Morgunblaðið - 21.01.2003, Síða 2
AFFÖLLIN MINNKA ENN
Afföll húsbréfa minnka nú dag frá
degi og hafa lækkað um 10 prósentu-
stig frá því að þau voru mest sl. vor.
Verðmæti bréfanna hefur því aukist
að sama skapi. Á sama tíma hafa
fjárfestingar útlendinga í íslenskum
skuldabréfum aukist stórlega. Á síð-
asta ári er talið að slíkar fjárfest-
ingar hafi numið allt að 40 millj-
örðum króna.
Írakar heita betra samstarfi
Írakar hétu Sameinuðu þjóðunum
í gær betra samstarfi við vopnaeft-
irlit í landinu. Samkomulag náðist í
tíu liðum um hvernig störf eftirlits-
manna SÞ í Írak verði skilvirkari.
Samstarf með Norðmönnum
Alþjóðamálastofnun Háskóla Ís-
lands og Norska utanríkismálastofn-
unin eru að hefja samstarf í rann-
sókn á svæðisbundinni
fiskveiðistjórnun á Norðaustur-
Atlantshafi, sem talið er að geti jafn-
vel auðveldað inngöngu í Evrópu-
sambandið fyrir Noreg og Ísland.
Ódýrt álver hjá Alcoa
Samkvæmt skýrslu frá greining-
ardeild bankans Credit Suisse First
Boston er byggingarkostnaður fyr-
irhugaðs álvers Alcoa í Reyðarfirði
lágur miðað við framleiðslugetu upp
á 322 þúsund tonn á ári.
Stærsti sigur Íslands
Sigur Íslendinga á Áströlum í
fyrsta leik liðsins á HM í handbolta í
Portúgal, 55:15, er sá stærsti í sögu
landsliðsins. Jafnframt var sett
heimsmet því engu landsliði hefur
tekist að skora 55 mörk í einum leik.
Ný ferðaskrifstofa
Sumarferðir, ný ferðaskrifstofa í
eigu Helga Jóhannssonar og fleiri,
ætla að bjóða upp á beint leiguflug
til Alicante á Spáni í sumar. Samn-
ingur hefur verið gerður við Kenn-
arasamband Íslands um sölu á hag-
stæðri Spánarferð en í Alicante eru
mörg íslensk stéttarfélög farin að
leigja út sumarhús.
Fjarðabyggð kom best út
Niðurstöður samræmdra prófa í
stærðfræði og íslensku sem fram
fóru í 4. og 7. bekk grunnskólanna sl.
haust liggja nú fyrir. Samkvæmt
þeim eru nemendur í Fjarðabyggð
með hæstu meðaleinkunnir.
Y f i r l i t
FRÉTTIR
2 ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Verð á mann frá 19.800* kr.
þegar bókað er á www.icelandair.is
www.icelandair.is
Netsmellur - alltaf ódýrast á Netinu
Flugsæti á broslegu verði
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
IC
E
19
89
0
01
/2
00
3
*Innifalið: Flug og flugvallarskattar
Í dag
Sigmund 8 Viðhorf 32
Viðskipti 12/13 Hestar 37
Erlent 14/16 Minningar 32/36
Höfuðborgin 17 Bréf 40
Akureyri 18 Dagbók 42/43
Suðurnes 19 Kvikmyndir 48
Landið 20/21 Fólk 49/53
Neytendur 25 Bíó 50/53
Listir 22/23 Ljósvakar 54
Forystugrein 28 Veður 55
* * *
Þriðjudagur
21. janúar 2003
Prentsmiðja
Morgunblaðsins blað C
Kjörhiti
í hverju herbergi
Í dag þriðjudag og á morgun miðvikudag
milli kl. 15 og 17
gefst þér kostur á að skoða eina af okkar glæsilegu
íbúðum að Laugarnesvegi 87 (íbúð 404). Þar mun
sölumaður okkar taka á móti þér og svara öllum
þínum spurningum.
Íbúðirnar að Laugarnesvegi 87 og 89 eru glæsilega
hannaðar, 2ja, 3ja og 4ra herbergja, og allar með
sérinngangi af yfirbyggðum svalagangi. Húsin eru
með lyftu, einangruð að utan og klædd áli og harðviði
og þarfnast því lágmarksviðhalds. Íbúðirnar verða
tilbúnar til afhendingar 25. apríl nk.
Komdu og skoðaðu glæsilega sýningaríbúð
Góðir kostir:
• Sér bílastæði í bílageymsluhúsi.
• Þvottahús innan íbúðar.
• Dyrasími tengdur myndavél í anddyri. Söludeild okkar er að Höfðabakka 9, sími 530 4200.
Ítarlegar upplýsingar um eignirnar eru á www.iav.is.
Laugarnesvegur 87 og 89
• Möguleiki á sjónvarps-, síma- og
nettengingum í öll herbergi.
• Vandaðar innréttingar og hurðir.
• Lögð er sérstök áhersla á góða
hljóðeinangrun.
Dæmi um 3ja herbergja íbúð
Þvottur
3,2 fm
Eldhús
14,3 fm
Svalir 9,7 fm
Baðh.
5,5 fm
Svefnherb.
9,1 fm
Svefnherb.
14 fm
Þúsundir fasteigna af öllum stærðum og öllum gerðum alls staðar á landinu
Fasteignirí
Fjarðabyggð
Vaxandi
eftirspurn 26
Rétt
hitastýring
Stofnun
húsfélaga
Sjálfvirkir
ofnlokar 29
Réttindi og
skyldur 36
! "#
$!
"#
%&'()*
%&'
(
)* +
+
!
"#$
"%$ &##'
,$-#."#
$!.**$
/0$12*
345"/ *
'0*0.6* *
7*12*
&$!8*
!
! 9#*:
$!9#*:
# *$-*
! 9#*:
$!9#*:
(
'$<( !$!*#
=$*.)0!$(>>>0*
=! .?*@;;A )
)
)
)
" "#+
"# " $ %
)*
.?@A %"
"
+
",
"%
+
"
"#%
"$+-+
"-.%
'
'".-
"#.+
;;
/! 0
! $ "'$
"1$ &##'
7$!*"#
%!
$!!*
##
#
;
$ $
NÚ er mögulegt að skoða án endur-
gjalds fasteignamat og brunabóta-
mat allra fasteigna í landinu á
heimasíðu Fasteignamats ríkisins.
Ekki kemur fram hver er eigandi
viðkomandi fasteignar. Hægt er að
fletta upp á fasteign á þrennan hátt;
eftir heimilisfangi, landnúmeri eða
fastanúmeri.
Í frétt frá FMR segir, að þessi nýi
möguleiki gefi fasteignaeigendum
kost á að fletta upp á matsfjárhæð-
um árið um kring en brunabótamat
breytist mánaðarlega í samræmi við
breytingar byggingarvísitölu. Eftir
sem áður er boðið upp á aðgang að
ýtarlegum upplýsingum úr
Landskrá fasteigna í áskrift.
Rangir tilkynningarseðlar
Á tilkynningarseðlum frá Fast-
eignamati ríkisins um fasteignamat
og brunabótamat 31. desember
2002, sem nú eru að berast fast-
eignaeigendum, voru fyrir mistök
áritaðar upplýsingar frá árinu 2001 í
stað þeirra, sem giltu 31. desember
sl.
Dreifing á tilkynningarseðlunum
hefur verið stöðvuð en ætla má að
meirihluti seðlanna hafi þegar verið
borinn út til fasteignaeigenda.
Tilkynningarseðlar með réttum
upplýsingum um matsfjárhæðir
verða sendir út í vikunni 27. - 31.
janúar nk. og er undirbúningur þeg-
ar hafinn. Vegna þessara tafa verð-
ur frestur til að óska breytinga á
fasteignamati frá 31. desember sl.
framlengdur frá 15. mars nk. til 1.
apríl nk.
Brunabótamat
2.467 milljarðar
Um síðustu áramót nam bruna-
bótamat á landinu 2.467 milljörðum
króna en var 2.214 milljarðar króna
þann 31. desember 2001. Nemur
breytingin 11,5%. Hún stafar af
skráningu nýrra fasteigna sem
metnar hafa verið á árinu að frá-
dregnu mati eigna sem teknar hafa
verið af skrá, afgreiðslu á athuga-
semdum vegna endurmats bruna-
bótamats 2001, breytingum á bygg-
ingarkostnaði hinna ýmsu tegunda
húseigna og árlegum afskriftum.
Fasteignamat
1.781 milljarður
Fasteignamat á landinu öllu nam
1.781 milljarði króna um síðustu
áramót en var 1.657 milljarðar
króna þann 31. desember 2001.
Nemur breytingin 7,5%.
Hún stafar af mörgum ástæðum
svo sem skráningu nýrra fasteigna
sem metnar hafa verið á árinu að
frádregnu mati eigna sem teknar
hafa verið af skrá, afgreiðslu á at-
hugasemdum vegna endurmats fast-
eignamats 2001, ákvörðun yfir-
fasteignamatsnefndar um fram-
reiknistuðla, breytingu á bygg-
ingarkostnaði og afskriftum.
Fasteigna-og brunabótamat
allra fasteigna á heimasíðu FMR
Morgunblaðið/Golli
Á heimasíðu FMR, en slóðin er www.fmr.is er hægt er að fletta upp á fasteign á þrennan hátt; eftir heimilisfangi, land-
númeri eða fastanúmeri.
SVÆÐISBUNDIN fiskveiðistjórnun Noregs og
Íslands á Norðaustur-Atlantshafi er meðal þess
sem Norska utanríkismálastofnunin (NUPI) er
með til skoðunar í samstarfi við Alþjóðamála-
stofnun Háskóla Íslands. Frá þessu var greint í
norskum fjölmiðlum í gærkvöld og vitnað í starfs-
mann NUPI, Sverre Jervell, sem flutti erindi á
fiskeldisráðstefnu í Þrándheimi í gær.
Er þetta hluti af rannsókn Norðmanna á kost-
um og göllum sjávarútvegsstefnu Evrópusam-
bandsins (ESB) og hvort stefnan heimili svæð-
isbundna fiskveiðistjórnun sem þessa.
Haft er eftir Jervell í norskum fjölmiðlum að
slík stjórnun geti jafnvel auðveldað inngöngu í
ESB fyrir Norðmenn og Íslendinga. Stjórnun
fiskveiðanna á hafsvæðinu geti þá farið fram ann-
aðhvort í Reykjavík eða Tromsö.
Jervell segir að m.a. verði ábyrg auðlinda-
stjórnun lögð til grundvallar í verkefninu, t.d.
bann við brottkasti og svæðalokanir og jafnframt
skoðað hvernig verjast megi svokölluðu kvóta-
hoppi. Með því er átt við að erlend skip geti eign-
ast kvóta í tilteknu ríki en landað afla sínum í
öðru ríki.
Rætt við hagsmunaaðila hér
Baldur Þórhallsson, formaður stjórnar Al-
þjóðamálastofnunar HÍ, staðfesti í samtali við
Morgunblaðið að stofnunin væri að fara af stað í
þetta verkefni með Norðmönnum. Ekki væri búið
að skipa íslenska sérfræðinga í rannsóknarhóp-
inn.
Er stofnuninni ætlað að afla upplýsinga og
ræða við hagsmunaaðila í íslenskum sjávarútvegi
og kanna möguleika á sameiginlegum snertifleti
með norskum sjávarúvegi.
Að sögn Baldurs er von á tveimur fulltrúum
NUPI til Íslands síðar í vikunni til að kynna verk-
efnið nánar.
Norðmenn hafa átt frumkvæði að þessu og leit-
uðu fyrst til utanríkisráðuneytisins, sem taldi rétt
að óháður aðili ynni verkefnið hér á landi. Fékk
Alþjóðamálastofnun HÍ styrk frá ráðuneytinu
vegna þessa. Áætlanir NUPI gera ráð fyrir að
skýrsla verði tilbúin í apríl næstkomandi.
Norska utanríkismálastofnunin í samstarfi við Alþjóðamálastofnun HÍ
Fiskveiðistjórnun á NA-
Atlantshafi til skoðunar
Nokkrar breytingar hafa verið
gerðar á aftasta hluta Morgun-
blaðsins, sem sumar hverjar má
rekja til fjölgunar útgáfudaga.
Veigamesta breytingin er sú
að íþróttaumfjöllun blaðsins er
færð úr sérstökum fjórblöðungi
yfir í meginblaðið [44–47 í blað-
inu í dag] þar sem hún er fyrir
framan Fólk í fréttum, dægur-
málaumfjöllun blaðsins, og á ekki
síst að höfða til ungs fólks. Sér-
stakt íþróttablað mun þó hér eft-
ir koma út á mánudögum og
einnig þegar umfjöllun krefst
aukins rýmis. Fólk í fréttum fær
jafnframt aukið rými [48–53],
bæði fyrir framan þann hluta
blaðsins sem hýst hefur þennan
efnisflokk og fyrir aftan þar sem
lögð verður áhersla á ljósvaka-
tengt efni í tengslum við dag-
skrár þessara miðla [55].
Á móti kemur að felld er að
stórum hluta niður svokölluð
þjónustusíða þar sem finna hefur
mátt upplýsingar um ýmiss kon-
ar almenn félagasamtök og opn-
unartíma safna sem nú má auð-
veldlega fá upplýsingar um
annars staðar, m.a. á vefnum. Þó
standa eftir upplýsingar um
neyðarþjónustu, læknavaktir og
afgreiðslutíma lyfjaverslana [38].
Þjóðmáladálkurinn Stakstein-
ar færist við þetta yfir á dagbók-
arsíðu [42] þar sem hann verður
eftirleiðis í slagtogi með þeim fé-
lögum Velvakanda og Víkverja.
Til lesenda
ÞAÐ getur reynst afdrifaríkt að
sveifla sundpokanum sínum of hátt,
eins og þessir ungu herramenn í
Kópavogi virðast hafa fengið að
reyna er þeir voru á heimleið frá
skóla. Þar sem ekki barst aðstoð frá
sér hærri mönnum urðu drengirnir
sér úti um prik til að ná sundföt-
unum niður af skiltinu.
Morgunblaðið/Golli
Komdu niður,
komdu niður…
ÞAU mistök urðu við gerð tilkynn-
ingarseðla frá Fasteignamati ríkis-
ins um fasteigna- og brunabótamat í
lok árs 2002 að á seðlana voru prent-
aðar upplýsingar frá árinu 2001 en
ekki 2002. Alls eru um 110 þúsund
seðlar sendir út og er kostnaðurinn
við þessi mistök um 4,3 milljónir
króna.
Dreifing tilkynningarseðlanna
hefur verið stöðvuð. „Þessi mistök
urðu vegna þess að það var notuð
röng tölvuskrá við útkeyrsluna á
þessum upplýsingum. Við erum auð-
vitað afar leið yfir því að það skyldi
gerast. Þetta eru mannleg mistök,“
segir Haukur Ingibergsson, for-
stjóri Fasteignamats ríkisins.
Mistök við
útsendingu
110 þúsund
tilkynninga
KONA barði mann í höfuðið með
kjötexi sl. sunnudag. Maðurinn var
með minniháttar áverka á höfði og
var fluttur af lögreglu á slysadeild
Landspítalans í Fossvogi.
Málsatvik voru þau að maðurinn
kom til að sækja muni sem hann átti í
íbúð fv. eiginkonu sinnar. Missætti
kom upp milli þeirra. Við höggið
brotnaði skaft axarinnar.
Barði mann
með kjötexi
♦ ♦ ♦
RÚMLEGA 50% 10. bekkinga hafa
aldrei spilað í söfnunarkassa sam-
kvæmt niðurstöðum úr nýrri könnun
sem Íslenskir söfnunarkassar (ÍSK),
rekstraraðili söfnunarkassa fyrir
Rauða kross Íslands, Slysavarna-
félagið Landsbjörg og SÁÁ, fólu Gall-
up að gera. Samkvæmt þessum nið-
urstöðum telur ÍSK ásókn unglinga í
söfnunarkassa hafa minnkað töluvert
frá síðustu könnun sem Rannsóknir
og greining gerðu vorið 2001.
Samkvæmt könnuninni nú hafa
tæplega 20% unglinga spilað á síðustu
6 mánuðum, 11,3% síðastliðna 6–12
mánuði og 18,5% fyrir meira en ári.
Samkvæmt frétt frá ÍSK er það
stefna félagsins að reyna með öllum
ráðum að koma í veg fyrir misnotkun
á söfnunarkössunum. Það er m.a. gert
með því að reka þjónustuvef og hjálp-
arlínu fyrir spilafíkla. Úrtakið í könn-
uninni var 600 manns úr hópi barna
fæddum árið 1987.
Færri
unglingar
stunda söfn-
unarkassa
ALÞINGI Íslendinga kemur saman
að nýju í dag eftir jólahlé. Þingfund-
ur hefst kl. 13.30.
Umræður munu fara fram um
fjögur frumvörp ríkisstjórnarinnar,
þ.e. frumvarp um vísinda- og tækni-
ráð, frumvarp um opinberan stuðn-
ing við vísindarannsóknir, frumvarp
um opinberan stuðning við
tækniþróun og frumvarp um vatns-
veitur sveitarfélaga.
Þinghald verður með styttra móti
á þessu vorþingi vegna alþingiskosn-
inganna í vor. Samkvæmt starfs-
áætlun þingsins mun þingið standa
fram til 14. mars nk.
Alþingi kemur
saman að nýju
♦ ♦ ♦