Morgunblaðið - 12.11.2002, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 12.11.2002, Blaðsíða 21
LANDIÐ MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. NÓVEMBER 2002 21 VIÐARSBÚÐ á Fáskrúðsfirði hætt- ir rekstri. Laugardaginn 9. nóvem- ber var útsala á öllum vörum versl- unarinnar.Verslunin var opnuð kl. 10, en þá þegar voru komnir við- skiptavinir. Verslun Viðars hefur starfað á Fáskrúðsfirði í fjörutíu ár. Mörgum verður eftirsjá að versl- uninni. Verslað hefur verið með mat- vöru auk þess sem gjafavöru hvers- konar hefur alla tíð verið að finna í versluninni. Morgunblaðið/Albert Kemp Viðarsbúð hættir eftir 40 ára þjónustu Fáskrúðsfjörður KALKÞÖRUNGAVINNSLA í Arnarfirði styrkir búsetu á svæð- inu, en talið er að íbúum sveitarfé- lagsins fjölgi um 35 til 45 manns, mest á Bíldudal, vegna hennar. Þetta kemur fram í athugun Skipulagsstofnunar á mati á um- hverfisáhrifum vegna náms kalk- þörungs úr Arnarfirði, nánar til- tekið í Fossfirði, Reykjarfirði, Trostansfirði og á Langanes- grunni, en samkvæmt mats- skýrslu er megintilgangur fyrir- hugaðra framkvæmda að hagnýta auðlind á hafsbotni til hagsældar fyrir samfélag á Vestfjörðum. Áætlað magn kalkþörunga á könnuðum svæðum er um 21,5 milljón m³, en leyfi til efnistöku miðast við 50.000 tonn á ári. Efn- istakan verður framkvæmd með dæliskipi tvisvar til þrisvar á ári og setinu dælt af botninum í efnis- geymslu við fyrirhugaða verk- smiðju, en gert er ráð fyrir að efn- istakan geti tekið 2 til 3 vikur hverju sinni. Úrvinnslan í verk- smiðjunni felst síðan í þurrkun, sí- un, mölun og sekkjun efnisins sem síðan verður flutt á markað er- lendis. Samkvæmt matsskýrslu gefa niðurstöður straumrannsókna til kynna að grugg, sem myndast við efnistöku, muni að mestu leyti setjast aftur í efnisgryfjur. Litlar líkur eru taldar á því að sam- félögum eða dýrategundum verði útrýmt á svæðinu við efnisnám. Búast má við því að dýralíf á svæðum næst námusvæðum verði fyrir áföllum, en vegna þess að dæling verður ekki stöðug má gera ráð fyrir að mjög svipað dýralíf viðhaldist og styrkist eftir námuvinnslu. Talið er að tíma- bundið grugg hafi mjög takmörk- uð áhrif á fiskveiðar þegar litið sé til langs tíma auk þess sem gruggið á ekki að valda vanda í kræklingarækt eða fiskeldi, en „með því að velja efnistökustaði í um 200 metra fjarlægð frá kræk- lingalögnum og fiskeldiskvíum eigi að vera unnt að forðast að kræklingur verði yfirleitt fyrir gruggi.“ Íslenska kalkþörungafélagið er framkvæmdaraðili en Jarðfræði- stofa Kjartans Thors og Hönnun hf. unnu að gerð skýrslu um mat á umhverfisáhrifum. Matsskýrslan er á vefsíðunum atvest.is og honn- un.is og liggur auk þess frammi til kynningar á skrifstofu Vestur- byggðar, bókasafninu á Bíldudal, í Þjóðarbókhlöðunni og hjá Skipu- lagsstofnun til 20. desember, en þá rennur frestur út til að skila skriflegum athugasemdum. Kalkþörungavinnsla styrkir búsetu Arnarfjörður HLUTI af tækjakosti í þreksal Íþróttamiðstöðvarinnar í Borg- arnesi hefur verið endurnýjaður. Vegna vaxandi áhuga á almenn- ingsíþróttum í Borgarbyggð var ákveðið að endurnýja og keypt voru notuð tæki, sérstaklega með þarfir almennings í huga. Tækin samanstanda af 10 stöðva þrekhring sem tekur á stærstu og kemst almenningur því lítið í íþróttasalinn. Bæjarstjórn og tómstundanefnd Borgarbyggðar var boðið í heim- sókn til að skoða tækin og fóru allir í þrekhring hjá Írisi Grönfeld íþróttafræðingi sem sér um skipu- lag og þjálfun almenningsíþrótta við íþróttamiðstöðina í Borgarnesi. Var ekki annað að sjá en menn væru hrifnir af nýju tækjunum og nokkr- ir strengdu þegar áramótaheitið. vöðvahópum líkamans. Tækin eru tveggja ára og kostuðu tvær millj- ónir króna en hefðu kostað ný um fimm milljónir. Á annað hundrað iðkendur eru í skipulögðum æfing- um í þreksal hjá íþróttafræðingi og því mikilvægt að hafa vel búinn lík- amsræktarsal. Ennfremur er íþróttahúsið fyrir löngu búið að sprengja utan af sér húsnæðið vegna fjölda skipulagðra æfinga á vegum íþróttafélaganna Morgunblaðið/Guðrún Vala Elísdóttir Páll S. Brynjarsson bæjarstjóri, Helga Halldórsdóttir, forseti bæjarstjórnar, Finnbogi Rögnvaldsson bæjarstjórn- arfulltrúi og Indriði Jósafatsson, íþrótta- og æskulýðsfulltrúi, taka á í nýju tækjunum. Strengdu áramótaheitið í þrek- hringnum í Íþróttamiðstöðinni Borgarnes Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is Helgarferð til Búdapest 22. nóvember frá kr. 29.950 Heimsferðir bjóða nú einstakt tækifæri til að kom- ast til Búdapest á hreint ótrúlegum kjörum. Morgunflug á föstudegi til þessarrar heillandi borgar og til baka á sunnudagskvöldi, þ.a. þú nýtir helgina eins vel og hægt er. Búdapest er í dag ein eftirsóttasta borg í Evr- ópu og hér er auðvelt að lifa í veislu í mat og drykk, á milli þess sem maður kynnist ólíkum andlitum borgarinnar, en Ungverjaland var í þjóð- braut milli austur og vestur Evrópu og menningararfurinn ber því vitni. Einstakt tilboð á góðu 3ja stjörnu hóteli Mercure Duna, í hinum þekkta franska hótelhring, í hjarta Búdapest.Verð kr. 29.950 Flug og gisting á Mercure Relais Duna. 22. nóvember, 2 nætur. Verð á mann m.v. 2 í herbergi með morgunmat. Skattar innifaldir. Almennt verð. Síðustu 28 sætin Munið MasterCard ferðaávísun www.europay.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.