Morgunblaðið - 28.12.2002, Page 48
48 LAUGARDAGUR 28. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
UM hver áramót er skotið upp
ógrynni öll af flugeldum, með til-
heyrandi ljósadýrð og gleði. Þetta
getur þó breyst í
harmleik ef ekki
er farið eftir öll-
um leiðbeiningum
og fyllsta öryggis
gætt.
Um hver ára-
mót verða að
meðaltali tæplega
20 slys tengd
flugeldum á land-
inu, þar af eitt al-
varlegt augnslys. Undantekning var
um síðustu áramót þegar ekkert al-
varlegt augnslys varð og má þakka
það almennri notkun öryggisgler-
augna. Handarslysin eru þó algeng-
ust eða rúmlega helmingur slysana.
Algengasta orsök þessara slysa er
vangá eða vankunnátta, þ.e. að leið-
beiningar eru ekki lesnar, eða í rúm-
lega 60% tilfella. Ef horft er síðan á
það tímabil frá því að byrjað er að
selja flugelda og þar til því lýkur, eða
eftir þrettándann, eru slysin í heild-
ina 30 til 35. Þau slys sem verða fyrir
utan áramótin sjálf verða flest í ald-
urshópnum 15 ára og yngri og eru
þar strákar í meirihluta eins og oft
vill verða þegar slys eru annars veg-
ar. Stærsta vandamálið í þessum ald-
urshópi eru heimatilbúnu sprengj-
urnar, þar sem púður er tekið úr
flugeldum og sett t.d. í sultukrukkur
eða rörabúta. Slys tengd þessum
sprengjum hafa verið mjög alvarleg
þar sem einstaklingar hafa jafnvel
misst hluta af útlim, fengið ævilangt
lýti eða tapað sjón. Til að geta sporn-
að við þessum slysum er mikilvægt
að foreldrar ræði þessi mál við börn-
in sín og fylgist vel með hver iðja
þeirra er dagana kringum áramótin.
Til að fyrirbyggja slys er mikil-
vægt að gera hlutina rétt. Geyma
þarf flugelda á öruggum stað, ekki
þar sem börn hafa aðgang að þeim
og ekki skal setja þá í vasa þegar
verið er að skjóta upp. Umgangast
skal flugelda með varúð. Ekki á að
vera með leikaraskap og læti þar
sem þeir eru notaðir og muna að
áfengi og flugeldar eiga ekki sam-
leið. Öryggisgleraugu eiga allir að
nota, ekki bara þeir sem eru að
skjóta upp heldur líka þeir sem eru
að horfa á. Fara þarf vel yfir allar
leiðbeiningar sem fylgja flugeldun-
um og fara eftir því sem þar stendur.
Mörgum börnum finnst mjög spenn-
andi þegar verið er að skjóta upp og
því þarf að gæta vel að því að þau fari
ekki of nærri. Skorða þarf alla flug-
elda og kökur vel áður en þeim er
skotið upp til að fyrirbyggja að skot-
eldurinn fari á hliðina og skjótist í þá
sem standa nærri.
Til að varna handarslysum sem
eru algengustu slysin þarf sá sem er
að skjóta upp og þeir sem eru með
blys að nota ullar- eða skinnhanska
þar sem þeir veita vernd gegn bruna.
Þegar skotið er upp skal ekki halla
sér yfir flugeldana heldur kveikja í
þeim með útréttri hendi og víkja vel
frá um leið og logi er kominn í kveiki-
þráðinn. Ef eldur hefur verið borinn
að kveikiþræði en flugeldur ekki tek-
ið við sér skal ekki reyna að kveikja
aftur í honum heldur hella vatni yfir.
Glóð getur leynst í marga klukku-
tíma og skoteldurinn farið upp án
nokkurs fyrirvara. Ef slys verður
skal kæla brunasárið strax með
vatni.
Megið þið eiga ánægjuleg og
slysalaus áramót.
SIGRÚN A. ÞORSTEINSDÓTTIR,
Slysavarnasviði Slysavarnafélagsins
Landsbjargar.
Flugeldar og
slysavarnir
Frá Sigrúnu A. Þorsteinsdóttur:
Sigrún A.
Þorsteinsdóttir
ÉG vil gjarnan leggja Ingibjörgu
Sólrúnu lið með smá bréfkorni en
ég tel að hún sé málsvari þeirra
hugsjóna sem ég hef, en það er að
vera Evrópubandalagssinni sem er
ekkert lítið mál í íslenskri pólitík.
Hún hefur þorið og kjarkinn, það
vita allir Reykvíkingar vænti ég.
Ég skrifa þetta bréf vegna þess
að ég tel að hún þori að gera okkur
að efnahagssinnum en ég hef ekki
farið í felur með að ég er hlynntur
því. Það þarf endurnýjun og ég vil
því eindregið að Ingibjörg Sólrun
verði næsti forsætisráðherra. Hún
hefur frumkvæði og þor til að taka
afdrifaríkar ákvarðanir eins og hún
þorði sem borgarstjóri.
Ég er ekki að taka afstöðu til
þeirra augnablikssjónarmiða sem
ríkja í borgarstjórn. Við þurfum
nýja stjórn og Ingibjörg er eina
lausnin að mínu mati, það er ein-
faldlega ekki til önnur perla í ís-
lensku þjóðlífi en hún nú til dags.
Ég hvet því alla hugsandi verur
að hugleiða það hvað okkur áskotn-
ast með henni Ingibjörgu. Ég velti
lítilli þúfu en hún Ingibjörg er
þungt hlass sem taka skyldi mark á.
Ég hvet því alla sem hafa ritmálið á
færi sínu að hlusta á Ingibjörgu Sól-
rúnu.
Var ekki Ingibjörg borgarstjóri
þegar Reykjavík var menningar-
borg Evrópu árið 2002? Ekki man
ég annað. Var það ekki haldið af
mikilli reisn? Ekki man ég annað.
Nei, Ingibjörg er ný hugsjón og
skilningur okkar á umhverfinu í
kringum okkur. Hún er ekki ríg-
bundin þorskveiðikvóta. Ég hvet því
alla hugsandi menn að velta því fyr-
ir sér hversu mikill akkur hún Ingi-
björg Sólrún er fyrir land og þjóð.
BJARNI ÞÓR ÞORVALDSSON,
Asparfelli 12, Reykjavík.
Ingibjörgu Sólrúnu
lagt lið
Bjarni Þór Þorvaldsson skrifar: