Morgunblaðið - 19.01.2003, Side 8

Morgunblaðið - 19.01.2003, Side 8
Sólarkaffi Ísfirðingafélagsins Rímurnar og rappið mætast VESTFIRÐINGAReru afskaplegaátthagasinnaðir eins og raunar margir hóp- ar Íslendinga. Gott dæmi um slíkt er tilvist Ísfirð- ingafélagsins, sem stofnað var á sínum tíma til að smala saman brottfluttum Ísfirðingum til að drekka kaffi og hitta fyrir aðra sem fóru hvergi. Rifja upp gömlu kynnin, blása í glæður þeirra og halda þeim við. Fasti liðurinn í starfsemi Ísfirðingafélags- ins er Sólarkaffið sem haldið er einu sinni á ári og í forsvari fyrir það er Ólaf- ur Hannibalsson. Hann svaraði nokkrum spurn- ingum Morgunblaðsins um kaffisamkunduna, Ísfirð- ingafélagið, tilurð þess og tilgang. – Segðu okkur fyrst frá Ísfirð- ingafélaginu, smáágrip af sögu þess. „Ísfirðingafélagið er stofnað 1945 og þá sérstaklega í þeim til- gangi að halda upp á Sólarkaffið, gefa þeim brottfluttu kost á að hittast einu sinni á ári og endur- nýja gömul kynni úr leikjum, íþróttum, skólum og starfi. Lengi vel einskorðaðist starfsemin við þetta.“ – Er þetta stór klúbbur sem fer máske vaxandi? „Félagið hefur nú aldrei fjöl- mennt verið, þó náð hæst næstum 1.000 félögum. Núna eru um 800 borgandi félagar og fjölgar frem- ur en hitt.“ – Hver er tilurð og tilefni Sólar- kaffis? „Ísafjörður er umkringdur háum fjallahring. Því njótum við ekki sólar nema tíu mánuði á ári. Snemma myndaðist sú hefð á Ísa- firði að halda upp á það með kaffi og pönnukökum þegar fyrstu sól- argeislarnir náðu niður á Eyrina í fyrstu eða annarri viku þorra.“ – Er vel mætt á Sólarkaffið? „Það getur verið svona upp og ofan, á bilinu 300 til 800 manns. Þetta getur farið svolítið eftir veðri og færð í höfuðborginni og nágrenni. Stundum koma líka stórir hópar að heiman, þegar gott útlit er með flug. Í ár erum við á Hótel Sögu og eftir forsölu að- göngumiða í gær höfum við á til- finningunni að aðsókn verði enn meiri í ár. Miðasalan heldur svo áfram á fimmtudag á skrifstofu fé- lagsins í Bolholti 6.“ – Hvað verður boðið uppá á Sól- arkaffi 2003? „Við höfum alltaf kappkostað að bjóða upp á góð skemmtiatriði og breytum ekki út af venjunni núna. Fyrst má telja Keflvíkinginn og Hólmvíkinginn Gunnar Þórðarson með félögum í Guitar Islancia. Helga Braga verður á léttari nót- unum, kannski fáum við að sjá margfrægan magadans? Og svo verða þarna XXX Rottweiler- hundar og áreiðanlega með enga venjulega hundgá. Veislustjóri verður Heimir Már Pétursson, en Jón A. Bjarnason ljósmyndari mun bregða á glens sem ræðumaður kvöldsins.“ – Hvað gerir Ísfirð- ingafélagið annað en að halda Sól- arkaffi? „Undanfarin ár höfum við kom- ið saman við messu í Áskirkju á vorin, kringum lokadaginn eða krossmessuna og hlýtt á ísfirska guðfræðinga og ísfirskan kirkju- kór og spjallað saman yfir kaffi- sopa á eftir. Sólkveðjuhátíð höld- um við oft á haustin í Hveragerði hjá Braga Ísfirðingi í Eden. Þá eigum við og rekum orlofshúsið Sóltún á Ísafirði. Um fimmtán ára skeið höfum við gefið út veglegt ársrit, Vestanpóstinn, sem er eins- konar fjölskyldualbúm Ísfirðinga og sent ókeypis til félagsmanna.“ – Hvað eru margir „Ísfirðing- ar“ utan Ísafjarðar og að hve miklu leyti standa þeir að félag- inu? „Nú rekurðu mig á gat. Þeir eru áreiðanlega fleiri heldur en íbúar Ísafjarðar í dag. Ísfirðingar hafa ratað víða og ég held ég hafi reyndar hvergi komið í heiminum, þar sem ég hef ekki hitt fyrir Ís- firðinga, einn eða fleiri. Okkur sem löngu erum fluttir brott finnst stundum meiri líkur á að hitta gamla kunningja utan Ísafjarðar heldur en heima.“ – Hversu vel gengur að halda svona félagsskap að yngra fólk- inu? „Mörgu ungu fólki finnst Sólar- kaffið kannski álíka spennandi og að fara á „gömlu dansana“. Á Ísa- firði eins og svo víða annars staðar hefur það hins vegar tíðkast alla tíð að kynslóðirnar hafa getað skemmt sér saman á ýmsum há- tíðum. Við erum að vona að XXX Rottweilerhundarnir gefi unga fólkinu til kynna að við viljum hafa það með okkur við þessi tækifæri og það sjái og finni að margumrætt kynslóð- arbil er ekkert óbrúan- legt ginnungagap held- ur þvert á móti stund þar sem rímurnar og rappið geta mæst.“ – Er þetta félag líklegt til að lifa langt inn í nýju öldina? „Svo lengi sem Ísfirðingar utan Ísafjarðar hafa áhuga á að hittast og rifja upp hina gömlu góðu daga þurfa þeir til þess einhvern form- legan vettvang og til þess er þetta félag. Því segjum við: Ísfirðingar allra landa sameinist á Sólarkaffi – nú 2003!“ Ólafur Hannibalsson  Ólafur Hannibalsson er fædd- ur á Ísafirði 6. nóvember 1935. Varð stúdent við Menntaskólann á Laugarvatni 1956. Stundaði nám við Háskólann í Delawere og Hagfræðiháskólann í Prega á árunum 1957–62. Var nokkur ár hjá Loftleiðum í New York, rit- stjóri Frjálsrar þjóðar, starfs- maður Hafrannsóknastofnunar, skriftsofustjóri ASÍ, bóndi í Sel- árdal í 10 ár, blaðamaður á Helg- arpóstinum og Heimsmynd, rit- stjóri og höfundur Sögu Sölumiðstöðvar hraðfrystihús- anna og þýðandi Ævisögu þorsksins. Ólafur á fimm börn. Kona hans er Guðrún Péturs- dóttir. …að kynslóð- irnar hafa get- að skemmt sér saman FRÉTTIR 8 SUNNUDAGUR 19. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ Komdu þér bara undir pilsfaldinn, Össi minn, ég skal sjá um kauða. BÓNUS færði í gær Barnaspítala Hringsins tækjabúnað að gjöf að verðmæti 10-12 milljónir króna. Um er að ræða þrjár stjórnstöðvar fyrir lífsmarkavaka. Stjórnstöðvar tækj- anna eru tengdar tækjum til að vaka yfir hjartslætti, öndun, súrefn- ismettun og blóðþrýstingi barna sem liggja á Barnaspítalanum. Áætlað er að nýi Barnaspítali Hringsins verði tekinn í notkun í eft- ir rúma viku og munu tækin verða sett upp þar á næstu vikum. Jóhannes Jónsson afhenti tækin í gær fyrir hönd Bónuss en fyrirtækið hefur á undanförnum árum gefið Barnaspítalanum gjafir að verð- mæti um 40 milljóna króna. „Við erum mjög ánægð með stuðning Jóhannesar í Bónus og við- skiptavina hans. Stuðningur hans skiptir verulegu máli í meðhöndlun veikra barna. Mikið er talað um verð þessara tækja, en verðmæti þeirra er miklu meira,“ sagði Ásgeir Haraldsson, prófessor í barnalækn- ingum og forstöðumaður fræðasviðs á Barnaspítala Hringsins. „Tækin létta verulega öll störf við að fylgj- ast með alvarlega veikum börnum og eykur öryggi og eftirlit. Auk þess er þarna tæki til þess að taka hjarta- línurit og tæki til að nota við endur- lífganir sem við vonumst til að nota sem sjaldnast,“ sagði Ásgeir. Bónus gefur Barnaspít- ala Hrings- ins tæki Morgunblaðið/Kristinn Tækin, sem Jóhannes Jónsson gaf barnaspítalanum að verðmæti 10 til 12 milljónir króna, voru strax tekin í notkun og prófuð á Jóhannesi. Frá vinstri: Anna Ólafía Sigurðardóttir deildarstjóri, Jóhannes, Gunnlaugur Sigfússon, sviðstjóri lækninga, og Ásgeir Haraldsson prófessor. HÆSTIRÉTTUR dæmdi á fimmtu- dag tæplega fertugan mann í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi og til greiðslu 16,9 milljóna kr. í sekt fyrir virðisauka- og tekjuskattssvik og bókhaldsbrot. Ákærði var með sjálfstæða at- vinnustarfsemi og náði brotastarf- semin yfir nokkurra ára tímabil. Játaði hann brot sem honum var gefið að sök í ákæru ríkislögreglu- stjóra og var dómur Héraðsdóms Suðurlands frá 5. júlí sl. staðfestur í Hæstarétti. Brot hans voru talin meiriháttar en tekið var tillit til hreinskilnislegr- ar játningar hans og þess, að hann hafði ekki sætt refsingum sem skiptu máli. Alls voru vanskil hans um 8,4 milljónir króna en lág- marksfésekt fyrir skattalagabrot er tvöföld sú skattfjárhæð sem skotið er undan. Málið dæmdu hæstaréttardómar- arnir Markús Sigurbjörnsson, Árni Kolbeinsson og Ingibjörg Bene- diktsdóttir. Verjandi ákærða var Hilmar Ingimundarson hrl. Málið sótti Sigríður Jósefsdóttir saksókn- ari hjá ríkissaksóknara. Dæmdur í sex mánaða fangelsi og 17 milljóna sekt

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.