Morgunblaðið - 21.01.2003, Side 34
MINNINGAR
34 ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Erna GeirlaugÁrnadóttir
Mathiesen fæddist á
Austurgötu 29 í Hafn-
arfirði 12. apríl 1928.
Hún lést á kvenna-
deild Landspítalans
við Hringbraut 12.
janúar síðastliðinn.
Erna var elst þriggja
barna hjónanna
Svövu Einarsdóttur
Mathiesen húsmóður,
f. 28. júlí 1906, d. 23.
mars 1995, og Árna
M. Mathiesen, lyfja-
fræðings og verslun-
armanns, f. 27. júlí 1903, d. 8. apríl
1946. Bræður Ernu eru: Matthías,
f. 6. ágúst 1931, kvæntur Sigrúnu
Þorgilsdóttur, þau eiga þrjú börn,
og Einar Þ., f. 25. júní 1935, d. 25.
júlí 1993, kvæntur Ernu Ingi-
björgu Sveinbjörnsdóttur, þau
eiga fimm börn, en Einar átti son
fyrir hjónaband.
Hinn 17. desember 1949 giftist
Erna Sigurði Erni Hjálmtýssyni, f.
28. maí 1918, d. 20. ágúst 1994.
Sigurður Örn var sonur hjónanna
Lucindu, fædd Hansen, Sigurðs-
son, f. 13. mars 1890, d. 17. júní
1966, og Hjálmtýs Sigurðssonar, f.
14. apríl 1878, d. 5. júlí 1956. Erna
og Sigurður eignuðust fjögur
börn: 1) Árni Matthías, f. 21. maí
1950, kvæntur Eygló Hauksdóttur,
þau eiga soninn Sigurð Örn, í sam-
búð með Margréti Valdimarsdótt-
ur og dótturina Ernu Geirlaugu. 2)
Valgerður, f. 5. nóvember 1953,
gift Friðbirni Björnssyni, þau eiga
þrjár dætur, þær
eru: a) Lucinda
Svava, gift Erlingi
Arnari Óskarssyni,
þau eiga fjögur börn,
þau Friðbjörn Óskar,
Tinnu, Erling Arnar
og Valgerði, b) Theó-
dóra, í sambúð með
Sveini Pálssyni, þau
eiga eina dóttur
Birgittu og c) Ólafía.
3) Hjálmtýr, f. 1. des-
ember 1956, í sam-
búð með Kristínu
Edvardsdóttur.
Hjálmtýr á soninn
Daníel Guðmund, Kristín á þrjú
börn, þau Edvard, Berglindi og
Geir. 4) Hrafnhildur, f. 4. febrúar
1960, gift Lárusi Bjarnasyni, þau
eiga þrjú börn Svövu, Árna Geir
og Ingibjörgu.
Erna útskrifaðist frá Kvenna-
skólanum í Reykjavík vorið1946,
að námi loknu dvaldi hún í Eng-
landi við nám á árunum 1946–
1947. Er heim kom starfaði Erna
við Verslun Einars Þorgilssonar
og síðar í viðskiptaráðuneytinu.
Hún var heimavinnandi húsmóðir
á uppvaxtarárum barna sinna, fór
síðan aftur út á vinnumarkaðinn
þar sem hún starfaði við skrif-
stofustörf, síðast hjá Trygginga-
stofnun ríkisins.
Erna sinnti félagsstörfum vel og
var um árabil formaður Kven-
félags Garðahrepps.
Útför Ernu Geirlaugar verður
gerð frá Hafnarfjarðarkirkju í dag
og hefst athöfnin klukkan 13.30.
Elsku Erna, það er með söknuði og
þakklæti sem ég kveð þig.
Þegar ég hugsa til baka er mér efst
í huga þegar ég kom fyrst til ykkar
Sigga í Aratúnið og hitti þig þessa
glæsilegu og stoltu konu og fallegra
heimili var vandfundið.
Eftir að við Árni giftum okkur og
Öddi var kominn í heiminn fórum við
að líta í kringum okkur og ætluðum
að leigja okkur íbúð, þá sagðir þú
okkur frá því að það ætti að fara að
byggja blokkir í norðurbænum í
Hafnarfirði, okkur fannst þetta nú
hálf skrítið því að þar var bara hraun,
en þú dreifst okkur á skrifstofuna
sem var að auglýsa íbúðir í þessu nýja
hverfi og það gekk eftir, við keyptum
íbúð í blokk sem ekki var búið að
reisa, en það var ekkert vandamál,
því að ekkert var sjálfsagðara hjá þér
og Sigga en að við byggjum hjá ykkur
í Aratúninu þar til íbúðin yrði tilbúin,
þessi hjálp var okkur ómetanleg.
Þetta lýsir þér mjög vel, alltaf varst
þú tilbúin til að hvetja okkur í öllu
sem við tókum okkur fyrir hendur, þú
fylgdist alltaf vel með börnum,
tengdabörnum barnabörnum og
barnabarnabörnum og margar góðar
stundir áttum við öll saman hjá þér
fyrst í Aratúninu síðan í Grafarvog-
inum og núna síðast á Hringbraut-
inni.
En nú er kveðjustundin komin
elsku Erna, minningarnar um þig
munu alltaf lifa í hjarta mínu, guð
geymi þig og varðveiti.
Þín tengdadóttir
Eygló.
Í dag er borin til foldar elskuleg
tengdamóðir mína Erna Á. Mathie-
sen. Fréttin af andláti Ernu kom flatt
upp á fjölskylduna þrátt fyrir und-
anfarandi veikindi því útlit var fyrir
góðan bata í kjölfar erfiðra læknisað-
gerða.
Margs er að minnast og margt ber
að þakka. Kynni okkar Ernu hafa
staðið frá því árið 1979. Þau Erna og
Sigurður voru ásamt foreldrum mín-
um sú stoð sem studdi okkur Hrafn-
hildi til dáða og án þeirra fulltingis
hefðum við að öllum líkindum ekki
náð að ljúka námi okkar og koma
undir okkur fótunum í lífsbaráttunni.
Erna var ætíð boðin og búin að gæta
fyrir okkur barnanna og lagði á sig
löng og ströng ferðalög til þess bæði
fyrir sunnan, vestur á firði og austur
á land, allt eftir því hvar við bjuggum
hverju sinni. Þá fengu þau Hrafnhild-
ur og Árni Geir inni hjá þeim hjónum
meðan Hrafnhildur var í námi í
Þorskaþjálfaskólanum og eins skaut
Erna skjólshúsi yfir Svövu okkar
þegar hún var í Kvennaskólanum.
Loks gistum við nær undantekninga-
laust hjá þeim í fjölmörgum Reykja-
víkurferðum. Allt þetta þökkum við
nú að leiðarlokum.
Margar góðar samverustundir
koma upp í hugann. Ber þar hæst frá-
bærar móttökur og góða gestrisni
þeirra hjóna í Fannafold 10, þar sem
stórfjölskyldan kom jafnan saman til
veislu- og hátíðahalda. Þá var áber-
andi hversu mikil móðir og amma
Erna var. Hélt hún um taumana og sá
til þess að hin góðu fjölskyldugildi
fengju notið sín og sá um að sam-
bandið á milli fjölskyldna barna
hennar og barnabarna trosnaði ekki.
Allt gerði hún þetta af svo mikilli lip-
urð, að það er ekki fyrr en eftir á að
maður áttar sig á því hve hönduglega
var að staðið og hversu mikilvægt er
að huga að slíku. Þá er og að minnast
margra góðra stunda sem við áttum á
ferðalögum bæði innanlands og er-
lendis.
Ég kveð því með söknuði og hrygg-
um huga góða vinkonu, sem reynst
hefur mér og mínum frábærlega.
Efst er mér í huga þakklæti fyrir að
hafa verið þeirrar gæfu aðnjótandi að
fá að vera samferðamaður Ernu í lífs-
ins ólgusjó.
Nú ertu leidd, mín ljúfa,
lystigarð Drottins í,
þar áttu hvíld að hafa
hörmunga’ og rauna frí,
við Guð þú mátt nú mæla,
miklu fegri en sól
unan og eilíf sæla
er þín hjá lambsins stól.
(Hallgrímur Pétursson.)
Lárus Bjarnason.
Elsku amma Erna, nú er komið að
kveðjustund.
Ég kveð þig með miklum söknuði
en jafnframt miklu þakklæti fyrir að
hafa átt ömmu eins og þig.
Síðustu daga hef ég verið að hugsa
um allar þær yndislegu stundir sem
við áttum saman og veit satt að segja
ekki hvar ég á að byrja.
Hæst ber þó þegar þú komst í
heimsókn til mín til Ítalíu þegar ég
stundaði þar nám. Við nöfnurnar vor-
um mikið á ferðinni og sátum oft á
kaffihúsum í Mílanó og spjölluðum
um heima og geima.
Ferðin til Rómar var toppurinn á
tilverunni. Þar vorum við viðstaddar
messu hjá páfanum og skoðuðum
saman helstu perlur Rómar.
Skemmtilegast fannst þér þó að sitja
í spænsku tröppunum og virða fyrir
þér fjölskrúðugt mannlífið. Þessi tími
okkar saman á Ítalíu er mér ómet-
anlegur.
Elsku amma mín, ég kveð þig með
miklum söknuði og þakka fyrir allar
þær góðu stundir sem við áttum sam-
an.
Þín
Erna Geirlaug Árnadóttir.
Við andlát tengdamóður minnar
Ernu, kveð ég hana með virðingu og
þakklæti fyrir vináttu alla, tryggð,
hjálpsemi og heilindi þau rúmu þrjá-
tíu ár sem við höfum átt samleið. Það
er sárt til þess að hugsa að samveru
okkar í þessu lífi sé nú lokið.
Minning um góða konu mun lifa
með mér.
Friðbjörn Björnsson.
Elskuleg amma mín og góð vin-
kona er nú fallin frá. Ég er heppin að
hafa deilt því með frændsystkinum
mínum að hafa átt yndislegustu
ömmu í heimi. Amma var mjúk, hlý
og falleg með sitt dökka hörund og
leiftrandi brúnu augu. Hún var eins
og suðræn gyðja. Ég var alltaf svo
stolt af henni, hvar sem hún kom
hafði fólk á orði við mig hvað hún
væri sjálfstæð og dugleg kona, það
gustaði af henni ömmu dugnaðurinn
og ákveðnin. Amma bjó yfir miklum
fróðleik. Hún var hreinskilin og
sjálfri sér samkvæm. Ömmu mun ég
sakna allt mitt líf. Sárt er að kveðja
góða og fallega vinkonu eins og hana
ömmu mína.
Elsku hjartans amma mín, þér vil
ég þakka fyrir allt sem þú hefur gefið
mér af fallega hjartalagi þínu, ég mun
halda minningunni um þig á lofti við
litlu Birgittu mína sem þér þótti svo
vænt um. Ég er svo ánægð að þú
varst fyrst í fjölskyldunni til að koma
og sjá hana nýfædda, Það er svo mik-
ill heiður fyrir okkur mæðgurnar.
Elsku amma hafðu þökk fyrir allt og
allt.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Þín dótturdóttir
Theódóra Friðbjörnsdóttir.
Elsku amma. Ég fékk algjört áfall
sunnudagsmorguninn 12. janúar þeg-
ar mamma hringdi úr bílnum og sagði
mér að hún og pabbi væru á leiðinni
til þín á spítalann því þú værir svo
veik. Ég fékk í magann en ég hugs-
aði: ,,nei þetta getur ekki verið satt
því þér var að batna“. Næstu tuttugu
mínúturnar voru lengi að líða. Þegar
síminn hringdi aftur ætlaði ég ekki að
þora að svara. Það var þá Habba
frænka sem sagði mér að þú hefðir
verið farin nokkrum mínútum áður
en þau komu. Og elsku Árni frændi,
elsti sonur þinn, fastur erlendis og
komst ekki til þín. Mikið fann ég til
með honum. Elsku amma, þessi dag-
ur fór fyrir ofan garð og neðan þenn-
an dag hjá mér eins og öllum hinum.
Ég er svo þakklát að hafa komið
suður um áramótin og hitt þig. Ég
man að það síðasta sem þú sagðir við
mig var að þú hefðir svo miklar
áhyggjur af mér keyrandi ein með
börnin í bílnum alla leið austur á
Seyðisfjörð. Þú varst svo dugleg. Þú
varst búin að fara í tvær svo stórar og
ERNA GEIRLAUG
ÁRNADÓTTIR
MATHIESEN
Faðir okkar, tengdafaðir, sonur, bróðir og afi,
GUÐNI SIGVALDASON,
er lést í Svíþjóð miðvikudaginn 8. janúar, verð-
ur jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju miðviku-
daginn 22. janúar kl. 10.30.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en
þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Um-
hyggju, félag langveikra barna.
Gísli Guðnason, Soffía Pálmadóttir,
Erla Guðnadóttir,
Sigurrós Heiða Guðnadóttir, Bjarni Óskarsson,
Elsa Guðnadóttir,
Erla Gunnarsdóttir, Sigvaldi Búi Bessason,
Jón Magngeirsson, Margrét Snorradóttir,
Gunnar Sigvaldason, Aðalheiður Sigurðardóttir,
Ástríður Sigvaldadóttir, Kristinn Páll Ingvarsson,
Þórarinn Sigvaldason, Jóhanna Jóhannesdóttir,
Kristinn Sigvaldason, Guðrún Jóhannesdóttir
og barnabörn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
TÓMAS JÓNSSON
fyrrverandi brunavörður,
Hafnarstræti 21,
Akureyri,
sem lést mánudaginn 13. janúar, verður jarð-
sunginn frá Akureyrarkirkju miðvikudaginn
22. janúar kl. 13.30.
Jón Tómasson, Þórey Bergsdóttir,
Skjöldur Tómasson, Björk Nóadóttir,
Hreinn Tómasson, Þórveig B. Káradóttir,
Guðbjörg Tómasdóttir, Axel Guðmundsson,
Svala Tómasdóttir, Rafn Herbertsson,
Helga Tómasdóttir, Gústaf Eggertsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir,
bróðir og afi,
BJÖRN ÞÓRLEIFSSON
skólastjóri,
Borgarsíðu 5,
Akureyri,
lést föstudaginn 17. janúar.
Jarðarförin fer fram frá Akureyrarkirkju mánu-
daginn 27. janúar kl. 13.30.
Júlíana Þórhildur Lárusdóttir,
Þórleifur Stefán Björnsson, Rósa Mjöll Heimisdóttir,
Héðinn Björnsson,
Lárus Arnór Guðmundsson, Þóra Sif Ólafsdóttir,
Þórhildur Björnsdóttir, Jóhann Þórhallsson,
Sigríður Ásta Björnsdóttir,
Þóra Þórleifsdóttir Mothes, Christian Mothes,
Hörður Þórleifsson, Svanfríður Larsen,
Aron Örn, Katla Þöll
og Þórey Edda Þórleifsbörn.
Okkar hjartkæri bróðir og fósturfaðir,
BJARNI MARINÓ STEFÁNSSON,
Lindargötu 63,
Reykjavík,
lést á heimili sínu laugardaginn 18. janúar.
Kjartan Stefánsson,
Axelína Stefánsdóttir,
Vilborg Björgvinsdóttir,
Birgir Björgvinsson,
Björk Björgvinsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
BJÖRN GUÐMUNDSSON
frá Grjótnesi,
lést á Landspítalanum við Hringbraut sunnudaginn 19. janúar.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Þorbjörg Guðmundsdóttir,
Þórey Björnsdóttir, Jens Kjartansson,
Margrét Björnsdóttir, Jón Hrafnkelsson,
Guðmundur Ásgeir Björnsson, Sæunn Gísladóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.