Morgunblaðið - 19.01.2003, Page 21

Morgunblaðið - 19.01.2003, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. JANÚAR 2003 21 Rannsóknarráð Íslands auglýsir almenna styrki úr Rannsóknanámssjóði 2003 Hlutverk Rannsóknanámssjóðs er að styrkja rannsóknatengt framhaldsnám að loknu grunnnámi við háskóla. Veittir eru styrkir til framfærslu nemenda í rannsóknatengdu framhaldsnámi, sem stundað er við háskóla eða á ábyrgð hans í samvinnu við rannsóknastofnanir eða fyrirtæki. Styrkurinn til framfærslu miðast einungis við þann tíma sem nemendur vinna að meistara/doktorsverkefni sínu. Rannsóknaverkefni skal nema að minnsta kosti 30 einingum af náminu (60 ECTS einingar) og tengjast rannsóknasviði leiðbeinanda. Sé námið stundað við háskóla erlendis skal rannsóknaverkefnið lúta að íslensku viðfangsefni og vísindamaður með starfsaðstöðu á Ís- landi taka virkan þátt í leiðbeiningu nemandans. Framlag leið- beinanda hér á landi þarf að vera verulegt og vel skilgreint. Tilhögun námsins fer eftir reglum einstakra deilda og eftir al- mennum reglum háskóla. Athugið að umsóknir þurfa að áritast af aðalleiðbeinanda og forstöðumanni deildar/stofnunar. Vís- indanefnd viðkomandi háskóla eða samsvarandi aðili metur vísindalegt gildi verkefna, framkvæmda- og fjárhagsáætlun og vísindalega hæfni leiðbeinenda. Umsækjendur, leiðbeinendur jafnt sem nemendur, eru hvattir til að kynna sér vandlega regl- ur sjóðsins og þær kröfur sem gerðar eru til umsækjenda. Umsóknarfrestur um almenna styrki úr Rannsóknanáms- sjóði er til 1. mars nk. Umsóknareyðublöð og leiðbeiningar fyrir umsækjendur fást á heimasíðu RANNÍS http//:www.rannis.is eða á skrifstofu RANNÍS, Laugavegi 13, 101 Reykjavík, sími 515 5800. Umsóknir skal senda í þríriti til RANNÍS merktar „Rannsóknanámssjóður“. Auk almennra styrkja veitir Rannsóknanámssjóður FS-styrki í samvinnu við fyrirtæki og stofnanir. Sjá heimasíðu RANNÍS varðandi nánari upplýsingar um FS-styrki. ÞÝSKUNÁMSKEIÐ Á VORÖNN 2003 Námskeiðin hefjast 3. febrúar. Skráning og beiðni um upplýsingar í síma 551 6061 (kl. 15-18 frá þriðjudegi til föstudags) og á netfanginu goethe@simnet.is Skráningu lýkur 31. janúar. Stöðupróf á netinu: www.goethe.de/i/deitest.htm Byrjendur 1 mánudaga 20-21.30; Katharina Gross Byrjendur 2 föstudaga 17.30-19.00; Katharina Gross Grunnstig 1 mánudaga 18-19.30; Katharina Gross Grunnstig 2 fimmtudaga 20-21.30; Katharina Gross Grunnstig 3 Þriðjudaga 18-19.30; Magnús Sigurðsson Talþjálfun og málfræði miðvikudaga 18-19.30; Angela Schamberger Talþjálfun og málfræði fimmtudaga 18-19.30; Angela Schamberger Talþjálfun þriðjudaga 20-21.30; Angela Schamberger Barnanámskeið: fyrir yngri og eldri börn yngri laugard. 13.30-14.15, eldri laugard. 14.30-15.15; Katharina GrossÞ AR ríkir fegurðin ein“ er útlitsfögur bók og vönduð hvað frágang snertir. Þór- bergur Þórðarson hefði trúlega talið einskonar Hvítasunnusöfnuð standa að útgáfu hennar, svo upphafin eru flest skrif höfunda. Þeir sneiða margir hverjir hjá málefnum, sem menn deildu um áður fyrr. Árni Bergmann forðast t.d. að minnast á sumt það er varðar breytta afstöðu Halldórs Laxness til Sovétríkjanna og er þó ljóst að tím- inn frá Gerska ævintýrinu að dögum Skáldatíma er þess verður að gerð sé grein fyrir afstöðu Halldórs. Ég sé ekki að minnst sé á Árna Straum, hinn „fúllynda danska hænsnarækt- armann“; eins og Halldór nefndi Arne Ström, danska rithöfundinn, sem gaf út bókina „Onkel, giv os Bröd“. Danski rithöfundurinn Hans Kirk ritar dóm um bók Halldórs „Gerska ævintýrið“, dönsku útgáf- una, í danska Arbejderbladet. Þar tekur hann undir lýsingu hans á Arne Ström og kallar hann „tauga- sjúkling“. Látum það liggja milli hluta. Öðru máli gegnir um það sem Hans Kirk segir að Halldór Kiljan segi um Búkharín, sovéska stjórn- málamanninn og rithöfundinn, sem var félagi Leníns. Halldór Kiljan var viðstaddur rétt- arhöldin yfir „sakborningum“ þegar Stalín lét dæma forna félaga til dauða. Hans Kirk ber mikið lof á Halldór fyrir skrif hans um rétt- arhöldin. „Halldór Kiljan Laxness er ekki aðeins stórfenglegt skáld, hann er líka góður fréttaritari. Hann hefur gert óviðjafnanlega lýsingu á Búkh- arín-réttarhöldunum, sem hann var sjálfur viðstaddur og dregur upp lif- andi mynd af aðalpersónu rétt- arhaldanna.“ Það dugði Búkharín skammt þótt Halldór drægi upp „lifandi mynd“. Hann var skotinn „eins og óður hundur“, svo notuð séu orð þeirra sem um byssuna héldu, þar austur frá og Halldór flutti í boðskap sínum. Að vísu átti Halldór eftir að breyta frásögn sinni og afstöðu, sem hann lýsir af þeirri kaldhæðni, sem var honum svo eiginleg og tiltæk, þegar hann þvoði hendur sínar af ein- hverjum misgjörðum. Hyggjum að því hvað Halldór Lax- ness sagði um Búkharín-réttarhöldin í Skáldatíma. Þar kveður við annan tón en í Gerska ævintýrinu. Hvað ætli Hans Kirk hafi sagt við því. Eða var hann kannske dauður sjálfur? Halldór segir: „Þessi tíðindi hófust 2. mars. Á næstu tveim vikum voru menn þessir yfirheyrðir, dæmdir og átján þeirra skotnir. Ég fékk að- göngumiða sem giltu út alla þessa einkennilegu skemmtun, nema aftök- urnar svaf ég af mér.“ Svo heldur Halldór áfram að gera grein fyrir þeim breytingum sem orðið hafa á 25 árum. Það vottar ekki fyrir samúð, eða hvað? Halldór ritar: „Þegar höfuðand- skotinn Búkharín var afþveginn sök- um nú fyrir skemmstu, eftir að hafa verið dauður í tuttugu og fimm ár, þá var sagt í hinu dauflega orðaða upp- reisnarskjali æru hans, að hann hefði ekki gert sig sekan um neinn glæp, heldur aðeins haft skoðun á stjórn- málum smávegis öðruvísi en aðrir menn. Af skjalinu virtist sem þetta hefði verið allra meinlausasti maður. Þetta uppreisíngarskjal Búkharíns var einsog ljósmynd af auglýsingu sem einusinni stóð í íslensku blaði: „Það er ekki satt að kona mín Jóhanna Bjarnadóttir hafi gefið mér inn eitur, en úldinn fisk og grút í kaffi lét hún sér sæma að gefa mér ofaní veikan maga.““ Túkhatévskí hershöfðingi og þeir aðrir háir herforíngjar Rauða hersins sem Stalín hafði látið hrað- skjóta samkvæmt úrskurði eins af pukursdómstólum sínum árið á und- an Búkharín, þeir feingu einnig upp- reist sína ári á undan Búkharín með þeim formála að þetta hefðu verið öðlíngsmenn og hetjur og stolt Rúss- lands og hvergi fallið blettur á þeirra skjöld.“ „Flakk um Evrópu“ Hver er sá lesandi Halldórs Lax- ness, sem ekki minnist hugljúfra lýs- inga úr Grikklandsárinu um doll- araseðla og sparisjóðsinnstæðu sem Halldóri berst frá félaga föður hans, sem flust hefir til Ameríku? Eða kafl- ans um Nonna litla í Sumarhúsum, sem fær marglita seðla svo hann geti lært að „syngja fyrir heiminn“! Í Grikklandsárinu segir Halldór frá uppeldisbróður Guðjóns, Daníel Halldórssyni, sem hafði unnið í vega- vinnu með honum og var ættaður úr Hvítársíðu. Bróðir Daníels var Ólaf- ur. Hann bjó í Stöðlakoti við Bók- hlöðustíg. Daníel bauð Halldóri að koma vestur um haf og skoða sig um. Halldór átti að vitja farareyris hjá móðurbróður Daníels í Hvítársíðu. „Fjárins vitjaði ég á suðurleið úr Flatey, en þegar ég kom til Reykja- víkur beið mín að auk eigi alllítil fjár- fúlga í dollaraávísunum. Þessi öð- lingur ætlaði vissulega ekki að gera endaslept við mig.“ Svo segir Halldór að hann hafi ekki náð að komast á fund „velgerð- armanns“ síns og hafi hann snúið við. Farareyri hafði Halldór etið upp í Evrópu. En hvað segir „velgerð- armaðurinn“ Daníel Halldórsson. Í bréfi til Arnfinns Jónssonar, seg- ir Halldór að sögn Helgu Kress á bls. 143 í bók Háskólans um Halldór Kilj- an Laxness, að hann hafi eytt pen- ingum þeim er Daníel sendi í „flakk um Evrópu“. Daníel Halldórsson var sonur hjónanna Halldórs Ólafssonar og Guðrúnar Daníelsdóttur. Þau bjuggu á Síðumúlaveggjum í Hvítársíðu. Þar ólst Daníel upp. Hann var vinnumað- ur eða lausamaður, en var um tíma á Fróðastöðum. Fór til Ameríku árið 1913. Dvaldist þar til æviloka árið 1966. Daníel kom hingað til lands á Al- þingishátíðina árið 1930. Þá hitti hann Sigríði móður Halldórs Lax- ness. Halldór hafði hann hitt vestra árið 1927. Um allt þetta má lesa í bréfum Daníels til ættingja hans. Fróðlegt væri að heyra frásögn út- gefanda Halldórs Laxness, Ólafs Ragnarssonar, eða fræðimanna þeirra sem þykjast kunna hvað best skil á Halldóri Laxness. Einar Olgeirsson og Pálmi Hannesson skrifuðu Búkharín bréf og spurðu hann ráða um stofnun Kommúnistaflokks á Ís- landi. Búkharín situr fyrir miðju á myndinni, í gráum jakka. Við hlið hans er Alexandra Kollontay, hún var sendiherra Sov- étríkjanna í Ósló og Stokkhólmi á tímum hreinsana Stalíns. Ólafur Friðriksson er meðal fulltrúa á þingi kommúnista. Hann er lengst til hægri. Myndin birtist í bók Árna Snævarr og Vals Ingimundarsonar „Liðsmenn Moskvu“. Frá Gerska ævintýrinu að dögum Skáldatíma Daníel Halldórsson „velgjörðarmaður Halldórs Laxness“. Breytingar á afstöðu Hall- dórs Laxness til Sovétríkj- anna hafa oft orðið umfjöll- unarefni. Pétur Pétursson fjallar hér um Laxness. Höfundur er þulur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.