Morgunblaðið - 28.12.2002, Síða 55
ferðaþjónustu í Hvalfirðinum. Hér
eru nokkurn veginn upptaldar for-
sendur atburðarásar sem nær sér
aldrei á strik. Klaufalega er unnið úr
flestum þráðum framvindunnar,
einkum þeim sem hvað þyngst vega,
þ.e. skopmyndinni sem dregin er upp
af pólitískri orðræðu, og hrakförum
Salómons á heimavelli Antons flug-
stjóra. Þáttur Stellu sjálfrar fer til
dæmis að miklu leyti forgörðum
vegna þess púðurs sem eytt er í að
draga fremur ýkta og stirðbusalega
mynd af kýtingi og umræðum á
flokksfundum, og gengur framboðs-
ferli Stellu fremur snubbótt fyrir sig.
Sama er að segja um hinn ástsæla
Salómon. Hans þáttur í myndinni er
ómarkviss og verður á köflum sorg-
legur fremur en fyndinn.
Á heildina litið er Stella í framboði
sundurlaus og kallar það á talsverða
yfirlegu að átta sig á þeirri plottupp-
byggingu sem liggur farsanum að
baki. Þó svo að myndin eigi e.t.v. fyrst
og fremst að ganga út á gamanatriði
og spuna með hinar gamalkunnu per-
sónur sögunnar, þarf eitthvað til að
halda ósköpunum saman, og knýja
farsakennda frásögnina áfram svo að
áhorfandinn hrífist með. Þetta er lík-
lega ástæðan fyrir því að mörg
dramatísk gamanatriði í myndinni
vekja ekki þann hlátur sem þeim er
ætlað og fara í súginn, því ekki hefur
tekist að hrífa áhorfandann inn í fars-
ann. Hinir fínlegri og beittu brand-
arar myndarinnar eru margir en
drukkna einhvern veginn í illa skipu-
lögðu hugmyndaflæðinu og falla í
skuggann af hinum hreinræktaða
aulahúmor myndarinnar, þar sem
menn detta á hausinn, kasta upp súru
hvalrengi, reka við, lenda á gráu
svæði hvað meinta kynhneigð varðar,
festast inni í kamri og bílar eru
klesstir og sprengdir í loft upp. Hvað
tæknilega vinnslu varðar minnir
Stella í framboði oftar á gamanefni
unnið fyrir sjónvarp en heildstæða
gamanmynd. Tökur eru oft undir-
eða yfirlýstar, og fær myndin því á
sig hroðvirknislegt yfirbragð. Víða
skilar framsögn leikara sér ekki
nægilega skýrt í gegnum hljóðrásina,
og kemur það sér einkar illa þar sem
mikilvægum plottupplýsingum er oft-
ar en ekki komið á framfæri í gegnum
orðaflaum og hröð orðaskipti hinna
og þessara persónanna. Fyrir vikið
verður söguframvindan enn ruglings-
legri, a.m.k. við fyrstu áhorfun. Vert
er að taka fram að frumsamin tónlist
Ragnhildar Gísladóttur er mjög góð
og faglega færð inn í heildarsam-
hengi myndarinnar. Þá koma margir
góðir leikarar við sögu, og gefur
breiddin í leikaravali myndinni fersk-
an blæ. Stella lifnar strax við í túlkun
Eddu Björgvinsdóttur, en atriðin
þegar hin skemmtilegu persónuein-
kenni Stellu ná að blómstra, (eins og
þegar hún segir meðlimum centrum-
listans til syndanna og þegar hún
reynir að útskýra hvað sæbjúga er
fyrir sonarsyni sínum), eru bara allt
of fá. En með því að tefla fram svo
mörgum leikurum og leitast við að
gefa þeim öllum sína „senu“, er sög-
unni um Stellu drepið um of á dreif og
grunninum þannig kippt undan
myndinni. Það er helst hægt að hafa
gaman af Stellu í framboði með því að
nálgast hana eins og áramótaskaup
með mjög afmörkuðu sögusviði.
Stella í framboði er framhald hinnar vinsælu myndar Stella í orlofi.
Heiða Jóhannsdóttir
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. DESEMBER 2002 55
www.regnboginn. is
Sýnd kl.2.
Sýnd kl. 2.30, 4.30, 6.30, 8.30 og 10.30.
YFIR 50.000 GESTIR
DV
RadíóX
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10. B.i.12 ára
“Besta Brosnan Bond-myndin”
GH Kvikmyndir.com
i
Hverfisgötu 551 9000
Sýnd kl. 2.
Nýr og betri
1/2SV. MBL
“Besta mynd ársins”
SV. MBL
Kvikmyndir.com
1/2HK DV
“Mögnuð upplifun”
FBL
EN SANG FOR MARTIN
Sýnd kl. 2, 4 og 6 með íslensku tali.
www.laugarasbio.is
DVRadíóX
YFIR 50.000 GESTIR.
Sýnd kl. 8 og 11. B. i. 12 ára.
“Besta Brosnan Bond-myndin”
GH Kvikmyndir.com
i
Stórkostlegt ævintýri frá Disney byggt
á hinu sígilda og geysivinsælu ævintýri
um Gull Eyjuna eftir Robert Louis
Stevenson
l i i i
i í il i i l i i
ll j i i
Sýnd kl. 2.15, 3.30, 5.40, 7, 9, 10.30 og powersýning 12.30 eftir miðnætti.
POWE
RSÝN
ING
kl. 1
2.30
eftir
miðn
ætti
Á STÆ
RSTA
THX
tJALD
I LAN
DSINS
“Besta mynd ársins”
SV. MBL
Kvikmyndir.com
1/2HK DV
“Mögnuð upplifun”
FBL