Morgunblaðið - 21.01.2003, Side 44
ÍÞRÓTTIR
44 ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
HEINER Brand, landsliðsþjálfari
Þýskalands, var ánægður með léttan
sigur á Kvatar í gær, 40:17. Hann
var aftur á móti ekki ánægður með
hvað fáir áhorfendur voru á leiknum,
innan við hundrað.
ÞJÓÐVERJAR voru byrjaðir að
hugsa um nýtt markamet á HM í
fyrri hálfleiknum. Stærsti sigur
þeirra á HM er 46:4 gegn Lúxem-
borg 1958 og á HM í Frakklandi
2001 lögðu þeir Grænlendinga að
velli með 31 marks mun, 39:8. Þeir
gáfu eftir er líða tók á leikinn gegn
Kvatar.
STEFAN Bater, formaður hand-
knattleikssambands Nýja-Suður-
Wales, er einn af leikmönnum Ástr-
alíu.
ÍSENSKU leikmennirnir settu
met ofan á met í leiknum gegn Ástr-
alíu. Þeir skorðu 32 mörk úr hraða-
upphlaupum, sem er nýtt HM-met.
Þeir Guðjón Valur Sigurðsson og
Heiðmar Felixson fóru fremstir í
flokki að geysast fram völlinn og
skora, auk þess sem þeir skoruðu
bróðurpartinn af 10 mörkum sem ís-
lenska liðið skoraði úr horni.
ÍSLENSKU leikmennirnir skor-
uðu aðeins þrjú mörk með langskot-
um, sem þætti saga til næsta bæjar í
landsleik, þar sem 55 mörk eru skor-
uð.
MÖRK Íslands gegn Ástralíu
skoruðu þessir leikmenn: Guðjón
Valur Sigurðsson 14, Heiðmar Fel-
ixsson 10, Róbert Sigfússon 5, Pat-
rekur Jóhannesson 4/2, Sigfús Sig-
urðsson 4, Einar Örn Jónsson 4,
Dagur Sigurðsson 3, Sigurður
Bjarnason 3, Aron Kristjánsson 3,
Gústaf Bjarnason 3, Rúnar Sig-
tryggsson 1, Ólafur Stefánsson 1/1.
TAP Króata fyrir Argentínu-
mönnum vakti geysilega athygli.
Króatar gáfu leikinn frá sér undir
lokin, en þeir höfðu yfir í leikhléi,
18:13. Þulur króatíska sjónvarpsins,
sem lýsti leiknum hrópaði stöðugt í
leikslok: Hneyksli, hneyksli ...
BIRGITTA Þura Birgisdóttir úr
Keilufélagi Akraness setti Íslands-
met í stúlknaflokki um sl. helgi í
parakeppni sem fram fór í Reykja-
vík. Birgitta náði 945 stigum í 6
leikjum en gamla metið var 784 stig.
Hún bætti einnig Íslandsmetið í 5
leikjum er hún náði 784 stigum en
gamla metið var 698 stig.
FÓLK
GUÐJÓN Valur Sig-
urðsson skoraði 14
mörk í leiknum gegn
Ástralíu, sem er met
hjá íslenskum leik-
manni á HM. Valdimar
Gímsson átti gamla
metið – hann skoraði
11/3 mörk í leik gegn
Júgóslavíu á HM í
Kumamoto 1997, í leik
sem Ísland vann, 27:18.
Sigurður Valur
Sveinsson skoraði 10 mörk í leik
gegn Ungverjum á HM í Svíþjóð
1993, sem Ísland vann 25:21.
Kristján Arason skoraði 10 mörk í
leik gegn Suður-Kóreu á HM í Sviss
1986, í leik sem S-Kórea vann 29:21.
Guðjón Valur, sem hefur tvsivar
áður skorað meira en tíu mörk í leik
– fyrst 10 gegn Bandaríkjunum
2001, 32:16, og síðan 11
mörk gegn Króatíu í
byrjun janúar í Kapla-
krika, 37:29, skoraði
ekkert af mörkum sín-
um í gærkvöldi úr víta-
kasti. Heiðmar Fel-
ixson rauf einnig tíu
marka múrinn, er hann
skoraði 10 mörk í gær-
kvöldi, ekkert úr víta-
kasti.
Heiðmar er 25. lands-
liðsmaðurinn til að skora 10 mörk
eða meira í landsleik og aðeins einu
sinni áður hafa tveir leikmenn Ís-
lands náð að skora meira en tíu
mörk í sama landsleiknum. Það
voru þeir Axel Axelsson, 13 mörk,
og Geir Hallsteinsson, 10 mörk, í
leik gegn Frökkum 1973, í und-
ankeppni HM, 28:15.
Ekki er hægt að segja að leikurÍslands og Ástralíu hafi verið
hágæðaleikur – yfirburðir Íslend-
inga voru það miklir gegn Áströlum,
sem kunna lítið fyrir sér í íþróttinni.
Þegar þeir léku fyrst á HM í
Egyptalandi 1999 töpuðu þeir stórt
fyrir Svíum, 49:17. Síðan þá hafa
þeir ekki tekið framförum og eiga
margt eftir ólært í göldrum hand-
knattleiksíþróttarinnar.
Það sáu hinir fáu áhorfendur sem
voru í nýrri íþróttahöll í Viseu, því
að það tók Ástrala þrettán mín. að
koma knettinum fram hjá Guð-
mundi Hrafnkelssyni, markverði Ís-
lendinga, sem skoruðu fyrstu tíu
mörk leiksins, 10:0. Þá var strax
ljóst hvað væri í uppsiglingu. Guð-
mundur Þ. Guðmundsson, þjálfari
íslenska liðsins, leyfði sér þann
munað að hvíla öflugustu skytturnar
sínar – Ólaf Stefánsson, Patrek Jó-
hannesson og Sigurð Bjarnason í
fyrri hálfleik. Þeir sátu á vara-
mannabekknum og skemmtu sér við
að sjá félaga sína skora hvert mark-
ið á fætur öðru eftir hraðaupphlaup,
eftir að Ástralar höfðu misst knött-
inn oft klaufalega í sókn, en sókn-
arleikur þeirra var afar einhæfur –
hornamenn ekki notaðir, aðeins
hnoðast á miðjunni. Það mátti sjá
markverði Íslands hreinlega grípa
langskot þeirra, sem voru oft mátt-
laus. Staðan í leikhléi var 23:6 og
einstefna hélt áfram í seinni hálf-
leik, lokatölur 55:15.
Áður höfðu Þjóðverjar skellt Kat-
arbúum 40:17, eftir að þeir fóru að
gefa eftir er þeir voru búnir að ná
18 marka mun, 27:9.
Portúgalar lögðu síðan Grænlend-
inga 34:19. Úrslit voru eftir bókinni
og sorglegt að sjá að leikið er á HM
fyrir framan innan við hundrað
áhorfendur. Af 15 leikjum í B-riðli
eru aðeins þrír leikir sem koma til
með að vera skemmtilegir; leikir
Þýskalands - Portúgals, Portúgals -
Íslands og Íslands - Þýskalands.
Uppákomurnar sem sáust í leikj-
unum í Viseu eru ekki til að auka
virðingu fyrir handknattleik. Þjóðir
eins og Kvatar og Ástralía hafa ekk-
ert að gera á HM og sorglegt að sjá
í heimsmeistarakeppni landslið, sem
geta lítið sem ekkert í íþróttinni. Á
sama tíma eru landslið á borð við
Sviss og Noreg heima.
AP
Guðjón Valur Sigurðsson skorar eitt af fjórtán mörkum sínum – sendir knöttinn
fram hjá Vermon Cheung, markverði Ástralíu.
Íslendingar settu
heimsmet í Viseu
ÍSLENDINGAR sýndu algjöra yfirburði þegar þeir skelltu Áströlum
með fjörutíu marka mun í Viseu á heimsmeistaramótinu í hand-
knattleik í Portúgal, 55:15. Þar með settu leikmenn íslenska liðsins
heimsmet í markaskorun, en aldrei áður hefur lið náð að skora 55
mörk í leik á HM, eða nær eitt mark á mínútu. Íslendingar náðu þó
ekki að setja markamet, sem Þjóðverjar eiga síðan 1958 þegar þeir
lögðu Lúxemborgarmenn að velli í Berlín, 46:4, eða með 42 marka
mun. Stærsti sigur Íslands á HM var áður sigur á Bandaríkjunum í
HM í Svíþjóð 1993, 34:19.
Guðjón Valur
setti marka-
met á HM
Heiðmar Felixson
SIGURÐUR Bjarnason skoraði 300. mark sitt með
landsliðinu í sigurleiknum gegn Ástralíumönnum – í
sínum 150. landsleik. Sigurður lék sinn fyrsta lands-
leik gegn Tékkóslóvakíu á móti í Bratislava í Tékkó-
slóvakíu 1989 og skoraði hann sín fyrstu mörk í leik
gegn Túnis á mótinu – sex í leik sem Ísland vann,
25:15.
Sigurður með
300 mörk
6*# 4#* 26*# 4#* 2
++
,"
33
45
(
;
"+
,"
/
6
/
! ,
7
7
/
6
7
89
:89
$
$9
;
6
7
7
ARGENTÍNA kom gríðarlega á
óvart á HM í handknattleik í gær er
liðið vann Króatíu 29:30. Liðin eru í
C-riðli keppninnar sem fer fram á
Madeira, eyjunni norður af Kan-
aríeyjum. Íslenska dómaraparið
Gunnar Viðarsson og Stefán Arn-
aldsson dæmdu leikinn og sagði
Gunnar að Króatar hefðu verið
slegnir útaf laginu í síðari hálfleik.
„Króatar voru með undirtökin allt
þar til að um stundarfjórðungur
var eftir af leiknum, þá sýndu Arg-
entínumenn hvað í þeim býr. Þeir
börðust mun betur og ég held að
Króatar hafi sofnað á verðinum.
Argentína var með knöttinn í stöð-
unni 29:30 og voru nær því að bæta
við marki en Króatar að jafna. Þeir
fögnuðu líka eins og þeir hefðu
unnið mótið nú þegar enda er Arg-
entína hvorki stórt né þekkt nafn í
handboltaheiminum.“ Aðspurður
sagði Gunnar að leikurinn hefði
ekki verið erfiður að dæma og
prúðmannlega leikinn. „Króatar
voru ekki ósáttir við okkar störf
enda tel ég að við höfum staðið okk-
ur með ágætum í þessum leik,“
sagði Gunnar.
Argentína skellti Króatíu