Morgunblaðið - 21.01.2003, Side 39
KIRKJUSTARF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 2003 39
Áskirkja. Opið hús fyrir alla aldurshópa kl.
10–14 í neðri safnaðarsal kirkjunnar. Byrj-
að á kaffisopa og kl. 10.30 er boðið upp á
skemmtigöngu um Laugardalinn eða upp-
lestur úr góðum bókum fyrir þá sem ekki
treysta sér í gönguna. Bæna- og fyrirbæna-
stund kl. 12. Fólk sem býr eða starfar í
sókninni er hvatt til að koma og eiga kyrrð-
arstund í önnum dagsins. Fyrirbænum má
koma til starfsfólks kirkjunnar. Að lokinni
bænastund gefst þátttakendum kostur á
léttum hádegisverði. 12 spora fundur í
kvöld kl. 19.
Bústaðakirkja. TTT-æskulýðsstarf fyrir
10–12 ára kl. 17.
Grensáskirkja. Kyrrðarstund í hádegi kl.
12. Orgelleikur, ritningarlestur, altaris-
ganga, fyrirbænir. Léttur málsverður að
samverustund lokinni. 10–12 ára starf
KFUM-K kl. 17.
Hallgrímskirkja. Fyrirbænaguðsþjónusta
kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum. Eldriborg-
arastarf kl. 13. Leikfimi, súpa, kaffi og
spjall.
Háteigskirkja, eldri borgarar. Á morgun er
stutt messa, fyrirbænastund, kl. 11. Súpa
og brauð kl. 12. Brids kl. 13.
Laugarneskirkja. Fullorðinsfræðsla kl.
20. Bjarni Karlsson sóknarprestur talar.
Efni: „Bindindi í ljósi biblíulegarar trúar“.
Gott að koma. Gengið inn um dyr á aust-
urgafli kirkjunnar. Þriðjudagur með Þor-
valdi kl. 21. Lofgjörðarstund þar sem Þor-
valdur Halldórsson leiðir söng við undirleik
Gunnars Gunnarssonar, en sóknarprestur
flytur Guðs orð og bæn. Fyrirbænastund
kl. 21.30 í umsjá Margrétar Scheving sál-
gæsluþjóns og hennar samstarfsfólks.
(Sjá síðu 650 í Textavarpi).
Neskirkja. Litli kórinn – kór eldri borgara
kl. 16.30. Stjórnandi Inga J. Backman. All-
ir velkomnir. Kynning á
Alfa kl. 20. Innihald og saga námskeiðs-
ins kynnt. Almennar umræður yfir kaffi og
veitingum. Umsjón sr. Örn Bárður Jóns-
son. Foreldramorgunn miðvikudag kl. 10–
12. Kaffi og spjall. Umsjón Elínborg Lár-
usdóttir.
Árbæjarkirkja: Foreldramorgunn í safnað-
arheimilinu kl.10–12. Hittumst, kynn-
umst, fræðumst. Kl.16.15–17.15. STN-
starf fyrir 7–9 ára börn.
Breiðholtskirkja: Bænaguðsþjónusta
með altarisgöngu kl.18.30. Bænaefnum
má koma til sóknarprests í viðtalstímum
hans.
Digraneskirkja: Kirkjustarf aldraðra hefst
kl. 11.15 með leikfimi ÍAK. Léttur máls-
verður, helgistund, samvera og kaffi.
KFUM & KFUK í Digraneskirkju fyrir 10–12
ára krakka kl. 17–18.15. Fræðslusalur
opinn fyrir leiki frá 16.30. Alfa kynning-
arfundur kl. 20. (sjá nánar www.digranes-
kirkja.is)
Fella- og Hólakirkja: Fjölskyldustund kl.
10–12 í umsjón Lilju, djákna í safnaðar-
heimilinu. Kaffi og notalegheit þar sem
heimavinnandi foreldrar hittast í góðu um-
hverfi kirkjunnar. Starf fyrir 11–12 ára
stúlkur kl. 16.30.
Grafarvogskirkja: „Opið hús fyrir eldri
borgara kl. 13.30–16. Helgistund, handa-
vinna, spil og spjall. Kaffiveitingar og alltaf
eitthvað gott með kaffinu. Æskulýðsfélag í
Rimaskóla kl. 20–22, fyrir unglinga í 8.
bekk. Æskulýðsfélag í Grafarvogskirkju kl.
20–22, fyrir unglinga í 9. og 10. bekk.
Hjallakirkja: Bæna- og kyrrðarstund kl.
18.
Kópavogskirkja: Foreldramorgunn í dag
kl. 10–12 í safnaðarheimilinu Borgum.
Lindakirkja: Kl. 10. Mömmumorgunn í
safnaðarheimili Lindasóknar, Uppsölum
3.
Seljakirkja: mömmumorgunn. Opið hús
milli kl. 10 og 12. kaffi og spjall. Æsku-
lýðsfundur fyrir 13 ára unglinga (ferming-
arbörn) kl. 20.
Vídalínskirkja. Opið hús fyrir eldri borgara
í safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli kl. 13–16 á
vegum kirkjunnar. Spilað og spjallað.
Helgistund kl. 16. Fjölbreytt æskulýðs-
starf fyrir 9–12 ára stúlkur í safnaðarheim-
ilinu Kirkjuhvoli kl. 17.30–18.30 í umsjón
KFUK.
Víðistaðakirkja. Barnastarf fyrir 8–9 ára
börn í dag kl. 17.
Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir 10–12
ára börn í safnaðarheimilinu Strandbergi,
Vonarhöfn frá kl. 17–18.30.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. Opið hús fyrir 7–9
ára börn kl. 16.30–18. Æskulýðsstarf 8.
og 9. bekkur kl. 20–22.
Lágafellskirkja, barnastarf. Kirkjukrakkar
í Lágafellsskóla í dag fyrir 6–7 ára börn kl.
13.15 og 8–9 ára börn kl. 14.30. Umsjón
Þórdís djákni.
Landakirkja í Vestmannaeyjum. Kl. 15
Kirkjuprakkarar, 6–8 ára krakkar í kirkj-
unni. Gæludýradagur. Allt um gæludýr. Sr.
Þorvaldur og leiðtogarnir
Grindavíkurkirkja. Foreldramorgnar alla
þriðjudaga kl. 10–12.
Hveragerðiskirkja. Kl. 10 foreldramorg-
unn. Skraf og ráðgerð yfir kaffibolla um fyr-
irlesara á vorönn.
Borgarneskirkja. TTT tíu – tólf ára starf
alla þriðjudaga kl. 17–18. Helgistund í
kirkjunni sömu daga kl. 18.15– 19.
Þorlákskirkja. Fermingarfræðsla í dag kl.
13.40.
Krossinn. Almenn samkoma kl. 20.30 í
Hlíðasmára 5. Allir velkomnir.
Kefas. Bænastund kl. 20.30. Allir vel-
komnir.
Aðaldeild KFUK.
Fundur kl. 20. Lofgjörðar og bænasam-
vera í umsjá Þórdísar Ágústsdóttur, Hrann-
ar Sigurðardóttur og Kristínar Bjarnadótt-
ur.
Akureyrarkirkja. Morgunsöngur kl. 10.
Fermingarfræðsla kl. 15.30. Hópur 1 (8.A
Brekkuskóla og 8.A Lundarskóla).
Hveragerðiskirkja. Kl. 10 Foreldramorg-
unn, uppbyggjandi samvera fyrir heima-
vinnandi foreldra.
Safnaðarstarf
NÚ hefjast þær að nýju, samverur
eldriborgara í Laugarneskirkju,
annan hvern fimmtudag. Fimmtu-
daginn 23.1. mun Sigurbjörn Þor-
kelsson framkvæmdastjóri safn-
aðarins stýra samverunni í
samvinnu við þjónustuhóp kirkj-
unnar og kirkjuvörð. Að dagskrá
lokinni verður boðið upp á kaffi-
veitingar eins og alltaf er á þess-
um samverum. Hver einasta sam-
vera er tilhlökkunarefni því
margt ber á góma og ætíð er
gleðin við völd og er óhætt að
hvetja eldra fólk í Laugarnes-
hverfi til að fjölmenna áfram og
nýta sér þennan vettvang í kirkj-
unni sinni. Sóknarprestur.
Eldri borgarar í Laugarneskirkju
FRÉTTIR
UM helgina voru sjö
ökumenn grunaðir um
ölvun við akstur, 34 um
of hraðan akstur og 8
um akstur gegn rauðu ljósi.
Aðfaranótt laugardags var eft-
irlit með umferð og stöðvaðar
rúmlega eitt hundrað bifreiðar.
Einn ökumaður reyndist ölvaður,
2 voru ekki með ökuskírteini með-
ferðis og 3 voru með útrunnið öku-
skírteini en aðrir voru í lagi.
Á laugardag féll kona á hálku í
Fellahverfi og slasaðist talsvert á
hægri hendi. Var hún flutt á slysa-
deild með sjúkrabifreið.
Á laugardagskvöld var hringt og
sagt að rétt í þessu hafi bifreið
verið stolið utan við söluturn í
Rangárseli en ökumaður brá sér
inn og sá á eftir bifreiðinni í átt að
Skógarseli er hann kom út.
Skömmu síðar var maður stöðv-
aður í akstri á bílnum á Stekkjar-
bakka. Hann var handtekinn og
fluttur á stöð til skýrslutöku og
blóðsýnistöku en maðurinn var
grunaður um ölvun við akstur.
Aðfaranótt sunnudags voru
rösklega 300 bifreiðar stöðvaðar
við umferðareftirlit og ástand öku-
manna kannað. Tveir ökumenn
voru grunaðir um ölvun við akstur.
Á sunnudagskvöld var tilkynnt
um slys á Miklubraut við afrein að
Reykjanesbraut. Þarna missti
ökumaður vald á bifreið sinni og
hafnaði hún á ljósastaur. Ökumað-
urinn ætlaði sjálfur til læknis
vegna eymsla en bifreiðin var fjar-
lægð með kranabifreið.
15 með fíkniefni
Um helgina var sem oftar tals-
vert svipast um eftir mönnum sem
gætu haft fíkniefni meðferðis og
fundust 15 slíkir sem höfðu ýmsar
tegundir efna í sínum fórum en
oftast voru þetta kannabisefni.
Á föstudag hafði maður hringt í
byggingavöruverslun og pantað
parket fyrir talsverða upphæð á
nafni annars manns sem á reikn-
ing þar. Sá maður var óvænt
staddur í versluninni síðar um
daginn og þá hafði önnur pöntun
komið inn á hans nafni og því var
hann spurður út í málið en þá
komst svindlið upp. Síðari pönt-
unin var fyrir talsvert hærri upp-
hæð en sú fyrri. Málið er í rann-
sókn.
Á föstudagskvöld var tilkynnt
um innbrot í skúr í Vesturbænum.
Þaðan hafði verið stolið veiðistöng-
um, hjólum og fleiru tengdu veið-
um auk beisla og svipu.
Aðfaranótt laugardags var afar
rólegt í miðborginni en töluverð
ölvun. Kalt var í veðri.
Þá var hringt úr íbúð í aust-
urbænum og óskað eftir aðstoð
vegna ölvunar og áfloga. Þarna
hafði gestkomandi maður veist að
tveimur konum. Þær voru með
minniháttar áverka á höfði og lög-
regla flutti þær á slysadeild.
Lögreglumenn voru staddir í
Hafnarstræti þegar þeir sáu tvo
dyraverði liggja ofan á kvenmanni
fyrir utan veitingahús. Þeir tóku
stúlkuna inn í lögreglubifreiðina til
að ræða við hana. Að sögn dyra-
varðanna réðst hún á gest inni á
staðnum og þegar henni var vísað
út sparkaði hún í dyraverðina. Í
lögreglubifreiðinni var ekki hægt
að ræða við konuna því hún byrj-
aði á því að sparka í einn lögreglu-
mann og hrækja á annan. Var því
ekki annað hægt að gera en vista
konuna í fangaklefa.
Síðdegis á laugardag tóku ör-
yggisverðir í Kringlunni 13 ára
dreng sem var að selja DV en gat
ekki gert grein fyrir því hvar hann
fékk blöðin. Öryggisverðir höfðu
samband við dreifingarstjóra DV
sem ekki kannaðist við málið. Talið
er að blöðin séu stolin og hafi
drengurinn verið að selja þau fyrir
aðra. Drengurinn var fluttur heim
til foreldra sinna.
Þá var maður staðinn að þjófn-
aði úr 3 verslunum í Kringlunni en
hann hafði stolið fatnaði sem kost-
aði tugi þúsunda. Maðurinn var
laus að lokinni skýrslutöku.
Skömmu eftir miðnætti aðfara-
nótt sunnudags kom maður á lög-
reglustöðina og sagði að þá
skömmu áður hefðu dyraverðir
hent honum út úr samkomuhúsi
fyrir það að hann hefði verið
ókurteis við einn af dyravörðun-
um. Þeir hefðu hrint manninum á
rúðu sem hefði brotnað. Maðurinn
hefði síðan farið í burtu í bifreið
með kunningjum en dyraverðirnir
hefðu elt þá og lamið í hlið bifreið-
arinnar með þeim afleiðingum að
hægri framhurð hennar hefði dæl-
dast. Maðurinn kvaðst vilja koma
þessu á framfæri við lögregluna ef
dyraverðirnir kærðu hann fyrir
rúðubrot en þeir yrðu kærðir fyrir
skemmdir á bifreiðinni.
Aðfaranótt sunnudags var mað-
ur stöðvaður af öryggisvörðum í
verslun en hann hafði stungið inn á
sig 2 hangikjötslærum. Ekki varð
af því að maður þessi hefði hangi-
kjöt í matinn.
Talsverður erill var aðfaranótt
sunnudags í miðborginni vegna
ölvaða manna, áfloga þeirra og
óláta.
Snemma á sunnudagsmorgun
var stór hópur af mjög æstu fólki í
Hafnarstræti. Lögreglumenn
reyndu að róa mannskapinn en
einn maður réðst á lögreglumann.
Maðurinn var tekinn og settur í
handjárn. Hann kvartaði svo und-
an eymslum í hendi og var fluttur
á slysadeild en var síðan frjáls
ferða sinna.
Á sunnudagsmorgun var til-
kynnt um innbrot í fyrirtæki í
Höfðahverfi. Brotin hafði verið
rúða baka til með því að skjóta í
gegnum hana með haglabyssu.
Stolið var fartölvu og fleiru.
Farið var inn í starfsmannaað-
stöðu í fyrirtæki í vesturbænum og
tekin taska sem í var ferðageisla-
spilari, myndavél, GSM-sími og
seðlaveski með skilríkjum,
greiðslukortum, peningum o.fl.
Dagbók LR helgina 17.–20. jan. 2003
Mikið um áflog og ölvun
Þorrablót Vals verður haldið í fé-
lagsheimilinu á Hlíðarenda laug-
ardaginn 25. janúar, húsið opnað
kl.19. Boðið verður upp á þorramat
og skemmtun. Miðapantanir í Vals-
heimilinu í síma eða á netfangi
sveinn@valur.is
Á NÆSTUNNI
Styrkir úr
Letter-
stedska
sjóðnum
LETTERSTEDTSKI sjóðurinn
hefur það hlutverk að styrkja nor-
rænt samstarf og samstarf við
Eystrasaltsríkin á sviði rannsókna,
lista, vísinda og fræða. Íslands-
deild sjóðsins auglýsir eftir um-
sóknum um styrki úr sjóðnum árið
2003 og er umsóknarfrestur til 15.
febrúar nk.
Ekki er um eiginlega náms-
styrki að ræða, heldur koma þeir
einir til greina, sem lokið hafa
námi og hyggja á frekari rann-
sóknir eða þekkingaleit á starfs-
sviði sínu, svo sem við rannsóknir
á vísinda- eða fræðastofnun eða
með þátttöku í fundum eða ráð-
stefnum.
Athygli er vakin á að aðalstjórn
sjóðsins veitir einnig styrki til ráð-
stefnuhalds, útgáfu rita, norræns
samstarfs á sviði lista og til rann-
sókna á norrænu samstarfi. Frek-
ari uppl. eru á heimasíðu sjóðsins:
www.letterstedtska.org.
Styrkir eru einungis veittir til
ferða milli norrænu landanna og
Eystrasaltsríkjanna, en hvorki til
ferða innan landanna né til uppi-
halds.
Umsóknir með greinargóðum
upplýsingum um tilgang fararinn-
ar skal senda til ritara Íslands-
deildar Letterstedska sjóðsins,
Snjólaugar G. Ólafsdóttur, Vest-
urbrún 36, 104 Reykjavík, fyrir 15.
febrúar nk.
FEF veitir
námsstyrki
FÉLAG einstæðra foreldra auglýsir
eftir umsóknum um námsstyrki úr
námssjóði Félags einstæðra for-
eldra. Námssjóðurinn var stofnaður
með framlagi frá Rauða krossi Ís-
lands árið 1995 og úthlutanir fara
fram tvisvar á ári á vor- og haustönn.
Styrkirnir eru ætlaður einstæðum
foreldrum sem stunda bóknám,
verknám eða nám í listgreinum.
Markmið styrkjanna er að bæta
stöðu einstæðra foreldra á vinnu-
markaði. Styrkurinn er fyrst og
fremst ætlaður þeim sem ekki njóta
námslána hjá Lánasjóði íslenskra
námsmanna eða annarra styrkja.
Allir félagsmenn í Félagi einstæðra
foreldra árið 2003 geta sótt um
styrk. Fjárhagsstaða, félagslegar
aðstæður og vottorð frá skóla eru
lögð til grundvallar styrkveitingum.
Umsóknareyðublöð liggja fyrir á
skrifstofu Félags einstæðra foreldra
og á heimasíðu félagsins fef.is. Þeir
félagsmenn sem búa á Reyjavíkur-
svæðinu komi á skrifstofu með um-
sóknir en þeim sem búa úti á landi er
bent á að þeir geta sent fax (562-
8270) til skrifstofu félagsins eða haft
samband við Skrifstofu félagsins í
síma eða netfang félagsins fef@fef.-
is. Umsóknarfrestur er til 3. febrúar,
segir í fréttatilkynningu.
Mótmæla
hækkunum
í heilbrigðis-
þjónustu
„STJÓRNARFUNDUR Bárunnar,
stéttarfélags haldinn 13. janúar sl.
mótmælir harðlega þeim hækkunum
sem boðaðar hafa verið í heilbrigð-
isþjónustunni. Slíkar hækkanir bitna
verst á öryrkjum, barnafjölskyldum
og þeim sem minnst mega sín.
Þá telur stjórn Bárunnar að með
þessum hækkunum sé hið opinbera
að eyðileggja þá vinnu og viðleitni
sem Alþýðusamband Íslands og
Samtök atvinnulífsins hafa lagt fram
við að halda verðlagi í skefjum,“ seg-
ir í frétt frá Bárunni stéttarfélagi.
LEIÐRÉTT
Rangur fæðingardagur
Í formála minningargreina um
Boga Ólafsson á blaðsíðu 29 í Morg-
unblaðinu fimmtudaginn 16. janúar
síðastliðinn var rangt farið með fæð-
ingardag hins látna. Bogi fæddist á
Hofsstöðum í Álftaneshreppi í Mýra-
sýslu 1. nóvember 1910.
Clyne Castle
Í umfjöllun síðastliðinn laugardag
um strand togarans Clyne Castle á
Bakkafjöru í Öræfum 1919 er sagt
frá því að Jóhann Hansson á Seyð-
isfirði hafi keypt skipið og reynt að
bjarga því. Þess var ekki getið að
Valdór Bóasson, sjómaður og út-
vegsbóndi á Hrúteyri við Reyðar-
fjörð, var meðeigandi Jóhanns að
togaranum og stóð einnig að björg-
uninni. Hlutaðeigandi eru beðnir vel-
virðingar á þessum mistökum.