Morgunblaðið - 19.01.2003, Qupperneq 26
LISTIR
26 SUNNUDAGUR 19. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Útsala
Mörkinni 3, 108 Reykjavík
sími 588 0640
Opið í dag sunnudag
frá kl. 13-17
15-60% afsláttur
STRENGJASVEIT skipuð nem-
endum tónlistardeildar Listahá-
skóla Íslands og Tónlistarskólans í
Reykjavík kemur fram á tónleikum
í Neskirkju í dag kl. 17. Stjórnandi
sveitarinnar er Gunnar Kvaran.
Tónleikarnir eru hluti af nám-
skeiði í kammertónlist sem Gunnar
stýrir, en hann kennir við báða
skólana. Sveitin er skipuð átta
fiðluleikurum, þremur víóluleik-
urum, þremur sellóleikurum og
tveimur kontrabössum en auk
þeirra koma fram á tónleikunum
fleiri sellónemendur skólanna
tveggja, í verki sem samið er fyrir
átta selló. Um er að ræða Bachianas
Brasileiras no. 1 eftir Heiton Villa
Lobos. „Lobos er brasilískt tón-
skáld og þetta er svolítið sérstakt
verk, samið á fyrri hluta síðustu
aldar. Í því vottar hann annars veg-
ar Bach virðingu sína og hins vegar
brasilískri þjóðtónlist. Hann var
nokkuð sér á báti í sínum tón-
smíðum og einbeitti sér að því að
skoða brasilíska tónlist,“ segir
Gyða Valtýsdóttir sellónemandi við
Listaháskóla Íslands og einn af
meðlimum sveitarinnar. „Auk þess
heyrir maður ekki oft flutt verk
fyrir átta selló.“
Strengjasveitin mun einnig leika
hina þekktu kvöldtónlist Mozarts –
Eine Kleine Nacht Musik – í útgáfu
fyrir strengjasveit, sem og Litla
svítu op.1 eftir Carl Nielssen. „Ég
held að þetta sé fyrsta verkið hans,
hann var 23 ára þegar hann skrif-
aði það,“ segir Gyða, sem þýðir að
Nielsen hefur verið á aldur við
meðlimi strengjasveitarinnar er
hann hóf tónsmíðar sínar, en þeir
eru á aldrinum 16–26 ára.
Aðspurð um val Gunnars á verk-
unum á námskeiðinu segist Gyða
telja að hann hafi látið það ráða för
að velja verk sem hægt væri að
gera vel á þeim skamma tíma sem
námskeiðið stendur yfir. „Það hefði
auðvitað líka verið hægt að velja
verk sem eru ennþá meira krefj-
andi, en þá hefði kannski ekki verið
hægt að vinna þau eins vel. Auk
þess er Eine Kleine eitt helsta verk
Mozarts, sem er kannski of oft flutt
af ungum strengjaleikurum sem
ráða ekki nógu vel við það. Það er
að mörgu leyti erfiðara að flytja
það en maður heldur.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Strengjasveit skipuð nemendum úr Tónlistarskólanum í Reykjavík og Listaháskóla Íslands leikur í Neskirkju.
Verk fyrir átta selló
NÁMSKEIÐ á vorönn hjá Endur-
menntunarstofnun eru nú að hefjast
hvert af öðru. Jón Böðvarsson mun
kenna á seinni hluta Brennu-Njáls
sögu í lok janúar en 500 manns sóttu
fyrri hluta námskeiðsins á haustönn.
Þráðurinn verður tekinn upp að nýju
hjá Jónasi Ingimundarsyni píanó-
leikara á námskeiðinu Hvar ertu tón-
list? sem hefst 10. febrúar. Kynning-
arkvöld verður í Salnum 27. janúar.
Áframhald er á samstarfi við Þjóð-
leikhúsið og Vinafélag Íslensku óp-
erunnar. Á námskeiði sem hefst 4.
febrúar verður fjallað um farsa,
kómedíur og annað leikið gamanefni.
Þjóðleikhúsið frumsýnir í febrúar
gamanleikinn Allir á svið! eftir Mich-
ael Frayn og er leikhúsmiði innifal-
inn í námskeiðsgjaldinu. Hinn 17.
febrúar hefst námskeið um óperuna
Macbeth eftir Giuseppe Verdi í sam-
starfi við Vinafélag Íslensku óper-
unnar. Kennari er Gunnsteinn Óla-
son hljómsveitarstjóri, en óperan
verður stærsta verkefni Íslensku óp-
erunnar á vormisseri 2003. Að-
göngumiði er innifalinn í námskeiðs-
gjaldi. Í samstarfi við Mími –
Símenntun hefst námskeið um
Heimskringlu I 4. febrúar. Kennari
er Magnús Jónsson.
Á námskeiði sem hefst 4. febrúar
verður m.a. fjallað um verk eftir
Amy Tan (kínversk), Jhumpa Lahiri
(indversk), Philip Roth (gyðingur),
Toni Morrison og Maya Angelou
(blökkukonur). Verkin eru lesin í ís-
lenskum þýðingum. Umsjón hefur
Rúnar Helgi Vignisson rithöfundur
og þýðandi.
Námskeiðið Feneyjar – frá Býs-
ans til upplýsingar hefst 5. febrúar.
Kennari er Ólafur Gíslason listgagn-
rýnandi. Máttarstólpar menningar –
Maður, sál og sjálf er yfirskrift nám-
skeiðaraðar um lykilverk heimsbók-
menntanna sem hefst 6. febrúar.
Lesin eru verk eftir Platon, Arist-
óteles, Ágústínus, Boethíus, Rouss-
eau, Kierkegaard, Freud og Fouc-
ault. Kennarar eru Jón Ólafsson
Ph.D. og Gauti Kristmannsson
dr.phil.
Námskeiðið Maður og borg hefst
6. febrúar undir leiðsögn Guðríðar
Daggar Hauksdóttur arkitekts og
Eiríks Smára Sigurðarsonar heim-
spekings. Sigurður Björnsson lektor
í heimspeki við KHÍ leiðbeinir á
námskeiðinu Heimspeki kvenna sem
hefst 6. febrúar. Námskeiðið er öðr-
um þræði haldið í tilefni af útkomu
bókarinnar Leyndardómur kvenna –
Taófræði fyrir konur. Námskeiðið er
til þess gert að takast á við eigin for-
dóma og annarra í garð kvenna.
Leiðbeinandi er sérstaklega mennt-
aður í heimspekilegri rökræðu og fá
þátttakendur tækifæri til að þjálfa
sig í þeirri aðferð. Þá verður rýnt í
jólabækurnar á námskeiði sem hefst
12. febrúar í umsjá Soffíu Auðar
Birgisdóttur.
Í samstarfi við Stofnun Árna
Magnússonar á Íslandi og Þjóð-
menningarhúsið verður námskeið
um Handritin og hefst það 12. febr-
úar. Umsjón hefur Svanhildur Ósk-
arsdóttir. Fjallað verður um sögu og
menningu bandarískra blökku-
manna á fjögurra kvölda námskeiði í
apríl. Kennari er dr. Heather Parker
sérfræðingur í sögu blökkumanna í
Bandaríkjunum og kennir hún á
ensku. Í samstarfi við guðfræðideild
HÍ verður námskeið um sögu og
táknfræði íkonalistar og hefst það 1.
apríl. Umsjón hefur Pétur Pétursson
prófessor í guðfræðideild HÍ. Kenn-
ari: Jury Bobrov prófessor í íkona-
fræðum og miðaldalist við Listahá-
skólann í Pétursborg. Kennt er á
ensku.
Í samstarfi við Kirkjulistahátíð í
Hallgrímskirkju hefst í maí nám-
skeiðið Bach og Mendelssohn – tón-
list tveggja alda. Mótettukór Hall-
grímskirkju flytur mótettur Bachs
og óratóríuna Elía eftir Mendels-
sohn á Kirkjulistahátíð 2003 undir
stjórn Harðar Áskelssonar. Af því
tilefni er sjónum beint að þessum
meistaraverkum og þau brotin til
mergjar. Í námskeiðsgjaldi er inni-
falinn aðgöngumiði á hátíðartón-
leika. Kennari er Halldór Hauksson
útvarpsmaður.
Námskeið um
tónlist, bækur
og leikrit
GUÐMUNDUR Ólafsson er leik-
ari og rithöfundur og hefur verið
mikilvirkur á báðum sviðum. Hér
snýr hann sjónum sínum að daglegu
streði venjulegrar stúlku. Undir yf-
irborðinu leynist áhugaverð persóna
sem tjáir vonir sínar og þrár óbeint í
þessu eintali, sem beint er til sál-
fræðings á geðdeild.
Það sem lyftir verkinu upp úr
hversdagsleikanum og gefur því
leikræna dýpt er síendurteknar frá-
sagnir hennar af Ágústi, sálfræðingi
sem persónan segir að hafi sinnt
henni hingað til á deildinni. Eftir því
sem á verkið líður hljóta tvær grím-
ur að renna á hlustandann – annað
hvort hagar Ágúst sér mjög óvenju-
lega eða eitthvað annað og meira býr
að baki, eitthvað sem á sér rætur
djúpt í hugarheimi stúlkunnar. Það
er afar áhugavert að Ágúst, hinn
fullkomni eiginmaður og faðir sem
fjölskylda stúlkunnar verður að
hjómi við hliðina á, reynist samkyn-
hneigður. Lyndiseinkunn sem tengd
er samkynhneigðum karlmönnum í
huga stúlkunnar – ýkt mynd af hin-
um mjúka manni áttunda áratugar-
ins – reynist eitthvað sem henni
finnst eftirsóknarvert í samanburði
við flatneskjuna í eigin fjölskyldulífi
og áhugaleysi eigin foreldra á upp-
eldi hennar. Ágúst er líka drauma-
eiginmaður hennar – að kynhneigð-
inni frátalinni sem jafnvel hún gerir
sér grein fyrir að er ekki heppilegur
þáttur í gagnkynhneigðu hjóna-
bandi.
Veröld þessarar einu persónu
verksins einkennist af einangrun
hennar og takmarkaðri hæfni til að
fást við einhæfa tilveru sína. Hún er
spurð spjörunum úr án þess að
kuldalegur spyrillinn þurfi nokkurn
tíma að láta í sér heyra. Ef til vill á
hann fleira sameiginlegt með Ágústi
en í virðist í fyrstu sýn. Frásögn
hennar af lífi sínu er á yfirborðinu
kómísk en undir niðri býr sár harm-
ur og samúð höfundarins með per-
sónunni fer ekki á milli mála. Skila-
boðin eru skýr – óharðnaðir
unglingar eru settir til hliðar áður en
þeir hafa fengið að spreyta sig í lífinu
með þeim afleiðingum að þeir bíða
skipbrot áður en þeim hefur gefist
tækifæri til að ýta úr vör. Hér gefst
sjaldgæft tækifæri til að skyggnast
inn í tilveru fólks sem flestir í þjóð-
félaginu hafa samskipti við reglulega
án þess að velta fyrir sér hvaða
væntingar það hefur til lífs síns.
Þórunn E. Clausen á að baki stutt-
an leikferil. Frammistaða hennar í
útvarpi og í sviðsverkunum Lykli um
hálsinn og nýlega í Dýrlingagenginu
hefur verið eftirtektarverð. Hún hef-
ur leikið hlutverk barna, unglings-
stúlkna og ungra kvenna sem eiga
sameiginlega barnslega sýn á veru-
leikann. Hún hefur einstakt lag á að
túlka hvernig þessar persónur skort-
ir skilning á flóknum aðstæðum sem
þær lenda í og þær eiga gjarnan rík-
an þátt í að skapa. Oft er sýn þeirra á
veruleikann á skjön við það sem hin-
ar persónurnar og áhorfendur
skynja.
Hér stýrir Helga E. Jónsdóttir
henni í skemmtilegum dansi milli yf-
irborðsáhugaleysis þess sem vill
komast hjá því að horfast í augu við
óþægilega reynslu og viðbragða við
sárum minningum sem bera hana of-
urliði.
Leikur hennar hér er mjög góður,
skilin milli hennar eigin sjálfs og
persónunnar sem hún er að leika
virðast þurrkast út – hér er þessi
vesalings stúlka lifandi komin með
sína skertu sjálfsmynd, fábreyttu
minningar um fortíðina og ekkert
framundan til að hlakka til.
Venjuleg stúlka
LEIKLIST
Útvarpsleikhúsið
Höfundur: Guðmundur Ólafsson. Leik-
stjóri: Helga E. Jónsdóttir. Hljóðvinnsla:
Hjörtur Svavarsson. Leikari: Þórunn
Clausen. Frumflutt 12. janúar.
OG MIG LANGAÐI TIL AÐ SYNGJA
Sveinn Haraldsson
HJÁ Nemendaleikhúsinu standa nú
yfir æfingar á leikritinu Tattú eftir
Sigurð Pálsson og er frumsýning
áætluð nú í lok janúar. Þetta er ann-
að verkefni leikhópsins í vetur en í
haust sýndu þau leikritið Skýfall eft-
ir Sergi Belbel.
Tattú er nýtt leikrit sem Sigurður
samdi sérstaklega fyrir leikhópinn. Í
verkinu skarast fortíð, nútíð og
framtíð í gömlu bakhúsi við Hlemm.
Þar sem áður var Café Henríetta er
nú starfrækt tattústofa. En þótt nýir
tímar og nýtt fólk hafi tekið við, virð-
ist sem fyrri íbúar hússins hafi ekki
farið langt, jafnvel þótt sumir þeirra
séu löngu komnir undir græna torfu.
Leikstjóri verksins er Rúnar Guð-
brandsson en hann hefur áður unnið
með Nemendaleikhúsinu þegar það
setti upp Ofviðrið eftir William
Shakespeare haustið 2000. Höfundar
búninga, ljóss og leikmyndar eru
Egill Ingibergsson og Móeiður
Helgadóttir. Dramatúrg er Magnús
Þór Þorbergsson.
Útskriftarárgang leiklistardeildar
LHÍ skipa að þessu sinni Björn
Thors, Bryndís Ásmundsdóttir, Dav-
íð Guðbrandsson, Esther Talía Cas-
ey, Ilmur Kristjánsdóttir, María
Heba Þorkelsdóttir, Maríanna Clara
Lúthersdóttir og Þorleifur Örn Arn-
arsson.
Verkið verður sýnt í Smiðjunni við
Sölvhólsgötu.
Nemenda-
leikhúsið
æfir Tattú
Hvatning heitir
nýr geisladiskur
Jóns Hólms Stef-
ánssonar tenórs.
Undirleikari á pí-
anó og orgel er
Jörg E. Sonder-
mann, á fiðlu Gréta Salóme Stef-
ánsdóttir. Jón syngur 22 íslensk og
erlend lög; sálma, aríur og sönglög.
Jón lærði söng í tvö ár í Tónlistar-
skóla Árnesinga, aðallega hjá Árna
Sighvatssyni og Erlu Þórólfsdóttur.
Hann hefur hin síðari ár notið til-
sagnar í einkatímum hjá Gyðu Þ. Hall-
dórsdóttur, tónlistarkennara.
Jón starfaði lengi sem héraðs-
ráðunautur, eða frá árinu 1968. Hann
er nú ferðaþjónustu- og skógarbóndi
og býr á jörðinni Gljúfri í Ölfusi.
Útgefandi er Jón Hólm Stefánsson.
Upptökur, úrvinnsla og hönnun var í
höndum sonar hans, Stefáns Jóns-
sonar. Upptökur fóru fram í Hvera-
gerðiskirkju.
Einsöngur