Morgunblaðið - 19.01.2003, Síða 2
HEKLUGOS 2000
Heklugosið í febrúar 2000 var
mun hættulegra en áður var talið,
samkvæmt rannsóknum á vegum
Náttúrufræðistofnunar og Norrænu
eldfjallastöðvarinnar. Er talið nauð-
synlegt, í ljósi þessa, að herða á ör-
yggisráðstöfunum við gos úr fjallinu
í framtíðinni.
Íslendingabók á Netið
Íslendingabók, ættfræðigrunnur
Íslenskrar erfðagreiningar, hefur
verið settur á Netið. Þar geta allir
Íslendingar skoðað upplýsingar um
ættir sínar og ættmenni og skoðað
skyldleika sinn við aðra í grunn-
inum. Alls eru um 770 þúsund ein-
staklingar í grunninum.
Mikil neyð í N-Kóreu
Allt að átta milljónir manna
ramba á barmi hungursneyðar í
Norður-Kóreu, að sögn sérlegs
sendifulltrúa Sameinuðu þjóðanna.
Telur hann rangt að gera sárfá-
tækan almenning í Norður-Kóreu að
fórnarlambi pólitískra deilna um
kjarnorkuáætlanir þarlendra stjórn-
valda.
Hernaði í Írak mótmælt
Hugsanlegum hernaði í Írak hefur
verið mótmælt í fjöldamótmælum
víða um heim. Meðal annars í Japan,
Belgíu, Þýskalandi, Bandaríkjunum
og Nýja-Sjálandi. Þá hafa hérlendir
friðarsinnar einnig mótmælt.
Slitgigt í fingrum tengist
hjartasjúkdómum
Slitgigt í fingrum getur verið
merki um yfirvofandi hjarta-
sjúkdóma, sérstaklega meðal karla,
samkvæmt nýrri rannsókn. Hand-
arslitgigt er algeng á Íslandi og er
sjúkdómurinn ættgengur.
Sunnudagur
19. janúar 2003
atvinnatilboðútboðfundirtilsölutilleigutilkynningarkennslahúsnæðiþjónustauppboð
mbl.is/atvinna Gestir í vikunni9.068 Innlit 18.653 Flettingar 86..732 Heimild: Samræmd vefmælin
Störf í grunnskólum
Reykjavíkur
Engjaskóli, sími 510 1300
Starfsmaður í nemendaeldhús, 75-100% starf.
Fellaskóli, sími 557 3800
Yfirmaður nemendaeldhúss.
Klébergsskóli, sími 566 6083
Kennsla í upplýsinga- og tæknimennt og í nátt-
úrufræði, hlutastarf.
Korpuskóli, símar 525 0600 og 864 0613
Starfsmaður í skóladagvist, 50% starf.
Upplýsingar veita skólastjóri og aðstoðarskóla-
stjóri viðkomandi skóla.
Umsóknir ber að senda til skóla.
Laun skv. kjarasamningum Reykjavíkurborgar
við viðkomandi stéttarfélög.
Nánari upplýsingar um laus störf og grunn-
skóla Reykjavíkur er að finna á netinu undir
www.grunnskolar.is .
Ferðaskrifstofustarf
innanlandsdeild
Óskað er eftir 2 starfsmönnum í innanlands-
deild í tímabundið starf 1. febrúar—30. septem-
ber.
Hæfniskröfur:
Mikill áhugi á starfinu, dugnaður og stund-
vísi.
Tungumálakunnátta, bæði í rituðu og töluðu
máli: enska auk eins af eftirfarandi málum:
þýska, spænska, skandinavíska eða
hollenska.
Í boði er líflegt starf í góðum hópi af hressu
fólki í ört vaxandi fyrirtæki. Skriflegum um-
sóknum með ljósmynd skal skila til Terra Nova
(Þóra Matthildur Þórðardóttir), fyrir 24. janúar
2003.
Terra Nova-Sól,
Stangarhylur 3a,
110 Reykjavík,
s. 591 9000, fax 591 9001,
thoram@terranova.is .
Matreiðslumeistari
Hafið Bláa ehf. Nýr veitingarstaður við ósa
Ölfusár óskar eftir að ráða matreiðslumeistara.
Þarf að geta hafið störf í apríl. Áhugasamir
sendið upplýsingar á hraun@islandia.is eða
Hafið Bláa ehf., pósthólf 12, 815 Þorlákshöfn.
Sölumaður fasteigna
Öflug og vaxandi fasteignasala á höfuðborgar-
svæðinu óskar eftir að ráða sölumann til starfa
strax. Vegna mikilla umsvifa að undanförnu
er þörf á að bæta við sig góðum og hæfileika-
ríkum sölumönnum. Ef þú villt vinna sjálfstætt
á líflegum vinnustað í krefjandi verkefnum er
þetta starfið fyrir þig.
Umsóknum, starfsferilskrá og meðmælum skal
skilað til auglýsingadeilar Mbl. eða í box@mbl.is,
merktar: „Ferskur vindur — 8373“.
Sviðsmaður
Starfsmaður óskast til starfa á Stóra
svið Þjóðleikhússins.
Um er að ræða vaktavinnu.
Laun fara eftir kjarasamningi SFR við ríkissjóð.
Umsóknir, með upplýsingum um menntun
og fyrri störf, þurfa að berast skrifstofu Þjóð-
leikhússins, Lindargötu 7, fyrir 27. janúar nk.
Sölufólk óskast!
AVON snyrtivörur
Í meira en 110 ár hefur AVON selt vörur sínar
um allan heim. AVON leggur höfuðáherslu
á vörugæði og þjónustu við viðskiptavinina.
AVON leitar að sölumönnum um allt land.
Há sölulaun í boði, námskeið og þjálfun.
Hafðu samband og við veitum þér upplýsingar
ásamt því að senda þér nýja sölubæklinginn.
AVON umboðið,
Faxafeni 12, 108 Reykjavík,
sími 577 2150 — bréfsími 577 2152.
www.avon.is — avon@avon.is
Toppsölumenn óskast!
til að kynna og selja
geysivinsæla öryggisvöru.
Allar nánari uppl. gefur Sverrir í síma 661 7000.
Dorrit
Moussaieff
Sunnudagur
19. janúar 2003
Morgunblaðið/RAX
ferðalögPáskaferðir á lægra verðibörnLíkaminn – algjört furðuverk!bíóNói albínói
Sælkerar á sunnudegi
Jólahald á rússneska vísu
Zakuski-hefðin
er tengd hinni
miklu gestrisni
Rússa.
Prentsmiðja
Morgunblaðsins
Yf ir l i t
FRÉTTIR
2 SUNNUDAGUR 19. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Í dag
Sigmund 8 Hugvekja 41
Listir 24/27 Myndasögur 42
Af listum 24 Bréf 42
Birna Anna 24 Dagbók 44/45
Forystugrein 28 Krossgáta 46
Reykjavíkurbréf 28 Leikhús 48
Skoðun 30/31 Fólk 48/53
Umræðan 32/33 Bíó 50/53
Minningar 36/39 Sjónvarp 54
Þjónusta 40 Veður 55
* * *
Kynningar - Blaðinu í dag fylgja aug-
lýsingablöðin Ferðaáætlun 2003 frá
Útivist og Páskaferðir frá Úrvali-Út-
sýn. Blöðunum er dreift um allt land.
SLITGIGT í fingrum getur verið merki um yf-
irvofandi hjartasjúkdóma, sérstaklega meðal
karla, samkvæmt nýrri rannsókn lækna við
Kuopio-háskólann í Finnlandi. Handarslitgigt er
útbreidd á Íslandi og hefur verið sýnt fram á í
rannsóknum að sjúkdómurinn er ættgengur.
Finnska rannsóknin stóð yfir í 30 ár og náði
til 7.000 manna. Greint er frá niðurstöðum vís-
indamannanna á fréttavef BBC og kemur þar
fram að fjórir af hverjum tíu í hópnum þjáðust
af slitgigt í fingrum og er eldra fólk og fólk sem
stríðir við offitu mun líklegra en aðrir til að
vera með handarslitgigt. Árið 1994 voru 894 ein-
staklingar sem rannsóknin náði til látnir og skv.
niðurstöðum hennar kom í ljós að karlar sem
þjáðst höfðu af slitgigt í einum eða fleiri fingr-
um voru 40% líklegri en aðrir til að deyja af
völdum hjartasjúkdóma. Mun veikari tengsl eru
hins vegar á milli handargigtar og hjartasjúk-
dóma meðal kvenna þar sem í ljós kom að líkur
kvenna á að deyja af völdum hjartasjúkdóma
eru 23% meiri en ella ef þær eru með slitgigt í
tveimur eða fleiri fingrum.
Finnsku læknarnir hafa ekki getað skýrt hvað
veldur þessum mun á milli kynjanna eða fundið
skýringar á því að slitgigt í fingrum kann að
auka líkur á hjartasjúkdómum síðar á lífsleið-
inni.
Á eftir að vekja mikla athygli
Helgi Jónsson gigtarlæknir hefur rannsakað
erfðir handarslitgigtar hér á landi um árabil.
Hann segir þessa niðurstöðu finnsku rannsókn-
arinnar mjög athyglisverða og algjöra nýjung í
læknisfræðinni, sem eigi eftir að vekja verulega
athygli. Eflaust eigi frekari rannsóknir eftir að
fara fram en enginn vafi leiki á að þessar nið-
urstöður geti verið mjög þýðingarmiklar.
Komið hafa fram hugmyndir um að tengsl
kunni að vera á milli ákveðinnar tegundar slit-
gigtar og blóðfitu en ekki hefur þó tekist að
sýna fram á það í rannsóknum sem fram hafa
farið hér á landi og víðar í Evrópu, að sögn
Helga.
„Þetta er tenging sem ég hef ekki heyrt um
áður og er bæði athyglisverð og mjög áhuga-
verð,“ segir Guðmundur Þorgeirsson, sérfræð-
ingur í hjarta- og lyflækningum. Að sögn hans
er háskólinn í Kuopio mjög virtur í faraldsfræði
hjarta- og æðasjúkdóma og fyllsta ástæða til að
taka mikið mark á rannsóknarniðurstöðum sér-
fræðinga við þann háskóla.
Handargigt algeng á Íslandi
Guðmundur segir erfitt að geta sér til um
hverskonar tengsl kunna að vera á milli hand-
arslitgigtar og hjartasjúkdóma, en ljóst sé að
handargigt liggi mjög í ættum hér á landi.
„Menn eru alltaf að átta sig betur á því að
kransæðasjúkdómar eru bólgusjúkdómar að
hluta til, þar sem bólguþættir í æðakerfinu
skipta miklu máli og slitgigt í höndum er líka
bólgusjúkdómur,“ segir Guðmundur. Hann segir
spurður um þýðingu þessara upplýsinga að öll
þekking á áhættuþáttum sé mjög mikilvæg svo
hægt sé að bregðast við yfirvofandi sjúkdómum.
Slitgigt í fingrum bendir til
yfirvofandi hjartasjúkdóma
Áhugaverð og þýð-
ingarmikil niður-
staða að mati lækna
SENDINEFND íslenskra embætt-
ismanna hefur verið kölluð fyrir til
fundar í Genf í Sviss í lok mánaðar-
ins hjá sérstakri nefnd Sameinuðu
þjóðanna um réttindi barna. Nefndin
heldur reglulega fundi sem þessa til
að fylgjast með framkvæmd Barna-
sáttmála Sameinuðu þjóðanna en
málefni Íslands voru síðast tekin fyr-
ir í ársbyrjun 1996.
Nefndin hefur haft til umfjöllunar
skýrslu sem tekin var saman fyrir
tveimur árum af Hrefnu Friðriks-
dóttur, lögfræðingi Barnaverndar-
stofu, um hvernig Ísland hefur upp-
fyllt ákvæði Barnasáttmálans.
Einnig hafði nefndin til umfjöllunar
umsögn samtakanna Barnaheilla.
Hrefna er í sendinefnd Íslands
ásamt Rögnu Árnadóttur, skrif-
stofustjóra í dómsmálaráðuneytinu,
Ragnhildi Haraldsdóttur, skrifstofu-
stjóra í menntamálaráðuneytinu, og
Braga Guðbrandssyni, forstjóra
Barnaverndarstofu. Líklegt er að
fulltrúi menntamálaráðuneytisins
fari einnig til Genfar.
Þar munu embættismennirnir
sitja fyrir svörum um málefni sem
nefnd Sameinuðu þjóðanna vill fá
frekari upplýsingar um. Að því loknu
fá íslensk stjórnvöld mat nefndar-
innar, m.a. með tilmælum um hvern-
ig betur megi hlúa að börnum hér á
landi, líkt og gert var árið 1996 þegar
íslensk sendinefnd hafði farið til
Genfar í sömu erindagjörðum.
Að sögn Rögnu Árnadóttur þarf
sendinefndin að svara fjölmörgum
spurningum um réttindi og almenn-
an aðbúnað íslenskra barna og ung-
linga. Snúa þær m.a. að réttindum
barna til að tjá sig, meðferðarúrræð-
um, barnaverndarmálum, misnotkun
fíkniefna, einelti, ofbeldi og hvernig
staðið er að heilbrigði barna.
Einnig á að spyrja um málefni eins
og brottfall úr skóla, fjölskylduum-
hverfi, aðgang að barnaklámi og
-vændi og hvernig búið er að börnum
erlendra ríkisborgara og nýbúa.
Sendinefnd svarar um
stöðu íslenskra barna
Nefnd Sameinuðu þjóðanna um réttindi barna
MUN færri atvinnuleyfi til útlend-
inga voru gefin út á síðasta ári en
árið á undan. Samkvæmt tölum frá
Vinnumálastofnun voru 502 tíma-
bundin atvinnuleyfi gefin út í fyrra,
en 1.401 árið 2001. Samdrátturinn
er enn meiri ef horft er til ársins
2000, en þá voru 2.322 ný leyfi gefin
út.
Örlítið meira var hins vegar um
að tímabundin leyfi væru framlengd,
en þau voru 1.796 í fyrra, en 1.714
árið á undan. Árið 2000 voru 1.143
framlengd atvinnuleyfi gefin út.
Ef litið er á heildartölur um at-
vinnuleyfi, að meðtöldum svokölluð-
um óbundnum atvinnuleyfum,
námsmannaleyfum og fleiru, þá
fækkaði þeim um 868 milli ára. Í
fyrra voru 3.637 leyfi afgreidd, 4.505
árið 2001 og 4.020 árið 2000.
Mikil fækk-
un atvinnu-
leyfa út-
lendinga
BRÁÐGER börn sýndu í Há-
skólabíói í gær afrakstur nám-
skeiða sem þau sátu við Háskóla
Íslands á haustönn. Þetta er í
þriðja sinn sem námskeið af
þessu tagi eru haldin. 230 börn
úr grunnskólum Reykjavíkur og
nágrennis tóku þátt í námskeið-
unum sem heppnuðust í alla staði
vel.
Mörg áhugaverð verkefni voru
kynnt og einnig fór fram kapp-
akstur rafknúinna farartækja.
Nýjar myndir af hafsbotni voru
sýndar sem börn á námskeiði um
hafsbotninn tóku þátt í að gera.
Börnin heimsóttu Hitaveitu Suð-
urnesja á Svartsengi og skoðuðu
Reykjanesskaga og jarð-
hitasvæðin á honum. Þau skoðuðu
einnig „miðlínuna“ þar sem jafn-
an er sagt að tvær heimsálfur,
Evrópa og Ameríka, mætist.
Börnin fræddust einnig um veð-
uráhrif fellibylsins El Nino. „Það
er margt sem við vissum ekki,
eins og til dæmis hvernig El Nino
hefur áhrif á síldina. Maður fer
að spá meira í hvaða áhrif veðrið
hefur á hafstraumana, ekki bara
yfirborðið,“ sögðu Guðrún Ósk-
arsdóttir og Arna Steinunn
Tryggvadóttir úr Kópavogsskóla.
Bráðger börn fræð-
ast um hafsbotninn
Morgunblaðið/Kristinn
Bráðger börn sem tóku þátt í námskeiði um hafeðlis- og jarðeðlisfræði lærðu margt skemmtilegt. Frá vinstri Vign-
ir Már Lýðsson, Sigríður Sæunn Sigurðardóttir, Arna Steinunn Tryggvadóttir og Guðrún Óskarsdóttir. Fremri
röð: Guðrún Dögg Sveinbjörnsdóttir, Sólrún Una Þorláksdóttir og Fríða Björk Gunnarsdóttir.
FUNDUR kjördæmisráðs Sjálfstæð-
isflokksins í Norðvesturkjördæmi
verður haldinn í Búðardal í dag,
sunnudag, þar sem ákveða á endan-
legan framboðslista vegna komandi
þingkosninga. Fyrir fundinum liggur
tillaga kjörnefndar um skipan efstu
sæta, þar sem sú breyting hefur orðið
að Adolf H. Berndsen á Skagaströnd
skipi 5. sæti í stað Vilhjálms Egils-
sonar en Jóhanna Pálmadóttir frá
Akri verði áfram í 6. sæti. Adolf tók
ekki þátt í prófkjörinu.
NV-kjördæmi
Ákveða á
lista sjálf-
stæðismanna
MAÐUR vopnaður haglabyssu
skaut af stuttu færi á útidyrahurð
íbúðarhúss við Hvannhólma í
Kópavogi í fyrrinótt. Þegar lög-
reglu bar að garði var hinn vopn-
aði á bak og burt og ekki er vitað
hver var að verki.
Hurðin er illa farin eftir skotið
en engan sakaði. Lögreglan hvetur
fólk til að hafa samband við lög-
reglu ef það hefur orðið vart við
grunsamlegar mannaferðir í
Hvannhólma eða nærliggjandi göt-
um í fyrrinótt. Málið er í rann-
sókn.
Skaut á
útidyrahurð
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦