Morgunblaðið - 21.01.2003, Qupperneq 45

Morgunblaðið - 21.01.2003, Qupperneq 45
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 2003 A 45  FORRÁÐAMENN enska liðsins Liverpool hafa staðfest að tyrkn- eska liðið Galatasaray vilji fá varn- armanninn Abel Xavier að láni út leiktíðina. Hinn þrítugi landsliðs- maður frá Portúgal hefur ekki náð að festa sig í sessi frá því að hann var keyptur frá Everton á sl. leiktíð.  EVERTON hefur leyst kínverska leikmanninn Li Weifeng frá samn- ingi sínum við félagið en hinn 24 ára gamli varnarmaður fór í desember til Kína til þess að láta laga nefbrot. Forráðamenn Everton sögðu í gær að leikmaðurinn hafi ekki náð að að- lagast nógu vel á Englandi og hafi sjálfur óskað eftir því að fá að leika á ný með liðinu Shanzhen Jian Lia Bao í Kína.  BOLTON Wanderers tilkynnti í gær að félagið hafi orðið við ósk framherjans Michael Ricketts, þess efnis að hann yrði settur á sölulista hjá félaginu. Hinn 24 ára gamli Ricketts hefur verið í herbúðum Bolton frá því að hann var keyptur frá Walsall árið 2000 fyrir um 53 milljónir ísl. kr. en Bolton vill fá um 530 milljónir fyrir kappann.  ANNIKA Sörenstam frá Svíþjóð er besti kvenkylfingur veraldar og náði besta árangri á mótaröð at- vinnukvenna í 40 ára sögu keppn- innar á sl. keppnistímabili en sænskir íþróttasérfræðingar hafa hinsvegar ekki útnefnt hana í hóp þeirra sem koma til greina sem íþróttakona ársins.  SÆNSKIR íþróttafréttamenn út- nefndu Sörenstam sem íþróttkonu ársins á dögunum en í þessu kjöri er það sérstök dómnefnd sérfræðinga sem stendur að kjörinu. Sörenstam segir sjálf að hún sé ósátt við þessa niðurstöðu enda geti hún vart bætt árangurinn hún sem náði á sl. keppnistímabili.  SVISSNESKA knattspyrnuliðið Wil, sem er sem stendur í fjórða sæti efstu deildar þar í landi, fékk í gær leyfi til þess að taka þátt í deildarkeppninni út leiktíðina eftir að forráðamenn liðsins gátu sýnt fram á að félagið hefði nægt fjár- magn til áframhaldandi reksturs. Stuðningsmenn liðsins, fyrirtæki sem og leikmenn, öngluðu saman tæplega 30 millj. ísl. kr. til þess að bæta fjárhag liðsins.  FORRÁÐAMENN Tottenham hafa gefið West Ham leyfi til að ræða við Les Ferdinand, sem er 36 ára, en hann hefur misst sæti sitt hjá Tottenham til Robbie Keane. Ferdinand kom til Lundúnaliðsins 1997 frá Newcastle á sex millj. punda og skoraði hann fimmtán mörk í 33 leikjum sl. keppnistímabil, en hefur aðeins byrjað inná í fimm leikjum í vetur – skorað tvö mörk.  STEVE Bruce, knattspyrnustjóri Birmingham, vonast til að geta gengið frá því að miðjumaðurinn Piotr Swierczewski, fyrirliði pólska landsliðsins, komi til liðsins frá franska liðinu Marseille í dag. Bruce vill fá hann að láni út keppn- istímabilið.  ÞÁ hefur Bruce kallað á Robert Vittek, miðherja Slóvakíu, til æf- inga á ný hjá liðinu. Hann hefur hug á að fá hann að láni frá Slovan Brat- islava út keppnistímabilið.  TYRKNESKA liðið Galatasaray vill fá portúgalska varnarmanninn Abel Xavier að láni út keppnistíma- bilið. Xavier, sem Liverpool keypti frá Everton, hefur ekki náð að festa sér í sessi hjá liðinu í vetur.  KÍNVERSKI leikmaðurinn Li Weifeng er farinn frá Everton, eftir að ljóst var að hann myndi ekki komast í liðið. Þessi 24 ára varn- armaður, sem fór til Kína um fyrir áramót, er hann nefbrotnaði, mun ekki koma til Goodison Park á ný.  ALEX Ferguson, knattspyrnu- stjóri Manchester United, er mjög spenntur fyrir James Beattie, mið- herja Southampton, sem er metinn á 12 millj. punda. FÓLK Olson segir að þjóðirnar þrjárhafi keyptu sér allar þátttöku- réttinn á HM. „Sádi-Arabar borguðu Suður-Kórumönnum fyrir að stilla ekki upp sínu sterkasta liði gegn sér í riðlakeppninni,“ segir Olsson, en Sádi-Arabar unnu þann leik með nægilegum markamun til að komast í undanúrslitin á kostnað Japana. Einkennileg úrslit litu dagsins ljós í úrslitunum um HM-sætin, Katar vann Suður-Kóreu með 15 marka mun og Sádi-Arabía vann síðan Suð- ur-Kóreu í úrslitaleik um þriðja sæt- ið og þar með þátttökurétt í Portú- gal. Olsson stýrði liði Sádi-Araba í heimsmeistarakeppninni í Frakk- landi fyrir tveimur árum. „Á þeim tíma var allt í lagi hjá okkur. Við vor- um bestir í Asíu, að Suður-Kóreu undanskilinni, og unnum okkur keppnisréttinn verðskuldað,“ segir Olsson. Hann hætti að þeirri keppni lokinni þegar í ljós kom að Sádarnir hefðu lítinn áhuga á að leggja hart að sér við að bæta lið sitt og ætluðu sér að komast á HM með öðrum leiðum. Samkvæmt Aftonbladet er upp- lýsingaráðherra Kúveit, furstinn Ahmed Al-Fahad Al-Sabah, maður- inn sem stjórnar handknattleiknum í Asíu, innan vallar og utan, en hann er jafnframt ráðandi afl í asíska handknattleikssambandinu. Furst- inn er einnig sagður vera maðurinn sem beri mesta ábyrgð á því að Tún- is hreppti heimsmeistarakeppnina árið 2005 en ekki Þýskaland og olli með því alvarlegum klofningi innan Alþjóðahandknattleikssambandsins. Olle Olsson, fyrrverandi þjálfari Sádi-Araba Arabaþjóðirnar keyptu HM-sætin OLLE Olsson, fyrrverandi landsliðsþjálfari Sádi-Araba í handknatt- leik, fullyrðir að arabaþjóðirnar þrjár sem taka þátt í HM í Portúgal, Sádi-Arabía, Kúveit og Katar, hafi komist þangað með mútu- greiðslum. Það sé ástæða þess að sterkustu handknattleiksþjóðir Asíu, Suður-Kórea og Japan, séu ekki með í keppninni að þessu sinni. Olsson sagði þetta í samtali við sænska dagblaðið Af- tonbladet. Sigurður skoraði fimmtugastamark Íslands úr hraðaupp- hlaupi, 50:13, það var jafnframt 300. mark hans í landsleik eins og getið er um annarsstaðar. Svíar voru áður næst því að rjúfa fimmtíu marka múrinn. Það var þegar þeir lögðu Ástralíumenn að velli í HM í Egypta- landi 1999, 49:17. Sigurður er nú að leika í sinni ann- arri HM en hann var með í Svíþjóð 1995. Þá lék hann 5leiki og skoraði sjö mörk. Sigurður var ekki valinn til að leika í HM 1995 á Íslandi, 1997 í Kumamoto og 2001 í Frakklandi. Gústaf ekki nefbrotinn Gústaf Bjarnason, hornamaður ís- lenska landsliðsins í handknattleik, hóf leikinn gegn Ástralíu í Viseu í gær og skoraði alls þrjú mörk í leikn- um. Hann varð hins vegar fyrir því óláni að fá högg á nefið um miðjan fyrri hálfleik og blæddi hressilega úr. „Ég er ekki nefbrotinn en það blæddi það mikið á eftir þannig að ég gat ekki farið inn á aftur. Það var bara troðið í nasirnar bómull til þess að stöðva blæðinguna og ég horfði á það sem eftir var. Það er ekki mikið um leikinn að segja. Yfirburðir okk- ar voru miklir og nú tekur við næsta verkefni gegn Grænlendingum og ég verð tilbúinn í slaginn í þann leik,“ sagði Gústaf í gærkvöld. Sigurður gerði sögulegt mark SIGURÐUR Bjarnason, lands- liðsmaður í handknattleik og leikmaður með þýska liðinu Watzlar, skoraði afar sögulegt mark gegn Ástralíu. Hann var fyrsti leikmaðurinn í sögu HM til að skora fimmtugasta mark fyrir landslið í leik. Morgunblaðið/Sverrir Róbert Sighvatsson, línumaðurinn sterki, skoraði 1.400. HM- mark Íslands, þegar hann skoraði 25. markið gegn Ástralíu, 25:6, eftir línusendingu frá Degi Sigurðssyni.         /. & 0   1  /2  ! 34 5 *4  1  /2  ! 34 5 *4  ! 34 5 *4  5  5   5  5   5 4 3 5 4 3  6 4  7  -)6  6868  &  &   5   -)4  5   -)4  5  9  :  * ; %<  3 &<) &) 3+6 * 1 <  =  -  3 2 4  =  -  3 &> *-  4 &*?-. @>. . * 2 4  A. 3 B  3 @>. . *      #C     #C   #C : 7 / /55 /55 /55 /556 /557 /557 /55 /543 /543 /5 /5 /53/ /564    D4  / / 7 / / / / 5 4  3 6 7 / / Sigurður Bjarnason skoraði sögulegt mark á HM. GUÐMUNDUR Þ. Guð- mundsson landsliðsþjálfari tilkynnti í gærmorgun um 15 leikmenn sem hann hyggst nota á heimsmeistaramótinu, en fyrir mótið verður hvert land að tilkynna formlega til mótsstjórnar hvaða leikmenn það ætlar að nota. Alls má hvert landslið tefla fram 16 leikmönnum. Snorri Steinn Guðjónsson var sá eini úr ís- lenska hópnum sem ekki var tilkynntur til mótsstjórnar í gær. Guðmundur hyggst halda einu sæti opnu fram eftir móti og að öllu for- fallalausu má reikna með að hann kalli Snorra Stein inn í hópinn þegar á mótið líður nema meiðsli markvarða komi upp á, þá verður feng- inn markmaður frá Íslandi og mun Birkir Ívar Guð- mundsson, Haukum, vera í startholunum. Snorri Steinn bíður LJÓSIN í hinni nýju íþrótta- höll í Viseu í Portúgal gáfu sig þegar Guðjón Valur Sigurðs- son skoraði 45:13 þegar 8,30 mín. voru til leiksloka. Þau komu ekki aftur á fyrr en eftir 32 mínútur. Ástæðan fyrir því að ljósin gáfu sig er talin sú að skammhlaup hafi orðið vegna mikilla rigninga sem hafa ver- ið í Portúgal.. Ljósin gáfu sig í Viseu

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.