Morgunblaðið - 12.11.2002, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. NÓVEMBER 2002 27
„eftir nánari ákvörðun kjörnefndar, og þá á
sérstökum kjörstað (kjörstöðum) innan eða utan
kjördæmis, sem hún hefur opinn í þessu skyni“,
eins og segir í 6. grein prófkjörsreglna flokks-
ins.
Þar segir einnig að þeim sem greitt hefur at-
kvæði utan kjörfundar sé ekki heimilt að greiða
atkvæði að nýju, né heldur sé atkvæði hans
ógilt, þó að hann verði í sveitarfélaginu próf-
kjörsdagana.
20. grein prófkjörsreglna Sjálfstæðisflokksins
kveður á um að ágreiningi, sem kann að koma
upp innan kjörnefndar um skýringu á reglunum
og önnur atriði varðandi prófkjörið, megi
skjóta til úrskurðar stjórnar kjördæmisráðs.
Ágreiningi, sem fram kunni að koma innan
stjórnar kjördæmisráðs varðandi prófkjörið, megi skjóta
til miðstjórnar sem þá felli endanlegan úrskurð um
ágreiningsefnið.
yrir að verða að
eyfilegt að greiða at-
fyrsta prófkjörsdag
ðvesturkjördæmi
)
%#*"3
)
%#$3*
) ) )
,#&+-
) ) )
)
,#*,-
C
C)
C
C
, -
„VIÐ funduðum um þetta mál síðastliðinn
fimmtudag og þar komust menn að sam-
komulagi um að ljúka þessu máli. Það stend-
ur,“ segir Jóhann Kjartansson, formaður
kjörnefndar í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í
Norðvesturkjördæmi, um þá gagnrýni sem
Vilhjálmur Egilsson alþingismaður hefur sett
fram á framkvæmd utankjörfundaratkvæða-
greiðslu í prófkjörinu.
Jóhann vísar þar til fundar sem kjörnefnd
og fulltrúar frambjóðenda í kjördæminu áttu
sl. fimmtudag vegna athugasemda Vilhjálms
við að farið var með kjörgögn í fyrirtæki á
Akranesi og starfsmönnum gefinn kostur á
að kjósa utan kjörfundar. Í framhaldi af því
var ákveðið að ógilda um 80 atkvæði sem
greidd höfðu verið.
Allir kjörnefndarmenn
sammála
„Á sunnudaginn funduðum við í kjörnefnd-
inni og menn voru einróma um að halda þess-
ari vinnu áfram og það stæði sem búið var að
tala um. Það liggur alveg fyrir. Það voru allir
kjörnefndarmenn sammála um að hafa þetta
með þessum hætti,“ segir Jóhann.
Aðspurður hvort dæmi væru um að farið
hefði verið í fleiri fyrirtæki og á heimili með
kjörgögn við framkvæmd utankjörfund-
aratkvæðagreiðslunnar en í umrætt fyrirtæki
á Akranesi sagðist Jóhann engar upplýsingar
hafa um það.
„Eins og fram hefur komið varð þarna
ákveðinn misbrestur og við reyndum að fá
það leiðrétt með þessari aðferð en ég hef ekki
heyrt af neinu slíku annars staðar í kjördæm-
inu,“ segir hann og kveðst aðspurður ekki
hafa neina ástæðu til að ætla að fram komi
kæra á framkvæmd prófkjörsins.
Jóhann Kjartansson,
formaður kjörnefndar
Samkomulag
stendur sem
gert var
taka fjórða sætið á framboðslistanum
raði hann því að næsta skref væri hjá
fndinni.
ón segist lítið hafa að segja um þá
ýni sem Vilhjálmur Egilsson alþing-
ur hefur sett fram á framkvæmd utan-
ndaratkvæðagreiðslunnar í prófkjör-
Akranesi. Hann segist hafa verið á
u ferðalagi um hið stóra kjördæmi
u vikurnar og lítið fylgst með þessu
agðist hann þó hafa vitað að komið
fram óskir um að fólk fengi að kjósa
æ.
na hefði orðið misskilingur á milli Ak-
nga og þeirra sem sáu um fram-
d prófkjörsins, sem hefðu talið sig
ð gera rétt.
ón sagði jafnframt að sér skildist að
hefði verið gert víðar. „Það sem skiptir
r að þetta fólk sem var að kjósa und-
stuðningsyfirlýsingu og hefði vænt-
komið á skrifstofuna og greitt þar at-
ef það hefði ekki talið að það mætti
etta svona. Það hefði náttúrlega ekki
að að neinum, sem að þessu stóðu, að
etta með þessum hætti, nema þeir
ð þetta væri í lagi. Þetta er því bara
r misskilningur á milli manna. Síðan
dinn fundur í Borgarnesi með fulltrú-
ra frambjóðenda og þar var þessu
kað með því að þessum atkvæðum
ytt og fólki gefinn kostur á að kjósa
nýtt. Þar með átti málinu að vera lok-
Vilhjálmur hefur sjáanlega ekki séð
rt að standa við það samkomulag,“
Guðjón.
S
amfylkingin hélt prófkjör í
fjórum kjördæmum um
helgina, Reykjavíkur-
kjördæmi, Suð-
vesturkjördæmi, Suður-
kjördæmi og Norðausturkjördæmi.
Það sem vekur athygli er að þrátt
fyrir að fyrir nokkrum vikum hafi
mikið verið rætt um nauðsyn þess
innan flokksins að einhver endurnýjun yrði á þingliði
Samfylkingarinnar er meginniðurstaða helgarinnar sú
að litlar breytingar verða á þeim vettvangi. Meðal þeirra
sem höfðu haft uppi yfirlýsingar af þessu tagi var Össur
Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar. Hann
lýsti því yfir í september, þegar ljóst var orðið að Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir gæfi ekki kost á sér í framboð í
alþingiskosningum, að nauðsynlegt væri að endurnýjun
yrði í þingflokknum. Brýnt væri að yngra fólk kæmi þar
til starfa sem og fólk með reynslu úr atvinnulífinu.
Í öllum kjördæmunum fjórum varð hins vegar nið-
urstaðan sú að sitjandi þingmenn halda sínu. Þingmenn
lentu í fimm efstu sætunum í Reykjavík, þremur efstu í
Suðvesturkjördæmi og tveimur efstu sætunum í Suður-
kjördæmi. Eini þingmaður Samfylkingarinnar, sem ekki
náði öruggu sæti, er Sigríður Jóhannesdóttir í Suður-
kjördæmi. Sigríður, sem hefur verið þingmaður Reyk-
nesinga frá árinu 1996, fyrst fyrir Alþýðubandalagið og
síðar Samfylkinguna, lenti í fimmta sæti í prófkjörinu.
Vissulega ætti þetta í sjálfu sér ekki að koma á óvart.
Tregðulögmálið er sterkt í stjórnmálaflokkum og það
þarf mikið að ganga á til að flokksfélagar knýi á um upp-
stokkun í prófkjöri. Sagan sýnir að í prófkjörum hafa
þingmenn ákveðið forskot á þá er sækjast eftir að kom-
ast nýir inn á lista.
Í Reykjavík vekur gott gengi Marðar Árnasonar at-
hygli. Mörður, sem verið hefur varaþingmaður Samfylk-
ingarinnar, náði sjötta sætinu eftir látlausa kosningabar-
áttu. Í því sjöunda varð svo Helgi Hjörvar, borgarfulltrúi
og fyrrum forseti borgarstjórnar. Ágúst Ólafur Ágústs-
son, sem var helsti fulltrúi ungu kynslóðarinnar í
Reykjavík, varð í áttunda sæti. Aðrir fulltrúar yngra
Samfylkingarfólks eru í baráttusætum í sínum kjör-
dæmum, Katrín Júlíusdóttir í því fjórða í Suðvesturkjör-
dæmi og Björgvin G. Sigurðsson í þriðja sæti í Suður-
kjördæmi. Ef sá skilningur er lagður í orðið
„endurnýjun“ að í því felist að gömlu sé skipt út fyrir
nýtt er augljóst að engin endurnýjun á sér stað þótt nýtt
fólk bætist hugsanlega við vegna stækkunar þéttbýlis-
kjördæmanna.
Óneitanlega horfa margir á útkomu Össurar Skarp-
héðinssonar, formanns Samfylkingarinnar. Össur háði
ekki kosningabaráttu fyrir prófkjörið (að undanskilinni
einni auglýsingu) og var sá eini er sóttist eftir fyrsta sæt-
inu. Hins vegar hlaut hann einungis 1.989 atkvæði í
fyrsta sætið eða um 55% af alls 3.605 atkvæðum. Össur
gegnir því erfiða hlutverki að vera fyrsti formaður nýs
stjórnmálaflokks, sem myndaður er úr þremur eldri
flokkum, og hann hefur aldrei verið óumdeildur sem leið-
togi Samfylkingarinnar. Það er þó vart hægt að tala um
niðurstöðuna sem vantraust á formanninn. Jóhanna Sig-
urðardóttir hlaut hátt í þúsund atkvæði í fyrsta sætið og
er niðurstaðan líklega frekar enn ein staðfestingin á því
gífurlega persónufylgi er hún nýtur innan Samfylking-
arinnar.
Það vekur athygli að ekki bar eins mikið á gömlu
flokkaskiptingunni í prófkjörinu og margir höfðu spáð,
ekki síst á suðvesturhorni landsins. Þegar haldið var
prófkjör fyrir síðustu kosningar var það opið en með
„girðingum“ til að tryggja að þeir þrír flokkar er áttu
hlut að Samfylkingunni ættu allir sína fulltrúa trygga á
framboðslistum. Nú voru prófkjörin bundin við flokks-
bundna félaga í Samfylkingunni en jafnframt voru engar
girðingar til staðar.
Það er frekar að hægt sé að skilgreina frambjóðendur
eftir hugmyndafræðilegum línum en gömlum flokkslín-
um. Vekur athygli að flestir þeir er náðu árangri í
Reykjavík lögðu mesta áherslu á vel-
ferðarmálin. Hins vegar náði Einar
Karl Haraldsson, sem er í hópi
þeirra er hafa lagt mesta áherslu á
markaðinn og atvinnulífið ásamt
Össuri, einungis níunda sætinu. Seg-
ir það líklega mikla sögu um þá
breytingu er orðið hefur á íslenskum
stjórnmálum á síðasta áratug að
fyrrverandi ritstjóri Þjóðviljans er trekk í trekk nefndur
sem einn helsti málsvari markaðskerfisins í flokki sínum.
Einnig virðist það hafa komið frambjóðendum til góða
að vera í hópi efasemdarmanna um virkjunarmál og þá
eru margir þeirra er náðu góðu kjöri í hópi þeirra er vilja
fara varlega í Evrópumálum. „Það blasir við að Evrópu-
málin verða ekki í forgrunni heldur bakgrunni eftir þetta
prófkjör,“ sagði einn frambjóðandi.
Þá má segja að landafræði hafi einnig skipt nokkru
máli. Guðmundur Árni Stefánsson vann nokkuð öruggan
sigur á Rannveigu Guðmundsdóttur í baráttunni um
efsta sætið í Suðvesturkjördæmi en það voru ekki síst
Kópavogur og Hafnarfjörður er tókust á. Hinsvegar er
góður árangur Þórunnar Sveinbjarnardóttur, er náði
þriðja sætinu, athyglisverður í því ljósi og sagði einn
þingmaður Samfylkingarinnar að hún hefði „afsannað
þá goðsögn að menn yrðu að hafa bæjarfélag eða íþrótta-
félag á bak við sig til að ná árangri“.
Sá frambjóðandi er hafði sig hvað mest frammi í próf-
kjörinu með auglýsingum og kynningarstarfsemi var
óneitanlega Jakob Frímann Magnússon. Hann stefndi á
annað til þriðja sæti í prófkjörinu en náði einungis því tí-
unda. Það er greinilegt á samtölum við áhrifamenn í
Samfylkingunni að sú harða kosningabarátta er Jakob
Frímann háði hefur farið öfugt í marga flokksmenn. Lík-
legt má telja að sú yfirlýsing að hann stefndi á annað
sæti hafi gert það að verkum að hann fékk marga stuðn-
ingsmenn Jóhönnu Sigurðardóttur og Bryndísar Hlöð-
versdóttur, sem sóttust eftir öðru sætinu, upp á móti sér
en sömuleiðis virðist sem sjálfur ákafinn í baráttu Jak-
obs hafi þjappað flokksmönnum um sitjandi forystu-
menn. Einn viðmælandi orðaði það svo að Jakob hefði
„keypt sig út af listanum“.
Hörð barátta í Norðvesturkjördæmi
Vegna kjördæmabreytinganna er taka gildi í næstu
kosningum var ljóst að baráttan í prófkjöri Sjálfstæð-
isflokksins í Norðvesturkjördæmi yrði hörð og óvægin.
Fimm þingmenn flokksins tóku þátt í prófkjörinu en lík-
legt þykir að fjórða sætið verði baráttusætið í næstu
kosningum.
Þrátt fyrir að mikið hafi verið rætt um ýmiss konar
bandalög þingmanna í aðdraganda prófkjörsins er ljóst
þegar tölur eru skoðaðar að þau hafa ekki haldið ef þau
voru þá til staðar. Alls tóku 5.994 þátt í prófkjörinu en
fjórir frambjóðendur fengu meira en þúsund atkvæði í
fyrsta sætið. Það bendir til að þeir hafi fengið nær óskor-
aðan stuðning í fyrsta sætið á sínum heimaslóðum en
mun minna á öðrum stöðum. Eini frambjóðandinn er
ekki fær mörg atkvæði í fyrsta sætið er Einar Oddur
Kristjánsson. Hann var heldur ekki nefndur í tengslum
við nein kosningabandalög. Hann fékk hins vegar jafnari
stuðning en aðrir frambjóðendur og náði öruggu kjöri í
þriðja sæti listans.
Auðvitað má segja að óhjákvæmilegt var vegna kjör-
dæmabreytinganna að hart yrði barist um öll sætin á
listanum. Hjá því verður hins vegar ekki litið að efsti
maður á lista, Sturla Böðvarsson samgönguráðherra,
nær því sæti með einungis tæpum fjórðungi atkvæða,
sem varla getur talist „ótvíræður“ sigur.
Þær deilur er hafa vaknað um fyrirkomulag utankjör-
staðaatkvæðagreiðslu á Akranesi varpa óneitanlega
nokkrum skugga á prófkjörið. Vilhjálmur Egilsson hefur
staðhæft að brögðum hafi verið beitt og eftir á að koma í
ljóst hvort einhver eftirmál verða.
Hvar er
endurnýjunin?
Samfylkingin hélt prófkjör í fjórum kjördæmum um helgina
og Sjálfstæðisflokkurinn í einu. Steingrímur Sigurgeirsson
veltir fyrir sér niðurstöðum helgarinnar.
AF
INNLENDUM
VETTVANGI
Morgunblaðið/Sverrir
sts@mbl.is
JÁLMUR Egilsson alþingismaður,
afnaði í fimmta sæti í prófkjöri Sjálf-
flokksins í Norðvesturkjördæmi, segist
tla að taka fimmta sætið á listanum fyr-
ngiskosningarnar í vor. Hann gagnrýnir
harðlega framkvæmd
prófkjörsins í samtali við
Morgunblaðið og segir að
brögðum hafi verið beitt í
prófkjörinu á Akranesi.
Aðeins munaði 41 atkvæði
á Vilhjálmi og Sturlu
Böðvarssyni í fyrsta sæt-
inu.
Vilhjálmur er afar ósátt-
ur við niðurstöðu próf-
kjörsins en segist hins veg-
a ánægður með hvernig
gabarátta hans var rekin. „Ég er mjög
tur mínum stuðningsmönnum og stolt-
eim fyrir þá vinnu sem þeir unnu. Ég
ns vegar miklar athugasemdir við
framkvæmd utankjörstaðaatkvæða-
unnar á Akranesi, og tel að þar hafi
rögð í tafli,“ segir Vilhjálmur.
s og greint hefur verið frá í Morg-
inu ógilti kjörnefnd fyrir síðustu helgi
örstaðaatkvæði sem safnað hafði verið í
rirtæki á Akranesi. Alls var um 80 at-
að ræða en að sögn Vilhjálms, sem
ýndi þessa framkvæmd, kom síðar í ljós
u aðferð hafði verið beitt mun víðar á
esi í utankjörfundarkosningunni.
ð kom svo upp úr dúrnum að þeir lögðu
pilin á borðið. Það var hópur manna,
tíu manns, sem gekk um með kjörgögn
æki og heimahús og keyrði meira að
um göturnar og stoppaði fólk og bað það
sa,“ segir Vilhjálmur.
an er þeim sjálfum falið að finna út
atkvæði eru illa fengin með þessum
og ógilda þau. Þeir ógilda rúmlega 80
ði, en mér var ekki heimilað að tékka
þetta neitt af. Þeir þurftu aldrei að leggja
fram nafnalista eða neina skilagrein með þeim
atkvæðum sem þeir ógiltu, s.s. í hvaða fyr-
irtækjum atkvæði hefðu verið greidd, hvaða
menn það voru sem fóru um með kjörgögnin
og hver lét gera hvað, hvar og hvenær. Þetta
þýðir það að sjálfsögðu að ég hef alls enga
ástæðu til að ætla að þessi utankjörstaða-
atkvæði hafi bara verið 80,“ segir hann.
„Svo gerðist það að þegar utankjörstaða-
atkvæðagreiðslunni var lokið á Akranesi rifu
þeir upp alla atkvæðaseðlana og sturtuðu öll-
um atkvæðunum í pott, sem er aldrei gert og
þrátt fyrir skýr fyrirmæli um annað,“ segir
Vilhjálmur.
„Þegar við gerðum svo kröfu um það í gær
[sunnudag] að þeir legðu fram lista yfir menn-
ina og staðina, til þess að geta sannreynt upp-
lýsingarnar, var því hafnað. Ég hef því enga
ástæðu til þess að ætla annað en að miklu
fleiri atkvæði hafi verið illa fengin en þau 80
sem ógilt voru,“ segir Vilhjálmur.
Vilhjálmur segir alveg ljóst að hann taki
ekki fimmta sætið á framboðslistanum. „Fyr-
ir mig persónulega er margt annað í lífinu en
pólitík. Hún er ekki upphaf og endir alls en
mér sárnar fyrir hönd stuðningsmanna minna
og alls þess fjölda fólks, sem lagði gífurlega
mikið á sig í þessari baráttu, að Skagamenn-
irnir vildu hafa mörkin misjafnlega stór,“ seg-
ir hann.
Spurður hvort hann hafi leitt hugann að
sérframboði eða að gefa kost á sér í öðru kjör-
dæmi sagði Vilhjálmur það ekkert á dagskrá.
Hann var einnig spurður hvort hann ætlaði að
kæra framkvæmd kosninganna og svaraði þá:
„Maður kærir sig ekki í framboð.“
álmur Egilsson
gir brögð í tafli
rófkjörinu
mur
n