Morgunblaðið - 19.01.2003, Side 22

Morgunblaðið - 19.01.2003, Side 22
22 SUNNUDAGUR 19. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ Ung kona lést á Landspít-alanum fyrir um hálfuöðru ári vegna mistakavið lyfjagjöf. Hennihafði verið gefið lyfið diklofenak, bólgueyðandi gigtarlyf, sem síðar kom í ljós að hún var með ofnæmi fyrir. Í kjölfar lyfjagjafarinn- ar fékk hún einkenni um óviðráðan- legt bráðaofnæmi, sem leiddi hana til dauða. Þetta er, því miður, ekki eitt ein- angrað tilvik enda hafa erlendar rannsóknir leitt í ljós að dauðsföll af völdum rangra lyfjagjafa séu allt að tvöfalt fleiri en dauðsföll af völdum umferðarslysa. Til að mynda benda nýlegar norskar athuganir til að 500 til 1.000 Norðmenn deyi árlega vegna lyfjamistaka og samkvæmt bandarískum rannsóknum Institute of Medicine deyja allt að 98 þúsund Bandaríkjamenn á ári vegna lyfja- mistaka eða um helmingi fleiri en lát- ast í umferðinni að meðaltali á ári. Sé þessi staðhæfing heimfærð til Ís- lands, þar sem fjöldi dauðsfalla í um- ferðinni hefur á hverju ári verið 21 að meðaltali síðustu tíu ár, má gera ráð fyrir að dauðsföll af völdum rangra lyfjagjafa séu allt að tvöfalt fleiri. Þessar fullyrðingar dregur Sigurður Guðmundsson, landlæknir, mjög í efa og segir þær í það minnsta ekki eiga við hér á landi þrátt fyrir að við- urkennt sé að á íslenskum heilbrigð- isstofnunum eigi sér stað mistök við lyfjagjafir, líkt og annars staðar, sem hafi leitt til dauða sjúklinga. Oftast eru læknar, sem ávísa lyfj- unum, eða hjúkrunarfræðingar, sem taka til og gefa lyfin, í mestri hættu við að gera mistök af þessu tagi og geta þau verið af ýmsum toga. Svo dæmi séu nefnd getur læknir ávísað á rangt lyf í röngum skammti; upplýsingar í sjúkraskrám geta verið ótiltækar eða óathugaðar og því gefið lyf, sem sjúklingurinn hefur mögu- lega ofnæmi fyrir; rangur skammtur er gefinn vegna þess að fyrirmæli hafa verið mislesin; líkum lyfjaheit- um er ruglað saman og víxlað sem leitt getur til þess að rangt lyf er gef- ið og má í því sambandi nefna þvag- ræsilyfið lasix og sýruhemjandi lyfið losec. Svo hefur það, síðast en ekki síst, gerst að sjúklingar hafa upp á sitt einsdæmi ákveðið að skipta um rúm og þá getur voðinn verið vís. Rétt meðhöndlun upplýsinga Hugbúnaðarfyrirtækið Theriak ehf., sem sérhæfir sig í þróun hug- búnaðarlausna fyrir heilbrigðisgeir- ann með aðaláherslu á dreifingu, meðhöndlun og notkun lyfja innan sjúkrastofnana, hefur hannað og þró- að svokölluð lyfjafyrirmæla- og lyfja- gjafakerfi, sem stuðla eiga að auknu öryggi í lyfjameðferð sjúklinga innan heilbrigðisstofnana, auka rekstrar- hagræði sjúkrahúsa og apóteka og tryggja rétta meðhöndlun upplýs- inga. Lyfjafyrirmælahugbúnaðurinn gerir læknum kleift að ávísa lyfjum rafrænt, við hlið sjúklings, hvort sem er í gegnum þráðlausar fartölvur, lófatölvur eða nettengdar borðtölv- ur. Læknar hafa greiðan aðgang að öllum upplýsingum í miðlægu gagna- grunnskerfi varðandi lyfjameðferð sjúklinga sinna og yfirsýn yfir fram- gang meðferðar. DAX-kerfi Ís- lenskrar erfðagreiningar, sem er sérfræðikerfi á sviði lyfjanotkunar og lyfjaávísana lækna, er byggt inn í lyfjafyrirmælakerfi Theriak og veitir m.a. læknum stuðning við lyfjaval sitt og varar við milliverkunum, það er ef tvö lyf hafa áhrif hvort á annað. Lyfjafyrirmæli lækna eru síðan send rafrænt til sérstaks vélbúnaðar sem sér um að taka til lyfin í svokallaða stakskammta sem eru strikamerktir. Sjúklingar eru einnig auðkenndir með strikamerki í armbandi sínu. Við lyfjagjöf eru strikamerki sjúklings og lyfjaskammtar lesin saman og hugbúnaðurinn lætur strax vita hvort verið sé að gefa rétt lyf, réttum sjúklingi á réttum tíma. Allar lyfja- gjafir til sjúklinga eru skráðar í Theriak og þannig minnkar öll papp- írsvinna í kringum lyfjameðferð, sem bæði eykur öryggi og sparar tíma. Í rannsókn, sem framkvæmd var af Harvard-háskóla á sjúkrahúsi í Boston kom í ljós að með innleiðingu lyfjafyrirmælahugbúnaðar fækkaði alvarlegum mistökum við lyfjameð- ferð um 55%. Sjúkrahúsið náði fram hagræðingu og sparnaði sem nam milljónum Bandaríkjadala á ári auk þess sem meðalinnlagnartími sjúk- linga styttist umtalsvert. Heilbrigð- isyfirvöld og sjúkrastofnanir um heim allan eru nú að bregðast mjög meðvitað við vandamáli því sem mis- tök við lyfjameðferð eru og horfa fyrst og fremst til tölvuvæðingar í því samhengi, að sögn Gunnars Hall, framkvæmdastjóra Theriak, sem tel- ur að ástandið hér á landi sé ekki öðruvísi en annars staðar, sérstak- lega í ljósi þess að beitt er sama verk- Tölvuvædd lyfjagjöf eykur öryggi sjúklinga Rekja má fjölda dauðsfalla í heiminum á ári hverju til rangra lyfjagjafa og benda erlendar rannsóknir til þess að þessi meinvaldur sé mun háskalegri en umferðarslys. Íslenska hugbún- aðarfyrirtækið Theriak ehf., sem er dótturfélag TölvuMynda hf., hefur nú þróað þráðlaust og sérhæft lyfjafyrirmæla- og lyfjagjafakerfi, sem ætlað er að auka öryggi sjúklinganna. Í samtali við Jóhönnu Ingvarsdóttur sagði framkvæmdastjórinn, Gunnar Hall, að kerfið hefði verið sett upp á sjúkrahúsum í Dan- mörku, Hollandi, Þýskalandi og á Ítalíu og unnið sé nú að því að koma kerfinu upp á stærstu sjúkrahúsum hérlendis. Morgunblaðið/Golli „Það er auðvitað mikil bylting fólgin í því að ætla að umturna öllu núver- andi skipulagi sjúkrahúsanna við lyfjagjöfina. Það má þó gera í þrepum, uns okkur tekst að leiða sjúkrahúsin inn í þá framtíðarsýn, sem við sjáum í stakskömmtun,“ segir Gunnar Hall. Rekja má eitt til tvö dauðsföll á ári hér á landi til mistaka, sem gerð hafa verið við lyfjagjafir, sam- kvæmt þeim athugunum, sem landlæknisembættið gerði fyrir um ári á gögnum sínum, en þá var litið til sjö undanfarinna ára. Tíðni slíkra „slysa“ virðist því ekki eins há hér á landi og annars staðar ef marka má niðurstöður, að sögn Sigurðar Guðmundssonar, land- læknis. Hann segir að vera kunni um einhverja vanáætlun að ræða, en sem stendur kappkosti emb- ættið að efla mjög upplýsinga- söfnun úr heilbrigðiskerfinu og er nú stefnt að því að stofna til sér- stakrar rannsóknarnefndar um al- varlega atburði í heilbrigðiskerfinu, líkt og til eru rannsóknarnefndir um umferðarslys, sjóslys og flug- slys. Í fyrsta lagi ber heilbrigðisstofn- unum, lögum samkvæmt, að til- kynna landlæknisembættinu um alvarleg atvik, sem eiga sér stað innan heilbrigðisþjónustunnar, jafn- vel þó þau leiði ekki til dauða. Þessu er, að sögn Sigurðar, yf- irleitt vel sinnt af hálfu heilbrigð- isstofnanna, ekki hvað síst af hálfu Landspítalans, þar sem erf- iðustu tilvikunum er venjulega sinnt. Í öðru lagi berast embætt- inu upplýsingar sem beinar kvart- anir eða ábendingar, ýmist frá að- standendum eða sjúklingi, hafi atvikið ekki leitt til dauða. 400 kvartanir á ári Hartnær fjögur hundruð kvart- anir vegna meintra mistaka, sam- skiptaörðugleika og skorts á hæfi- legri þjónustu berast landlæknis- embættinu á ári hverju frá sjúklingum eða aðstandendum þeirra. „Sem betur fer, er af- skaplega lítill hluti þessara tilvika vegna dauðsfalla, sem rekja má til mistaka,“ segir Sigurður, en hann segist engu að síður fagna nýju kerfi, sem ætlað er að bæta ör- yggi sjúklinga, bæta aðgengi að upplýs- ingum og draga úr mistökum. Auk þess að geta leitt til dauða sjúklinga, geti rang- skömmtun lyfja leitt til aukaverkana, sem vonandi verði hægt að draga úr með búnaði af þessu tagi. Sig- urður segir að kvört- unum fjölgi ár frá ári. Það þýði ekki endi- lega að mistökum fjölgi að sama skapi, heldur telji hann að almenningur sé orðinn meðvitaðri um þessi mál en áður og sé duglegri við að láta í sér heyra, sýnist honum á sér brotið á einhvern hátt. Sigurður gerir sér vonir um að sérstök rannsóknarnefnd um al- varlega atburði í heilbrigðiskerfinu geti tekið til starfa á yfirstandandi ári. Hugmyndin hafi verið kynnt heilbrigðisráðherra, sem tekið hafi vel í málið, en óneitanlega þurfi að finna fé í verkið af margskorinni köku. Eins og málum er nú háttað, er það á ábyrgð landlæknisemb- ættisins að rannsaka mál, sem rekja má til óvæntra eða ófyr- irséðra atburða innan heilbrigð- isgeirans. „Aðgerðir geta farið úr- skeiðis án þess að mistök hafi verið gerð og lyf geta valdið ófyr- irséðum aukaverkunum, en nú er- um við að leita eftir því að fá til samstarfs sérstakan rannsóknar- hóp, sem gæti skoðað mál fljótt og vel sem beinn rannsóknaraðili. Ástæðan er fyrst og fremst sú að við viljum bæta faglega rannsókn- arvinnu í þessum alvarlegu mál- um,“ segir Sigurður. Starfsleyfissviptingar allt að fimm á ári „Við höfum lagt til að rannsókn- arhópurinn, sem að mestu yrði skipaður fagfólki með sérþekkingu í heil- brigðisgeiranum, starfaði í nánum tengslum við land- læknisembættið og jafnvel þar innanhúss. Síðan yrði það okkar að taka á málum ef þau reyndust vera vegna mistaka, alvar- legra yfirsjóna eða handvamma. Við yrð- um þá, eftir atvikum, að veita áminningar eða ganga lengra í viðurlögum með starfsleyfissvipt- ingum. Til að heil- brigðisstarfsmaður missi starfs- leyfið, þarf að vera undangengin áminning vegna mistaka eða yf- irsjóna í starfi. Ef brotið telst hins- vegar stórfellt eða til staðar er veruleg óhæfa í starfi, er unnt að mæla með því að viðkomandi missi starfsleyfið án þess að áminning hafi áður verið veitt. Sé litið til undanfarinna ára, eru starfsleyfissviptingar til lengri eða skemmri tíma allt frá einni til tveggja á ári og upp í fjórar til fimm. Langalgengasta orsökin fyr- ir slíkum starfsleyfissviptingum er óhæfa í starfi sem tengist vímu- efna- eða áfengisnotkun heilbrigð- isstarfsmanna. Samkvæmt lögum lýðveldisins um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna, eiga hins vegar allir kost á að bæta sig og ef viðkom- andi starfsmaður leitar sér lækn- inga, á hann þess kost að fara inn í ákveðinn endurhæfingarferil í starfi og endurheimtir starfsleyfi sitt á ný að afloknum átján mán- uðum, gangi allt vel. Þessi aðferð hefur virkað vel. Menn hafa fengið bót meina sinna og orðið á ný nýtir einstaklingar, sem er auðvit- að megin tilgangurinn,“ segir land- læknir að lokum. Í bígerð er stofnun rannsóknarnefndar um alvarleg „slys“ í heilbrigðiskerfinu Eitt til tvö dauðsföll á ári vegna lyfjamistaka Sigurður Guðmundsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.