Morgunblaðið - 19.01.2003, Page 4

Morgunblaðið - 19.01.2003, Page 4
FRÉTTIR 4 SUNNUDAGUR 19. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ ÍSLENDINGABÓK, eini ætt-fræðigrunnurinn í heiminumsem nær til heillar þjóðar, varsett á Netið í gær. Íslend- ingabók, sem er ættfræðigrunnur Íslenskrar erfðagreininar, er opin öllum Íslendingum endurgjalds- laust, en þar geta notendur skoðað upplýsingar um sjálfa sig, ættir sín- ar og ættingja fram í þriðja lið og rakið ættir sínar saman við aðra ein- staklinga sem skráðir eru í grunn- inn. Tómas Ingi Olrich mennta- málaráðherra lauk Íslendingabók- inni upp á blaðamannafundi í Þjóð- menningarhúsi í gær og komst m.a. að því að hann er kominn í beinan legg af Jóni Arasyni biskup í tólfta lið og að hann er sjömenningur við Kára Stefánsson, forstjóra Íslenskr- ar erfðagreiningar. Í Íslendingabók er að finna upp- lýsingar um meira en 95% allra Ís- lendinga sem uppi hafa verið frá því fyrsta manntalið var gert árið 1703. Í heildina inniheldur bókin upplýs- ingar um 700.000 einstaklinga, sennilega meirihluta þeirra Íslend- inga sem búið hafa á Íslandi frá landnámi, samkvæmt upplýsingum frá ÍE. Langflestir, eða 77% allra sem skráðir eru í grunninn, voru uppi á síðustu tveimur öldum. Fjöldi skráðra einstaklinga sem fæddir eru á 20. öld er nú um 366.000 og eru tengingar við báða foreldra í 95% til- vika. Vefslóðin að Íslendingabók er www.islendingabok.is. Hver ein- staklingur hefur aðgang að fram- ættum sínum og upplýsingum um sjálfan sig, ættingja sína aftur í þriðja lið og alla einstaklinga sem fæddir eru fyrir árið 1700. Til að fá aðgang að Íslendingabók þarf að sækja um notandanafn og lykilorð með því að skrá inn kennitölu á upp- hafssíðunni. Verða notendanafn og lykilorð þá send á það heimilisfang sem notandi er skráður á í þjóðskrá. Þetta er greiðsla skuldar okkar við samfélagið Kári Stefánsson, forstjóri ÍE, seg- ir mjög spennandi að setja Íslend- ingabók á Netið. Hann vonist til að það verði til að auka ættfræðiáhuga Íslendinga, sem þó er ærinn fyrir. Í raun hafi ættfræðin, sem á yfirborð- inu líti út fyrir að vera afskaplega gamaldags, gjörbreyst. „Maður hef- ur á tilfinningunni að þetta sé að- allega stundað af gömlum mönnum sem hafa orðið út undan í samfélag- inu og gera lítið annað en að rækta fótasveppi og kíkja á hver er skyldur öðrum. Við höfum raunverulega breytt þessu yfir í tiltölulega spenn- andi grein sem hefur gjörbreytta nálgun sem við og aðrir hafa í rann- sóknum, það er á erfðafræði al- gengra sjúkdóma,“ segir Kári. Það hafi, að hans sögn, verið mögulegt að nota ættfræðina til rannsókna þar sem fólk hafi í gegn- um aldirnar skemmt sér við ætt- fræðirannsóknir. „Okkur finnst eins og okkur beri skylda til að skila þessu hráefni aftur til þessa fólks. Til þeirra sem eru að vinna við þetta í dag, á þessu nútímaformi. Þetta er greiðsla skuldar okkar við sam- félagið,“ bætir hann við. „Nú erum við að gefa fólki aðgang að þessu þannig að það á að geta skemmt sér við að setja saman sína fjölskyldu langt aftur í tímann.“ Kári segir að gerð Íslendinga- bókar hafi verið mjög kostnaðarsöm. „Við settum í þetta geysilega mikið fé, ótrúlega mörg mannár hafa farið í þetta. Þetta hefur verið erfitt verk- efni og tímafrekt, en vel þess virði.“ Upphaf ættfræðigrunnsins má rekja til ársins 1988 þegar Friðrik Skúla- son hóf að skrá ættfræðiupplýsingar í forritið Espólín. ÍE og Friðrik hófu samstarf um þessar skráningar vor- ið 1997, m.a. svo mögulegt væri að nýta ættfræðiupplýsingarnar við erfðafræðirannsóknir. Friðrik sagði að með Íslendingabók væri draumur sem ættfræðingar hafi átt sér í mörg ár, jafnvel árhundruð, loks orðinn að veruleika. Stífir skilmálar um persónuvernd Kári segir að ástæðan fyrir því að fólk geti aðeins skoðað upplýsingar um eigin ættir og um fólk sem fædd- ist fyrir 1700 sé sú að farið sé að stíf- ustu skilmálum um persónuvernd. Hefði hann viljað hafa grunninn mun opnari. „Menn hafa stundað ættfræði á þann veg að skoða alla ís- lensku þjóðina og hvernig hún teng- ist saman. Persónulega tel ég að það eigi sem sagt [með því að hafa að- gang að upplýsingum takmarkaðan] að gefa mönnum tækifæri til að skammast sín fyrir ættir sínar. Ég hefði viljað hafa þetta miklu opnara, en ég ræð engu hér,“ segir Kári og kímir. Bætir hann við að ef fara ætti eftir þessum ströngu skilmálum í út- gáfumálum þyrfti að klippa út fyrsta kaflann í flestum Íslendingasögum sem byrji á því að rekja ættir þeirra sem fjallað er um. „Þetta var tillaga frá lögfræðideild fyrirtækisins sem eyðir mestum hluta síns tíma í að koma með andstyggilegar tillögur.“ Helstu heimildir Íslendingabókar eru þjóðskrá, kirkjubækur, manntöl og Landnáma og Íslendingasögur þegar skyggnst er lengra aftur í tím- ann. Í upphafi var Íslendingabók kynnt sem aldamótagjöf til Íslend- inga og stóð til að setja grunninn á Netið í lok ársins 2000. „Í upphafi ætluðum við að gera það en síðan var farið í mál við okkur af fólki sem hélt því fram að það ætti ættfræði Íslendinga, að það ætti staðreynd- irnar,“ segir Kári. Það mál hafi síðan verið látið niður falla eftir að sátt náðist í málinu. Segir Kári að töfin hafi að vísu haft það í för með sér að Íslendingabók sé mikið nákvæmari og fullkomnari en hún hefði verið hefði hún verið sett á Netið á þeim tíma sem til stóð. Rangfeðrun í 1,5% tilvika „Þessi ættfræði sem hefur verið til staðar í kirkjubókum er ein hlið af sögu þessarar þjóðar. Þetta er saga litla mannsins í samfélaginu sem ekki er skráð nema í Íslendingasög- unum o.s.frv. Þetta er saga sem er rakin í gegnum tengsl, hvernig mað- ur kemur fram af öðrum manni og svo koll af kolli. Það sem við erum að gera hér er að líta á annan hluta þessarar sögu, líta á hvernig sú saga sem skrifuð er í þær upplýsingar sem búa til mann gera það að verk- um að sumir hafa tilhneigingu til að fá sjúkdóma en ekki aðrir og hvernig aðrir hafa hæfileika til að verjast sjúkdómum,“ segir Kári. Aðspurður segir hann að rann- sóknir sýni að rangfeðrun sé ekki al- geng á Íslandi. ÍE hafi skoðað yfir 80 þúsund Íslendinga og rangfeðrun og mistök á rannsóknarstofu séu samanlagt tilfellið í 1,5% tilvika. Hann segir að sjái fólk rangfærslur í Íslendingabók geti það sent at- hugasemdir til ÍE og þá verði það leiðrétt. Eins geti fólk komið með ábendingar og bætt við upplýsingum þar sem þær vanti. Íslendingabók er móðurgrunnur fyrir dulkóðaða gagnagrunninn sem notaður er við rannsóknir ÍE þannig að leiðrétt- ingar munu einnig nýtast í rann- sóknum fyrirtækisins. „ALLIR eru skyldir sjálfum sér.“ Þessi fullyrðing kemur á tölvuskjáinn þegar nýr not- andi skráir sig inn á vef Ís- lendingabókar. Oft hefur sömuleiðis verið fullyrt að allir Íslendingar séu skyldir og reyndust allir þeir einstakl- ingar sem blaðamaður prófaði að rekja ættir sínar til skyldir honum, þeir fjarskyldustu í ellefta lið. Þannig komst blaðamaður á örstuttum tíma að því að hann er kominn í beinan legg af þeim mætu mönnum Ingólfi Arnarsyni, fyrsta landnáms- manni landsins, í þrítugasta lið, Agli Skallagrímssyni forn- kappa í tuttugusta og þriðja og Jóni Arasyni Skálholts- biskup í fjórtánda lið. Þá á hann sameiginlegan forföður með Davíð Oddssyni forsætisráðherra í áttunda lið, tengist á sama hátt Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur borgar- stjóra í þann sjöunda og Ólafi Ragnari Grímssyni forseta í áttunda lið. Blaðamaður reyndist sexmenningur við Björk Guðmundsdóttur tón- listarmann, var jafnskyldur Eiði Smára Guðjohnsen fót- boltakappa og var fimmmenn- ingur við Kára Stefánsson, forstjóra Íslenskrar erfða- greiningar. Þá reyndist blaða- maður vera sjömenningur maka síns, sem reyndar kom honum ekki á óvart þar sem margir segja mikinn hjónasvip vera með honum og makanum. „Allir eru skyldir sjálfum sér“ Íslendingabók, ættfræðigrunnur Íslenskrar erfðagreiningar, orðin þjóðinni aðgengileg á Netinu Geymir ættir Íslendinga frá Landnámi Morgunblaðið/Kristinn Tómas Ingi Olrich menntamálaráðherra lauk Íslendingabók upp í gær. Kári Stefánsson, forstjóri ÍE, Páll Magnússon upplýsingafulltrúi, Friðrik Skúlason og Þórður Kristjánsson fylgjast með. SAMKVÆMT nýjum reglum um akstursmat, sem getið er um í um- ferðarlögum og reglugerð um öku- skírteini sem tóku gildi í janúar, þurfa ökumenn með bráðabirgða- skírteini framvegis að fara í svokall- að akstursmat áður en þeir fá bráða- birgðaskírteinið endurnýjað eða fá fullnaðarskírteini. Bráðabirgðaskír- teini gildir í tvö ár en þann gildistíma verður nú hægt að stytta. Í tilkynningu frá Umferðarstofu segir að ökumaður geti nú fengið fullnaðarskírteini hafi hann haft bráðabirgðaskírteini samfellt í 12 mánuði og enga punkta fengið á þeim tíma í punktakerfi vegna um- ferðarlagabrota og hafi farið í akst- ursmat. Vilji ökumaður ekki nýta sér heimildina eða fullnægi hann ekki skilyrðum gildir bráðabirgðaskír- teinið þar til það rennur út tveimur árum frá útgáfudegi. Að þeim tíma liðnum fær hann úthlutað fullnaðar- skírteini fullnægi hann áðurnefndum skilyrðum en annars fær hann útgef- ið bráðabirgðaskírteini á ný til tveggja ára. Ökukennari metur aksturshæfni Í tilkynningu frá Umferðarstofu segir enn fremur að ökukennarar annist akstursmat en í því felist að kanna hvort mat ökumanns á eigin aksturshæfni og -háttum og öryggi í umferðinni sé í samræmi við raun- verulega getu. Þá beri ökukennara að fylgjast með akstri ökumanns og skrá niður athugasemdir um atriði sem hann telur jákvæð og neikvæð í akstri hans. Að akstursmati loknu ritar öku- kennari umsögn um hæfni öku- mannsins og mælir annaðhvort með eða gegn því að ökumaður fái fulln- aðarskírteini. Framvegis unnt að fá fullnaðarökuskírteini ári fyrr Ökumenn þurfa framvegis að fara í akstursmat Morgunblaðið/Ómar KJÖRSTJÓRN við kjör vígslubisk- ups Hólastiftis hefur farið yfir þær formlegu tilnefningar um vígslubisk- upsefni sem bárust. Tilnefningar bárust um sr. Döllu Þórðardóttur, prófast í Skagafirði, sr. Jón Aðal- stein Baldvinsson, sendiráðsprest í London, og sr. Kristján Val Ingólfs- son, lektor við HÍ og verkefnisstjóra á Biskupsstofu. Verða nöfn þeirra prentuð á kjörseðla, sem sendir verða út í vikunni. Annars eru allir prestar Þjóðkirkjunnar í kjöri, sam- kvæmt starfsreglum. Til viðbótar hefur sr. Guðni Þór Ólafsson, prófastur í Húnaþingi, gef- ið kost á sér en hann tók þátt í kynn- ingarfundi með kandídötum á Löngumýri í síðustu viku. Í samtali við Morgunblaðið sagðist hann hafa sent öllum bréf sem ættu rétt á að kjósa vígslubiskup, sem eru ríflega 60 manns. Hann sagðist telja það í anda leynilegs kosningaréttar að láta fólk ekki gefa afstöðu sína upp fyrirfram. Til að hljóta tilnefningu þurfti hið minnsta undirskrift 10% atkvæðis- bærra manna, eða frá 6–7 manns. Kjörstjórn hyggst koma aftur saman þegar kjörgögn verða tilbúin og ákveða skilafrest í kjörinu, en sam- kvæmt starfsreglum skal að jafnaði miða við að kosningu sé lokið innan tveggja vikna frá því að kjörgögn eru send út. Samkvæmt þessu ættu úr- slit í kjörinu að liggja fyrir í fyrstu eða annarri viku af febrúar. Hljóti enginn meirihluta greiddra atkvæða þarf að grípa til annarrar umferðar þar sem kosið yrði á milli tveggja efstu úr fyrstu umferð. Nýr vígslu- biskup Hólastiftis verður svo vígður í embætti í sumar. Vígslubiskupskjör í Hólastifti Þrír prestar til- nefndir á kjörseðli

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.