Morgunblaðið - 19.01.2003, Page 39
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. JANÚAR 2003 39
til ánægjuauka
er vináttan
dýrmætust.
(Epikuros.)
Fyrir hartnær 40 árum kynnt-
umst við Þórarni þegar við Guðlaug,
tvær ungar hjúkrunarkonur, unnum
saman á sjúkrahúsinu Sólheimum.
Þrátt fyrir að Þórarinn væri e.t.v.
seintekinn tókst fljótlega mikil vin-
átta með okkur hjónum. Oft höfum
við sagt að við þau kynni hafi ham-
ingjan verið okkur hliðholl.
Þórarinn og Guðlaug voru barn-
góð og komust strax í gott samband
við dætur okkar, þá ungar að árum,
en þeim fannst alltaf sérstök hátíð
þegar Gulla og Þórarinn komu í
heimsókn. Sömu sögu hafa barna-
börnin að segja á seinni árum. Ekki
voru síðri ánægjustundir okkar á
heimili þeirra þegar þau dekruðu
við gesti sína.
Einnig minnumst við margra
skemmtilegra ferðalaga bæði innan-
lands og utan.
Einkennilegt var að oft þegar
Þórarinn átti stórafmæli á erlendri
grund, opnuðust flóðgáttir himins
með tilheyrandi þrumum og elding-
um. Var um kennt nafntengslum
hans við þrumuguðinn Þór.
Þegar við fluttum í Ofanleitið
hugsuðum við okkur gott til glóð-
arinnar að nú væri stutt að ganga á
milli, en grínuðumst líka með að
Ingibjörg Sólrún ætti að byggja brú
yfir Miklubraut til að stytta okkur
leið. Brúin kom loksins, en þá var
Þórarinn orðinn svo veikur að aldrei
gátum við mæst á henni miðri eins
og til stóð. Hver veit nema við mæt-
umst seinna á gullinni brú í öðrum
heimi.
Við þökkum Þórarni áratuga vin-
áttu og tryggð og biðjum honum
Guðsblessunar.
Elsku Gulla, síðastliðið ár hefur
reynt mikið á þig, þá hefur enn bet-
ur komið í ljós þinn mikli sálarstyrk-
ur og þrek, ekki síst síðustu sólar-
hringana sem þú vaktir yfir Þórarni
dag og nótt. Á erfiðum tímum er
dýrmætt að eiga góðar minningar
að orna sér við því minning góðs ást-
vinar skýrist og skín bjart um
ókomna tíð.
Við, öll fjölskyldan, sendum þér
okkar innilegustu samúðarkveðjur
og biðjum góðan Guð að styrkja þig
og hugga.
Stella og Hannes.
Fyrir rúmum tuttugu árum urðu
miklar breytingar í mínu lífi. Bæði
var ég að eignast lítið systkini og
flytja á nýjan stað með foreldrum
mínum. Þetta voru allavega miklar
breytingar í augum átta ára gam-
allar stúlku. Nýja heimilið var á
Háaleitisbrautinni og var íbúðin
beint á móti íbúð Gullu og Þórarins.
Betri nágranna var ekki hægt að
hugsa sér og varð ég fljótt heima-
gangur hjáþeim. Gulla og Þórarinn
voru einstaklega barngóð og skein
góðmennskan úr augum þeirra. Það
kom því ekki á óvart að litla systir
mín sótti einnig í þau þegar hún fór
að hafa vit á.
Gulla og Þórarinn voru alla tíð
mjög samrýnd hjón og því synd að
þau hafi ekki fengið að njóta hvort
annars lengur.
Elsku Þórarinn, við systurnar
viljum þakka þér fyrir að hafa orðið
þess heiðurs aðnjótandi að kynnast
þér og vitum að þú munt fylgjast
með Gullu þinni þar sem þú ert.
Elsku Gulla, missir þinn er mikill og
vonum við að guð veiti þér styrk í
sorg þinni.
Elísabet og Gerður.
Afmælis- og minningargreinum má skila í
tölvupósti, netfangið er minning@mbl.is,
svar er sent sjálfkrafa um leið og grein hef-
ur borist. Ef greinin er á disklingi þarf út-
prentun að fylgja. Nauðsynlegt er að síma-
númer höfundar og/eða sendanda
(vinnusími og heimasími) fylgi með. Þar sem
pláss er takmarkað getur þurft að fresta
birtingu greina, enda þótt þær berist innan
hins tiltekna frests. Nánari upplýsingar eru
á mbl.is. Um hvern látinn einstakling birtist
formáli og ein aðalgrein af hæfilegri lengd á
útfarardegi, en aðrar greinar skulu ekki
vera lengri en 300 orð, u.þ.b. 1.500 slög (með
bilum) eða um 50 línur í blaðinu (17 dálk-
sentimetrar). Tilvitnanir í sálma eða ljóð
takmarkast við eitt til þrjú erindi. Einnig er
hægt að senda örstutta kveðju, HINSTU
KVEÐJU, 5–15 línur, og votta virðingu án
þess að það sé gert með langri grein. Grein-
arhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn
sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
Innilegar þakkir til allra þeirra fjölmörgu, sem
sýndu okkur samúð, hlýhug og styrk við andlát
og útför okkar ástkæra eiginmanns, föður,
tengdaföður, sonar, tengdasonar, bróður og
mágs,
JÓNS GUNNARS ÞÓRMUNDSSONAR
múrarameistara,
Borgarholtsbraut 46,
Kópavogi.
Jóhanna S. Hannesdóttir,
Hannes Sigurbjörn Jónsson, Bergþóra Sigurjónsdóttir,
Halldór Gunnar Jónsson, Auður M. Guðmundsdóttir,
Heimir Snær Jónsson,
Þórmundur Hjálmtýsson, Hólmfríður Jónsdóttir,
Hannes Halldórsson, María Steinþórsdóttir,
Óskar Þórmundsson, Helga Ragnarsdóttir,
Sigurjón Þórmundsson, Ragnheiður Georgsdóttir,
Þórður Þórmundsson, Ingibjörg Harðardóttir,
Sóley Þórmundsdóttir, Gunnar Magnússon,
Fanney Þórmundsdóttir, Hilmar Jóhannesson,
Sigurbjörn Þórmundsson, Anna Guðný Friðleifsdóttir,
Bjarni Gaukur Þórmundsson, Sóley Ægisdóttir,
Þorbjörg Hannesdóttir, Guðmundur Magnússon,
Gylfi Sigurðsson, Anna Rósa Traustadóttir
og fjölskyldur.
Ástkær móðir mín, amma og langamma,
AÐALHEIÐUR ÁRNADÓTTIR,
Hjallabraut 5,
Hafnarfirði,
verður jarðsungin frá Víðistaðakirkju þriðju-
daginn 21. janúar kl. 13.30.
Jónhildur Guðmundsdóttir,
Guðmundur Helgi Önundarson, Íris Ósk Kristjánsdóttir,
Aðalheiður Rut Önundardóttir, Örvar Karlsson,
Sverrir Stefán Sigurjónsson
og langömmubörn.
Innilegar þakkir sendum við öllum, er sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
móður minnar, tengdamóður, ömmu og lang-
ömmu,
INGIBJARGAR SIGURGEIRSDÓTTUR,
Álfaskeiði 72,
Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki hjarta-
deildar, Landspítala við Hringbraut fyrir frábæra umönnun í veikindum
hennar.
Súsanna Kr. Stefánsdóttir, Páll Ólason,
Þuríður Pálsdóttir, Knútur Kristinsson,
Súsanna Kr. Knútsdóttir,
Hólmfríður Knútsdóttir,
Páll Óli Knútsson.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
MIKAEL GABRIELSSON
Mijo Benkovic
leigubílstjóri,
verður jarðsunginn frá Kristskirkju, Landakoti,
þriðjudaginn 21. janúar kl. 14.00.
Sigríður Ósk Guðmundsdóttir,
Anna Benkovic Mikaelsdóttir, Paula van der Ham,
Stefán Benkovic Mikaelsson, Hildur Björg Hafstein,
Elísabet Benkovic Mikaelsdóttir, Ólafur H. Jónsson
og barnabörn.
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför ástkærs föður okkar, tengdaföður, afa og
langafa,
ÁRNA GESTSSONAR,
Efstaleiti 14,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki líknar-
deildar LSH í Kópavogi.
Jónína Árnadóttir, Már Jónsson,
Gestur Árnason, Judith Anna Hampshire,
Börkur Árnason, Lísa-Lotta Reynis Andersen,
Ásta Árnadóttir, Jón Grétar Margeirsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
KRISTBERG MAGNÚSSON
vélfræðingur,
Gullsmára 7,
Kópavogi,
verður jarðsunginn frá Digraneskirkju miðviku-
daginn 22. janúar kl. 15.00.
Ragna G. Ágústsdóttir,
Elísabet Kristbergsdóttir, Guðmundur Hjaltason,
Halldóra Kristbergsdóttir,
Magnús Kristbergsson, Helena Árnadóttir Bjarman,
barnabörn og langafabarn.
Systir mín og móðursystir okkar,
BIRNA GUÐMUNDSDÓTTIR,
áður til heimilis
á Aflagranda 23,
Reykjavík,
lést á elli- og hjúkrunarheimilinu Grund mið-
vikudaginn 15. janúar.
Útförin fer fram frá Fossvogskapellu miðviku-
daginn 22. janúar kl. 13.30.
Helga Guðmundsdóttir,
Anna Laufey Þórhallsdóttir, Lúðvík Lúðvíksson,
Guðrún Þorbjarnardóttir, Guðmundur Sigurðsson,
Sigríður Þorbjarnardóttir,
Guðbjörg Þorbjarnardóttir, Jónas Matthíasson,
Laufey Þorbjarnardóttir, Jón Sigurðsson,
Njáll Þorbjörnsson, Jóna Jónsdóttir,
Guðmundur Þorbjörnsson, Auðbjörg Ingimundardóttir.
Okkar ástkæra,
BIRNA HARALDS NJÁLSDÓTTIR YOUNG,
lést á heimili sínu föstudaginn 3. janúar.
Útför hennar fór fram í heimabæ hennar,
Lindsay, Ontario, Kanada, miðvikudaginn
8. janúar.
Aron Rúnar Young, Jennifer Boksman,
Neil Young,
Helen Young,
Rúnar Lake Lorette,
Ingigerður Karlsdóttir, Njáll Haraldsson,
Guðrún, Jónína, Tinna, Haraldur, Þórunn
og aðrir aðstandendur.
Maðurinn minn,
HJÁLMAR JÚLÍUSSON,
Fellsmúla 12,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Grensáskirkju mánu-
daginn 20. janúar kl. 15.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Guðrún Guðjónsdóttir.
Ástkær móðir mín,
GUÐRÚN JÓNSDÓTTIR,
Melahvarfi 6,
Kópavogi,
sem andaðist á hjúkrunarheimilinu Skjóli laug-
ardaginn 11. janúar sl., verður jarðsungin frá
Fríkirkjunni í Reykjavík þriðjudaginn 21. janúar
kl. 13.30.
Fyrir hönd aðstandenda,
Auður Pedersen.