Morgunblaðið - 19.01.2003, Page 56
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 SUNNUDAGUR 19. JANÚAR 2003 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
THERIAK ehf., hugbúnaðarfyrir-
tæki sem er dótturfyrirtæki Tölvu-
Mynda hf., hefur nú þróað þráðlaust
og sérhæft lyfjafyrirmæla- og lyfja-
gjafakerfi, sem ætlað er að auka ör-
yggi sjúklinga gagnvart hugsanleg-
um mistökum við lyfjagjöf. Hefur
fyrirtækið samið við þýska sjúkra-
húsið St. Elisabeth í Oberhausen um
notkun kerfisins og verður það
fyrsta sjúkrahúsið þar í landi til að
taka upp slíkt þráðlaust kerfi. Kerfið
hefur einnig verið tekið í notkun á
sjúkrahúsum í Hollandi, Danmörku
og á Ítalíu og fyrir liggur að taka það
upp á stærstu sjúkrahúsum hérlend-
is.
Þýska sjúkrahúsið hefur frá liðnu
hausti notað hugbúnað frá Theriak
til að stýra skömmtun og dreifingu
lyfja í apóteki sínu. Með nýja kerfinu
verður læknum kleift að skrá fyrir-
mæli um lyfjagjöf og skammtastærð
í lófatölvur. Með þeim geta þeir séð
upplýsingar um meðferð og fram-
gang meðferðar.
Rannsóknarnefnd um „slys“
Erlendar rannsóknir benda til að
rekja megi fjölda dauðsfalla í heim-
inum á ári hverju til rangra lyfja-
gjafa. Í bígerð er að setja á laggirnar
sérstaka rannsóknarnefnd, sem ætl-
að er að rannsaka alvarlega atburði,
sem upp koma í heilbrigðisþjónust-
unni. Sigurður Guðmundsson land-
læknir segist gera sér vonir um að
rannsóknarnefnd um alvarleg „slys“
í heilbrigðiskerfinu geti tekið til
starfa á árinu en fyrirmyndin sé sótt
til rannsóknarnefnda, sem starfandi
eru hér á landi í tengslum við um-
ferðarslys, sjóslys og flugslys.
Íslenskt
hugbún-
aðarkerfi
í erlend
sjúkrahús
Tölvuvædd lyfjagjöf/22
EFTIR að hafa fylgst með útlærðum tesiðameistara í
gær, ungri konu í bleikum kimono, undirbúa hefð-
bundið japanskt te, supu Davíð Oddsson forsætisráð-
herra og fylgdarlið á því og segja má að þá hafi dag-
skrá opinberrar heimsóknar hans til Japans lokið.
Davíð og frú Ástríður Thorarensen héldu á síðasta degi
heimsóknarinnar til bæjarins Kamakura suður af Tók-
ýó en hann er kunnur fyrir musteri og minjar um þá tíð
þegar stríðsherrar, sem þar héldu til á þrettándu öld,
stjórnuðu landinu.
Í Kamakura heimsóttu forsætisráðherrahjónin kaup-
sýslumanninn Takasaki Uyeno og eiginkonu hans. Hús
þeirra er tæplega hundrað ára gamlt og byggt í hefð-
bundnum japönskum stíl, timburhús og í því eru engir
naglar. Hjónin reka m.a. veitingastað í Tókýó og þau
buðu gestum upp á margrétta máltíð í hádeginu.
Heimsókn í búddahof
Eftir hádegisverðinn fór Uyeno með gestina í búdda-
hof sem var stofnað á 12. öld. Prestar sýndu Davíð og
Ástríði musterin og Davíð skrifaði nafn sitt á kerti sem
prestur kveikti á og átti að uppfylla leynda ósk for-
sætisráðherrans. Þar var einnig skoðaður greftr-
unarhellir samúræja.
Að lokum var haldið aftur heim til Uyeno-fjölskyld-
unnar, þar sem ung kona, útlærður tesiðameistari,
framkvæmdi hina hefðbundnu teathöfn í þar til gerðu
herbergi. Gestirnir sátu á mottum á gólfinu og fylgdust
með konunni við athöfnina. Samkvæmt japönskum
hefðum er teathöfnin hin fullkomna list og höfðar til
allra skynfæra.
Morgunblaðið/Einar Falur
Davíð Oddsson lýkur við tesopann við hefðbundna japanska teathöfn á heimili kaupsýslumannsins Takasaki
Uyeno í bænum Kamakura í gær. Athöfnin var framkvæmd í sérstöku teherbergi og framkvæmd af tesiðameist-
ara. Ástríður Thorarensen og Valgerður Valsdóttir sendiherrafrú fylgjast með.
Morgunblaðið/Einar Falur
Í heimsókn í búddamusteri frá 12. öld í bænum Kamak-
ura í Japan í gær skrifaði Davíð Oddsson nafn sitt á
kerti sem prestur kveikti síðan á og fór um leið með
persónulega ósk forsætisráðherra.
Tedrykkja að
fornum sið
Tókýó. Morgunblaðið.
RANNSÓKNIR á vegum Náttúru-
fræðistofnunar og Norrænu eldfjalla-
stöðvarinnar, sem enn standa yfir,
hafa nú leitt í ljós að Heklugosið í
febrúar 2000 var mun hættulegra en
áður var talið. Dr. Ármann Höskulds-
son eldfjallafræðingur hjá NÍ segir í
ljósi þessara upplýsinga að nauðsyn-
legt sé að herða á öryggisráðstöfun-
um við gos úr fjallinu í framtíðinni.
Uppgötvast hefur að gjóskuhlaup
varð í gosinu og samkvæmt því virðist
Hekla fær um að framkalla hættuleg-
asta fyrirbæri sem fylgir eldgosum í
virkum eldfjöllum.
Ármann hefur tekið þátt í rann-
sóknum á eldfjöllum í Suður-Chile
sem flokkuð eru sem stórhættuleg
vegna möguleika á gjóskuhlaupum,
en slík hlaup geta ætt niður fjallshlíð-
ar með 700 gráða heitum gosefnum á
150 km hraða og drepið tugþúsundir
manna eins og dæmi eru um. Hafa
menn miklar áhyggjur af slíkum
hlaupum úr fjallinu Villarrica í Chile,
en fyrir 3.700 árum urðu þar gífurleg
gjóskuhlaup.
Þess ber að geta að Heklugosið
2000 var mjög lítið en eigi að síður fór
gjóskuhlaupið 5 km vegalengd frá
fjallinu. Ármann segir skilning á
Heklu nú hafa
gjörbreyst því
ekki hafi verið tal-
ið að fjallið gæti
framkallað
gjóskuhlaup. „Það
sem skiptir mestu
máli er að skilja
hvort það séu gös í
kvikunni sjálfri
sem valda
sprengivirkni við
gos eða hvort það sé vatn, annaðhvort
frá grunnvatni fjallsins eða jökli,“
segir hann. „Ef það er kvikan sem er
sprengivirk stöndum við í verri spor-
um en áður miðað við almenna þekk-
ingu í dag á basískri eldvirkni sem
undir öllum venjulegum kringum-
stæðum framleiðir hraun.“
Þörf á meiri öryggis-
ráðstöfunum
Í ljósi nýrrar þekkingar á Heklu
segir Ármann nauðsynlegt að viðhafa
meiri öryggisráðstafanir til að koma í
veg fyrir manntjón í Heklugosi.
„Ég tel að í framtíðinni þurfi að
loka af miklu stærra svæði í kringum
fjallið en gert hefur verið. Ef aðgang-
urinn er ekki heftur meðan spreng-
ingarnar ganga yfir á fyrstu dögum
gossins er fólk að ana út í opinn dauð-
ann,“ segir hann.
Skilningur á eðli Heklu hefur ekki
síst aukist við eldfjallarannsóknirnar í
Chile en Náttúrufræðistofnun Ís-
lands hefur komið að þeim í gegnum í
þjálfun heimamanna í vöktun eldfjalla
og rannsókna á þeim. Um miðjan des-
ember lauk hálfs mánaðar rannsókn-
arleiðangri til Chile á vegum NÍ og
frönsku rannsóknarmiðstöðvarinnar
IRD en að samstarfinu koma enn-
fremur háskólinn í Conception í Chile
og í Santiago de Chile ásamt eldfjalla-
stöð í Temuco í S-Chile.
Undir smásjá þessa samstarfs eru
eldfjöllin Villarrica (2.847 m) og
Llaima (3.125 m). Eldfjallavöktun í
Chile er nokkuð frumstæð miðað við
það sem gengur og gerist á Íslandi en
IRD fjármagnar kaup á mælitækjum
og þjálfun tveggja kvenna frá Chile
sem lagt hafa fyrir sig eldfjallarann-
sóknir í heimalandi sínu. Markmið
þjálfunarinnar er að vísindamenn
verði sem best í stakk búnir til að vara
við eldgosi með fyrirvara og geti áttað
sig á hvort búast megi við löngu eða
stuttu gosi og hversu lengi hættu-
ástand muni vara.
Heklugosið 2000 hættu-
legra en áður var talið
Dr. Ármann
Höskuldsson
RANNSÓKNIR víða um heim
benda til þess að ofeldi og sjúk-
dómar af völdum þess sé vandi,
sem Vesturlandabúar muni
glíma við í auknum mæli í fram-
tíðinni. Læknafélag Íslands
bendir á þetta í bréfi sem sent
var heilbrigðisráðherra á sein-
asta ári, þar sem ráðuneytið er
hvatt til að hafa forgöngu um
stefnumótun til að snúa þessari
óheillavænlegu þróun við.
,,Rannsóknir á stórum, til-
teknum þjóðfélagshópum er-
lendis til margra ára sýna, að
einstaklingar með eðlilegt
mynstur áhættuþátta geta haft
veruleg áhrif á lífslíkur sínar
með hegðun sinni einni saman.
Reykingar eiga þar stærstan
þátt en hreyfingarleysi og of-
beldi skipta vaxandi máli,“ seg-
ir í bréfinu.
Sjónum beint að hreyfingu
Þar er einnig lagt til að rík-
isstjórnin beini sjónum sér-
staklega að hreyfingu og mat-
aræði þjóðarinnar til að auka
heilbrigði hennar. ,,Að þessari
stefnumótun þyrftu að koma
a.m.k. þrjú ráðuneyti auk heil-
brigðis- og tryggingaráðuneyt-
isins. Í stefnumótuninni fælust
t.d. breyttar áherslur í verð-
lagsmálum neysluvara, al-
menningsfræðsla, breytt náms-
skrá leik- og grunnskóla, aukin
áhersla á almenningsíþróttir og
hugsanlega tilflutningur fjár-
muna frá keppnisíþróttum.
Umfram allt yrði að gera þetta
að spennandi og skemmtilegu
verkefni fyrir þjóðina til að fást
við og vekja á því þverpólitísk-
an áhuga,“ segir í bréfi LÍ.
Lýsir stjórn félagsins sig
reiðubúna til að taka þátt í
þessu verkefni. Ráðuneytið
hefur ekki svarað erindinu.
Læknafélag-
ið hvetur
til átaks
gegn ofeldi
AÐGERÐIR til að koma Guðrúnu
Gísladóttur KE 15, sem sökk við
strendur Norður-Noregs fyrir sex
mánuðum, af hafsbotni hefjast aft-
ur á næstu dögum. Íshús Njarðvík-
ur hefur nú gengið frá samningum
við kafarafyrirtækið Seløy Und-
ervannservice um að það taki að
sér þann hluta björgunaraðgerð-
anna sem fram fer neðansjávar.
Ásgeir Logi Ásgeirsson, sem er í
forsvari fyrir björgunaraðgerðirn-
ar í Noregi, segir að mönnum sé
óneitanlega létt nú þegar hægt sé
að hefja björgunaraðgerðir að
nýju.
Semja þurfti við nýtt kafarafyr-
irtæki þar sem kafarafyrirtækið
sem vann að björguninni, Riise
Underwater Engineering, sagði
sig frá verkefninu fyrir stuttu. Við-
bótarfjármögnun vegna tafa sem
verkefnið varð fyrir er tryggð sem
og samningur við kafara og er Ís-
húsinu þá ekkert að vanbúnaði að
hefjast handa.
Aðgerðir hefjast aftur
á næstu dögum
Björgun Guðrúnar Gísladóttur KE 15