Morgunblaðið - 28.12.2002, Side 56
56 LAUGARDAGUR 28. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Jólamyndin 2002
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10.
Sýnd kl. 2, 4 og 6
með íslensku tali.
Sýnd kl. 2 og 5 íslenskt tal.
Sýnd kl. 8 enskt tal.
E I N N I G M E Ð Í S L E N S K U
Sýnd kl. 6.20, 8.10 og 10.10.
Sýnd kl. 1.45, 4, 8 og 10.20.
H.K. DV
GH. Vikan
SK RadíóX
SV. MBL
GH. Kvimyndir.com
B.Ö.S. Fréttablaðið
Tónlist eftir Sigur Rós.
Gleðileg jól
Loksins, Loksins
Framhald af Stellu í Orlofi, einni vinsælustu grínmynd
íslendinga fyrr og síðar
Kvimyndir.is
Sýnd kl. 5.55 með enskum texta,
8 og 10.05. B.i. 12 ára.
Y F I R 6 0 . 0 0 0 G E S T I R
Stórkostlegt ævintýri
frá Disney byggt á hinu
sígilda og geysivinsælu
ævintýri um Gull Eyjuna
eftir Robert Louis
Stevenson
l i i
f i i
í il i i l
i i ll j
f i i
Yfir 55.000 áhorfendur
8
Eddu verðlaun
WITH
ENGLIS
H
SUBTIT
LES
AT 5.5
5
Sýnd kl. 1.50 og 3.55.
Roger Ebert
Kvikmyndir.is
DVRadíóX
HL MBL
Það voru 1200 manns
um borð þegar það
týndist fyrir 40 árum..
nú er það komið aftur
til að hrella þig!
Sýnd kl. 11 og 12.50. B.i. 16. Sýnd kl. 10.10. B.i. 16.
KRINGLAN ÁLFABAKKI
Y F I R 6 0 . 0 0 0 G E S T I RRoger Ebert Kvikmyndir.is RadíóXDV HL MBL
Sýnd kl. 4, 8 og 11.30. Vit 482. B.I. 12 ára
E I N N I G M E Ð Í S L E N S K U T A L I
KRINGLAN
Sýnd kl. 2, 5 og 8 með íslensku tali.
“Besta mynd ársins”
SV. MBL
Kvikmyndir.com
1/2HK DV
“Mögnuð upplifun”
FBL
KRINGLAN
Ýmsir
Bumsquad
Castor og Pollox
Bumsquad, safndiskur með íslensku hip-
hopi. Á disknum eiga lög O.N.E., Bæj-
arins bestu, Mezzías MC, Skytturnar,
Tiny, Betarokk, Kritikal Mazz. Afkvæmi
guðanna, Móri, Bent og 7berg, MC Stein-
bítur, Evilmind, Uranuz og Vivid Brain. Ca-
stor og Pollox gefur út.
BUMSQUAD-diskurinn er gef-
inn út í samvinnu við félagsskap
sem kallar sig
Bumsquad og
heldur meðal ann-
ars úr vefsetri
þar sem Bakkus
er blótaður af
miklum móð. Bumsquad-félagar
eiga og fyrsta lagið á disknum og í
því eru góðir sprettir, mjög
groddalegar rímur, en þreytandi
til lengdar, þ.e. það er gaman að
heyra það tvisvar til þrisvar en
síðan ekki meir.
O.N.E. á bráðskemmtilegt lag
með fyndnum texta, undirleikur
vel heppnuð djassskotin sveifla.
Bæjarins bestu standa sig einn-
ig vel, með lag sem einnig er á
disknum Tónlist til að slást við, Í
klúbbnum, mikið stuðlag.
Mezzías MC er með mjög gott
lag, músíkin góð og rímurnar líka,
yrkisefnið einmitt rímnasmíðin
sjálf og hvernig höfundurinn nær
að sigrast á hversdagsleikanum
með rímuna að vopni.
Skyttulagið Ess-Ká-Ufsilon er
frábært lag, það besta sem ég man
eftir að hafa heyrt með Skyttun-
um, rímurnar góðar, flutningur á
þeim framúrskarandi og mjög
skemmtilegt lag undir.
Tiny á líka mjög gott lag, kemur
sterkur inn sem rímnamaður en
höfundur lagsins fær líka plús fyr-
ir mjög skemmtilegar taktlínur.
Betarokk sendi frá sér fyrsta
hiphoplag sitt. Mjög gaman að
heyra Nintendo-sampl sem bassa-
línu.
Kritikal Mazz hafa verið óhemju
duglegir á árinu, sent frá sér
breiðskífu og eru á þremur safn-
skífum. Þeir eiga á disknum lagið
Can’t Stop sem hljómar ágætlega.
Afkvæmi guðanna hamast að
bandarískri heimsvaldastefnu í
laginu Þjóðsöngur, vel studdir af
Kjarra úr Bæjarins bestu. Mjög
flott tónleikalag og virkar líka vel
á plasti.
Móri á gott lag á skífunni, Brot-
inn taktur, sem er eitt það besta af
framúrskarandi plötu hans sem
kom út í haust.
Bent og 7berg eru skrifaðir fyrir
laginu Tímapressa sem þó virðist
vera að öllu leyti eftir þann síð-
arnefnda. Það er góð pæling og
gengur skemmtilega upp, gefur
hlustandanum innsýn í hugarheim
rapparans frá því þeir Bent og
7berg gerðu plötusamning í sumar
og þar til að platan þeirra kom út í
október sl. Lagið undir er mjög
gott, dramatískt og hart.
MC Steinbítur er enn einn nýlið-
inn sem lætur í sér heyra á diskn-
um, á lagið Vopna alda, og kemst
mjög vel frá sínu.
Evilmind er líka góður með lag
sitt Þegar sólin sest, mjög efnileg-
ur, og þær stöllur í Uranuz lofa
góðu þó þær eigi nokkuð í land í
flæðinu. Mér finnst nafnið sem
þær hafa valið sér aftur á móti af-
leitt. Lokalag disksins er svo vel
ort og mergjuð ríma Vivid Brain,
Vocabulary Dictionary, sem hann
flytur af íþrótt en með full miklum
íslenskum hreim þó. Skemmtilega
vírað undirspil gerir mikið fyrir
lagið.
Sem safndiskur er Bumsquad-
diskurinn hreint afbragð,
skemmtileg blanda af nýliðum og
ráðsettari listamönnum, með
áherslu á nýliðana. Hann hefði
orðið enn sterkari ef menn hefðu
beitt skærunum aðeins, sleppt
tveimur eða þremur lögum. Það er
einnig galli hve mikið er af staf-
setningarvillum í bæklingnum.
Árni Matthíasson
Tónlist
Skemmtileg
blanda