Morgunblaðið - 12.11.2002, Blaðsíða 44
KVIKMYNDIR
44 ÞRIÐJUDAGUR 12. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
NÝJASTA kvikmynd Madonnu,
Swept Away, verður ekki sýnd í kvik-
myndahúsum í Bretlandi heldur fer
beint á myndbandaleigurnar. Myndin
hefur fengið slæma dóma og gekk illa
í Bandaríkjunum. Tekjur af myndinni
vestanhafs frá því að hún var frum-
sýnd í síðasta mánuði nema aðeins um
rúmum 50 milljónum króna.
„Vegna lítillar aðsóknar í Banda-
ríkjunum verður mynd Guy Ritchies,
Swept Away, ekki tekin til sýninga í
kvikmyndahúsum í Bretlandi,“ sagði
talsmaður Columbia Tristar.
Í dómi New York Daily News segir
að myndin sé „viðvaningsleg“ og
marki „nýja lægð í frama“ Madonnu.
Söngkonan þekkta leikur ríkan
Bandaríkjamann í myndinni, sem
hagar sér illa gagnvart ítölskum sjó-
manni, sem leikinn er af Adriano
Giannini. Samband þeirra tekur síðan
stakkaskiptum eftir að snekkjan ferst
og þau hafna saman á eyju.
Nýjasta mynd Madonnu gengur illa
Beint á
myndband í
Bretlandi
Reuters
Madonna og Adriano Giannini í
hlutverkum sínum í rómantísku
gamanmyndinni Swept Away, en
eiginmaður Madonnu, Guy Ritchie,
leikstýrði myndinni.
EASTWOOD lætur ekki deigan
síga þótt hann sé kominn á 73. aldurs-
árið. Það er ekkert nema gott um það
að segja – ef hann hagaði seglum eftir
vindi. Blood Work er að mörgu leyti
ágætur fjöldamorðingjatryllir sem
hefði orðið mun betri ef leikstjórinn
Eastwood hefði valið einhvern annan
en leikarann Eastwood í aðalhlutverk
alríkislöggunnar Terry McCaleb.
Ástæðurnar blasa við. Eastwood er –
þrátt fyrir aðdáunarvert útlit og ásig-
komulag – greinilega á áttræðisaldri.
Sem er ekki trúverðugt fyrir mann
sem heillar konu um þrítugt uppúr
skónum og hleypur, slæst og skýtur
líkt og í spaghettívestrunum sem
gerðu hann frægan uppúr miðri síð-
ustu öld. Líkt og það hálfa sé ekki nóg
er McCaleb nýstiginn upp úr líffæra-
flutningum, reyndar með hjarta úr
ungri konu. Á það að gera gæfumun-
inn?
Myndin hefst á eltingaleik McCal-
ebs við afkastamikinn fjöldamorð-
ingja sem kemur skilaboðum til lögg-
unnar á hverjum morðstað. McCaleb
kemst að lokum í skotfæri við kauða
en geldur fyrir með hjartaáfalli.
Tvö ár líða. McCaleb liggur á
sjúkrahúsi að jafna sig eftir hjarta-
ígræðslu þegar til hans kemur ung
kona, Graciela Rivers (Wanda De
Jesus), sem krefst þess að McCaleb
aðstoði hana við að hafa uppá morð-
ingja systur sinnar. Honum renni
blóðið til skyldunnar í orðsins fyllstu
merkingu, þar sem McCabe gangi
með hjarta systur sinnar!
Nokkuð góð flétta ef handritshöf-
undurinn tæki ekki upp á þeim fjára
að láta þau verða ástfangin, McCaleb
og Rivers. Eastwood er greinilega
kominn með geðflækjuna sem ég
kenni við Woody Allen; afneita útliti
sínu og árafjölda og telja sig enn hæf-
an til að leika kvennagull. Þessir höfð-
ingjar blekkja því miður enga aðra en
sjálfa sig.
Fjölda- eða raðmorðingjamyndir
eru hver annarri líkar, munurinn ligg-
ur einkum í mismunandi subbuskap
og blóðflæði. Hér má segja að sé far-
inn millivegurinn og lausn gátunnar
(en morðingjar af þessu tagi skilja
jafnan eftir sig vísbendingar í Holly-
woodmyndum), liggur loks í augum
uppi þegar smádrengur (sonur
hjartagjafans), ræður í talnaþulur
sem drápsmaðurinn skilur eftir á
vettvangi.
Handritshöfundurinn Brian Hel-
geland er manna mistækastur. Er
kunnastur fyrir Óskarsverðlauna-
handritið L.A. Confidential en lauk á
sama ári við The Postman og
Conspiracy Theory, tvö önnur sem
hann vill örugglega gleyma. Blood-
work er einhvers staðar þarna á milli,
hefði virkað betur með talsvert yngri
karlleikara en bragðdaufur endir og
rökleysur í framvindunni væru áfram
til staðar. Tónlistin er í hæsta gæða-
flokki (eins og jafnan í Eastwood-
myndum), leikhópurinn þokkalegur
þótt Anjelica Huston sé útundan í
marklausu hlutverki.
Clint Eastwood sem Terry McCaleb, FBI-maður sem látið
hefur af störfum … þar til örlögin banka upp á, það er að segja.
Æ sér gjöf til gjalda
Sæbjörn Valdimarsson
KVIKMYNDIR
Sambíóin, Háskólabíó
Leikstjóri: Clint Eastwood. Handrit: Brian
Helgeland, byggt á sögu e. Michael
Connelly. Kvikmyndatökustjóri: Tom
Stern. Tónlist: Lennie Niehaus. Aðalleik-
endur: Clint Eastwood, Jeff Daniels,
Wanda De Jesus, Anjelica Huston, Tina
Lifford, Paul Rodriguez, Dylan Walsh,
Mason Lucero. 110 mín. Warner Bros.
Bandaríkin 2002.
BLOOD WORK (BLÓÐRANNSÓKN) Restaurant
Pizzeria
Gallerí - Café
Bjóðum einnig upp á
notalega aðstöðu,
fyrir 15 til 30 manna hópa,
í Djúpinu og Galleríinu.
Hafnarstræti 15, sími 551 3340
"Grettissaga er stórkostleg leikhúsupplifun."
S.S og L.P. Rás 2
Grettissaga saga Grettis
leikrit eftir Hilmar Jónsson byggt á Grettissögu
fim 14. nóv kl. 20. uppselt, lau 16. nóv kl. 20 nokkur sæti, lau 23. nóv kl. 20, nokkur sæti, föst 29. nóv, laus sæti
Sellófon eftir Björk Jakobsdóttur
þri 12. nóv, örfá sæti, mið 13, nóv, uppselt, föst 15. nóv, AUKASÝNING, uppselt, sun 17. nóv, uppselt,
þri. 19. nóv, örfá sæti, mið 20. nóv, uppselt, sun 24. nóv, uppselt, þri 26. nóv, uppselt, mið 27. nóv, uppselt,
sun 1. des, örfá sæti, mið 4. des, laus sæti
Sýningarnar á Sellófon hefjast kl 21.00
Veisla í Vesturporti!
..ef ykkur langar til að eiga stund
þar sem þið getið velst um af
hlátri, ekki missa af þessari leiksýn-
ingu... (SA, Mbl.)
fim. 14. nóv. kl. 21.00
lau. 16. nóv. kl. 23.30
sun. 17. nóv. kl. 21.00
fös. 22. nóv. kl. 21.00
Ósóttar pantanir seldar tveimur
dögum fyrir sýningu
Vesturport, Vesturgata 18
Miðasala í Loftkastalanum,
Sími 552 3000
loftkastali@simnet.is
www.senan.is
Stóra svið
SÖLUMAÐUR DEYR e. Arthur Miller
Fi 14/11 kl 20 , su 17/11 kl 20, fö 22/11 kl 20
HONK! LJÓTI ANDARUNGINN
e. George Stiles og Anthony Drewe
Gamansöngleikur fyrir alla fjölskylduna
Su 17/11 kl 14 ,Lau 23/11 kl 20 ATH: Kvöldsýning,
Su 24/11 kl 14
MEÐ VÍFIÐ Í LÚKUNUM e. Ray Cooney
Lau 16. nóv kl 20 - AUKASÝNING
Fim 21. nóv kl 20 - AUKASÝNING
Fö 29. nóv kl 20 - AUKASÝNING
KRYDDLEGIN HJÖRTU e. Laura Esquivel
Fö 15/11 kl 20, Lau 30/11 kl 20
Síðustu sýningar
AND BJÖRK, OF COURSE ..
e. Þorvald Þorsteinsson
Fö 15 nóv. kl 20 - AUKASÝNING Allra síðasta sinn
LEIKHÚSMÁL - ÁHRIFAVALDAR
Hverjir eru áhrifavaldar leikhúsfólks?
Frummælendur: Egill Anton Heiðar Pálsson,
Halldóra Geirharðsdóttir, Stefán Baldursson og
Þórhildur Þorleifsdóttir
Má 11/11 kl 20
Nýja sviðið
Þriðja hæðin
Litla svið
Miðasalan er opin kl. 13-18 og fram að sýningu sýningardaga. Sími miðasölu opnar kl. 10 virka daga.
Fax 5680383 midasala@borgarleikhus.is
Miðasala: 568 8000
SUSHI NÁMSKEIÐ
með Snorra Birgi og Sigurði
Í kvöld kl. 20
HERPINGUR e. Auði Haralds og
HINN FULLKOMNI MAÐUR e.Mikael Torfason
í samstarfi við DRAUMASMIÐJUNA
Fö 15/11 kl 20, Lau 16/11 kl 20
RÓMEÓ OG JÚLÍA e. Shakespeare
í samstarfi við VESTURPORT
FRUMSÝNING mi 20/11 kl 20
Lau 23/11 kl. 16.30, Su 24/11 kl 17
Ath. breyttan sýningartíma
JÓN OG HÓLMFRÍÐUR e. Gabor Rassov
frekar erótískt leikrit í þrem þáttum
Lau 16/11 kl 20, fim 21/11, fö 22/11, lau 23/11
15:15 TÓNLEIKAR
Lau 16/11 Snorri Sigfús Birgisson og Þorsteinn
Hauksson. CAPUT - Benda
MUGGUR - KÓMEDÍULEIKHÚSIÐ
Fi 14/11 kl 20:00, Su 17/11 kl 20:00
Kvöldverður fyrir og eftir sýningar
Fim 14/11 kl. 21 Örfá sæti
Fös 15/11 kl. 21 Uppselt
Lau 16/11 kl. 21 Uppselt
Lau 16/11 kl. 23 Aukasýning Örfá sæti
Fim 21/11 kl. 21 Nokkur sæti
Fös 22/11 kl. 21 Uppselt
Lau 23/11 kl. 21 Örfá sæti
Fös 29/11 kl. 21 Uppselt
Lau 30/11 kl. 21 Nokkur sæti
Fim 5/12 kl. 21 Nokkur sæti
Fös 6/12 kl. 21 50. sýning - Örfá sæti
Munið gjafakortin
Miðasala er opin frá kl. 10-16 virka daga,
kl. 14-17 um helgar, frá kl. 19 sýnd.
Ósóttar pantanir seldar 4 dögum fyrir
sýningar. Sími 562 9700
SKÝFALL
eftir Sergi Belbel
Mið. 13. nóv. kl. 20
Fim. 14. nóv. kl. 20
Fös. 15. nóv. kl. 20
Lau. 16. nóv. kl. 20
Síðustu sýningar!
552 1971, nemendaleikhus@lhi.is