Morgunblaðið - 19.01.2003, Side 31
SKOÐUN
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. JANÚAR 2003 31
einni af nýjustu heilsugæslustöðvum
höfuðborgarsvæðisins. Þetta er einn-
ig hin raunverulega „framtíðarsýn“
Heilsugæslunnar í Reykjavík, en
ekki sú mynd sem dregin var upp í
stefnumótunarvinnu heilsugæslunn-
ar, „Heilsugæsla til framtíðar“. Enda
hefur sú vinna aldrei verið metin
m.t.t. áhrifa á starfsemi HR, rekstr-
arkostnaðar eða framtíðarstefnu
heilbrigðisyfirvalda, eins og fram
kemur í skýrslu Ríkisendurskoðun-
ar.
Það þarf varla að taka það fram að
á bakvið þetta einingarverð er mikil
starfsemi á stöðinni auk beinna sam-
skipta við sjúklingana og þyrfti lang-
an lista atriða til að gera því full skil.
Nánari sundurgreining starfseminn-
ar verður einfaldlega að bíða þarfa-
og kostnaðargreiningar þar sem slíkt
hefur aldrei verið gert, hvað þá mat á
afleiddum kostnaði heimilislækninga.
Jafnvel þó allur kostnaður í B-lið
töflu I væri felldur niður þá yrði ein-
ingarverðið kr. 13.633, sem ennþá er
langt yfir niðurstöðum HR og RE.
Ef gert væri ráð fyrir að nálgun
forstjóra HR á komuviðtalinu væri
rétt og miðað við 159.754 læknisviðtöl
á höfuðborgarsvæðinu (skv. skýrslu
HR) árið 2001 þá væri kostnaður á
ári vegna heimilislækninga aðeins
tæpar 400 milljónir!
Heildarrekstur HR kostar um 2
milljarða. Hvað er það þá sem kostar
1,6 milljarða skv. niðurstöðu HR, en
tæpa 1,5 milljarða miðað við niður-
stöðu Ríkisendurskoðunar?
Ef miðað væri við þjónustu fyrir
alla íbúa höfuðborgarsvæðisins (175
þús. manns) og gengið útfrá eining-
arverðinu (NÝ-HG-1) hér að framan
sem framtíðarsýn HR, þá mætti vel
spara yfir 1.000.000.000 (1 milljarð)
kr. á ári ef gerðir væru gjaldskrár- og
verktakasamningar við heimilis-
lækna! Þetta er sérstaklega mikil-
vægt í ljósi þess að yfir 30.000 ein-
staklingar á höfuðborgarsvæðinu
njóta ekki lögboðins réttar síns á
þjónustu heimilislækna.
Breytt viðhorf – framtíð
heimilislækninga
Af ofansögðu má vera ljóst að fyr-
irkomulag heimilislækninga í núver-
andi heilsugæslumódeli þarfnast
gagngerrar endurskoðunar. Þetta á
sérstaklega við um forgangsröðun
verkefna, breytt rekstrarform með
aukinni ábyrgð viðkomandi fagaðila á
framkvæmd og rekstri heimilislækn-
inga (heilsugæslu), þeirri sérgrein
sem ætti að vera hornsteinn heil-
brigðisþjónustunnar í landinu.
Heimilislækningar íbúa höfuð-
borgarsvæðisins gætu þannig bæði
orðið ódýrari og aðgengilegri en þær
eru í dag, í samræmi við yfirlýstar
óskir ráðherra, heimilislækna og íbúa
þessa lands.
Þó góð viðleitni heilbrigðisyfir-
valda birtist í nýlegu útboði á rekstri
einnar heilsugæslustöðvar í Kópa-
vogi, þá nær það skammt þar sem að-
eins um1% heimilislækna landsins
munu starfa þar og stöðinni er ein-
ungis ætlað að sinna um 1% af íbúa-
fjölda þessa lands. Þörfin er augljós
fyrir heildarskipulagsbreytingar.
Hvað ætlar ráðherra að gera?
Hugnast ráðherra að fara sparnaðar-
leiðina og veita heimilislæknum um-
beðið frelsi til gjaldskrár- og verk-
takasamninga með sjálfsögðum
réttindum á við aðra sérfræðilækna,
með ódýrari og aðgengilegri heimilis-
lækningum? Eða ætlar hann að ríg-
halda sér í gamla báknið, starfs-
óánægju og flótta heimilislækna,
ónóga þjónustu við íbúana ásamt
ónauðsynlegu bruðli með almannafé?
Ljóst er að brýn þörf er á viðhorfs-
breytingum hjá heilbrigðisyfirvöld-
um og að farið verði að vinna sameig-
inlega með læknasamtökunum að
endurskipulagi og uppbyggingu
heimilislækninga í landinu í stað
stöðugs niðurrifs og skemmdar-
verka. Þrek þeirra heimilislækna
sem enn eru að störfum fer þverr-
andi, margra reyndar búið. Við erum
íbúar fámennrar en metnaðarfullrar
þjóðar í miðju Atlantshafinu og meg-
um ekki við vinnubrögðum sem eru
okkur öllum íbúum þessa lands til
skammar og skaða.
Höfundur er sérfræðingur
í heimilislækningum.
Ingólfur G. Gissurarson, logg. fast. - www.valholl.is - Opið virka daga frá kl. 9-17.30.
250 fm skrifstofur, 5 hæð. Einstakt tækifæri. Glæsilegar fullbúnar skrifstofur við
Reykjavíkurhöfn. Frábært útsýni, allt nýtt, nýtt parket, eldhús, gardínur, tölvulagnir
og fl. Laust strax.
Uppl. veitir Magnús Gunnarsson, s. 588 4477 eða 822 8242.
Tryggvagata - 101 Rvík
TIL LEIGU
Opið hús í dag á milli kl. 14 og 17
Ásvallagata 67
i í illi l.
Í dag býðst þér að skoða þetta
gullfallega og mikið endurnýjaða
einbýlishús sem byggt er í fúnkísstíl.
Húsið er tvær hæðir auk kjallara, sem
er með sér tveggja herbergja íbúð.
Nýleg innrétting er í eldhúsi. Nýlegt
plankaparket er á gólfum 1. og 2.
hæðar. Áhvílandi hagstæð lán kr. 15
millj. Verð 28 millj.
Stefán og Arnfríður bjóða ykkur
velkomin.
RAÐHÚS
Reynigrund - raðhús
Erum með í einkasölu eitt af þessum fal-
legu og góðu raðhúsum við Reynigrund.
Húsið er endaraðhús, 127 fm á tveimur
hæðum og er bílskúrsréttur við húsið.
Eignin hefur verið endurnýjuð töluvert
m.a. nýtt eldhús, nýr stigi á milli hæða,
raflögn og innfelld lýsing á efri hæð o.fl.
Eftirsóttur staður. V. 17,4 m. 3005
Ásgarður - raðhús - 130 fm
Fallegt og bjart um 130 fm raðhús á eftir-
sóttm stað. Á 1. h. er stofa, eldhús, for-
stofa o.fl. Á 2. h. eru 3 herb. og bað. Í
kjallara eru 1-2 herb. auk þvottahúss og
geymslu. Góður garður. Skipti á minni
eign koma til greina. Ákv. sala. 3007
Hvassaleiti
Vel staðsett 3ja hæða 288 fm raðhús
með innb. bílskúr sem skiptist í 4 herb.,
baðherbergi, 3 glæsilegar stofur og eld-
hús. Í kjallara er sér 2ja herbergja ósam-
þykkt íbúð sem er sér eignarhluti. Húsið
er töluvert endurnýjað m.a. þak, rafmagn
og nýmálað. V. 24,9 m.3008
Bollagarðar - raðhús
Erum með í einkasölu fallegt raðhús á
tveimur hæðum, samtals 190 fm, með
innbyggðum bílskúr. Parket á gólfum,
nýlega innréttað baðherbergi. Góð lóð til
suðurs með nýlega hellulagðri verönd og
útigrilli. Góð eign á eftirsóttum stað. V.
23,9 m. 2993
HÆÐIR
Álfaskeið - Hafnarfirði
Góð 110 fm 4ra herbergja íbúð á 3. hæð
við Álfaskeið auk bílskúrs. Eignin skiptist
m.a. í stofu, eldhús, þrjú herbergi og bað-
herbergi. Blokkin er í góðu ástandi. V.
11,8 m. 2816
Barmahlíð
Vorum að fá í einkasölu fallega 122 fm
neðri sérhæð í þríbýli ásamt 32 fm bíl-
skúr. Sérinng. Íbúðin býður upp á mikla
möguleika. V. 16,2 m. 3004
Melabraut
Mjög góð 135 fm neðri sérhæð í þríbýlishúsi
á Seltjarnarnesi. Íbúðin skiptist í forstofu,
hol/sjónvarpsh., baðherb., þvottahús, stofu,
borðstofu, eldhús og þrjú svefnherbergi.
Paket og flísar á gólfum. Nýendurnýjað
baðherbergi og endurnýjað eldhús. Nýtt
þak og rafmagn. V. 16,9 m. 3003
Kleppsvegur
Falleg og björt 4ra herbergja 95 fm íbúð á
3. hæð t.v. ásamt aukaherbergi í risi. Eign-
in skiptist í hol, tvö herbergi, stofu, borð-
stofu, baðherbergi, eldhús. Sérgeymsla í
kjallara og þvottahús. Endurnýjað eldhús
og parket á gólfum. V. 11,5 m. 2428
ATVINNUHÚSNÆÐI
Ármúli - góð fjárfesting - gott
húsnæði
Erum með í einkasölu mjög gott atvinnu-
húsnæði við Ármúlann sem skiptist í þrjár
einingar. Á götuhæð er gott verslunar-
pláss u.þ.b. 160 fm með stórum gluggum
og góðri aðkomu. Í plássinu er starfrækt
verslunin Símabær. Á 2. hæð er mjög
gott u.þ.b. 160 fm skrifstofupláss tilbúið
til afhendingar. Í bakhúsi eru tvö góð
u.þ.b. 100 fm lager- og verkstæðispláss
með innkeyrsludyrum. Æskilegt er að
selja alla eignina í einu lagi. V. 46 m.
Eigum eftir nokkrar 100-120 fm íbúðir til afhendingar strax. Til sýnis er
fullbúin íbúð á Kristnibraut 4. Glæsilegt útsýni. Einkasala. V. frá 13,9
m. 9951
OPIÐ HÚS Í DAG FRÁ KL. 12.00-14.00
Kristnibraut 2-12 - Grafarholti
Sérlega glæsileg og vel skipulögð
4ra-5 herbergja 120 fm endaíbúð á
2. hæð í litlu fjölbýli auk 28 fm inn-
byggðs bílskúrs. Eign í sérflokki.
Sjá lýsingu og myndir á netinu.
SVEINN OTTÓ SÝNIR ÍBÚÐINA Í
DAG FRÁ KL. 13.00-15.00. V. 17,9
m. 1935
OPIÐ HÚS - Galtalind 10 - 2. h. v.
C vítamín 400 mg
með sólberjabragði
Bragðgóðar tuggutöflur.
Eflir varnir.
Nýtt frá Biomega
Fæst í apótekum
Góðir skór
Skóbúðin
Miðbæ Háaleitisbraut 58-60 Sími 553 2300
Ráðgjöf á fimmtud. kl. 15-18 og laugard. kl. 11-15.
Vöggusæn
gur
vöggusett
PÓSTSENDUM
Skólavörðustíg 21 sími 551 4050 Reykjavík
Alltaf á
þriðjudögum
Sérblað alla
þriðjudaga