Morgunblaðið - 19.01.2003, Qupperneq 51

Morgunblaðið - 19.01.2003, Qupperneq 51
Lo“-ímynd út um gluggann og í stað þess horfið aftur til hins settlega forms sem hún var upphaflega í. Já, svona getur það verið. Upp, niður ... og svo aftur upp. 6. Leann Rimes Ferill Leann Rimes er stórfurðu- legur. Líkt og Shania Twain, sem við komum að á eftir, á Leann rætur í meginstraumssveitatónlist en er að gera vafasamar tilraunir til að brjót- ast yfir í heim glyskennds dívupopps. Afraksturinn er skringilegur, svo ekki sé fastar að orði kveðið, þar sem nær ósættanlegum hlutum er bland- að saman og troðið hvor ofan á ann- an. Leann hóf ferilinn árið 1996 með plötunni Blue, aðeins fjórtán ára gömul þar sem réttur dagsins var hefðbundin sveitatónlist; fölskvalaus, létt og glaðvær. Strax tveimur árum seinna, á plötunni Sittin’ on Top of the World, var umbreytingin hafin. Slatti af kílóum fokinn og stefnan sett á venjubundið popp. Árið 2001 kom svo I Need You, hvar Rimes lítur út eins og tæknó-tæfa og á nýju plöt- unni, Twisted Angel, er hún eins og samklón af Spears og Carey. Erum við virkilega að ganga veginn til góðs hérna? 7. Shania Twain Það er kannski hægt að kenna þessari dömu um undarlegan darrað- ardans Rimes. Plata þessarar „fyrr- um“ sveitasöngkonu Come on Over (upprunaleg útgáfa 1997, endur- útgefin 1999) er best heppnaða splæsing grípandi popprokks og sveitatónlistar og kom hálfgerðri bylgju af stað í þeim efnum. Líkt og Rimes hóf Twain ferilinn með hefð- bundinni sveitatónlist og kom fyrsta plata hennar út árið 1993. Nýjasta plata hennar, Up!, er tímamótaverk í markaðslegum skilningi því hún kemur út í þremur mismunandi út- gáfum; ein platan er með sveita- tónlistarlegum útgáfum af lögunum, ein með popp/rokk-útgáfum og sú þriðja er með asískum/arabískum/ rómönskum-útgáfum! Sumir hugsa einfaldlega stærra en aðrir í þessum bransa!!! arnart@mbl.is MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. JANÚAR 2003 51 Shania Twain – Up! Það sem er Akkilesarhæll þess- arar plötu er að umfangið er á tvist og bast. Nítján lög, þar sem stíllega er farið út um allar trissur og þrjár mismunandi útgáfur af sömu plötu! Hingað til lands barst popp og as- ísk/arabíska útgáfan. Fremur lit- laust verður að segjast en þó nær asísk/arabíski diskurinn að koma manni í ágætt „rai“ stuð. Stór- furðulegt.  Leann Rimes – Twisted Angel Leann langar svo mikið að vera poppstjarna að manni svíður undan því. Hér er öllu fórnað á altari Mammons og það er svosem í lagi ef eyrun fá eitthvað fyrir sinn snúð. En svo er ekki. Rimes er kominn í undarleg mál en plötunni er bjarg- að við og við með ágætum söng- sprettum og á stundum sæmilega grípandi krókum. Titillinn, „Twist- ed Angel“, er óþægilega nærri sanni og maður fer virkilega að hugsa: Er fólk endanlega að ganga af göflunum í þessum blessaða iðn- aði?  Mariah Carey – Charmbracelet Ímyndaðu þér að það sé troðið sírópi í eyru, munn og nef þér. Ein- hvern veginn þannig líður manni við að hlusta á nýja plötu Carey. Væmnin og ljúflegheitin fara næst- um í hring og það liggur við að óþægilegt sé að hlusta á plötuna. Þetta er bara of mikið af hinu góða. Hjálp!  Avril Lavigne – Let Go Fyrsta plata Avril Lavigne er því miður lítið annað en moðkennt púsl í kringum frábærar smáskífur hennar. Platan sígur þó á við end- urtekna hlustun og lög eins „Any- thing But Ordinary“ halda vel haus. Stjörnurnar þrjár eru fyrir „Compl- icated“ og „Sk8er Boi“.  Christina Aguilera – Stripped Vonbrigði. Afar greinilega verið að reyna að halda í við Spears en árangurinn mjög svo mistækur. Allt of löng plata, allt of losaraleg, allt of „ekki góð“. Undarlegt að Aguil- era hafi misstigið sig svona hrapal- lega því hún á innistæðu fyrir svo miklu betra verki. Hún ætti að ráða sér nýja markaðs- og lagasmiði fyr- ir næstu atrennu. www.regnboginn.is Sýnd kl. 2.30, 6.30 og 10.30. B.i. 12. Nýr og betri „Turnarnir gnæfa yfir bestu myndir ársins“ SV. MBL ÓHT Rás 2 Kvikmyndir.com 1/2HK DV „Besta mynd ársins“ FBL YFIR 75.000 GESTIR Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. B.i.12 ára DV RadíóX “Besta Brosnan Bond-myndin” GH Kvikmyndir.com i YFIR 60.000 GESTIR STÆRSTA BONDMYND ALLRA TÍMA Á ÍSLANDI Hverfisgötu  551 9000 FRÁ FRAMLEIÐENDUM LEON OG LE FEMME NIKITA Fantaflottur spennutryllir með ofurtöffaranum Jason Stratham úr Snatch Hraði , spenna og slagsmál í svölustu mynd ársins. Sýnd kl. 2.30, 6.30, 8.30 og 10.30. B. i. 14. www.laugarasbio.is „Turnarnir gnæfa yfir bestu myndir ársins“ SV. MBL ÓHT Rás 2 Kvikmyndir.com 1/2HK DV „Besta mynd ársins“ FBL Sýnd kl. 2.15, 4, 5.40, 8 og 9. B.i. 12. Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.15 B.i. 14. YFIR 75.000 GESTIR Frábær mynd frá leikstjóra L.A.Confidential þar sem rapparinn EMINEM fer á kostum í sínu fyrsta hlutverki. Frumsýning  1/2 Kvikmyndir.is  Kvikmyndir.com

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.