Morgunblaðið - 28.12.2002, Page 1
STOFNAÐ 1913 303. TBL. 90. ÁRG. LAUGARDAGUR 28. DESEMBER 2002 mbl.is
Greipar
dauðans
Smásaga úr nýju smásagnasafni
Davíðs Oddssonar Lesbók
Ólafur og Jón Arnór í kjöri til
íþróttamanns ársins Íþróttir 4
Hvað var
efst á baugi
Stiklað á stóru í menningarlífi
á árinu Lesbók
Bræður í
hópi 10 efstu
VLADÍMÍR Pútín Rússlandsforseti segir að
sjálfsmorðsárásin á stjórnsýsluhúsið í Grozní,
höfuðstað Kákasushéraðsins Tétsníu, í gær-
morgun hafi verið „ómennskt athæfi“. Að
minnsta kosti 46 manns fórust og um 100 slös-
uðust í tilræðinu. Liðsmenn héraðsstjórnar
sem er hliðholl Rússum hafa aðsetur í húsinu.
Tveim bílum, hlöðnum dínamíti, var ekið
gegnum öryggisgirðingar við fjögurra hæða
hátt stjórnsýsluhúsið um kl. 11:30 að íslensk-
um tíma, þeir sprungu með stuttu millibili og
myndaðist djúpur gígur, um sex metrar í þver-
mál, þar sem annar sprakk. Líkamsleifar fund-
ust á víð og dreif, skelfingu lostið skrifstofufólk
reikaði örvinglað og alblóðugt um húsagarð-
inn.
Slasaðir hermenn reyndu af veikum mætti
að halda uppi einhverri reglu, ekkert rafmagn
var í hverfinu og því erfitt um vik fyrir lækna
og hjúkrunarfólk. „Þeir skera upp við birtuna
frá kertaljósum,“ sagði Gennadí Korotkín, að-
stoðarráðherra neyðarhjálpar í Rússlandi.
Áfall fyrir stefnu Pútíns
Húsið skemmdist mikið, ein álma þess er
gerónýt og aðeins útveggirnir standa uppi,
enda er talið að í bílunum, UAZ-herjeppa og
stórum Kamaz-vörubíl, hafi verið sprengiefni
er jafnist á við um hálft tonn af TNT.
Tilræðið er mikið áfall fyrir Pútín og stjórn
hans sem hefur að undanförnu sagt að ástandið
í héraðinu sé að færast í eðlilegt horf. Forset-
inn sagði að þeir sem hefðu staðið fyrir tilræð-
inu ættu í stríði við sína eigin þjóð.
Leiðtogi héraðsstjórnarinnar, Ahmad Kad-
yrov, var staddur í Moskvu. Kadyrov sagði
óskiljanlegt að takast skyldi að brjótast í gegn-
um girðingarnar en gagnslaust væri að stöðva
alla bíla sem ækju fram hjá. „Hve oft höfum við
eiginlega stöðvað þessa bíla og hvaða gagn er
að því? Hryðjuverkamennirnir haga sér enn
eins og þeir séu herrar Grozní,“ sagði Kadyrov.
AP
ILLA sært fórnarlamb leitt út úr stjórnsýslu-
húsinu í Grozní skömmu eftir tilræðið í gær-
morgun. Myndin var tekin af sjónvarpsskjá.
Vitað er að minnst 46 manns féllu í sjálfs-
morðsárásinni og um 100 særðust.
„Haga sér enn eins og
þeir séu herrar Grozní“
Moskvu. AP, AFP.
Á vígvellinum
NORÐUR-Kóreumenn sögðust í gær ætla að
reka úr landi eftirlitsmenn á vegum Alþjóða-
kjarnorkumálastofnunarinnar og hefja aftur
endurvinnslu á úrani sem talið er gera þeim
kleift að framleiða plútón til notkunar í kjarn-
orkusprengjur. Talsmaður George W. Bush
Bandaríkjaforseta, Claire Buchan, hvatti í gær
N-Kóreustjórn til að endurskoða stefnuna.
„Við viljum finna friðsamlega lausn á þeim
vanda sem Norður-Kóreumenn hafa skapað,“
sagði Buchan. Hún varaði jafnframt kommún-
istastjórnina í Pyongyang við því að Banda-
ríkjamenn myndu ekki láta ótta við hótanir N-
Kóreumanna þvinga sig til samninga.
Reuters
Yongbyon-endurvinnslustöðin í Norður-
Kóreu en þar verður framleitt plúton.
Reka eftirlits-
menn úr landi
Crawford í Texas. AFP.
Norður-Kórea/18
YFIRVÖLD í Ahtubinsk-héraði í Suður-
Rússlandi hafa gripið til þess ráðs vegna
fólksfækkunar að bjóða hjónum ókeypis hús-
næði fallist þau á að eignast börn.
Að sögn breska blaðsins The Daily Tele-
graph þurfa hjónin að vera á þrítugsaldri og
leggja fram meðmæli frá vinnuveitendum.
Eiginmaðurinn þarf að sanna að hann sé ekki
áfengissjúklingur og konan þarf að gangast
undir læknisrannsókn til að sýna að hún geti
eignast börn.
Lofi þau að eignast þrjú börn fá þau hús-
næði án endurgjalds fyrstu fimm árin og
haldi þau samninginn eignast þau íbúðina.
Ókeypis
húsnæði ef þau
eignast börn
„Þarna er verið að gera ráð fyr-
ir því að ég hætti sem borgarstjóri
og eigi ekki afturkvæmt. Ég bauð
á móti, til þess að bjarga Reykja-
víkurlistanum, að ég fái tíma-
bundna lausn frá störfum, standi
m.ö.o. upp úr stól borgarstjóra
fram til vors og Helga Jónsdóttir
borgarritari taki við starfi mínu á
meðan. Þetta taldi ég að væri far-
sælast fyrir borgina, fyrir starfs-
menn borgarinnar, fyrir Reykja-
víkurlistann og fyrir borgarbúa.
Þetta var mín breytingartillaga,“
segir Ingibjörg Sólrún.
,,Að auki má bæta við að í [til-
lögu framsóknarmanna] felst að
það eru engin tímamörk á því
hversu lengi þessir aðilar héldu
þessum embættum,“ segir hún.
Árni Þór Sigurðsson sagði í
gærkvöldi að enn væri allt opið
varðandi stöðu Ingibjargar Sól-
rúnar. Aðspurður um afstöðu hans
til þeirrar tillögu er lögð var fram
á fundinum með borgarstjóra
sagði hann: „Þetta er tillaga sem
framsóknarmenn báru fram í dag
[gær] og við einfaldlega lýstum
því yfir að við gætum staðið að
henni ef um hana yrði samkomu-
lag. En það er ekkert eitt atriði í
þessu sem er úrslitaatriði af okkar
hálfu, það hefur skýrt komið fram
og kom einnig skýrt fram á fundi
okkar í dag.“
Málin rædd og útkljáð
á fundi á morgun
Ingibjörg Sólrún sagðist að-
spurð ekki hafa fengið bein við-
brögð við breytingartillögu sinni.
Spurð um þá niðurstöðu fundar
framsóknarmanna síðdegis í gær
að um lokatilboð af þeirra hálfu
hafi verið að ræða segir Ingibjörg
Sólrún að haldinn verði fundur í
borgarstjórnarflokki R-listans á
morgun. Þar verði þessi mál rædd
og útkljáð í þeim hópi.
Forystumenn Samfylkingar-
innar í Reykjavík komu saman á
fundi um hádegisbilið í gær og var
á fundinum samþykkt ályktun þar
sem lýst er yfir „fullum stuðningi
við störf Ingibjargar Sólrúnar
Gísladóttur borgarstjóra“. Þá seg-
ir að Samfylkingin harmi þær
harkalegu yfirlýsingar fulltrúa
samstarfsflokkanna sem leitt hafa
til þess að samstarfið um Reykja-
víkurlistann er nú í hættu.
Gæti ekki staðið við fyrir-
heit gagnvart kjósendum
Árni Þór segir enn allt opið varð-
andi stöðu Ingibjargar Sólrúnar
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri hafnar tillögu framsóknarmanna
INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir borgarstjóri hafnar tillögu sem
framsóknarmenn í Reykjavík lögðu fyrir hana í gær. Tillagan
kveður á um að Ingibjörg Sólrún láti af störfum borgarstjóra 15.
janúar. Árni Þór Sigurðsson verði borgarstjóri í hennar stað,
Steinunn Valdís Óskarsdóttir forseti borgarstjórnar, Alfreð
Þorsteinsson formaður borgarráðs og að þessi skipan mála gildi
þar til annað verði ákveðið. „Þessari tillögu hef ég hafnað af
þeirri einföldu ástæðu að þetta kemur í veg fyrir að ég geti stað-
ið við mín fyrirheit gagnvart kjósendum um það að vera borg-
arstjóri í Reykjavík og fyrirheit sem samstarfsflokkarnir gáfu
einnig,“ segir Ingibjörg Sólrún í samtali við Morgunblaðið.
Segja yfirlýsingar/6
FULLTRÚAR Blindrafélagsins og Slysavarnafélagsins Lands-
bjargar afhentu hópi barna og unglinga flugeldagleraugu í gær-
dag en hópurinn er fulltrúi þeirra 18.500 barna og unglinga á
aldrinum 11–15 ára sem fá send heim gjafabréf á sérstök hlífð-
argleraugu til þess að nota um áramótin. Þetta er í þriðja sinn
sem Blindrafélagið og Landsbjörg snúa bökum saman við dreif-
ingu á hlífðargleraugum til barna og unglinga en aldrei áður hef-
ur gjafabréfum verið dreift til jafnmargra og nú.
Morgunblaðið/Sverrir
Gefa 18.500 gleraugu
♦ ♦ ♦