Morgunblaðið - 21.01.2003, Síða 12

Morgunblaðið - 21.01.2003, Síða 12
HEILDARVELTA fyrirtækja á Ís- landi nam 1.069 milljónum króna á fyrstu tíu mánuðum ársins 2002, skv. tölum frá Hagstofu Íslands sem byggðar eru á virðisaukaskatt- skýrslum. Veltan jókst um 3,6% frá sama tímabili árið 2001, var þá 1.032 milljónir króna. Samkvæmt hálf fimm fréttum Búnaðarbankans dróst heildarvelt- an í hagkerfinu saman um rúm 2% að raungildi miðað við hækkun á vístölu neysluverðs á þessu tímabili. „Veltan í smásöluverslun dróst sam- an um rúmlega 1% að raungildi á sama mælikvarða sem gefur vís- bendingu um að einkaneyslan hafi dregist saman á þessu tímabili eins og almennt hefur verið reiknað með. Greinilegt er að hlutur stórmarkaða í matvöruversluninni fer vaxandi á kostnað minni verslana, en veltan í stórmörkuðum jókst um tæp 14% en veltan í minni matvöruverslunum dróst saman um tæp 8%,“ að því er fram kemur í hálf fimm fréttum. Að mati Greiningardeildar Ís- landsbanka skýrist veltuaukningin að hluta til af 5,5% verðbólgu sem var á tímabilinu. Innflutningur minnkar en útflutningur eykst Séu einstakar atvinnugreinar skoðaðar sést að velta í fiskveiðum jókst um tæp 12% og velta málm- framleiðslu um tæplega 9%. Sala bíla jókst um tæp 2% á milli tíma- bila. Í Morgunkornum greiningar ÍSB í gær segir að innflutningur hafi í heildina minnkað um 4% á milli tímabila. Að sama skapi hafi út- flutningur aukist um ríflega 9%, sem sjáist helst á aukinni veltu í fiskveiðum. Telur greiningardeildin að tölurnar lýsi hagkerfi þar sem misjafnt gengi sé í útflutningsat- vinnugreinum og þeim greinum sem selja vörur og þjónustu á innlendum markaði. Sé litið á smásölu eingöngu má sjá að velta stórmarkaða jókst um 14% á meðan velta matvöruverslana í minni en 400 fermetra húsnæði dróst saman um 8%. Velta smásölu- verslunar jókst samtals um 4,6% á milli tímabila. Heildarvelta umboðs- og heildverslunar jókst um rétt tæp 2%. Samdráttur í veltu fyr- irtækja að raungildi VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF 12 ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ DALSMYNNI ehf. hefur krafið Jón Ásgeir Jóhannesson og Þorstein Má Baldvinsson um 227 milljónir króna til greiðslu vegna sölu á hlut Dals- mynnis í Orca SA, og þar með Ís- landsbanka, fyrir um ári. Telja eig- endur fjárfestingarfélagsins Dalsmynnis, þeir Eyjólfur Sveinsson, Sveinn R. Eyjólfsson o.fl., að leiðrétta beri verðið sem fékkst í viðskiptun- um. Orca-hópurinn átti á þessum tíma rúm 18% í Íslandsbanka en hlutur Dalsmynnis nam rúmum 4%. Málið er rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur og lögðu málsaðilar fram gögn í gær en líklegt er að málið verði tekið fyrir í febrúar. Ástæða þess að Dalsmynni stefnir Jóni Ásgeiri og Þorsteini Má og kref- ur þá um greiðslu er sú að félagið tel- ur sig hafa rétt á að nýta svokallað leiðréttingarákvæði í samningnum sem gerður var þegar félagið var leyst út úr Orca-hópnum. Í samningn- um, sem gerður var í janúar 2002, segir að seljendur bréfanna, Dals- mynni ehf., hafi rétt á að endurskoða hann ef aðrir eigendur verði leystir út með sama hætti fyrir ágúst 2002. Í mars í fyrra dró Jón Ólafsson sig svo út úr Orca-hópnum. Jón seldi hlut sinn í Orca, og þar með Íslandsbanka, á genginu 5,0 krónur á hlut sem var um 4% yfir markaðsgengi bankans á þeim tíma. Nefndur samningur Dals- mynnis við Jón Ásgeir og Þorstein Má um að leysa Dalsmynni út úr Orca kvað hins vegar á um gengið 4,3 krón- ur á hlut. Í kjölfar hans var þó haft eftir Eyjólfi Sveinssyni, einum eig- anda Dalsmynnis, að væru viðbótar- greiðslur sem berast áttu í áföngum taldar með yrði gengið í raun 4,7–4,8 krónur á hlut. Hlutur Dalsmynnis nam um 412 milljónum að nafnvirði og var verðmæti viðskiptanna því tæplega 1,8 milljarðar króna, sé mið- að við gengið 4,3 krónur á hlut. Deilan snýst því um það hvort Dalsmynni fær leiðréttingu á verðinu til samræmis við það gengi sem Jón Ólafsson fékk þegar hann seldi sinn hlut. Að mati forsvarsmanna Dals- mynnis ehf. er mismunurinn 227 milljónir króna en þessu mótmæla stefndu. Að sögn Gísla Baldurs Garð- arssonar hrl., lögmanns Jóns Ásgeirs og Þorsteins Más, eru málsaðilar ekki á einu máli um hvort sala Jóns Ólafs- sonar á sínum hlut falli undir hugtak- ið innlausn, en gert hafi verið ráð fyrir í samningnum að verð komi til endur- skoðunar ef hlutir annarra eigenda verði leystir inn með sama hætti og gert var með hlut Dalsmynnis. Lög- maður stefnenda, Jón Steinar Gunn- laugsson hrl., sagði í samtali við Morgunblaðið að deilt væri um hvort skilyrði fyrir leiðréttingu á verði hefðu komið fram eða ekki. Hvorugur lögmanna taldi ástæðu til að tjá sig frekar um málið, enda hafi það ekki verið tekið fyrir í gær heldur einungis lögð fram gögn. Deilt um verðmæti hlut- ar Dalsmynnis í Orca Fyrrum hluthafar Orca-hópsins eru ósáttir við verðið sem þeir fengu fyrir hlut sinn og vilja fá leiðréttingu til samræmis við það verð sem Jón Ólafs- son fékk fyrir sinn hlut í Orca. Morgunblaðið/Ásdís Dalsmynni ehf. hefur krafið Jón Ásgeir Jóhannesson og Þorstein Má Bald- vinsson um 227 m. kr. til greiðslu vegna sölu á hlut Dalsmynnis í Orca SA.  Gylfi Rútsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri fjármála- og rekstr- arsviðs PharmaNor hf. Umrædd staða varð til við skipulagsbreytingar hjá fé- laginu sem kynntar voru í september síðastliðnum, en forstjóri félagsins hefur gegnt henni tímabundið síðan þá. Í starfinu felst m.a. umsjón með fjármálum, bók- haldi, upplýs- ingakerfum, birgða- stýringu, dreifingu og almennum rekstrarmálum. Gylfi mun hefja störf í byrjun febrúar. Gylfi útskrifaðist sem stúdent frá Verzl- unarskóla Íslands árið 1982 og sem viðskiptafræðingur af markaðssviði frá Háskóla Íslands 1986. Eftir nám starf- aði hann sem ráðgjafi hjá fjármögn- unarfyrirtækinu Glitni hf. til ársins 1991. Þá var Gylfi ráðinn sem fjár- málastjóri tölvufyrirtækisins Sameindar hf., sem sameinaðist tölvufyrirtækinu Tæknivali hf. ári síðar. Var Gylfi framkvæmdastjóri fjár- málasviðs Tæknivals á árunum 1992 til 1999. Það sama ár tók hann við stöðu fram- kvæmdastjóra fjármálasviðs Tals og hefur gegnt því starfi síðan. Gylfi er kvæntur Ágústu Kristjánsdóttur, fótaað- gerða- og snyrtifræðingi, sem rekur snyrtistofuna Ágústu í Hafnarstræti, og eiga þau þrjú börn. Gylfi Rútsson til PharmaNor hf. ● Hugur hefur tekið við samstarfs- samningi við finnska hugbúnaðarfyr- irtækið QPR Management Software af BSC ráðgjöf og gerst samstarfs- aðili þeirra hér á landi. Jón Sigurðs- son eigandi BSC ráðgjafar hefur í kjölfarið tekið til starfa hjá Hug hf. QPR var stofnað 1991 og framleiðir lausnir til að fylgja eftir að- ferðafræði samhæfðs árangurs- mats (e. Balanced Scorecard), ABC kostnaðargreiningar og ferlastjórn- unar. Hjá QPR starfa 120 manns, þar af 60 í nýsköpun og þróun. QPR velti 12,1 milljón evra árið 2001. Meðal viðskiptavina QPR eru m.a. finnska ríkið, NOKIA, KLM, Ca- non og stofnanir Sameinuðu þjóð- anna, að því er fram kemur í frétta- tilkynningu frá Hug. Hugur hf. er hluti af EJS samstæðunni. Hugur hf. sérhæfir sig í viðskiptalausnum og hjá fyrirtækinu starfa rúmlega 100 manns. Hugur í samstarf við Finna● PHILIP Green, athafnamaðurinnsem á síðasta ári yfirtók breska fyr- irtækið Arcadia, íhugar nú að bjóða 2,9 milljarða punda í smásölukeðj- una Safeway, eða sem nemur um 368 milljörðum íslenskra króna. Til- boðið yrði í reiðufé. Green er ekki fyrstur til að lýsa yfir áhuga á yfirtöku, því bandaríski risinn Wal-Mart, J. Sainsbury, annað stærsta smásölu- fyrirtæki Bretlands, og Kohlberg Kravis Roberts (KKR) í Bandaríkj- unum hafa gefið út yfirlýsingar í svip- aða veru. Áður hafði fyrirtækið Wm Morrison Supermarkets gert yfirtöku- tilboð upp á 2,54 milljarða punda. Green sagði í yfirlýsingu að hann væri að íhuga málið, sem væri á frumstigi. Ekki væri víst að af tilboði yrði. Hann keypti sem fyrr segir smá- sölufyrirtækið Arcadia síðasta haust og nam kaupverðið 850 milljónum punda, eða um 108 milljörðum ís- lenskra króna. Baugur-ID seldi þá hlut sinn í Arcadia með 8 milljarða króna hagnaði. Green íhugar boð í Safeway ● VIÐSKIPTAVINIR stærstu bank- anna í Japan munu á næstunni þurfa að greiða aukalega fyrir það að taka út úr hraðbanka á laugardegi. Greint er frá þessu í vefútgáfu BBC. Bank of Tokyo-Mitsubishi ætlar að taka upp sérstakt gjald í febrúar næstkomandi að jafnvirði um 70 ís- lenskar krónur fyrir hverja færslu í hraðbanka, að því er fram kemur í frétt BBC. Þá segir að Sumitomo Mitsui-bankinn ætli að leggja á svip- að gjald í marsmánuði og Mizuho- bankinn stefni einnig að þessu síðar á árinu. Það var UFJ-bankinn sem hóf gjaldtöku fyrir úttekt úr hrað- banka á laugardögum í síðasta mán- uði. Haft er eftir talsmanni Sumitomo Mitsui-bankans í frétt BBC, að þegar útibú bankans hafi verið opin á laug- ardögum hafi því ekki fylgt nokkur aukakostnaður fyrir bankann að við- skiptavinir hans notuðu hraðbanka. Nú þegar bankinn hafi hins vegar verið lokaður á laugardögum í nærri áratug vilji bankinn ekki lengur bera þann aukakostnað sem því fylgir að halda hraðbönkunum opnum fyrir hluta viðskiptavinanna. „Kominn sé tími til að þeir sem nota þjónustuna greiði fyrir hana,“ er haft eftir tals- manninum. Hann segir að hins veg- ar komi á móti þessu að bankinn hafi komið upp punktakerfi þar sem þeir er noti netbanka safni punktum, sem geti vegið upp á móti auka- kostnaði vegna laugardagsúttektar úr hraðbanka. Aukagjald fyrir úttekt úr hrað- banka í Japan BÚNAÐARBANKINN hefur fengið tvo lögfræðinga utan bankans til að gefa álit á þeirri ákvörðun Kauphallar Íslands að beita bankann févíti að fjárhæð 4,5 millj- ónir króna fyrir að hafa brotið flöggun- arreglur í tengslum við gerð samnings um meðferð hluta- bréfa í Fjárfesting- arfélaginu Straumi í júní í fyrra. Magnús Gunnars- son formaður banka- ráðs Búnaðarbank- ans segir að málið hafi verið rætt í gær innan bankans. „Okkur þykir mjög miður að þessi umræða er komin af stað um bankann og vildum fara yfir stöðuna. Við sjáum hver svör og forsendur Kauphallarinnar eru í þeirra ákvörðun um að beita bankann févíti. Við höfum líka farið yfir röksemdir okkar lög- fræðinga í þessu sem telja að bankinn hafi ekki þurft að tilkynna þessi viðskipti. Það sem við höfum gert er að fara fram á það við tvo lögfræðinga utan bankans að þeir gefi okkur umsögn um þetta þannig að við fáum fleiri skoðanir á þessu,“ segir Magnús. Aðspurður segir hann að umsagnirnar liggi vonandi fljótlega fyrir, annaðhvort í þessari viku eða í byrjun þeirrar næstu. Ákvörðun um framhaldið verði tekin þegar þær liggi fyr- ir. Févíti á Búnaðarbankann Utanaðkomandi umsagnar leitað NOKKUR munur er á hagvaxtar-spám Greiningardeilda Kaupþings og Íslandsbanka fyrir árið í ár, eða 0,4–0,6 prósentustig. Kaupþing endurmat sína spá fyrr í þessari viku til lækkunar í samræmi við áætlun Landsvirkjun- ar þar sem sagt er að fjárfesting vegna Kárahnjúkavirkjunar verði 20 milljarðar í ár, en ekki 30 millj- arðar eins og Kaupþing gerði ráð fyrir í fyrri spá sinni. Miðað við þá spá var gert ráð fyrir 3,8% hag- vexti á þessu ári en miðað við hinar nýju forsendur er gert ráð fyrir að hagvöxtur verði 2,3–2,5%. Spá Íslandsbanka frá því í haust gerði hins vegar ráð fyrir 2,9% hagvexti í ár með virkjun. Að sögn Ingólfs Bender, hag- fræðings hjá Íslandsbanka, er nú verið að endurskoða hagvaxtar- spána og telur hann að ekki verði um að ræða neinar verulegar breytingar. Hann segir það eðlilegt að eitthvað beri á milli hjá grein- ingaraðilum vegna ýmissa óvissu- þátta. „Frá því síðastliðið haust höfum við gengið út frá því í okkar spám að stóriðjuframkvæmdir færu af stað af fullum krafti á þessu ári. Þó að umfang framkvæmdanna vegna álvers Alcoa sé þekkt þá eru margir óvissuþættir í spánni. Það er t.d. óvissa hvaða áhrif fram- kvæmdirnar hafi á almenna fjár- festingu í landinu, neyslu, gengi krónunnar, vexti, stöðu vinnu- markaðarins og fleiri þætti. Auk þess er óvissa um stöðu hag- kerfisins að öðru leyti t.d. þróun fiskverðs, olíuverðs og stöðu veiði- stofna og hvort farið verður af stað í stækkun Norðuráls á árinu. Það er því eðlilegt að eitthvað beri á milli hjá greiningaraðilum. Þegar horft er á stóru myndina er- um við samt að öllum líkindum að horfa á rétt ríflega jafnvægishag- vöxt í ár, 2,5–3,0% sem er rétt ríf- lega vaxtargeta hagkerfisins til lengri tíma,“ sagði Ingólfur í sam- tali við Morgunblaðið. Munur á hagvaxt- arspám 0,4–0,6%

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.