Morgunblaðið - 02.02.2003, Page 1
SAMSKIP hafa keypt helmings-
hlut í fyrirtækinu T&E ESCO –
Container Lines AS, sem skráð er
í Tallinn í Eistlandi og var áður
rekið undir nafninu Estonian
Shipping Company Ltd. (ESCO).
Samkvæmt upplýsingum frá
Samskipum eru kaupin áfangi í út-
rás Samskipa í austurveg sem
styrkja enn frekar flutningsþjón-
ustu félagsins milli Norður-Evr-
ópu og Eystrasaltsríkjanna, Finn-
lands og Rússlands.
Ársvelta áætluð
um 930 millj.
T&E ESCO – Container Lines
er með fjögur skip í siglingum milli
Eistlands, Finnlands, Svíþjóðar,
Bretlands, Belgíu, Hollands og
Þýskalands og er brottför tvisvar í
viku. Hvert skip rúmar 266 gáma-
einingar og er velta fyrirtækisins á
þessu ári áætluð 12 milljónir
Bandaríkjadala, jafnvirði um 930
milljóna íslenskra króna, en í heild
voru fluttar 41 þúsund gámaein-
ingar á þessari siglingaleið í fyrra.
Helstu viðskiptavinir félagsins
eru önnur skipafélög og flutnings-
miðlanir og er stefnt að enn frek-
ari markaðshlutdeild með hagræð-
ingu og samhæfingu við aðra
starfsemi Samskipa á svæðinu. Al-
þjóðlega skipafyrirtækið Tschudi
& Eitzen Group, sem er með höf-
uðstöðvar í Noregi, er meðeigandi
Samskipa í T&E ESCO – Contain-
er Line.
Samskip kaupa
skipafélag í Eistlandi
Morgunblaðið/Þorkell
STOFNAÐ 1913 31. TBL. 91. ÁRG. SUNNUDAGUR 2. FEBRÚAR 2003 mbl.is
Stríðsótti í
Jórdaníu
Jóhanna Kristjónsdóttir fjallar
um viðhorf almúgans í Amman 12
Gengið um Tókýó með penna
og myndavél Sunnudagur 8
Að bjarga
heiminum
Knáir krakkar eru aðalleikarar
í Njósnakrökkunum Fólk 59
Heillandi
óreiða
BÚIST er við, að Bretar og Bandaríkja-
menn muni leggja á það ofuráherslu á
næstu dögum og vikum að fá ríkin, sem eiga
fulltrúa í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna,
á sitt band í Íraksmálinu. Augljóst er, að
George W. Bush Bandaríkjaforseti opnaði á
nýja ályktun um Írak í viðræðum sínum við
Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, í
fyrradag og víst þykir, að Blair muni beita
sér mest í þessum fortölum.
Blair mun leggja áherslu á þetta á fundi
sínum með Jacques Chirac, forseta Frakk-
lands, á þriðjudag en auk Bretlands og
Bandaríkjanna hafa Frakkland, Kína og
Rússland neitunarvald í öryggisráðinu.
Halda þrjú síðastnefndu ríkin því fram, að
nýja ályktun þurfi til að hefja stríð gegn
Írak og því verði að gefa vopnaeftirlits-
mönnunum meiri tíma.
Átta önnur ríki, sem eiga fulltrúa í örygg-
isráðinu en ekki fastafulltrúa, þar á meðal
Þýskaland, eru sammála þessu og því eru
aðeins fjögur ríki, Bandaríkin, Bretland,
Spánn og Búlgaría, hlynnt tafarlausum
hernaðaraðgerðum.
Breska blaðið The Daily Telegraph sagði
í gær, að meira en 100 breskir og bandarísk-
ir sérsveitamenn hefðu farið frá Jórdaníu
inn í Vestur-Írak til að staðsetja skotmörk
komi til átaka. Írösk dagblöð eru hins vegar
kokhraust og höfðu í gær eftir Saddam
Hussein, forseta Íraks, að þótt Bandaríkja-
menn sendu milljón hermenn til landsins,
yrði þeim öllum slátrað.
Barist um
atkvæði í
öryggisráði
London. AFP.
KVIKMYNDIN Nói albínói eftir Dag
Kára hefur þegar verið seld til sjö Evr-
ópulanda eftir þátttöku sína í kvik-
myndahátíðinni í Rotterdam í vikunni. Í
gærkvöldi, laugardag,
var tilkynnt nið-
urstaða dómnefndar á
Gautaborgarhátíðinni,
helstu kvikmyndahátíð
Norðurlanda, þar sem
Nói albínói keppti um
verðlaun fyrir bestu
norrænu myndina.
Samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins var
myndin talin mjög sigurstrangleg. Fyrr í
vikunni hafði hún unnið til tvennra verð-
launa á Premiers Plans-hátíðinni í
Frakklandi, fyrir bestu mynd og bestu
tónlist, og á föstudag hlaut myndin
áhorfendaverðlaun á hátíðinni í Rotter-
dam.
Að sögn Skúla Malmquist hjá Zik Zak-
kvikmyndum, framleiðanda Nóa albínóa,
hefur myndin verið seld til Frakklands,
Ítalíu, Hollands, Belgíu, Lúxemborgar,
Sviss og Austurríkis og tilboð hafa bor-
ist frá fleiri löndum. Þá var greint frá
því í Kaupmannahöfn í vikunni að
Danska kvikmyndastofnunin hefur
ákveðið að styrkja myndina með 145
þúsund dollara fjárframlagi, eða rúm-
lega ellefu milljónum íslenskra króna.
Nói albínói
seldur til
sjö landa
Dagur Kári
Öðruvísi en/Sunnudagur 1
ÞÆR eru margar áskoranirnar í lífinu og þessi ungi maður hefur tekist
á við eina þeirra. Líklega hafa steinarnir í lítilli tjörn, sem er að finna í
Seljahverfi í Breiðholti, verið of freistandi til að sleppa því að reyna sig
á þeim og virðist piltinum bara ganga ágætlega að hoppa á milli þeirra.
Það er þó vissara að fara varlega þar sem snjórinn og hálkan geta
reynst ansi lúmsk og hið minnsta feilspor getur endað með óvæntu baði
í köldum polli. Búast má við að fljótlega leggi tjörnina, því að talsverðu
frosti er spáð í dag um allt land.
Morgunblaðið/Kristinn
Stiklað á steinum
♦ ♦ ♦
„ÞETTA er mjög mikil aukning
miðað við þá starfsemi sem við höf-
um í dag,“ segir Ólafur Ólafsson,
forstjóri Samskipa.
Að sögn hans hefur hið nýja fé-
lag yfir að ráða 45 þúsund gáma-
einingum og að viðbættri þeirri
starfsemi sem Samskip eru með á
þessu svæði verður félagið samtals
með um 60 þúsund gámaeiningar.
„Þetta er mjög ánægjulegt. Við
verðum mjög stórir á þessu svæði.
Við ætlum að samhæfa rekst-
urinn okkar rekstri á þessum
svæðum, það er að segja í Imm-
ingham í Bretlandi, í Hollandi,
Þýskalandi, Danmörku og Rúss-
landi. Og munum við í kjölfarið
setja upp skrifstofu í Belgíu.
Þetta svæði hefur vaxið mjög
mikið að undanförnu og spáð er
áframhaldandi vexti.“
Mikil efling
á starfsemi
okkar