Morgunblaðið - 12.11.2002, Side 39

Morgunblaðið - 12.11.2002, Side 39
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. NÓVEMBER 2002 39 ÍSLENSKA landsliðið vann sinn fimmta sigur í röð í lokaumferðinni í opnum flokki á Ólympíuskákmótinu í Bled. Andstæðingarnir í 14. umferð voru Indverjar, sem höfðu á að skipa sterkri sveit þótt Anand tefldi ekki með þeim að þessu sinni. Viðureign- inni lauk með sigri Íslands, 2½-1½. Helgi Áss Grétarsson og Þröstur Þór- hallsson unnu, en Helgi Ólafsson gefði jafntefli. Hannes Hlífar tapaði sinni skák eftir langa baráttu. Helgi Áss átti mjög góðan endasprett á mótinu og fékk 4½ vinning í síðustu 5 skákunum, en Þröstur var honum ekki langt að baki með 4 vinninga. Ísland hafnaði í 21.–22. sæti á mótinu, sem er langt fyrir ofan það sem vænta mátti miðað við upphaf- lega styrkleikaröð þar sem liðið var í 43. sæti. Þá er þetta einnig langbesti árangur Íslands á Ólympíumóti frá 1996. Ekki skemmdi það ánægjuna að Íslendingar urðu auk þess efstir Norðurlanda á mótinu. Framan af keppninni voru það Hannes Hlífar Stefánsson og Helgi Ólafsson sem sýndu bestan árangur í íslenska liðinu. Mestallt mótið var Hannes meðal þeirra 10 sem bestan árangur sýndu á Ólympíumótinu og fór þar alveg upp í fimmta sæti. Loka- umferðirnar reyndust honum hins vegar erfiðar, þótt heildarárangurinn hafi þrátt fyrir það verið góður. Það hafði sitt að segja, að Hannes tefldi flestar skákir íslensku liðsmannanna og hvíldi einungis tvívegis. Helgi Ólafsson var kletturinn í liðinu, sýndi jafnan og góðan árangur út í gegnum mótið, og náði hlutfallslega bestum árangri íslensku keppendanna. Það hefur verið gaman að fylgjast með Helga komast aftur í sitt besta form á undanförnum mánuðum. Vonandi á hann eftir að fylgja þessum árangri vel eftir með meiri taflmennsku. Eins og áður er komið fram náðu þeir Helgi Áss og Þröstur gríðarlega góð- um endaspretti og það var einnig mikilvægur þáttur í góðum árangri liðsins. Varamennirnir, Stefán Krist- jánsson og Jón Garðar Viðarsson, stóðu einnig fyrir sínu, t.d. fékk Jón Garðar 2½ vinning úr fyrstu þremur skákunum sem hann tefldi á mótinu. Kvennaliðið tapaði fyrir Eistlandi ½-2½ í lokaumferðinni, en jafnteflið gerði Aldís Rún Lárusdóttir. Kvenna- liðið hafnaði í 65. sæti. Metþátttaka var í opnum flokki og tóku 134 lið þátt í keppninni. Rússar urðu Ólympíumeistarar, en röð efstu liða og Norðurlanda varð þessi: 1. Rússland 38½ v., 2. Ungverjaland 37½ v., 3. Armenía 35 v., 4. Georgía 34 v., 5.–7. Kína, Holland, England 33½ v., 8.–12. Slóvakía, Ísr- ael, Júgóslavía, Makedónía, Sviss 33 v. 21.–22. Ísland 32 v. 26. Danmörk 31½ v. 32. Svíþjóð 31 v. 45. Finnland 30½ 48. Noregur 30 v. 92. Færeyjar 26 v. Í kvennaflokki tefldu 89 lið. Þar höfðu Kínverjar sigur, en skákáhugi hefur vaxið gríðarlega í Kína á und- anförnum árum, ekki síst meðal kven- þjóðarinnar. Röð efstu liða í kvenna- flokki: 1. Kína 29½ v., 2. Rússland 29 v., 3. Pólland 28½ v., 4. Georgía 27½ v., 5.–8. Ungverjaland, Úkraína, Júgóslavía og Azerbajdan 25½ v., 9.–10. Bandaríkin og Tékkland 25 v. 65. Ísland 19 v. Árangur íslenska kvennaliðsins er vel viðunandi og lenti liðið aðeins fyrir ofan það sem vænta mátti miðað við stigatölu liðsins. Liðið átti marga góða spretti á mótinu, en gaf nokkuð eftir í lokin. Heiðursbikarmót Hreyfils hefst á morgun Fjórða heiðursbikarmót Hreyfils verður haldið 13. til 20. nóvember kl. 19:30. Teflt verður í félagsheimili Hreyfils. Að þessu sinni er mótið haldið til heiðurs Brynleifi Sigurjóns- syni. Tefldar verða 7 umferðir eftir Monrad-kerfi, hálftíma skákir. Allir eru velkomnir. Fimm sigrar í röð og besti árangur frá 1996 SKÁK Bled, Slóvenía 35. ÓLYMPÍUSKÁKMÓTIÐ 25. okt. – 10. nóv. 2002 Daði Örn Jónsson Þröstur Þórhallsson Helgi Ólafsson Helgi Áss Grétarsson Hannes Hlífar Stefánsson Málverk á hvolfi Málverk eftir Kristínu Geirsdótt- ur sneri vitlaust í blaðinu á dögun- um. Verk Kristínar má nú sjá á „Café Fashion Gallery“ Bæjarlind 12, Kópavogi. Örnefnastofnun Í fyrirsögn í frétt í sunnudags- blaðinu um Örnefnastofnun er rang- lega fullyrt að ákveðið hafi verið að stofnunin verði lögð niður. Hið rétta er að fyrirhugað er að leggja stjórn Örnefnastofnunar niður eins og kemur fram í fréttinni sjálfri. Rangt föðurnafn Rangt var farið með föðurnafn leikkonunnar Margrétar Guðmunds- dóttur í blaðinu á laugardag í um- sögn gagnrýnanda blaðsins um frumsýningu Þjóðleikhússins á Halta Billa. LEIÐRÉTT UM helgina var tilkynnt um 32 umferðaróhöpp og var í einu þeirra um minniháttar meiðsl að ræða. 32 ökumenn voru kærðir fyrir of hraðan akstur og 11 voru grunaðir um ölvun við akstur. Frekar fámennt var í miðbænum um helgina, enda vindstrekkingur og kalt í veðri. 9 innbrot voru tilkynnt, 21 þjófnaður og 14 skemmdarverk. Þá voru 4 minniháttar brunar til- kynntir. Í síðasta mánuði voru stöðvaðar áfengisveitingar á 10 veitingastöðum vegna þess að leyfi til áfengisveitinga voru útrunnin og ekki sinnt um að endurnýja þau. Þá var lagst gegn því að einn veitingastaður fengi endur- nýjað áfengisveitingaleyfi vegna end- urtekinna brota. Áfram verður hald- ið uppi öflugu eftirliti með veitinga- húsum og því fylgt eftir að þau hafi tilskilin leyfi til starfseminnar og fari eftir settum reglum. Fátt fær að vera í friði fyrir þjóf- unum. Á föstudagsmorgun var til- kynnt um að brotist hafi verið inn í bifreið í Fossvogi. Telst varla frétt- næmt að öðru leyti en því að úr bif- reiðinni var stolið tveimur innbrots- kerfum sem geymd höfðu verið í bifreiðinni. Á föstudag var tilkynnt um vinnu- slys í Höfðahverfinu. Þar hafi maður sem vann við að mála hús fallið úr stiga. Var fallið um 4 til 5 metrar. Maðurinn var með meðvitund en hafði hlotið opið ökklabrot. Þá var sama dag tilkynnt um annað vinnu- slys í austurborginni en þar hafði maður lent með hendina í hakkavél og missti við það litlafingur. Sambýlisfólk úr austurborginni hafði verið úti að skemmta sér, en er heim var komið, sinnaðist þeim og kom til átaka. Enduðu þau með því að maðurinn sló sambýliskonuna sem kjálkabrotnaði. Var hún flutt á slysa- deild. Snemma á sunnudagsmorgun var tilkynnt um mann í austurborginni sem gengi á milli húsa og virtist vera að kanna hvort hann kæmist inn. Var maðurinn handtekinn og færður á stöð. Þar gat hann litla grein gert fyrir ferðum sínum og eins kom í ljós að hann var með um helmingi meiri fjármuni á sér en hann hélt fram sjálfur. Var maðurinn vistaður í fangageymslu meðan málið væri rannsakað frekar. Upp úr hádegi var svo tilkynnt um innbrot í hús í þeirri sömu götu og maðurinn hafði verið tekinn og kom í ljós að þaðan hafði verið stolið um 140.000 krónum sem kom heim og saman við það sem mað- urinn hafði verið með í fórum sínum. Úr dagbók lögreglunnar 8.–11. nóvember Nokkuð um hrað- akstur og þjófnaði Ísland og Evrópusambandið Heimssýn, hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, Politica, félag stjórnmálafræðinema og Orator, fé- lag laganema standa fyrir opnum fundi um Ísland og Evrópusam- bandið í Lögbergi, stofu 103, í dag þriðjudaginn 12. nóvember, kl. 12.15. Framsögumenn verða Sig- urður Líndal, fyrrum prófessor við lagadeild Háskóla Íslands, og Guð- mundur Hálfdanarson, prófessor við heimspekideild Háskóla Íslands. Verður fyrst og fremst fjallað um fullveldishugtakið í tengslum við Evrópuumræðuna og þá spurningu hvort fullveldi Íslands yrði fórnað við aðild að ESB segir í fréttatil- kynningu Ristilkrabbamein. Krabbameins- félag Reykjavíkur, Styrkur og Stómasamtök Íslands halda opinn fræðslufund um ristilkrabbamein í húsi Krabbameinfélagsins í Skógar- hlíð 8 í Reykjavík í dag, þriðjudag- inn 12. nóvember klukkan 20. Ásgeir Theódórs læknir ræðir um ristil- krabbamein og kynnir vitundar- vakningu sem nú stendur yfir. Nokkrir einstaklingar sem greinst hafa með sjúkdóminn segja frá reynslu sinni. Pallborðsumræður og fyrirspurnir verða að erindum lokn- um og hollar veitingar. Í DAG Nám og tunga Miðvikudaginn, 13. nóvember kl. 12–13 flytur Hafþór Guðjónsson erindið Nám og tunga. Fyrirlesturinn er í stofu 101 í Odda, Háskóla Íslands, og er öllum opinn. Í erindinu segir hann stuttlega frá doktorsverkefni sínu sem hann varði nýlega við Háskólann í Bresku Kol- umbíu (UBC) í Vancouver í Kanada. Þetta verkefni beinist að kennara- námi, þ.e. spurningunni um hvernig fólk lærir að kenna. Til að kljást við þessa spurningu rýnir hann í eigin rann og þá sérstaklega í reynslu sína af efnafræðikennslu í framhalds- skóla og reynslu af kennslufræðilegu námskeiði sem hann hefur verið að þróa á undanförnum árum við Há- skóla Íslands og er einkum ætlað verðandi raungreinakennurum. Hafþór Guðjónsson stundaði nám í efnafræði við Háskólann í Osló og lífefnafræði við Háskólann í Tromsö í Noregi, þar sem hann lauk mast- ersprófi árið 1976. Hann var efna- fræðikennari við Menntaskólann við Sund árið 1979 til ársins 1997. Haf- þór er höfundur þriggja námsbóka um efnafræði fyrir framhaldsskóla sem Mál og menning gaf út á ár- unum 1988 til 1992. Árið 1997 hóf hann nám við Háskólann í Bresku Kolumbíu og lauk þaðan doktors- prófi í ágúst síðastliðnum. Skyndihjálp. Reykjavíkurdeild RKÍ gengst fyrir námskeiði í al- mennri skyndihjálp sem hefst mið- vikudaginn 13. nóvember. Kennt verður frá kl. 20 til 23 dagana 13., 14., 18., og 19 nóvember. Námskeiðið er opið öllum 15 ára og eldri. Nám- skeiðið telst vera 16 kennslustundir. Námskeiðið verður haldið í Fákafeni 11, 2 hæð. Þeir sem hafa áhuga á að komast á þetta námskeið geta skráð sig hjá Reykjavíkurdeild RKÍ frá kl. 8 til 16. Evrópusambandið. Miðvikudaginn 13. nóvember nk., kl. 12.15, flytur Stefán Már Stefánsson fyrirlestur um framtíðarskipan Evrópusam- bandsins í stofu L-101 í Lögbergi á vegum Lagastofnunar Háskóla Ís- lands. Stefán Már er prófessor og hefur umsjón með kennslu og rann- sóknum á sviði Evrópuréttar í laga- deild Háskóla Íslands. Umhverfisáhrif. Miðvikudaginn 13. nóvember kl. 16.15, heldur Kjartan Bollason fyrirlestur um meistara- prófsritgerð sína í umhverfisfræði sem heitir Hagnýt notkun staðbund- innar þekkingar í mati á umhverfis- áhrifum. Fyrirlesturinn verður flutt- ur í stofu 157 í VRII, húsi verkfræði- og raunvísindadeildar Háskóla Ís- lands við Hjarðarhaga 2–6, og eru allir velkomnir. Hlutverk málstefnu. Fyrsta mál- stofa Mannfræðifélags Íslands verð- ur haldin miðvikudagskvöldið 13. nóvember kl. 20.30 í Alþjóðahúsinu við Hverfisgötu. Formaður félagsins dr. Hallfríður Þórarinsdóttir flytur erindi um hlutverk málstefnu í mót- un íslenskrar þjóðarímyndar. Erind- ið ber yfirskriftina: Pólitískur rétt- trúnaður og íslensk málstefna. Á MORGUN ♦ ♦ ♦ GUÐMUNDUR Árni Stefánsson al- þingismaður hefur sent yfirlýsingu þar sem hann þakkar öllum þeim sem lögðu Samfylkingunni lið í próf- kjörinu 9. nóvember. Hann þakkar líka meðframbjóðendum sínum. „Ennfremur þakka ég það afdrátt- arlausa traust sem mér var sýnt með kosningu í 1. sæti listans. Það er mér mikil hvatning í þeirri kosningabar- áttu sem framundan er. Þeir aðrir sem völdust í efstu sæti listans eru öflugir frambjóðendur Samfylking- arinnar. Flokksmenn völdu sitt sterkasta lið. Með samhentu átaki okkar frambjóðenda og í góðu sam- starfi við fjölmenna og kraftmikla sveit flokksmanna eru okkur allir vegir færir. Framundan er viðburðaríkur kosningavetur. Nú brettum við jafn- aðarmenn í Suðvesturkjördæmi upp ermar og hefjum kosningavinnuna. Kjördagur, 10. maí, er ekki langt undan. Þar stefnum við jafnaðar- menn á sigur. Þjóðinni er nauðsyn á nýrri ríkisstjórn – ríkisstjórn með fjölmenna sveit jafnaðarmanna inn- anborðs. Þakkar stuðnings- mönnum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.