Morgunblaðið - 12.11.2002, Blaðsíða 45
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. NÓVEMBER 2002 45
KOKO er 31 árs gömul górilla og
býr í San Fransisco þar sem rek-
in er miðstöð og rannsóknarstofa
í górillufræðum.
Hún kann nú yfir 1.000 tákn í
bandarísku táknmáli og hefur nú
skrifað texta fyrir plötu sem hún
mun gefa út í vikunni sem kemur.
„Lögin hennar búa yfir mikilli
tilfinningalegri dýpt,“ segir
Jennifer Patterson, einn gæslu-
liða Koko. „Hún er flókinn per-
sónuleiki, rétt eins og við.“
Platan mun bera nafnið Fine
Animal Gorilla en svo lýsir Koko
sér sjálf með táknmálinu. Á plöt-
unni verður m.a. framsækið rapp,
reggí og barnagælur. Koko lætur
öðrum eftir það að syngja en
textana skrifar hún sjálf.
„Hún sat yfir okkur í hljóð-
blönduninni og hjálpaði okkur að
velja bestu útgáfurnar,“ segir
Skip Haynes, upptökustjóri en
ekki fylgdi sögunni um hvað
textar Koko eru. Ætli skiptist
ekki á sögur af einmanalegu lífi í
fjöllum Afríku og pólitískir bar-
áttutextar fyrir varðveislu górill-
ustofnsins?
Górillan Koko gefur út disk
Koko Spears?
Koko í stuði.
TENGLAR
.....................................................
www.koko.org
ENGINN þurfti að stíga jafn oft á
svið og Baltasar Kormákur til að
taka við verðlaunum á Edduverð-
launahátíðinni í Þjóðleikhúsinu á
sunnudaginn. Mynd hans Hafið fékk
átta verðlaun. „Þetta var mjög
ánægjuleg kvöldstund og það var
verulega gaman að fá þessa við-
urkenningu frá kollegum sínum og
líka þeim, sem tóku þátt í kosning-
unum á mbl.is,“ segir Baltasar.
„Tilfinningin þegar þjóðin er með
manni er eins og þegar mamma
manns stendur með manni,“ segir
Baltasar og segir gaman að fá við-
urkenningu frá heimafólki. Hann út-
skýrir að það sé ekki nóg að ganga
vel á erlendri grund. „Maður vill líka
hafa meðbyrinn heiman frá. Tilfinn-
ingin sem ég fékk í gær er að fólk sé
ánægt með myndina,“ segir hann.
Stærri Edda
Baltasar er glaður með við-
urkenninguna, sem reyndir leikarar
hlutu á hátíðinni. „Mér fannst svo
gaman að sjá þetta fólk sem er búið
að stunda þetta í 15 til 50 ár fá þessa
viðurkenningu í Þjóðleikhúsinu. Mér
finnst það gera Edduna að ákveðnu
leyti stærri,“ segir Baltasar og bætir
því við að verðlaunin afsanni þær
sögur að sviðsleikarar geti ekki leik-
ið í kvikmyndum.
„Mér finnst þetta eiga að vera
eins og uppskeruhátíð fyrir fagið þar
sem við umbunum hverju öðru fyrir
velunnin störf og höfum gaman af,“
segir Baltasar og ítrekar að honum
hafi fundist það ganga eftir á sunnu-
dagskvöldið.
Fær klappið til baka
Elva Ósk Ólafsdóttir var útnefnd
leikkona ársins í aðalhlutverki á há-
tíðinni fyrir hlutverk sitt í Hafinu.
„Ég er alsæl og ennþá í sæluvímu,“
lýsir hún yfir og segir verðlaunin
vera mikla hvatningu. „Þetta eru
fagverðlaun. Þau ýta við manni og
hjálpa manni til að finna kraft til að
langa að gera eitthvað meira og enn
betur,“ segir hún.
„Í leikhúsinu er maður vanur að fá
klapp á móti en í bíómyndunum
kemur oft tómleikatilfinning eftir
tökur. Þarna fær maður klappið til
baka,“ útskýrir hún.
Elva Ósk er ánægð með verð-
launahátíðina í heild sinni. „Það var
svo þægilegt andrúmsloft þarna og
notalegt.“
Hún var í svörtum síðkjól á hátíð-
inni. „Ég keypti hann fyrir tveimur
árum í lítilli búð í Hamraborginni,
sem reyndar er ekki til lengur. Ég
var búin að horfa á þennan kjól í
meira en mánuð en tímdi ekki að
kaupa hann því hann var frekar dýr.
Ég ákvað þá að bíða fram yfir jól og
stökk á hann þegar hann var lækk-
aður í verði. Ég hef varla notað hann
fyrr en núna,“ segir Elva Ósk, sem
fékk eins og aðrir gestir hátíð-
arinnar fátítt tækifæri til að klæða
sig upp á á sunnudagskvöldið.
Morgunblaðið/Jim Smart
Baltasar er ánægður með að fá stuðning frá heimafólki en Hafið hlaut átta verðlaun á Edduverðlaunahátíðinni.
Klapp á bakið
frá mömmu
Edduverðlaunahafar tjá sig um hátíðina
Bómullar-satín
og
silki-damask
rúmföt
Skólavörðustíg 21,
sími 551 4050
Hádegisverðarfundur SAU
Hvernig á að búa til betri auglýsingar?
Samtök auglýsenda standa fyrir hádegisverðarfundi
miðvikudaginn 13. nóvember kl. 12:00-13:30
á Hótel Loftleiðum, Þingsölum 1-3.
Fjallað verður um gerð auglýsinga frá ýmsum
hliðum. Svo sem hverju er raunhæft að búast
við að auglýsing fái áorkað?
Jón Árnason frá Góðu Fólki/McCann Ericsson
Sverrir Björnsson frá Hvíta Húsinu
Elías Héðinsson frá IMG Gallup
(sérfræðingur í for- og eftiráprófunum auglýsinga)
Friðrik Eysteinsson, formaður SAU
Með léttum veitingum og kaffi
2.500 - fyrir félagsmenn
3.500 - fyrir aðra
Á www.sau.is
Með framsögu verða:
Fundarstjórn
Verð:
www.sau.is
Skráning: