Morgunblaðið - 28.12.2002, Side 11

Morgunblaðið - 28.12.2002, Side 11
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. DESEMBER 2002 11 STUTTU fyrir jólafrí fengu nem- endur Grunnskóla Bolungarvíkur sendar frá jafnöldrum sínum í Póllandi afar skemmtilegar jóla- skreytingar sem þau höfðu unnið að í jólaundirbúningi sínum heima fyrir. Þessari gjöf frá nemendunum í Póllandi var fylgt eftir í Grunn- skólanum með kynningu á pólsku jólahaldi, þar sem nemendur grunnskólans fræddust meðal annars um það að Pólverjar borða aldrei kjöt á aðfangadag hins vegar er á borðum fjölbreytt úrval fiskrétta. Alltaf lagt á borð fyrir óvæntan gest Fjöldi rétta á borðinu verður að standa á oddatölu og þess er alltaf gætt að leggja einn auka diskur á borðið við jólamáltíðina ef óvæntan gest kynni að bera að garði. Jólaguðsþjónustan er alltaf klukkan tólf á miðnætti og í kirkjunni fær sá sem elstur er í fjölskyldunni stóra oblátu sem hann fer með til þess næsta í fjöl- skyldunni, óskar gleðilegra jóla, friðar og alls hins besta um leið og brotið er af oblátunni, alli fá þannig brot af henni með jóla- kveðju. Engar hefðir á jóladag Á jóladag eru engar fastar hefðir en fólk fer þá mikið í heimsóknir til ættingja og vina. Í Grunnskóla Bolungarvíkur eru þrír pólskir nemendur sem koma úr sömu fjölskyldunni. Þeim til stuðnings við námið er Zofía Marciniak sem dvalið hefur á Íslandi um árabil. Ljósmynd/Gunnar Hallsson Systkinin Monkia, Klaudia og Patryk Gawek kynntu pólska jólasiði fyrir skólasystkinum sínum við Grunnskólann í Bolungarvík. Lengst til hægri á myndinni er skólabróðir þeirra, Örn Steinn Arnarson. Jólaskreytingar pólskra nemenda HÉRAÐSDÓMUR Vestfjarða hef- ur dæmt Vesturbyggð til að greiða grunnskólakennara á Bíldudal 40 þúsund krónur í staðaruppbót sem hann taldi sig eiga rétt á 1. apríl 2001 þótt sveitarfélagið hefði í maí 1999 ekki samþykkt greiðslu stað- aruppbótar lengur en til 1. sept- ember 2000. Er þetta annar dóm- urinn sem fellur í sömu vikunni þar sem leyst er úr ágreiningi um launa- mál kennara. Á miðvikudag í síðustu viku dæmdi Héraðsdómur Reykjaness kennara einnig í vil og voru honum dæmd viðbótarlaun óháð kjara- samningi frá 9. janúar 2001, þar sem talið var að Kennarasamband Íslands og Félag grunnskólakenn- ara hefðu ekkert umboð haft til að semja um afnám viðbótarráðning- arkjara í kjarasamningnum. Sigur kennarans í máli sínu gegn Vest- urbyggð var hins vegar háður kjarasamningnum. Þungamiðja málanna beggja er túlkun á bókun eða yfirlýsingu í kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands um ákvarðanir um að viðbótarráðning- arkjör stæðu til og með 31. júlí 2001 en féllu þá úr gildi. Byggði kenn- arinn á Bíldudal á því að Vestur- byggð og grunnskólakennarar í sveitarfélaginu hefðu komist að samkomulagi um viðbótarráðning- arkjör og þannig samið um yfir- borganir til kennara umfram það sem sagði í kjarasamningi aðila. Með nýja kjarasamningnum hefði verið samið um áframhaldandi greiðslur viðbótarráðningarkjara til 31. júlí 2001 og því væri krafa hans um greiðslu staðaruppbótar innan þeirra tímamarka. Tilgangurinn að ná yfir viðbótarráðningarkjör Í vitnisburði Eiríks Jónssonar, formanns Kennarasambands Ís- lands, kom fram að tilgangur um- ræddrar bókunar hefði verið að ná yfir viðbótarráðningarkjör sem hafði verið samið um frá því að kjarasamningur aðila frá 1997 var gerður og þannig tryggja óbreytt ástand hvað slík kjör varðaði, þar til kerfisbreytingar hins nýja kjara- samnings væru komnar í fram- kvæmd. Þá var lögð fyrir dóminn yfirlýsing Finnboga Sigurðssonar, formanns Félags grunnskólakenn- ara, og fyrrverandi formanns, Guð- rúnar Ebbu Ólafsdóttur. Segir þar að af hálfu Launanefndar sveitarfé- laga hafi verið óskað eftir að kerf- isbreyting sem fólst í nýjum kjara- samningi (frá 9. jan 2001) kæmi ekki til framkvæmda fyrr en í upphafi nýs skólaárs 1. ágúst 2001. Flest viðbótarráðningarkjör, sem fjöl- mörg sveitarfélög hefðu samið um, hefðu aðeins náð til áramóta 2000/ 2001, eða þar til nýr kjarasamn- ingur yrði gerður. Því hafi þurft að brúa bilið fram til 1. ágúst og hafi það verið tilefni bókunarinnar. Við gerð hennar hafi ekki verið vitað ná- kvæmlega um efnisinnihald þeirra viðbótarkjara sem um hefði verið samið. Því hefði ekki verið unnt að tiltaka sérstaklega þær greiðslur sem ættu að framlengjast, enda hefði það ekki komið til tals við samningagerðina. Hefði ætlun aðila verið sú að framlengja alla sérsamn- inga um viðbótarráðningarkjör. Dómurinn taldi samkvæmt þessu að ekki yrði annað séð en að til- gangur aðila með umræddri bókun hefði verið að viðhalda til loka skóla- ársins þeim yfirborgunum sem í gangi voru er kjarasamningur (frá 9. jan. 2001) var gerður. Við túlkun bókunarinnar yrði að horfa til þessa markmiðs sem átti að ná með gerð hennar. Taldi dómurinn að bókunin tæki til allra greiðslna, sem hafði verið samið um að greiða til við- bótar gildandi kjarasamningi og voru í eðli sínu laun, hverju nafni sem þær voru nefndar. Samkvæmt því félli hin umdeilda staðaruppbót hér undir. Bar Vesturbyggð því samkvæmt bókuninni að greiða kennaranum staðaruppbótina. Erlingur Sigtryggsson dómstjóri kvað upp dóminn. Annað dómsmálið sem grunnskólakennarar vinna í sömu vikunni Fær staðaruppbót á grundvelli kjarasamnings HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hefur vísað frá dómi máli Nátt- úruverndarsamtaka Íslands og nokkurra einstaklinga sem kröfð- ust þess að íslenska ríkinu og Landsvirkjun yrði gert að leggja skýrslu Landsvirkjunar um mat á umhverfisáhrifum Kárahnjúka- virkjunar að nýju undir athugun og úrskurð Skipulagsstofnunar. Héraðsdómur segir aðalkröfu stefnenda grundvallast á því að umhverfisráðherra hafi ekki farið að lögum við meðferð og úrlausn endurskoðunar á úrskurði Skipu- lagsstofnunar um mat á umhverfis- áhrifum Kárahnjúkavirkjunar. Lyti krafan þó ekki að því að úr- skurðurinn verði ómerktur eða felldur úr gildi af þessum sökum heldur væri gerð sú krafa að rík- inu og Landsvirkjun væri með dómi gert að leggja matsskýrslu Landsvirkjunar að nýju undir at- hugun og úrskurð Skipulagsstofn- unar. Héraðsdómi þótti að dómi í sam- ræmi við aðalkröfuna fæli í sér ómerkingu á úrskurði umhverfis- ráðherra en jafnframt að ráðherra væru gefin bindandi fyrirmæli um að vísa málinu aftur til meðferðar Skipulagsstofnunar. Þótti héraðs- dómi stefnendur því ekki hafa lög- varða hagsmuni af því að efnis- dómur gangi um aðalkröfu þeirra og var henni því vísað frá dómi. Til vara kröfðust stefnendur að úrskurður umhverfisráðherra frá 20. desember 2001 um umhverf- ismat Kárahnjúkavirkjunar yrði ómerktur. Var ekki á það fallist þar sem stefnendur hefðu ekki gætt þess að stefna tveimur sveit- arfélögum og einum landeiganda á Jökuldal til fullrar aðildar í málinu. Máli vegna umhverfismats vísað frá dómi KRISTÍN Inga Brynjarsdótt- ir, þriggja barna einstæð móð- ir, sem lenti ásamt börnum sínum í bílslysi undir Hafnar- fjalli um miðjan ágúst og lam- aðist varanlega fyrir neðan axlir, fékk afhenta íbúð í Hafn- arfirði fyrir helgi. Fasteigna- salan Eignanaust ehf. kom því til leiðar að Sparisjóður Hafn- arfjarðar, sem átti íbúðina, lækkaði verðið verulega og fékk auk þess nokkur fyrir- tæki til að sameinast um að gera fokhelda íbúðina íbúðar- hæfa. Stuðningurinn nemur milljónum króna. „Það er stórkostlegt að fá allar þessar góðu gjafir og við erum orðlaus yfir því hvað fólk hefur brugðist vel við,“ segir Jóna Benediktsdóttir, móðir Kristínar Ingu, sem er enn rúmliggjandi á Grensási, end- urhæfingardeild Landspítala – háskólasjúkrahúss, en Jóna og eiginmaður hennar hafa séð um börnin eftir slysið. Jóna segir að íbúðin hafi átt að kosta 20 milljónir en Spari- sjóðurinn hafi lækkað verðið niður í 17,1 milljón og Eigna- naust ætli að selja gömlu íbúð fjölskyldunnar án söluþóknun- ar. Egill Árnason ehf. gefur parket og innihurðir, Tengi ehf. gefur hreinlætistæki, Pípulagnaverktakar ehf. koma tækjunum fyrir, Húsasmiðjan gefur 300.000 kr., Öndvegi ehf. leðursófasett, sófaborð og borðstofuhúsgögn, Slippfélag- ið ehf. málningu, Litagleði ehf. sér um spörslun og undirvinnu fyrir málningu, Reykjafell ehf. gefur allt raflagnaefni, Raf- kaup ehf. gefur alla lýsingu, Rafsetning ehf. leggur raf- magnið og setur upp ljós, Brúnás ehf. gefur 300.000 kr. í innréttingar, Bræðurnir Ormsson ehf. 70.000 kr. upp í tæki og Galíleó ehf. gefur sól- argluggatjöld. Stefnt er að því að fjölskyld- an flytji í íbúðina í vor. Söfnun vegna Krist- ínar Ingu Brynj- arsdóttur hefur gengið mjög vel Íbúð með öllu senn tilbúin NOKKUÐ er um að bíógestir kvarti yfir hávaða á kvikmynda- sýningum, þótt reglulegar hávaða- mælingar Umhverfis- og heilbrigð- isstofu hafi ekki leitt í ljós að farið sé yfir gildandi hávaðamörk. Jafn- vel svokallaðar „kraftsýningar“ eða „Powersýningar“ hafa ekki þótt of hávaðasamar eftir hávaða- mælingu. Rósa Magnúsdóttir, deildarstjóri hollustuhátta hjá Umhverfis- og heilbrigðisstofu, segir þó einstaklingsbundið hversu viðkvæmt fólk sé fyrir hávaða. Einkum geti það átt við um börn og gamalt fólk og því full ástæða til að hafa varann á sér. Dæmi eru um að fólk hafi kvartað yfir var- anlegum heyrnarskaða eftir eitt kvöld á hávaðasömum stað. „Þetta eru alvarleg mál og því mikilvægt að fara ekki yfir skaðleg hávaða- mörk. Það geta skaddast heyrn- arfrumur og slíkur skaði er óaft- urkræfur,“ segir Rósa. Hún tekur þó fram að erfitt sé að staðfesta eða hrekja slíkar kvartanir. Við hávaðamælingar, sem gerð- ar eru m.a. á diskótekum og kvik- myndahúsum, er miðað við að stöðugur hávaði, þ.e. jafngildis- hljóðstig, megi ekki fara yfir 95 desíbel. Er talið að venjulegt fólk eigi að geta þolað slíkan hávaða í tiltölulega skamman tíma án þess að bera skaða af. Til samanburðar skal geta þess að sársaukamörk hljóðstyrks er um 120 desíbel og gnýr frá þotuhreyfli er 170 desí- bel. Þýska rokkhljómsveitin Ramm- stein mun hafa slegið hávaðamet á tónleikum hérlendis frá því mæl- ingar hófust. Á tónleikum sveit- arinnar í Laugardalshöll 15. júní 2001 mældist hæsta hljóðbilið 128 desíbel. Hljóðmenn á tónleikunum tóku tilmælum hljóðmælinga- manna vel og lækkuðu aðeins í græjum sínum eftir hlé. Misjafnt hvað fólk þolir mikinn hávaða

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.