Morgunblaðið - 19.01.2003, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 19.01.2003, Blaðsíða 36
MINNINGAR 36 SUNNUDAGUR 19. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ Sérhæfðir sölumenn í atvinnuhúsnæði! FRANZ@holl.is Hóll — Alltaf rífandi salaAGUST@holl.is FJÖLDI EIGNA TIL SÖLU OG LEIGU! Ekki hika við að hringja í okkur félagana, Franz, gsm 893 4284, Ágúst gsm, 894 7230. Gnitaheiði 10 - Glæsiraðhús Opið hús í dag milli kl. 14 og 17 www.hofdi.is Í dag býðst þér að skoða eitt glæsilegasta raðhús höfuðborgarsvæðisins. Glæsilegt útsýni er úr húsinu og stendur það á einum eftirsóttasta stað í suðurhlíðum Kópa- vogs. Húsið er um 150 fm auk 25 fm bílskúrs. Á gólfum er merbau-parket og flísar. Glæsileg sérsmíðuð kirsuberjainnrétting í eldhúsi, klædd með burstuðu stáli og vönduðum tækjum. Stór stofa og borðstofa í suður með útgangi út á stórar suður- svalir með fádæma útsýni. Þrjú til fjögur svefnherbergi og sjónvarpsstofa. Glæsilegt baðherbergi flísalagt með Versace-flísum í hólf og gólf og vönduðum sérpöntuðum hreinlætistækjum. Fullbúið þvottahús m. innréttingu. Hellu- lagður garður með timburskjólgirðingum, grasi og gróðri. Verð 26 millj. Ari og Kolbrún taka vel á móti ykkur. Heitt á könnunni. (2839) Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði  OPIÐ HÚS - Suðurhvammur 7 4ra herb. - HF. Magnús Emilsson löggiltur fasteignasala Opið hús í dag frá 14 til 17 Nýkomin nýleg falleg og vel skipulögð 105 fm íbúð á 3. hæð í góðu fjölbýli. 3 rúmgóð svefnherbergi o.fl., suðursvalir, parket, frá- bært útsýni. Áhv. byggingarsj. ca 6 millj.Verð 13,4 millj. Helena og Anton bjóða ykkur velkomin. NAUSTABRYGGJA 43-49 • LÆKKAÐ VERÐ SÝNING Í DAG Á MILLI KL. 14 OG 16 Kynnum í dag þessi glæsilegu álklæddu raðhús með tvöföldum innbyggðum bílskúr á einum eftirsóttasta stað hverfisins við hafnarbakkann með óborganlegt sjávarútsýni. Húsin eru til af- hendingar nú þegar nánast fullbúin að utan og fokheld að innan. Sölumenn á staðnum og verður hægt að skoða bæði fullbúið hús og hús tilbúið til innréttinga. Húsin hafa verið lækkuð í verði og því hægt að gera mjög hagstæð kaup.  Ársalir- fasteignamiðlun  Ársalir- fasteignamiðlun  Til sölu ljómandi falleg íbúð á tveimur hæðum alls 94 fm., ásamt 24 fm bílskúr. Áhugasamir velkomnir að líta inn hjá Gróu í dag á milli kl. 13 og 17 og skoða íbúðina. Verð kr. 13,2 m. Áhv. Bygg.sj. lán 6 m. Kaupandi þarf ekki greiðslumat. OPIÐ HÚS VEGHÚS 9 Engjateig 5 • 105 Reykjavík • S. 533 4200 og 892 0667 arsalir@arsalir.is • Björgvin Björgvinsson, lögg. fasteignasali. Jón Hólm Stefánsson, sími 896 4761. Ef þú þarft að selja eða kaupa bújörð hvar á landi sem er hafðu þá endilega samband við okkar mann, Jón Hólm bónda, sem aðstoðar þig með bros á vör. Bújarðir Góður og traustur vinur er genginn á vit feðra sinna. Það er vissulega sú leið sem okkur öllum er ætluð að lokum. Eftir því sem við eldumst fjölgar þeim ættingjum og vinum sem lagt hafa upp í sína hinstu ferð. Slíkir atburðir eru og verða alltaf erfiðir þeim sem eftir lifa. En þá reynir á að við mætum erfiðleikunum og sorginni af þeirri rósemi og trúarvissu sem Guð hef- ur gefið okkur. Vinátta og samstarf okkar Gunn- laugs J. Briem hófst og hefur varað óslitið frá því 1948 er ég var ráðinn sem framkvæmdastjóri Íþrótta- bandalags Reykjavíkur. Hann var í hópi þeirra mörgu mætu forystu- manna sem skipuðu forystu íþrótta- hreyfingarinnar í Reykjavík. Á þeim tíma var hann gjaldkeri Glímufélagsins Ármanns. Störf hans um áratugi þar á eftir til efl- ingar almennri íþróttaiðkun áttu síðan eftir að verða fleiri og fjöl- breyttari en hér verður komið tölu á. Íslensk glíma var sú íþróttagrein sem Gunnlaugur iðkaði sjálfur um- fram aðrar. Hann var þátttakandi í fjölda glímumóta og sýninga bæði innanlands og utan. Glæsimenni hið mesta og virtur sem góður og drengilegur keppandi og góður fé- lagi. Meðal margra mikilvægra starfa hjá íþróttahreyfingunni var hann í stjórn glímuráðs Reykjavíkur, ÍBR, ÍSÍ og stjórn Íslenskra getrauna. Gunnlaugur var afar eftirsóttur til gjaldkerastarfa og yfirumsjónar fjármála. Þar réð úrslitum mikið traust sem til hans var borið, sök- um heiðarleika og snyrtilegrar um- gengni ásamt kunnáttu í meðferð fjármuna almennt. Gunnlaugur var kjörinn heiðursfélagi ÍSÍ og Glímu- félagsins Ármanns. Jafnframt var hann sæmdur heiðursorðu Ólymp- íunefndar. Gunnlaugur starfaði mestan hluta starfsævi sinnar við mismun- GUNNLAUGUR J. BRIEM ✝ Gunnlaugur JónHalldór Jónsson Briem fæddist á Galtastöðum í Gaul- verjabæjarhreppi í Árnessýslu 27. sept- ember 1917. Hann lést á Landspítala Landakoti 24. des- ember síðastliðinn og var útför hans gerð frá Háteigs- kirkju 2. janúar. andi verslunarstörf, þar af 55 ár hjá Heild- verzlun Garðars Gísla- sonar. Heyrði ég hann oft minnast með þakk- læti góðra og traustra aðila á þeim bæ. Hann var einnig mjög virkur í stjórnum félagasam- taka verslunarmanna, Verslunarmannafélagi Reykjavíkur, Lands- sambandi verslunar- manna og Lífeyris- sjóði verslunarmanna. Á miklu breytinga- og framfaratímabili þess- ara fjölmennu samtaka verslunar- innar var Gunnlaugur mjög vel lát- inn. Naut sín þar vel staðgóð reynsla í viðskiptalífi þess tíma, prúðmennska og trúverðugleiki ekki síður en á vettvangi íþróttanna. Við hjónin höfum verið það lán- söm að eiga Gunnlaug og konu hans Góu að traustum vinum alla tíð. Í okkar huga er það svo að þeg- ar minnst er á annað hvort þeirra gerist það eins og af sjálfu sér að þau eru þau bæði í huga manns. Til þess liggja svo margar orsakir. Þau eru afar samhent, gestrisni þeirra og góðvild er eins og það getur best verið. Fyrir nokkrum árum reistum við sumarbústað í Hest- landi í Grímsnesi. Landið fengum við hjá Gunnlaugi og Góu og aðeins 100–200 metrar eru milli bústað- anna. Í „sveitinni minni“ eins og báðir aðilar nefna sitt land og bú- stað, hefur því oft verið glatt á hjalla. Að eiga land og góðan bústað í fögru umhverfi er e.t.v. ákjósanleg- asta aðstaða sem fullorðið fólk get- ur haft yfir að ráða. Að gera gott land betra með margháttuðu um- bótastarfi og fallegt land fegurra með ýmiskonar ræktunarstarfi er göfugt viðfangsefni, við slík störf á sér stað ræktun lands og lýðs. Ánægjulegur þáttur í samstarfi og tengslum okkar við Gunnlaug og Góu er vinahópur okkar Gunnlaugs og tveggja annarra sem fyrir ekki löngu lukum 25 ára starfsemi spila- klúbbs. Við hittumst allir á heim- ilum hvor annars tvisvar í mánuði við góð veisluföng og bridsspila- mennsku. Þráðurinn í því ánægju- lega samstarfi slitnaði aldrei og lauk ekki fyrr en sá elsti okkar féll frá. Konur okkar báru allan hita og þunga þessa ánægjulega samstarfs. Elsku Góa. Óhjákvæmilega eru þetta sársaukafullir tímar hvar mestur þunginn hvílir á þér og þín- um duglegu og velviljuðu börnum og mökum þeirra að ógleymdum barnabörnum. Raunsæi þitt, dugnaður og með- fætt glaðlyndi mun nú reynast mik- ilvægt. Við ásamt sonum okkar sendum ykkur öllum alúðarfyllstu samúðarkveðjur. Guð blessi ykkur öll, Sigrún og Sigurður Magnússon. Nú þegar Gunnlaugur J. Briem er til moldar borinn er einn af svip- mestu íþróttaforystumönnum seinni hluta tuttugustu aldarinnar horfinn yfir móðuna miklu. Hann var einn af snjöllustu glímumönnum okkar á unga aldri. Keppti hann þá lengi með sínu góða félagi, Glímufélaginu Ár- manni. Var hann snarpur glímu- maður og þekktur fyrir fallegar glímur. Hann vann þá þegar mikið að framgangi glímunnar sem átti þá í vök að verjast. Gunnlaugur gerðist því snemma stjórnarmaður í Glímuráði Reykjavíkur er þá var nýstofnað. Gerðist hann þar for- ystumaður og tók að sér for- mennsku ráðsins og stjórnaði því í nokkur ár. Síðar gekk hann til liðs við ÍSÍ og vann þar mikilvæg störf að stofnun Glímusambands Íslands, sem ÍSÍ stóð fyrir að stofnað var, um miðjan sjöunda áratuginn. Þar sem glíman var ekki alþjóðaíþrótt, þá þurfti að vanda nokkuð lög hins væntanlega sambands. Þar þurfti nokkra málamiðlun til, sem Gunn- laugur vann mikið að, svo allir gátu fagnað merkum áfanga þegar Glímusamband Íslands var orðið staðreynd. Vegna þeirra miklu félagslegu hæfileika sem hann hafði til að bera, var stöðugt sóst eftir starfs- kröftum Gunnlaugs. Fór svo að hann var fyrst kjörinn í stjórn ÍSÍ árið 1951 og starfaði þar þá í tvö ár, en hvarf þaðan á meðan hann vann hin mikilvægu störf fyrir GSÍ. Síðan er hann kjörinn aftur í stjórn ÍSÍ, sem gjaldkeri árið 1961 og gegndi því veigamikla starfi þá samfleytt í 16 ár. Það var mikil gæfa fyrir ÍSÍ að fá Gunnlaug í þetta ábyrgðarstarf fyrir heildar- samtök íþróttamanna. Hann hafði sýnt að hann var ákaflega glöggur fjármálamaður og nákvæmur um færslu reikninga. Á þessum tíma var ÍSÍ fjárvana, eins og öll íþróttahreyfingin, en framundan varð að fara fram mikil uppbygging ef sambandið ætti að eiga einhverja möguleika til að standa undir nafni. Þess vegna var það mikilvægt að fá dugmikinn starfskraft í þetta vandasama verkefni. Á þessum tíma var oft mikið um ferðalög um landið, svo og til Norð- urlanda, sem Gunnlaugur tók virk- an þátt í en slík samskipti eru mik- ils virði fyrir báða aðila og taka oft drjúgan tíma stjórnarmanna. Það var vitað að hvar sem hann mætti var hann aufúsugestur heima-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.