Morgunblaðið - 19.01.2003, Page 42
42 SUNNUDAGUR 19. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
TILEFNI þessa stutta pistils eru
tvö lesendabréf í Morgunblaðinu
sem ég er alveg sammála.
Það fyrra er um borgarstjóramál-
ið eftir Hjört Hjartarson (4.1. 2003).
Orðrétt segir hann: „Hvað Fram-
sóknarflokknum gekk til er á allra
vörum; það hentar ekki formanni
flokksins að Ingibjörg bjóði sig fram
til þings fyrir Reykvíkinga. Halldór
Ásgrímsson er lafhræddur um sætið
sitt og þá skítt með borgarbúa og
vilja þeirra. Heiftin sýður. Ein-
hvernveginn skal klekkt á Ingi-
björgu.“
Já, hinum farsæla og vinsæla
borgarstjóra í Reykjavík, Ingibjörgu
Sólrúnu, var bolað úr embætti með
rógi og ofstopa og þar átti Halldór
Ásgrímsson stærstan hluta að máli.
Halldór getur vissulega látið sig
dreyma um stóran hlut í komandi
þingkosningum eins og hann nefndi í
viðtali en sannleikurinn er sá að
borgarstjóramálið verður honum lík-
lega að falli.
Kristján Pétursson fyrrv. deildar-
stjóri skrifaði 26.12. 2002 um van-
hugsaðar yfirlýsingar Halldórs og
Davíðs og sagði m.a.:
Yfirlýsingar forsætis- og utanrík-
isráðherra um að íslensku flugfélög-
in Flugleiðir og Atlanta myndu
verða nýtt til flutnings á hermönnum
Natóríkja ef um það bærust beiðnir
frá hernaðaryfirvöldum bandalags-
ins vegna hernaðarástands eru
ótímabærar og vanhugsaðar.“
Já, ég er alveg sammála þessu hjá
Kristjáni og með þessum yfirlýsing-
um hafa Halldór og Davíð raskað
flugöryggi allrar íslensku þjóðarinn-
ar og að mínu mati ber þeim skylda
til að draga þessa yfirlýsingu til
baka.
Í þessu samhengi er vert að skoða
hvaða öfl eru hættulegust heimsfrið-
num um þessar mundir: hryðju-
verkamenn, grimmir einræðisherrar
og kúrekinn George W. Bush. Og
það sér enginn fyrir hvaða afleiðing-
ar hernaðarbrölt Bush getur haft
fyrir alla heimsbyggðina.
Ef Davíð og Halldóri er annt um
öryggi íslenskra flugfarþega ber
þeim skylda til að draga yfirlýsingu
sína til baka.
Þingkosningar eru í nánd og þó
svo maður búi hér í Finnlandi þá
heldur maður fullum kosningarétti á
Fróni. Kannski nær maður að spjalla
við Jón Baldvin sendiherra Íslands í
Finnlandi um leið og maður kýs í
sendiráðinu í Helsinki. En Jón Bald-
vin var vissulega skeleggur og hress
utanríkisráðherra á Íslandi um árið.
BJÖRGVIN BJÖRGVINSSON,
myndlistarkennari,
Suður-Finnlandi.
Borgarmál og
hernaðarbrölt
Frá Björgvini Björgvinssyni:
Í VOR á síðasta ári birtist grein í
Morgunblaðinu sem fjallaði um
málefni er tengdust sveitarstjórn-
armálum á Seltjarnarnesi. Heiti
greinarinnar var „Ásgerði sem bæj-
arstjóra á Seltjarnarnesi.“ Var Sig-
urður Jónsson skrifaður fyrir
greininni en hið rétta er að Hall-
grímur Óskarsson, Valhúsabraut
31, Seltjarnarnesi, er höfundur
greinarinnar. Höfundur biður þá
aðila er nefndir voru í greininni af-
sökunar ef þeir kunna að hafa haft
óþægindi af.
Vegna greinarskrifa
Frá Hallgrími Óskarssyni:
GREIN í Morgunblaðinu 15. jan.
undir fyrirsögninni „Flugfélag eða
ferðaskrifstofa eða bara froða“
vakti athygli mína. Höfundur vekur
athygli á fjölda þeirra flugfélaga og
ferðaskrifstofa sem á undanförnum
árum hafa boðað fagnaðarerindi
um lággjaldaferðir til útlanda, en
endað í gjaldþroti sem hafa kostað
neytendur og samstarfsaðila veru-
leg óþægindi og fjárútlát. Ósjálf-
rátt kemur samlíkingin við keðju-
bréf upp í hugann þar sem þeir
fyrstu græða en þeir sem aftar eru
í röðinni tapa þegar keðjan slitnar.
Höfundur, Vilhjálmur Bjarna-
son, spyr hvaða öryggi nýi aðilinn á
markaðnum, Iceland Express, veiti
viðskiptavinum sínum – spyr hvort
ábyrgð flugfélagsins Astraeus sé
skýr og afdráttarlaus gagnvart far-
þegum sem kaupa miða af Iceland
Express. Þessu svarar Ólafur
Hauksson hjá Iceland Express að
mínu mati ekki nægilega skýrt í
svargrein sinni í Mbl. daginn eftir
og eykur því á efasemdir mínar. Ef
ég kaupi t.d. miða til Kaupmanna-
hafnar í vor, tekur Astraeus þá
örugglega ábyrgð á því að ég fái þá
flugþjónustu sem ég hef borgað
Iceland Express fyrir? Hvar og
hvernig staðfesta þeir ábyrgð sína?
Og hvað með það ef flugvélinni
seinkar verulega eða ef ferðin fell-
ur jafnvel niður þann daginn?
Greiðir Astreus þá fyrir mat og
gistingu í Kaupmannahöfn?
Samkeppni í flugþjónustu er af
hinu góða en við íslenskir neyt-
endur hljótum að gera kröfur til
þess að kaupa ekki köttinn í sekkn-
um.
INGI FJALAR MAGNÚSSON,
tölvunarfræðingur.
Nokkur atriði áður en
ég kaupi flugmiða…
Frá Inga Fjalari Magnússyni: