Morgunblaðið - 21.01.2003, Side 18

Morgunblaðið - 21.01.2003, Side 18
AKUREYRI 18 ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTÍU ár voru nú í vikunni liðin frá því teknar voru upp fastar vaktir hjá Slökkviliði Akureyrar, en liðið var stofnað töluvert fyrr eða 9. desember árið 1905. Núverandi og fyrrverandi starfsmenn Slökkviliðs Akureyrar gerðu sér glaðan dag ásamt gestum sínum af þessu tilefni og rifjuðu upp sögu liðsins. Eftir stórbruna sem varð á Akur- eyri 1901 var af alvöru farið að ræða um að stofna slökkvilið í bænum, en heimild til kaupa á fyrstu slökkvi- tækjunum fékkst ekki fyrr en þremur árum síðar. Fyrsti slökkvibíllinn var keyptur árið 1930 og fimm árum síðar voru brunaboðar settir upp á nokkrum stöðum í bænum ásamt bjöllum við heimili slökkviliðsmanna. Áður en sú nýjung var tekin upp höfðu tveir menn haft þann starfa með höndum að hlaupa um bæinn og blása í bruna- lúðra. Í ávarpi Magnúsar V. Arnarssonar, sem er settur aðstoðarslökkviliðs- stjóri, kom fram að á fyrstu dögum hinna föstu vakta voru fjórir bruna- verðir að störfum ásamt varaslökkvi- liðsstjóra og gengu þeir vaktir allan sólarhringinn, einn í senn. Fyrsti útkallsbíll í 43 ár Starfsemin var þá til húsa á neðstu hæð ráðhússins við Geislagötu. Smám saman var aukið við tækja- kost liðsins, þannig kom nýr slökkvi- bíll árið 1954, sem á þeim tíma þótti sá fullkomnasti á landinu og var hann fyrsti útkallsbíll liðsins til ársins 1997 eða í 43 ár. Mönnum á vakt hefur einnig fjölgað, fyrst í tvo en árið 1975 urðu þeir þrír og fjórir árið 1998, en í kjölfarið batnaði mjög þjónusta liðs- ins í bruna- og sjúkraútköllum. Slökkviliðið hefur sinnt akstri sjúkrabíls fyrir Rauða krossinn frá árinu 1968 og hefur sá þáttur starf- seminnar vaxið ár frá ári. Hjá Slökkviliði Akureyrar starfa nú um 30 menn og hefur um helmingur þeirra lokið svokallaðri neyðarflutnings- menntun. Árið 2000 tók liðið við rekstri Slökkviliðs Akureyrarflug- vallar og bættust þá 7 starfsmenn við sem ganga vaktir á flugvelli. Stórbættar brunavarnir Magnús gat þess að margir stór- brunar hefðu orðið fyrr á tímum, áður en vaktir voru teknar upp, og mann- tjón í eldsvoðum orðið nánast árlega. Brunaútköll væru álíka mörg nú og þá, en miklu oftar tækist að ráða nið- urlögum elds áður en hann ylli tjóni og manntjóni í eldsvoðum væru sjald- gæf nú. „Það má þakka bættum brunavörnum, betri tækjakosti slökkviliðs, en ekki síður betra við- bragði með fleiri mönnum þannig að hægt er að hefja slökkvistarf fyrr en áður,“ sagði Magnús. Verkefnum Slökkviliðsins hefur stórfjölgað, m.a. vatnsdæling, hreins- un hættulegra efna, og ýmiss konar björgun, t.d. úr bílflökum. Áhersla hefur einnig verið aukin hvað varðar viðbrögð við flugslysum með samein- ingu við flugvallarliðið og er fyrirhug- uð frekari þjálfun á því sviði. Slökkvi- ðið sér einnig um eldvarnareftirlit og slökkvistörf í nágrannabyggðarlög- um. Miðstöð sjúkraflugs er á Akur- eyri og fara neyðarflutningamenn liðsins með í öll sjúkraflug frá Akur- eyri. Fjórðungssjúkrahúsið á Akur- eyri hefur tekið að sér rekstur sjúkra- flutningaskóla og munu nokkrir starfsmanna slökkviliðsins sjá um kennslu við skólann. Magnús sagði Slökkvilið Akureyr- ar eina atvinnuslökkviliðið á Norður- landi og að mikilvægi þess næði langt út fyrir bæjarmörkin, það hefði á að skipa tækjum og þjálfuðum mann- skap til að bregðast við slysum og eldsvoðum langt út fyrir sitt starfs- svæði. Alls hafa 6 menn sinnt starfi slökkviliðsstjóra frá upphafi eða í nær eina öld, fyrst Ragnar Ólafsson, þá Axel Schiöth, Eggert Melstað, Ásgeir Valdimarsson, Sveinn Tómasson og Tómas Búi Böðvarsson. Takast á við sífellt fleiri og fjölbreyttari verkefni Morgunblaðið/Kristján Gunnlaugur Búi Sveinsson, fyrrverandi varðstjóri í Slökkviliði Akureyrar, afhenti Tómasi Búa Böðvarssyni slökkviliðsstjóra mynd af öðrum slökkvi- bíl slökkviliðsins, sem var af gerðinni Ford árgerð 1929. Á milli þeirra stendur Magnús Arnarsson, settur aðstoðarslökkviliðsstjóri, og Ingimar Eydal varðstjóri t.h. Hálf öld frá því fastar vaktir voru teknar upp hjá Slökkviliði Akureyrar ÞÓTT töluvert hafi snjóað und- anfarna daga hefur skíðafólk þurft að bíða eftir því að kom- ast á skíði á skíðasvæðunum í Eyjafirði. Til stóð að opna í Hlíðarfjalli um helgina en fallið var frá því. Einar Hjörleifsson forstöðumaður skíðasvæðisins í Böggvisstaðarfjalli sagði að lít- ill snjór væri í fjallinu en þó stæði til að hefja skíðaæfingar þar í dag, þriðjudag. Einar sagði að Dalvíkingar ætluðu að fara hægt og hljótt af stað. Ástandið væri svipað og þegar skíðasvæðið var opnað í október sl. en að nauðsynlegt væri að hefja æfingar hjá krökkunum, enda skánaði ástandið með hverjum degi. Síðastliðið sumar voru settar upp snjógirðingar í Böggviss- taðarfjalli og sagði Einar og þær hefðu gert gæfumuninn. Björgvin Hjörleifsson skíða- þjálfari í Ólafsfirði sagði að enn vantaði töluvert magn af snjó í skíðabrekkurnar þar en hann vonast til að úr rætist í vikunni. Elsta keppnisfólkið í Ólafsfirði, alls um 20 manns, kemur heim í dag úr 10 daga æfingaferð til Noregs. Hópurinn dvaldi við mjög góðar aðstæður í Geilo og æfðu alpagreinakrakkarnir undir stjórn Kristins Björns- sonar en gönguhópurinn undir stjórn Jóns Konráðssonar. Enn vantar snjó í skíða- brekkurnar SIGBJÖRN Gunnarsson sveit- arstjóri í Mývatnssveit og fyrrver- andi leikmaður með ÍBA, sameig- inlegu liði íþróttafélaganna KA og Þórs á Akureyri, kom færandi hendi í vígslu Bogans, nýs fjölnota íþróttahúss nú um helgina. Hafði hann í farteskinu treyju nr. 9, sem hann hafði leikið í síðasta leik ÍBA, haustið 1974, en liðið lék þá gegn Víkingi og fór leikurinn fram í Keflavík. Þetta var mik- ilvægur leikur fyrir liðin, en í húfi var sæti í efstu deild. Leikurinn fór 3:1 fyrir Víking og þar með féll ÍBA úr deildinni en í kjölfarið var ákveðið að hvort lið um sig myndi senda sitt eigið knattspyrnulið til leiks í annarri deildinni sumarið á eftir. Þess má geta að það var Sig- björn sjálfur sem skoraði eina mark ÍBA – með skalla. Mæltist Sigbjörn til þess að treyjunni yrði valinn staður í hinu nýja fjölnota íþróttahúsi til minn- ingar um hið sameiginlega lið ak- ureyrsku íþróttafélaganna. Við vígslu hússins fór einnig fram vítaspyrnukeppni, þar sem fulltrúar stjórnmálaflokkanna í bæjarstjórn Akureyrar tóku víti, en í markinu stóð landsliðsþjálf- arinn Atli Eðvaldsson. Varði hann fimlega skot bæjarstjórans, Krist- jáns Þórs Júlíussonar og átti ekki í vandræðum með laflaust skot Okt- avíu Jóhannesdóttur fulltrúa Sam- fylkingar, sem að sjálfsögðu mætti í támjóum spariskónum til vígsl- unnar. Fulltrúi Vinstri grænna, Jón Erlendsson átti þrumuskot að markinu – en langt yfir. Það var einungis Oddur Helgi Halldórsson, Lista fólksins sem kom boltanum framhjá landsliðsþjálfaranum og í netið. Raunar tvívegis og var Odd- ur, sem er margreyndur knatt- spyrnumaður frá fyrri tíð, því vítaskytta bæjarstjórnar og þótti vel að titlinum kominn. Oddur er raunar enn að, leikur með hinu fornfræga B-liði Þórs og hefur sýnt snilldartakta á Pollamótum félagsins. Boginn, fjölnota íþróttahús, tekinn í notkun Morgunblaðið/Kristján Tómas Ingi Olrich menntamálaráðherra, Kristján Þór Júlíusson, bæjar- stjóri á Akureyri, og Kristinn Svanbergsson, deildarstjóri íþrótta- og tóm- stundadeildar, með keppnistreyju ÍBA í knattspyrnu, sem Sigbjörn Gunn- arsson, sveitarstjóri í Mývatnssveit, færði bænum að gjöf við vígslu Bogans. Sigbjörn lék í treyjunni í síðasta opinbera leik ÍBA og skoraði með skalla. Morgunblaðið/Kristján Oddur Helgi Halldórsson, bæjarfulltrúi L-listans, sigraði með glæsibrag í vítaspyrnukeppni milli oddvita flokkanna í bæjarstjórn Akureyrar en í markinu stóð Atli Eðvaldsson landsliðsþjálfari. Treyja nr. 9 fái stað í húsinu TÖLUVERT hefur verið kvartað til lögreglu á Akureyri síðustu daga vegna aksturs vélsleða um bæinn. Snjór er nú orðinn þokkalega mikill í bænum og því greið leið fyrir öku- menn vélasleða að bruna þar um, en akstur þeirra er með öllu bannaður innanbæjar. Um helgina var til að mynda tilkynnt um akstur vélsleða í Glerárhverfi og fóru lögreglumenn á staðinn og sá þar ökumann draga börn um á slöngu. Hópur barna var á svæðinu og fylgdist með aðförunum. Ökumaður stakk af þegar hann varð lögreglu var, en síðar kom í ljós að um var að ræða 14 ára dreng á af- skráðum og ótryggðum vélsleða seg- ir í dagbók lögreglunnar. Drengur dró börn á slöngu Kvartað yfir akstri vélsleða innanbæjar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.