Morgunblaðið - 12.11.2002, Blaðsíða 12
FRÉTTIR
12 ÞRIÐJUDAGUR 12. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
GUÐMUNDUR Árni Stefánsson bar
sigur úr býtum í prófkjöri Samfylk-
ingarinnar í Suðvesturkjördæmi.
Hafði hann þar betur en Rannveig
Guðmundsdóttir í baráttunni um
efsta sætið en hún hefur leitt lista
Samfylkingarinnar í Reykjanes-
kjördæmi í síðustu tveimur þingkosn-
ingum. Þórunn Sveinbjarnardóttir
þingmaður varð í þriðja sæti og á eft-
ir henni kom Katrín Júlíusdóttir.
„Ég er afskaplega ánægður og
glaður,“ segir Guðmundur Árni Stef-
ánsson um úrslitin. „Ég held að nið-
urstaðan hafi verið sú að þarna hafi
verið stillt upp öflugri liðssveit. Ég er
þarna í góðum kvennahópi.“
Hann segist ekki óvanur að vera í
kvennahópi enda sé hann eini karl-
maðurinn í fjögurra þingmanna hópi
Reykjaness. „Vonandi verð ég það
áfram, því við ætlum að sækja fjóra
þingmenn í kosningunum í vor. Þetta
er góð blanda af reynslumiklu fólki og
glæsilegum fulltrúum nýrrar kyn-
slóðar,“ segir Guðmundur Árni.
Hann bendir á að á laugardag hafi
hann og Rannveig Guðmundsdóttir
tekist í þriðja skiptið á um leiðtoga-
sætið í kjördæminu. „Í þetta sinn
vann ég. Kannski var þetta ákall um
kynslóðabreytingu. Það er ein kenn-
ingin en þær eru margar. En umfram
allt er ég glaður yfir traustinu og því
hversu afdráttarlaust þetta var.“
Styrkurinn í Hafnar-
firði vó þungt
Rannveig Guðmundsdóttir segist
líta björtum augum á komandi kosn-
ingar með þeirri sveit sem flokks-
menn völdu í prófkjörinu. Rannveig
segir ljóst að þó svo að hún hafi tví-
vegis unnið Guðmund Árna í opnu
prófkjöri þá hafi aðstæður verið aðr-
ar nú þar sem kjörið var lokað.
Hún segist hafa áttað sig á því fyrir
prófkjörið að róðurinn yrði þyngri nú
þar sem Suðurnesin, þar sem fylgi
hennar hafi ætíð verið mikið, hafi
ekki lengur verið með í flokksvalinu.
Þá hafi einnig styrkur Samfylking-
arinnar og stærð í Hafnarfirði,
heimabæ Guðmundar Árna, vegið
þungt. Rannveig tekur jafnframt
fram að hún hafi verið alveg samþykk
því að hafa prófkjörið lokað. Þá bend-
ir hún á að af þeim 3.500 flokks-
félögum í Samfylkingunni í Suðvest-
urkjördæmi, búi yfir 1.800 í
Hafnarfirði. „Við háðum enn einu
sinni drengilega baráttu og nú hafði
hann betur og ég færði honum inni-
legar hamingjuóskir. Ég afhendi
Guðmundi Árna keflið með miklum
styrk,“ bætir hún við.
Katrín Júlíus-
dóttir, fv. formaður
Sambands ungra
jafnaðarmanna og
varaformaður fram-
kvæmdastjórnar
Samfylkingarinnar,
segist ekki geta ver-
ið annað en ánægð
með niðurstöðuna en
miklar líkur eru á að
hún nái kjöri til Al-
þingis næsta vor, þá
28 ára. Hún hafi fengið breiðan stuðn-
ing, sem hafi komið sér dálítíð á
óvart. „Úrslitin sýna að stuðnings-
menn Samfylkingarinnar treysta
ungu fólki og vill sjá ákveðna end-
urnýjun. Á sama tíma er verið að gefa
þingliðinu þau skilaboð að þokkaleg
ánægja er með störf þess. Blandan á
listanum er góð og sýnir mikinn
styrk,“ segir Katrín.
Guðmundur Árni Stefánsson náði 1. sætinu í Suðvesturkjördæmi
Segist vera í góð-
um kvennahópi
! +38
+
/
538
6+/
0 (
6
/
! "#
$
%&
'
$< "#*+%
&
, -
2
)
5) %) *)
4
$&= -
(
5) %) **!
>!)
$ :"
*!
9
'
26')*!
4
; -
* %
?!
; -
"#&-.
( +
C
)
--+
)
--"
)
) -".
))
) "#&&%
)
))
$"*
C
C)
C
C
Rannveig
Guðmundsdóttir
Katrín
Júlíusdóttir
Guðmundur Árni
Stefánsson
KRISTJÁN L. Möller alþingismaður
varð í efsta sæti í prófkjöri Samfylk-
ingarinar í Norðausturkjördæmi og
Einar Már Sigurðarson annar. Kos-
ið var í þessi sæti og eru önnur ekki
bindandi. Sjö gátu kost á sér í kjör-
inu, sem fór fram með póstkosn-
ingu. Það verður í verkahring upp-
stillingarnefndar að raða í önnur
sæti á framboðslista.
Kristján segir niðurstöðu próf-
kjörsins afar ánægjulega. Hann hafi
fundið fyrir því síðustu daga að
hann nyti víðtæks stuðnings en
stuðningurinn hafi þó verið meiri en
hann reiknaði með. Niðurstaðan sé
einnig mikill sigur fyrir Samfylk-
inguna, nærri 70% þátttaka í próf-
kjörinu staðfesti það.
Kristján segir að málflutningur
sinn á Alþingi í málefnum lands-
byggðarinnar hafi greinilega mik-
inn stuðning. Áhersla flokksins í
byggðamálum fyrir þingkosning-
arnar verði mjög skýr og ákveðin.
Kristján vill ennfremur þakka öll-
um þeim sem stóðu að prófkjörinu
fyrir vel unnin störf.
Einar Már íhugar hvort hann
taki annað sæti listans
Einar Már Sigurðarson, sem hef-
ur verið þingmaður á Austurlandi,
setti stefnuna á fyrsta sætið líkt og
Kristján. Hann segist hafa gert sér
vonir um það fyrirfram að próf-
kjörið yrði ekki jafnsvæðisbundið
og það hafi orðið á endanum. Því
hafi niðurstaðan ekki komið sér svo
mikið á óvart. Prófkjörsleiðin hafi
átt betur við á „ákveðnum svæðum“
en öðrum og „þjálfun manna“ hafi
verið misjöfn, eins og hann orðaði
það.
Einar Már segist ekki hafa gert
það upp við sig hvort hann taki ann-
að sæti listans, þó að það hafi verið
bindandi reglum samkvæmt. Upp-
stillingarnefnd eigi eftir að koma
saman að prófkjörinu loknu. Hann
muni skoða sín mál í rólegheitum.
Afgerandi sigur Kristjáns L. Möller í Norðausturkjördæmi
! "#
$
%&
'
@A< "#*+%
&
, -
2
)
9 "=
?
# 8
=
$ )
-
.)
3 &
2! -
?=
$&= *!
>- )
>- *!
BC
3
*-
>-= )
A
2! -
$.3
)
( +
C
,$3
)
))
)
"
C ! +38
+
/
538
6+/
(
6
/
„Meiri stuðningur en ég reiknaði með“
Einar Már
Sigurðarson
Kristján
Möller
MARGRÉT Frímannsdóttir, vara-
formaður Samfylkingarinnar, hafði
sigur á Lúðvík Bergvinssyni í baráttu
þeirra um fyrsta sætið í prófkjöri
flokksins í Suðurkjördæmi um
helgina. Kjörsókn var rúm 70% en
talning atkvæða dróst fram á sunnu-
dag þar sem ekki var flugfært milli
lands og Eyja á laugardag. Sigríður
Jóhannesdóttir alþingismaður nær að
öllum líkindum ekki endurkjöri þar
sem hún hafnaði í fimmta sæti. Hún
hefur ekki ákveðið hvort hún tæki
sætið en fjögur efstu voru bindandi.
„Ég er mjög ánægð,“ sagði Mar-
grét Frímannsdóttir þegar hún var
innt eftir viðbrögðum við úrslitum
prófkjörsins. Margrét gaf kost á sér í
efsta sæti listans og sagði fyrir próf-
kjörið að yrði hún ekki valin í það
myndi hún láta af þingmennsku. Hún
sagðist hafa átt von á svona góðum
stuðningi, eins og úrslitin bæru vitni
um. Hún hefði einnig orðið vör við að
grimmt hefði verið smalað.
„Ég var alltaf ákveðin í að leggja
allt undir í þessu og gefa kost á mér í
fyrsta sætið og láta dæma verk mín,“
sagði Margrét og játaði því aðspurð
að úrslitin væru sér léttir.
„Mér líst vel á fólkið í efstu sæt-
unum. Þetta hefur verið tiltölulega
málefnaleg barátta. Ég held að þetta
verði mjög sigurstranglegur listi,“
sagði Margrét og bætti við að hún ef-
aðist ekki um að samstarfið yrði gott
við efstu menn listans.
Nú er bara að snúa
bökum saman
Lúðvík segist telja úrslitin vel við-
unandi þótt hann hafi ekki náð 1. sæt-
inu sem hann sóttist eftir.
„Mér sýnist þetta vera öflugur listi
skipaður öflugum einstaklingum sem
geta unnið vel saman. Nú er bara að
snúa bökum saman og takast á við
næsta verkefni, alþingiskosningarnar
í vor,“ segir Lúðvík.
Hann fékk um 40% atkvæða í 1.
sætið og telur að það sé vel viðunandi
niðurstaða. „Þetta var stórt prófkjör
og kraftmiklir frambjóðendur sem
voru í framboði,“ segir Lúðvík.
Sigríður Jóhannesdóttir sagðist
viðurkenna að úrslit-
in hefðu valdið henni
vonbrigðum. Hún
hefði sett stefnuna á
annað til þriðja sætið
og vonast frekar til
að ná því síð-
arnefnda.
„Ég gerði mér
grein fyrir því að
margir sóttust eftir
mínu sæti. Eins og
mál þróuðust, með
mótframboð úr mínum heimabæ,
Reykjanesbæ, var þetta erfitt. Miðað
við það er ég þakklát fyrir hvað ég
fékk mikinn stuðning,“ sagði Sigríður
og vísaði þar til framboðs Jóhanns
Geirdal. Hún sagðist ekki hafa ákveð-
ið hvort hún tæki fimmta sætið, þar
sem kosning í fjögur efstu sætin hefði
verið bindandi.
Margrét Frímannsdóttir sigraði Lúðvík Bergvinsson í Suðurkjördæminu
! +38
+
/ ) 538
6+/
0 (
6
/ )
! "#
$
%&
'
$< "#*+%
&
, -
2
)
1
;'%
*!
?6 '
-
"#
5
$ ) -
2!
5)
-
$ ' )
2!0
*!
"#"3$
( +
C
"#"+&
"#&&%
"#",,
C
C)
"
C Segist hafa
lagt allt undir í
prófkjörinu
Lúðvík
Bergvinsson
Margrét
Frímannsdóttir
Sigríður
Jóhannesdóttir
Formaður fjárlaga-
nefndar um fjárhags-
vanda Blindrafélagsins
Reynt að
koma til
móts við
félagið
ÓLAFUR Örn Haraldsson, formaður
fjárlaganefndar Alþingis, segir sterk-
an vilja til þess hjá sér að koma til
móts við Blindrafélagið í þeim til-
gangi að leysa úr fjárhagsvanda þess.
Ólafur og Gísli Helgason, formaður
Blindrafélagsins, hafa ræðst við
nokkrum sinnum á rúmu ári um
starfsemi félagsins og segir Ólafur að
honum sé fullkunnugt um erfiðleika í
rekstri Blindrafélagsins á undanförn-
um árum.
Fram kom í Morgunblaðinu á dög-
unum að Blindrafélaginu gengur sí-
fellt verr að afla fjár til rekstrarins og
hafa framlög ríkisins, sem þó eru lítill
hluti af heildartekum félagsins, staðið
í stað og jafnvel minnkað á undan-
förnum árum. Blindrafélagið hefur
farið fram á að fá 14 milljónir króna á
næsta ári en um 70 milljónir kostar á
ári að reka alla þá starfsemi sem fé-
lagið sinnir. Undanfarin ár hefur fé-
lagið fengið rúmar fimm milljónir á
ári frá ríkinu.
„Það er gríðarlega mikilvægt og
myndarlegt starf sem þau eru að
vinna í Blindrafélaginu,“ segir Ólafur.
„Það er hins vegar á það að líta að
félagið hefur verið stutt myndarlega
og það er víða þörf og margir sem eru
að vinna gott starf.“
Hver króna sem ríkið
leggur til margfaldast
Gísli Helgason hefur bent á að
Blindrafélagið hafi að mörgu leyti
sinnt sjálfsögðum skyldum stjórn-
valda, ekki síst í útgáfustarfsemi og
hafi með því móti sparað ríkinu veru-
legar fjárhæðir.
Ólafur segir það ávallt mikið álita-
mál þegar spurt sé hvaða málaflokk-
um ríkið eigi að sinna og hverjum
ekki.
„Sem betur fer eru félagasamtök
og sjálfboðaliðar að vinna mjög þarft
verk og ég hef alltaf sagt að hver
króna sem ríkið leggur til í slík sam-
tök hún margfaldast því það er svo
mikið lagt á móti frá fólkinu sjálfu.“
Ólafur segir að sem betur fer sé rík-
ur vilji hjá þjóðinni að taka þátt í ýms-
um velferðarmálum og ótrúlegt í raun
hvað fólk leggi mikið til í málaflokka
sem mætti segja að ættu að vera sam-
félagsins að leggja fjármuni í.
„Ríkisvaldið má auðvitað aldrei
gleyma því að þetta eru þættir sem
við eigum að þakka fyrir,“ sagði Ólaf-
ur.
♦ ♦ ♦
Skanska ekki með í út-
boði vegna Kárahnjúka
Mat á áhættu-
þáttum liggur
að baki
PETER Gimbe, upplýsingafulltrúi
sænska verktakafyrirtækisins
Skanska, segir að í ljósi ákveðinna
áhættuþátta sem fylgi þátttöku í útboði
vegna virkjanaframkvæmda á Austur-
landi hafi fyrirtækið ákveðið að hætta
við þátttöku í útboði í vegna stíflugerð-
ar og aðrennslisganga við Kárahnjúka.
Í samtali við sænska dagblaðið
Dagens nyheter segir Gimbe að
Skanska hafi að sjálfsögðu fylgst með
umræðunni á Íslandi en að fyrirtækið
hafi auk þess látið meta áhættuþætt-
ina sem liggja að baki ákvörðuninni.
Hvernig það mat var framkvæmt í
smáatriðum vill Gimbe ekki ræða
nánar en nefnir að fyrirtækið hafi
aukið vægi áhættumatsins eftir
vandamál sem upp komu í tengslum
við verkefni á vegum fyrirtækisins í
Hollandi árið 1997.