki að selja þetta hvað fyrir annað – hvort
tveggja þarf að vera inn í myndinni fyrir við-
ræður. En þær tölur sem hafa heyrst nefndar eru
alveg út úr kú og fullkomlega óeðlilegar,“ segir
forsætisráðherra.
Ósanngjarnar og óeðli-
legar kröfur af hálfu ESB
Morgunblaðið/RAX
Davíð Oddsson forsætisráðherra.
VÍSINDAMENN Íslenskrar erfða-
greiningar hafa greint hvernig
krabbameinslyfið Topotecan hindrar
frumuskiptingu með því að tengjast
við lyfjamark sitt, tópóísómerasa I
og DNA. Þetta er í fyrsta sinn sem
tekist hefur að greina nákvæmlega
hvernig þessi tenging á sér stað í þrí-
víðu rúmi.
Í fréttatilkynningu frá Íslenskri
erfðagreiningu segir að þessar nið-
urstöður undirstriki getu ÍE til að
greina þrívíddarbyggingu próteina.
Þær séu einnig grunnur að áfram-
haldandi rannsóknum fyrirtækisins
sem miði að þróun nýrra krabba-
meinslyfja af svipaðri gerð. Niður-
stöðurnar verða birtar í næsta hefti
tímarits bandarísku vísindaakademí-
unnar, Proceedings of the National
Academy of Sciences.
Rannsóknir Íslenskrar erfða-
greiningar fólust í því að greina ná-
kvæmlega, í þrívíðu rúmi, hvernig
Topotecan binst við tópóísómerasa I
og DNA. Að sögn ÍE hafa þær aukið
skilning á því hvernig lyf af gerð
camptothecin-beiskjuefna trufla
starfsemi tópóísómerasans. Á fyrsta
stigi rannsóknanna tókst vísinda-
mönnum fyrirtækisins í Seattle í
Bandaríkjunum að búa til stöðugt
samband tópóísómerasa og DNA,
sem mögulegt var að kristalla. Síðan
voru kristallarnir röntgenmyndaðir
hjá AXAS, dótturfyrirtæki ÍE.
Haft er eftir Kára Stefánssyni,
forstjóra Íslenskrar erfðagreining-
ar, að um sé að ræða meiriháttar nið-
urstöður á sviði þrívíddargreiningar
á próteinum og mikilvægt framlag til
aukins skilnings á virkni ákveðinnar
krabbameinsmeðferðar. Segir Kári
að rannsóknarhópur fyrirtækisins í
Seattle vinni nú að þróun á nýjum
tópóísómerasa I-hömlum sem bein-
ast að krabbameini.
Camptothecin er beiskjuefni sem
unnið er úr kínverskri runnategund
og Topotecan er önnur tveggja tilbú-
inna útgáfna þess sem hafa verið
samþykktar af bandaríska matvæla-
og lyfjaeftirlitinu. Eiginleikar þess-
ara beiskjuefna sem krabbameins-
lyfja voru uppgötvaðir fyrir meira en
30 árum og á miðjum 9.áratugnum
var vitað að þau verka með því að
bindast tópóísómerasa I, mikilvægu
ensími í eftirmyndunarferli DNA.
Rannsókn ÍE
Eykur
skilning
á virkni
meðferðar
GARÐSKAGAVITI hefur löngum
haft mikið aðdráttarafl enda útsýn-
ið mikilfenglegt og fjölbreytt fugla-
líf á svæðinu. Gamli vitinn, sem hér
sést á mynd, hefur lengi staðið op-
inn almenningi en stefnt er að því
að nýi vitinn verði í auknum mæli
opinn fyrir almenning einnig og á í
þeim tilgangi meðal annars að gera
sögu svæðisins í kring og vitunum
betur skil með aðstoð fræðsluefnis.
Viti var fyrst reistur á Garðska-
gatá árið 1897 en áður hafði verið
þar leiðarmerki. Nýr viti var
byggður 1944.
Þeir sem hafa upplifað umhverf-
ið þar á þann máta sem hér sést
ættu ekki að þurfa að velta vöngum
yfir því af hverju fólk sækir í að
komast í vitana.
Norðurljós
við Garð-
skagavita
Ljósmynd/Rafn Hafnfjörð