Morgunblaðið - 19.01.2003, Page 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. JANÚAR 2003 9
Pá
sk
afe
r›ir
Hlí›asmára 15 • Sími 535 2100
Glæsilegar páskafer›ir til allra átta
Aldrei meira úrval af fer›um um páska
Benidorm
53.440 kr. stgr.
Innifalið: Flug, gisting íbúðahótelinu
Halley, ferðir til og frá flugvelli erlendis,
íslensk fararstjórn og flugvallarskattar.
Ef 2 ferðast saman 71.830 kr.stgr.
Portúgal
56.560 kr. stgr.
Innifalið: Flug, gisting á íbúðahótelinu
Sol Doiro, ferðir til og frá flugvelli
erlendis íslensk fararstjórn og
flugvallarskattar
Ef 2 ferðast saman 69 955 kr. stgr.
Kanarí
62.340 kr. stgr.
Innifalið: Flug, gisting á íbúðahótelinu
Sol Doiro, ferðir til og frá flugvelli
erlendis, íslensk fararstjórn
og flugvallarskattar.
Ef 2 ferðast saman 69 955 kr. stgr.
Krít
55.780 kr. stgr.
Innifalið: Flug, gisting á íbúðahótelinu
Skala, ferðir til og frá flugvelli erlendis,
íslensk fararstjórn og flugvallarskattar.
Ef 2 ferðast saman 73.970 kr. stgr.
Mallorca
52.440 kr. strg.
Innifalið: Flug, gisting á íbúðahótelinu
Pil Lari Playa, ferðir til og frá flugvelli
erlendis, íslensk fararstjórn
og flugvallarskattar.
Ef 2 ferðast saman 68.030 kr. stgr.
Dublin
43.840 kr. stgr.
Innifalið: Flug gisting á Ormond Quay
í 4 nætur, morgunverður, íslensk
fararstjórn og flugvallaskattar.
Miðað er við 2 saman í herbergi.
Manchester
49.450 kr. strg.
Innifalið. Flug gisting á Novotel í 4
nætur, morgunverður, íslensk
fararstjórn og flugvallarskattar.
Miðað er við 2 saman í herbergi.
* Verð m.v. að tveir fullorðnir og tvö börn, 2ja - 11 ára, ferðist saman.
* * *
* *
12. apríl - 11 dagar 13. apríl - 13 dagar
11. apríl - 13 dagar11. apríl - 13 dagar
18. apríl18. apríl
12. apríl - 13 dagar
Tilboðsdagar
20-60% afsláttur
Opið kl. 10-18
lau. kl. 11-14
Rúmfatnaður;
Damask og bómullarsatín
40% afsláttur
Barnafatnaður,
barnasloppar, baðmottur
Njálsgötu 86 - sími 552 0978
Mörg fleiri tilboð
ALÞÝÐUSAMBAND Íslands hefur
ákveðið að halda námskeið fyrir
stjórnarmenn í lífeyrissjóðum, þar
sem farið er yfir flest það sem snert-
ir starfsemi lífeyrissjóða, bæði hvað
varðar eignaumsýslu og réttindi
sjóðfélaga. Meðal annars verður
fjallað um lestur ársreikninga og
mótun fjárfestingarstefnu.
Gylfi Arnbjörnsson, fram-
kvæmdastjóri Alþýðusambands Ís-
lands, sagði að um fjölþætt námskeið
væri að ræða. Það væri mjög mik-
ilvægt að launafólk ætti fulltrúa í
stjórnum lífeyrissjóðanna, en jafn-
framt þyrfti að sjá til þess að þeir
hefðu forsendur til þess að sinna því
hlutverki, bæði hvað snerti að fara
yfir greiningu ársreikninga og mót-
un fjárfestingarstefnu og hverju
þyrfti að leita eftir við það að stilla
saman fjölþættri eign þannig að
áhætta yrði dreifð og sveiflur minni.
Þá væri einnig farið yfir réttinda-
kerfi sjóðanna, auk þess sem velt
væri vöngum yfir nýjungum og þró-
un þessara réttinda.
„Auðvitað er það þannig að
fulltrúar okkar í stjórnum lífeyris-
sjóða, fulltrúar launafólks, hafa ekki
sömu forsendur í grunninn að því er
snýr að fjárfestingarhliðinni og til
dæmis atvinnurekendur sem eru að
fjalla um þetta í sínu daglega starfi.“
Fræðsla mikilvæg
Gylfi sagði að það væri mikilvægt
að mæta þessu með fræðslu. Þetta
væri liður í innra fræðslustarfi
hreyfingarinnar, en það væri alveg
ljóst að lífeyrissjóðir hefðu sinnt
svona fræðslustarfi.
„Það er ljóst að það er til dæmis
mikil endurnýjun á okkar fólki í
stjórnum lífeyrissjóða og í því sam-
bandi höfum við talið mikilvægt að
setja upp og sinna kannski með
markvissari hætti námskeiðahaldi
fyrir þessa fulltrúa,“ sagði Gylfi.
Hann sagði að námskeiðið væri
ekki aðeins fyrir stjórnarmenn í líf-
eyrissjóðum heldur líka fyrir þá sem
sætu í lífeyrisnefndum félaga og
sambanda, en þeir fulltrúar væru
gjarnan virkastir á ársfundum líf-
eyrissjóða.
Gylfi sagði að fyrirkomulag á
stjórnum lífeyrissjóðanna væri
skynsamlegt þegar á heildina væri
litið. Það væri mjög mikilvægt að líf-
eyrismál væru hluti af kjarasamn-
ingum og það væri mjög mikilvægt
að bæði fulltrúar launafólks og at-
vinnurekenda væru sameiginlega
ábyrgir fyrir þróun þessa kerfis.
„Umræður um að fara alveg yfir í
sjóðfélagafrelsi þar sem sjóðfélagar
kysu alla stjórnina væri ákvörðun
um það að atvinnurekendur myndu
ekki með beinum hætti axla ábyrgð á
kerfinu og við teljum það vera ókost.
Því hefur gjarnan verið beint að okk-
ur að við viljum ekki missa fulltrúa
okkar, en ég er ekki í nokkrum vafa
um að það er ekkert vandamál fyrir
hreyfinguna að koma að kjöri í stjórn
lífeyrissjóðs,“ sagði Gylfi.
Hann bætti því við að þetta snerist
fyrst og fremst um það hvort menn
vildu að atvinnurekendur kæmu að
lífeyrissjóðakerfinu með beinum
hætti og ASÍ hefði talið það mikil-
vægt að þessi þáttur kjarasamnings-
ins væri á forræði beggja aðila.
Læra um ársreikninga og
mótun fjárfestingarstefnu
KIRKJAN stefnir að því að standa
reglulega fyrir fyrirlestrum um at-
vinnuleysi og áhrif þess á líðan fólks
og koma sérstakri dagskrá fyrir at-
vinnulausa á laggirnar. Vonast sr.
Jakob Ágúst Hjálmarsson dóm-
kirkjuprestur til þess að starfið geti
hafist innan skamms. Slíkt starf hafi
verið prófað undanfarið og nú sé leit-
að leiða til að því verði haldið áfram.
Leitað verði eftir samstarfi innan
verkalýðshreyfingarinnar og fleiri
aðila, m.a. til að fjármagna verkefn-
ið. Kirkjan hafi í upphafi tíunda ára-
tugarins staðið fyrir starfi fyrir at-
vinnulausa sem hafi gefist vel.
Síðustu mánuði hafi nokkur hópur
fólks komið saman á vegum kirkj-
unnar undir handleiðslu Bryndísar
Valbjarnardóttur guðfræðings og
Ragnheiðar Sverrisdóttur, Biskups-
stofu, til að ræða atvinnuleysi og
deila reynslu sinni. Starfinu hafi ver-
ið komið á fót eftir að um 200 manns
var sagt upp í einu lagi hjá Íslenskri
erfðagreiningu í haust.
Sr. Jakob telur mikla þörf fyrir
starf af þessu tagi og segir mikil-
vægt að gefa andlega þættinum
gaum. Margir upplifi sterkar tilfinn-
ingar við atvinnumissi og þegar þeir
geri sér grein fyrir því að þeir muni
kannski ekki fá aðra vinnu í bráð.
Kirkjan vilji vera til staðar og hjálpa
fólki sem eigi um sárt að binda vegna
atvinnuleysis. Starfið mun líklegast
fara fram í einhverju safnaðarheim-
ilanna á höfuðborgarsvæðinu.
Starf kirkj-
unnar fyrir
atvinnulausa