Morgunblaðið - 12.11.2002, Blaðsíða 33
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. NÓVEMBER 2002 33
✝ Jóna ÁrmaníaSveinsdóttir
fæddist 14. október
1902. Hún lést á Sól-
vangi í Hafnarfirði 5.
nóvember síðastlið-
inn. Foreldrar henn-
ar voru hjónin
Sveinn Stefánsson,
bóndi á Kirkjubóli í
Vaðlavík og síðan á
Barðsnesi við Norð-
fjörð, og Sólveig Her-
mannsdóttir hús-
freyja. Jóna átti eina
hálfsystur Hólmfríði
Sveinsdóttur, látin,
og fóstbróður, Einar Guðmunds-
son, látinn.
Eiginmaður Jónu var Axel Sig-
geirsson sjómaður frá Reyðar-
firði, f. 22.10. 1910, d. 14.9. 1991.
Hann var sonur
hjónanna Siggeirs
Eyjólfssonar bónda
á Seljateig í Reyðar-
firði og Guðrúnar
Eyjólfsdóttur hús-
freyju úr Skafta-
fellssýslu.
Jóna ólst upp á
Barðsnesi við Norð-
fjörð. Hún stundaði
lengst af almenn
verkakvennastörf en
eftir að hún flutti til
Reykjavíkur starfaði
hún lengi í þvotta-
húsi Landspítalans.
Síðustu árin var hún búsett á Sól-
vangi í Hafnarfirði.
Útför Jónu verður gerð frá
Fossvogskapellu í dag og hefst at-
höfnin klukkan 13.30.
Hundrað ár eru langur líftími og
hvíldin því Jónu kærkomin.
Minningarnar eru margar og
ekki þá síst þegar ég var barn og
kom í heimsókn til Jónu og Axels
frænda. Þá gekk maður að því vísu
að í ísskápnum var lítil kók og í
skálinni súkkulaðirúsínur eða mol-
ar. Jóna passaði ætíð upp á það ef
von var á okkur krökkunum að
þetta væri til. Heimsóknir þessar
voru einskonar ævintýri fyrir mig
sem var að koma til Reykjavíkur í
heimsókn, nammið, Hverfisgatan
iðandi af umferð og alls ekki má
gleyma þegar maður náði að teygja
sig upp í gluggann og horfa út og
yfir á bleika húsið hinum megin,
þ.e.a.s. Hjá Báru. Jóna hafði alla tíð
mjög gaman af að fá gesti og fram-
reiddi þá í fljótheitum veislu með
vöfflum og súkkulaði þar sem ekki
var verið að spara súkkulaðið.
Jóna hafði alla tíð mjög ákveðnar
skoðanir á hlutunum og var stund-
um ekkert að skafa utan af því. Hún
var eins og maður segir ekta Norð-
firðingur, rauð í gegn. Heimahag-
arnir voru henni kærir og talaði
hún fallega um Barðsnes og hversu
gott þar hefði verið að vera. Oft
sagði hún sögurnar af ferðinni til
Rúmeníu upp úr 1950, ferð sem hef-
ur verið á sínum tíma algjör æv-
intýraferð enda voru utanlands-
ferðir þá ekki með þeim þægindum
sem eru í dag. Hún og Axel frændi
höfðu einnig gaman af að ferðast
innanlands og þá einkum farið í
berjamó en það var gull í augum
Jónu.
Þau hjón bjuggu á Hverfisgöt-
unni allt til ársins 1991 er Axel lést
skyndilega og þá strax sá maður
mun á Jónu, hún breyttist og var
ekki eins lífsglöð og hún hafði áður
verið. Eftir andlát Axels bjó hún
ein á Hverfisgötunni allt þar til hún
gat ekki séð um sig sjálf og fór þá á
Borgarspítalann og síðar á Sólvang
þar sem hún dvaldist til dánardags.
Eftir að hún flutti á Sólvang var
eins og hlutirnir hefðu minna gildi
fyrir hana en þó hafði hún gaman af
að fá heimsóknir og skemmtilegast
var að sjá hversu gaman hún hafði
af því að fá son minn Kristófer í
heimsókn, allt frá því að hann var
nýfæddur kom ég reglulega með
hann í heimsókn og alltaf kváðu við
svipaðar setningar hjá henni: en
hvað hann er fallegur, en hvað hann
er góður, hann skipaði sess í hjarta
hennar og í síðustu heimsókn okkar
til hennar, sem var í síðustu viku,
var einstaklega gaman að sjá til
þeirra, hann tæplega 1 ½ árs að
gefa henni nammi og auðvitað fékk
hann sér sjálfur úr skálinni eins og
ég gerði sjálf þegar ég var barn.
Guð geymi minningu Jónu A.
Sveinsdóttur.
Dagmar Sigrún.
Kæra Jóna. Ég sendi þér þetta
ljóð, sem var þér svo kært.
Ó hve létt er þitt skóhljóð
ó hve leingi ég beið þín,
það er vorhret á glugga,
napur vindur sem hvín,
en ég veit eina stjörnu,
eina stjörnu sem skín,
og nú loks ertu komin,
þú ert komin til mín.
Það eru erfiðir tímar,
það er atvinnuþref,
ég hef ekkert að bjóða,
ekki ögn sem ég gef,
nema von mína og líf mitt
hvort ég vaki eða sef,
þetta eitt sem þú gafst mér
það er alt sem ég hef.
En í kvöld lýkur vetri
sérhvers vinnandi manns,
og á morgun skín maísól,
það er maísólin hans,
það er maísólin okkar,
okkar einíngarbands,
fyrir þér ber ég fána
þessa framtíðarlands.
(Halldór Kiljan Laxness.)
Sofðu rótt, Jóna mín, og takk fyr-
ir allt.
Helga Aðalsteinsdóttir.
JÓNA ÁRMANÍA
SVEINSDÓTTIR
✝ Andrés H. Val-berg fæddist á
Syðri-Mælifellsá í
Skagafirði 15. októ-
ber 1919. Hann lést á
öldrunardeild Land-
spítalans í Fossvogi
1. nóvember síðast-
liðinn. Foreldrar
hans voru Hallgrím-
ur A. Valberg, f.
1882, d. 1962, frá
Reykjavöllum, bóndi
á Mælifellsá og Kálf-
árdal, bjó síðast á
Sauðárkróki, og Ind-
íana Sveinsdóttir, f.
1891, d. 1968, frá Mælifellsá. Systk-
ini Andrésar eru: Margeir Sveinn,
f. 1922, d. 1995, og Guðrún Mar-
grét, f. 1934, maki Jón Einarsson, f.
1926.
Andrés kvæntist 1951 Jóhönnu
Þuríði Jónsdóttur, f. 1925. Hún er
dóttir Jóns Jónssonar, f. 1886, d.
1976, bónda á Fagurhólsmýri, og
Guðnýjar Aradóttur, f. 1891, d.
1976. Systkini Þuríðar eru: Ari, f.
1921, d. 2000, Guðrún, f. 1922, Guð-
jón, f. 1924, Sigþrúður, f. 1929, d.
1999, Sigurgeir, f. 1932, Sigríður, f.
1936, og Gústaf Albert, f. 1933, d.
1954. Börn Andrésar og Þuríðar
eru: 1) Guðný Jónína, f. 1953, kenn-
ari og bóndi, gift Ólafi Eggerts-
syni, f. 1952, bónda. Börn þeirra
eru: a) Páll Eggert, f. 1978, búfræð-
ingur; b) Þuríður Vala, f. 1980,
nemi, gift Atla Engilbert Óskars-
syni, f. 1969, bónda. Synir þeirra
eru Almar Óli, f. 1999, og Engilbert
Þórir, f. 2001. c) Inga Júlía, f. 1984,
nemi; d) Sigríður, f. 1989, nemi. 2)
Gústaf, f. 1955, bifvélavirki og
verslunarmaður, í sambúð með
Birkir, f. 1994, og Gunnbjörn Páll,
f. 1998.
Andrés var alinn upp á Mæli-
fellsá hjá foreldrum sínum fyrstu
þrjú árin, flutti þaðan í Kálfárdal í
Gönguskörðum, bjó þar til 1931 og
á Sauðárkróki til ársins 1946. Hann
gekk í farskóla og í barna- og ung-
lingaskólann á Sauðárkróki. Á efri
árum þreytti hann próf frá Leið-
sögumannaskólanum í Reykjavík.
Hann var virkur í skátafélaginu
Andvara á Sauðárkróki og stund-
aði ýmsar íþróttir. Á Sauðárkróki
stundaði Andrés ýmsa vinnu, var
sjómaður, loðdýrabóndi og verka-
maður. Eftir að hann flutti til
Reykjavíkur, 1946, tók hann meira-
próf bifreiðastjóra og var leigubíl-
stjóri um nokkurra ára skeið.
Andrés vann lengst af við járn- og
trésmíðar á eigin verkstæði. Hann
var kunnur hagyrðingur og var
virkur í kvæðamannafélaginu Ið-
unni frá árinu 1957 og var heið-
ursfélagi þar. Oft var hann fenginn
til þess að skemmta fólki með kveð-
skap sínum. Hann var afkastamik-
ill safnari. Stærst safna hans eru
forngripa- og fornbókasafn og
náttúrugripasafn. Þessi söfn hefur
hann gefið Byggðasöfnunum á
Skógum og á Sauðárkróki og í
Varmahlíðarskóla í Skagafirði.
Á síðari árum stundaði Andrés
ritstörf og átti hann í fórum sínum
nokkur handrit, heimildir um horf-
inn tíma; vinnuhætti, mannlýsingar
vísur og ljóð. Hann setti upp tvær
náttúrugripasýningar.
Rit eftir Andrés, sem komið hafa
út: Stuðlastrengir, 1949, 1960,
1970. Hreyfilsljóð, 1953. 100 skag-
firskar hringhendur, 1983. 100
dýrtrímaðar lausavísur, 1994. Þor-
bergur frá Sauðá, í Skagfirðinga-
bók, 1998. Skagfirðingur skýr og
hreinn, æviminningar, 2000.
Útför Andrésar verður gerð frá
Bústaðakirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 15.
Kanlaya Sittichot, f.
1964. Sonur þeirra
Daniel Ekapan, f.
1998. Börn Gústafs frá
fyrra hjónabandi,
móðir Kristín Stefáns-
dóttir, f. 1957: Jón
Andrés, f. 1976, flug-
þjónn, í sambúð með
Berglindi Bjarnadótt-
ur, f. 1979, nema, son-
ur þeirra er Gústaf
Bjarni, f. 2000; Guðni
Björn, f. 1980, verslun-
armaður; Stefán Örn,
f. 1984, nemi. 3) Hall-
grímur Indriði, f.
1961, löggiltur rafverktaki, kvænt-
ur Ingveldi Donaldsdóttur, versl-
unarkonu, f. 1965. Börn þeirra eru:
a) Ingólfur Örn, f. 1988; b) Stella
Kristín, f. 1991; c) Andri Steinar, f.
1993. Fyrir átti Andrés soninn
Gunnar, ljósmyndara, f. 1950,
kvæntur Önnu Ágústsdóttur, f.
1951, ferðafræðingi. Börn þeirra
eru: a) Hrefna Kap, f. 1969, kerf-
isfræðingur, í sambúð með Sveini
Arnari Steinssyni, f. 1967, iðn-
tæknifræðingi. Synir þeirra eru
Þorgrímur Magni, f. 1994, Hilmir
Hrafn, f. 1996, og Lýður, f. 2002; b)
Ágúst Ævar, f. 1976, prentari og
grafískur hönnuður, í sambúð með
Ilmi Dögg Gísladóttur, f. 1977,
nema. Barn þeirra: Saga Huld. f.
2000; c) Þorbjörg Svana, f. 1979,
hárgreiðslusveinn, í sambúð með
Lárusi Ívarssyni, f. 1978, blikk-
smið. Barn þeirra er Lilja Nótt, f.
2001. Fyrir átti Gunnar Öldu, f.
1970, skrifstofustúlku, móðir Ester
Antonsdóttir. Alda er gift Karli
Pálssyni, flugvirkja, f. 1968. Börn
þeirra eru: Brynjar Karl, f. 1990,
Elsku pabbi. Þegar þú ert farinn
koma margar minningar upp í hug-
ann. Sú var tíðin að við spjölluðum
mikið saman, en því miður varð svo-
lítið langt á milli okkar eftir að ég
flutti úr foreldrahúsum. Við hittumst
þó oft og hringdumst á. Þú hafðir
einstaklega gaman af að yrkja og í
vísnasafninu þínu er að finna mörg
gullkorn. Þú varst með hraðkvæð-
ustu mönnum og gast kastað fram
stöku við ólíkar aðstæður og án fyr-
irvara. Stundum var vísa á vörum
þínum þegar þú vaknaðir að morgni.
Frá því að ég man eftir mér hefurðu
verið að kveða og yrkja. Þú kvaðst
mig í svefn með frumortum vöggu-
vísum og síðan þá grípa mig sterkar
tilfinningar þegar ég heyri kveðið.
Ég man þegar þú varst að æfa þig
fyrir kvæðamannafundi og hlátra-
sköllin heyrðust milli erinda því auð-
vitað var þér sjálfum skemmt, bæði
yfir vísunum og hugmyndafluginu í
sjálfum þér. Svo lagðirðu af stað með
brenni-hálstöflurnar og vísurnar í
vasanum. Þú áttir auðvelt með að
halda uppi fjöri með kveðskapnum
þínum, bæði á skemmtunum og á
ferðalögum. Mér fannst þú alltaf
vera bestur.
Við systkinin fórum oft með ykkur
mömmu í ferðalög. Þú varst góður
náttúrufræðikennari, kenndir okkur
að lesa í náttúruna, bera virðingu
fyrir öllum lífverum, smáum og
stórum. Oft fórstu út á ystu brún á
klettasyllum og teygðir þig í svolitla
jurt eða fiðrildi, egg eða steinvölu,
skordýr eða skel – og mér varð um
og ó, varð oft hrædd um þig og hótaði
að fara heim með þig. En þú varst
fimur og dýrléttur langt fram eftir
aldri, enda öllu vanur og varðst líka
alltaf að vera að safna. Safnaðir öll-
um þeim náttúrugripum, sem nöfn-
um tjáir að nefna. Þegar þú komst
austur á Eyri varstu ólatur að fara í
göngutúra með barnabörnunum og
kenna þeim fugla- og blómanöfn og
grúska í garðinum mínum.
Söfnun var hluti af lífsstíl þínum
alla ævi. Snemma byrjaðir þú að
safna forngripum og -bókum og lagð-
ir oft hart að þér við að bjarga góðum
gripum frá því að lenda í glatkist-
unni. Þú vannst þrekvirki á því sviði
og er gaman að geta lesið um söfn-
unarferðirnar í ævisögunni þinni. Nú
eru söfnin þín komin á örugga staði,
bækurnar og náttúrugripasafnið að
Skógum og forngripirnir á Sauðár-
krók. Einnig er angi af náttúrugripa-
safninu í Varmahlíðarskóla. Það var
alltaf þinn stóri draumur að sjá söfn-
in þín uppsett. Við erum öll þakklát
safnastjórnum og forstöðumönnum
safnanna fyrir þeirra þátt í að láta
þennan draum rætast.
Þú varst óþreytandi að uppfræða
ungdóminn og hann hændist að þér,
enda kunnirðu að varðveita barnið í
þér. Þú hafðir gott verksvit, varst
skipulagður, útsjónarsamur og fljót-
ur að hugsa og það sem meira var, þú
máttir alltaf vera að því að hlusta.
Svo hafðirðu svo mikla lífsorku og
gott skopskyn og kunnir ótal skrýtn-
ar sögur. Við hlógum mikið saman.
Þú varst alltaf óvenju harður af þér
þangað til síðustu árin, þegar við-
kvæmnin náði tökum á þér. Þá hugs-
aði hún mamma svo undur vel um þig
og verður það aldrei fullþakkað.
Þú varst nú svolítið öðruvísi,
pabbi, en gekk og gerðist, enda hafð-
irðu lifað tímana tvenna. Ég gleymi
aldrei ilminum af fjallagrasateinu,
sem þú sauðst í stóra pottinum, há-
karlinum, ristaða harðfisksroðinu,
signa fiskinum og öllum þessum
skrýtna mat, sem þú kenndir okkur
að borða. Eða snjóhúsunum með
strompunum og heimasmíðuðu leik-
föngunum.
Árum saman hefurðu setið við
skriftir og er ritsafn þitt orðið mikið
að vöxtum. Þú varst mesti fræðasjór,
stálminnugur, hafðir góðan frá-
sagnastíl og mergjað tungutak. Síð-
ari árin hafðirðu mikinn áhuga á að
setja upp beinagrindur af ýmsum
fuglum og dýrum, sem þú gafst á
Skógasafn. Ekki varstu orðinn
skjálfhentur að ráði 82 ára og hafðir
enn góða sjón. Ég veit að þú ætlaðir
að koma langtum fleiru í verk, því
hugurinn var mikill og ekki varstu
vanur að sitja aðgerðarlaus, féll aldr-
ei verk úr hendi.
Nú er stóllinn þinn auður, þú
skrifar ekki meira hérna megin. Það
kemur enginn í þinn stað, pabbi
minn. En þú lifir áfram í minningu
okkar, sem þekktum þig, í ritsmíðum
þínum og ljóðum, fallegu handverki,
söfnunum þínum og liðnum sam-
verustundum. Guð blessi þig, elsku
pabbi.
Ég kveð þig með orðum Jónasar
Hallgrímssonar:
Flýt þér vinur, í fegra heim.
Krjúptu að fótum friðarboðans,
og fljúgðu á vængjum morgunroðans
meira að starfa guðs um geim.
Guðný A. Valberg,
Þorvaldseyri.
ANDRÉS H.
VALBERG
Sími 562 0200
Erfisdrykkjur
Blómastofa Friðfinns,
Suðurlandsbraut 10,
sími 553 1099, fax 568 4499.
Opið til kl. 19 öll kvöld
Kransar • Krossar • Kistuskreytingar
Minningarkort
Krabbameinsfélagsins
540 1990
krabb.is/minning