Morgunblaðið - 01.02.2003, Blaðsíða 41
Bob Hansen frá Bandaríkjunum
kynnir nýjungar frá Apollo
mánudaginn 3. og þriðjudaginn
4. febrúar. Af því tilefni erum
við með sérstakt tilboð þessa daga.
POTTÞÉTT MEIRA HÁR!
Hárþynning er vandamál
-og þú er ekki ein um það
Hringbraut 119
Tímapantanir
í síma
552-2099
SKOÐUN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. FEBRÚAR 2003 41
Í VIÐTALI einhvers fjölmiðils við
þig kom fram að þú teldir að stefna
Samfylkingar í sjávarútvegsmálum
væri hin sama og Frjálslynda flokks-
ins.
Þetta er mikill misskilningur,
raunar grundvallar misskilningur.
Ég mun í orðsendingu þessari upp-
lýsa þig um stöðu mála hjá Samfylk-
ingu eins og ég veit hana réttasta.
Muntu þá væntanlega sjá að þú átt
verk að vinna að sveigja stefnu þeirr-
ar fylkingar inn á þína ákveðnu braut
í útvegsmálum, sem margoft hefir
fram komið í einörðum skrifum þín-
um og á fulla samleið með stefnu
Frjálslynda flokksins.
Það verður að segja hverja sögu
eins og hún gengur. Satt bezt að
segja hefir þeim flokkum, sem sam-
einuðust í Samfylkingu, gengið ákaf-
lega illa að samræma sjónarmið sín.
Það má kannski kalla flimtan, þegar
kallsað er með að þessi nýi flokkur sé
rótklofinn í flestum málum sem máli
skipta. Ekki tvíklofinn heldur þríklof-
inn lengstum. Og sá góði og geðugi
drengur, Össur, hefir af kappi stritað
við að standa samtímis í þrjá fætur –
en gengið misjafnlega sem vonlegt
er.
Raunalegt var t.d. að sjá afstöðu
nýju hjáleigunnar þinnar í deCode-
málinu. Þar stóð Össur í einn fót og
greiddi götu glapræðisins með hjá-
setu. Hinir tveir hlupu útundan sér:
Annar andvígur en hinn flúði á dyr
við afgreiðslu málsins í alþingi.
Og þá að aðalefni orðsendingar:
Það hefir áður margsinnis komið
fram að við erum fullkomlega sam-
mála um svikabrögð stjórnarflokk-
anna, sem forysta Sjálfstæðisflokks-
ins átti frumkvæði að, að lýsa sáttfýsi
í sjávarútvegsmálum fyrir kosning-
arnar 1999. Það hefir einnig komið
fram álit okkar á því hvernig svika-
leiðin var þrædd með skipan hinnar
svonefndu Auðlindanefndar.
Ég leyfi mér að vitna í grein þína í
Morgunblaðinu 30. sept. 2001:
,,Nefndin góða sem ríkisstjórnin
skipaði til að finna sættir um fisk-
veiðistjórnina, hefur lokið störfum.
Ekki náðist samkomulag í nefndinni
og meirihluti hennar leggur til að
tekið verði upp auðlindagjald, mála-
myndagjald upp á einn milljarð, enda
verði felld niður gjöld á móti, nokk-
urn veginn sem því nemur. Og svo er
þeim gert að greiða hálfan milljarð til
viðbótar ef afkoman leyfir! Má ég
minna á að samanlagt er kvótinn
metinn á þrjú hundruð milljarða.
Ef þetta verður niðurstaðan og rík-
isstjórnin og sjávarútvegsráðherra
gegna tillögum meirihluta nefndar-
innar, er ljóst, að engar sættir hafa
náðst, enginn friður er fyrirsjáanleg-
ur, og engin málamiðlun eru uppi á
borðinu hjá þeim ráðamönnum sem
settu nefndina á laggirnar og töluðu
til þjóðarinnar í sáttatón.
Mér er nær að fullyrða að þessi
málalok flokkist undir ögrun gagn-
vart þjóðarviljanum og hagsmunum
heildarinnar. Hún er móðgun og
brigð á loforðum sem gefin voru fyrir
síðustu alþingiskosningar, þess efnis
að koma til móts við þá kröfu og þann
vilja íslensku þjóðarinnar að fiskur-
inn í sjónum væri ekki gefinn ókeypis
til nokkurra útvaldra einstaklinga og
fyrirtækja; að hann væri ekki hafður
að féþúfu sérhagsmuna; að hann væri
ekki einkaeign lénsherra og sæ-
greifa.
Afkomutengt auðlindagjald er
kattarþvottur. Yfirklór.“
Undir nefndarálitið, sem þú ert
þarna að vitna til, skrifuðu allir þrír
þingmenn Samfylkingar, sem sæti
áttu í Auðlindanefnd – fyrirvaralaust.
Var þó augljóst af fyrirvörum fulltrúa
sægreifanna hvor leiðin yrði valin,
auðlindagjaldið afkomutengda, sem
þú lýsir svo vel eða fyrning veiði-
heimilda.
Aðeins þrír þingmenn Samfylking-
ar hafa haft afstöðu í fiskveiðistjórn-
unarmálinu, sem einsýnt er að okkur
tveim er að skapi, Jóhann Ársælsson,
Karl Matthíasson og Gísli Einarsson.
Enda er fylkingin að losa sig við hina
tvo síðarnefndu af þingi.
Greinarhöfundur hefir það eftir
manni nákomnum Sighvati Björg-
vinssyni að Sighvatur hafi sagt af sér
þingmennsku, af því sem honum hafi
sýnzt örlög Vestfjarða ráðin, þar sem
borin von virtist að gereyðingarvopni
kvótakerfisins yrði bægt frá kjör-
dæmi hans. Mun tvískinnungur – eða
öllu heldur þrískinnungur – hins nýja
þingflokks Samfylkingar í málinu
hafa ýtt undir ákvörðun hans öðru
fremur.
Fyrir einarða baráttu þremenn-
inganna var ofin værðarvoð að breiða
yfir tvískinnunginn. Fyrningarleiðin
skyldi valin og hún nái fram að ganga
á 20 – tuttugu – árum!
Svo harkalega láta nú lénsherrar
greipar sópa um auðlind okkar, að við
getum séð í hendi okkar hvernig fara
muni á aldarfimmtungi!
Aðalerindi mitt raunar, með þessu
tilskrifi, er að vekja athygli þína á
hver mestu ræður í Samfylkingu um
afstöðu til auðlindamála. Sá heitir
Ágúst Einarsson, hinn sami sem fékk
gefins hinn svonefnda skipstjóra-
kvóta um árið, metinn á tæpa 3 – þrjá
– milljarða króna, enda á nú greifinn
um 20% í Granda hf. sem er á fullu
skriði að leggja undir sig þriðjung
fiskveiðiheimilda þjóðarinnar á móti
Eimskipi og Samherja.
Eftir landsfund Sjálfstæðisflokks-
ins í október 2001, birtist eftirfarandi
á vefsíðu Ágústs, og einnig í Frétta-
blaðinu 16. október undir fyrirsögn-
inni: ,,Merk tíðindi af landsfundi
Sjálfstæðisflokksins“. Þar segir hinn
nýi sessunautur þinn í þjóðmálum
m.a.:
,,Yfirgnæfandi stuðningur Sjálf-
stæðisflokksins við veiðileyfagjald
eru stórmerk tíðindi en flokkurinn
hefur tafið framgang þess í mörg ár.
Þetta er langmikilvægasta ákvörðun
landsfundarins og í vetur verða því
afgreidd lög á Alþingi um að taka upp
veiðileyfagjald. Það hillir einnig í
lausn gagnvart smábátum. Það var
snjallt á landsfundinum að láta málin
ganga skýrt til atkvæða þannig að af-
dráttarlaus niðurstaða fékkst. Minni-
hlutinn verður að sætta sig við hlut-
skipti sitt þótt baráttan haldi áfram
en þetta er dæmi um góð lýðræðisleg
vinnubrögð. Hins vegar hefði verið
miklu betra fyrir alla ef þessi niður-
staða hefði fengist fyrir nokkrum ár-
um …“
Þá veiztu það. Þarna talar einn af
valdamestu mönnum Samfylkingar,
sem greiðir helftina af herkostnaði
flokksins, m.a. kostnað við framboð
þitt í Reykjavík norður. Ágúst er ný-
stiginn niður úr stól formanns fram-
kvæmdastjórnar Samfylkingarinnar
og mun náðarsamlegast hafa leyft
flokknum að veifa 20 ára fyrningar-
flagginu. Þegar sett höfðu verið lögin
um auðlindagjald skrifaði Ágúst
kvótagreifi: ,,Ríkisstjórnin hefur tek-
ið deiluna um sjávarútvegsmál út af
dagskrá.“
Í hinni áður áminnztu grein þinni
segir þú í lok hennar:
,,Nú bendir hinsvegar flest til þess
að hinn ráðandi meirihluti á Alþingi
ætli sér að ulla framan í okkur,
hundsa með öllu þá biðlund og bón,
að bragarbót verði gerð sem dugi. Af-
komutengt auðlindagjald! Ef þetta er
svarið, ef þetta verður sáttatilboðið,
þá er það lítilsvirðing og létt spaug,
sem ekki er hægt annað en að hlæja
við, ef manni væri hlátur í hug.
En þetta er ekkert aðhlátursefni.
Því miður.“
Vegna drengilegrar afstöðu þinnar
til fiskveiðistjórnarfargansins frá
upphafi set ég allt mitt traust á þig
sem nýjan áhrifamann í Samfylk-
ingu. Að þér takist að gera hana að
einlægum stuðningsflokki gagnbylt-
ingar í sjávarútvegsmálum, sem ís-
lenzkri þjóð liggur lífið á að hrundið
verði strax af stað. Í því sambandi
þarft þú sérstaklega að vara þig á
Ágústi ullara.
Mundu orð mín: Ef Samfylkingin á
eftir að semja við annan hvorn kvóta-
flokkanna um stjórn landsins, verður
hin yfirborðskennda sjávarútvegs-
stefna þeirra fyrsta málið sem þeir
taka út af dagskrá.
ORÐSENDING TIL
E.B. SCHRAM
Eftir Sverri
Hermannsson
„Aðalerindi
mitt raunar,
með þessu
tilskrifi, er
að vekja at-
hygli þína á hver mestu
ræður í Samfylkingu um
afstöðu til auðlinda-
mála.“
Höfundur er formaður Frjálslynda
flokksins.
DILBERT mbl.is
Gjafavara – matar- og kaffistell .
All ir verðflokkar.
- Gæðavara
Heimsfrægir hönnuðir
m.a. Gianni Versace.
VERSLUNIN
Laugavegi 52, s. 562 4244.
POTTÞÉTT MEIRA HÁR!
Hárþynning er vandamál
-og þú er ekki einn um það
Bob Hansen frá Bandaríkjunum
kynnir nýjungar frá Apollo
mánudaginn 3. og þriðjudaginn
4. febrúar. Af því tilefni erum
við með sérstakt tilboð þessa daga.
Hringbraut 119
Tímapantanir
í síma
552-2099